Morgunblaðið - 20.10.1955, Page 1
32 síður (2 blöð)
Frú Bedil Begfrup dhendir frúnaðarbréf siff
Frú Bodil Begtrup, sem nýlega hefur verið skipuð ambassador
Dana á íslancii, afhenti í gær forseta ísiands trúnaðarbréf sitt við
hátíðlega athufn, að viðstöddum utanríkisráðherra. — Myndin hér
að ofan var tekin við það tækifæri, en frú Bodil Begtrup er fyrsti
sendiráðherra Dana. — Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson.
Bjarni Benediktsson rakti firrur
„vinstri" fylkingarinnar sem reynir
með öllu móti að skjóta sér undan
ábyrgð af verkfallsglaprœðinu í fyrra
n--------------□
ýf ÞÓRSHÖFN, 19. okt. — Nýi
sjúkrahússlæknirinn í Klakks
vík Dr. med. Knud Seedorff
hefir nú tekið við embætti
sínu. Læknirinn hefir þó
hvergi fengið inni enn þá.
Nú hafa 11 menn verið
teknir höndum í Klakksvík.
Þeir hafa allir verið fluttir út
á snekkju Iandsstjórnarinnar,
Ternen.
□------------------------D
Með einbeitni og rökfestn geta Sjálfstæðis-
menn hrint svikum rauðliða við þjóðfélagið
Hin magnþrungna rœða dómsmálaráðherra
birtist öll í blaðinu á morgun
VARÐARFUNDURINN í gærkvöldi var mjög fjölsóttur,
svo sem vænta mátti. — Formaður Varðar, Birgir Kjaran
hagfr. setti fundinn. Skýrði hann frá, að með þessum fundi
hæfist fjölþætt vetrarstarfsemi félagsins. Umsóknir um inn-
göngu í félagið höfðu borizt frá um 80 manns.
Að loknum inngangsorðum gaf formaður Bjarna Bene-
diktssyni dómsmálaráðherra orðið. Var umræðuefni hans:
Eru milliliðirnir orsök dýrtíðarinnar?
Ræða ráðherrans verður ekki rakin hér, að neinu ráði,
enda birtist hún öll í blaðinu á morgun.
52 millgónir kxóritt
tll ai$nrgreiðshi
ó iicmlenduin markaö!
§tórf@!ld liækkun vegna verk-
fallsíns — \ eftir að koma niður
i hækkuðum sköttum
rRAM til 16. október eða á fyrstu 914 mánuði ársins hefur
* ríkissjóður greitt verðuppbætur á vörur til sölu innan-
lands að upphæð 31 milljón króna.
En allt útlit er fyrir að frá 16. október til ársloka eða á 214
síðustu mánuðum verði ríkissjóður að láta af hendi rúmlega
20 milljónir króna til víðbótar.
Svo að aíls er áætlað að til niðurgreiðslu á vörum til sölu
innanlands fari á árinu um 52 milljónir króna.
Það vekur sérstakan ugg, hve niðurgreiðslurnar fara stór-
kostlega hækkandi síðari hluta ársins, en eins og allir vita er
það bein afleiðing af verkföllunum s.l. vetur.
Allt bendir til þess að næsta ár verði að greiða hærri verð-
lagsuppbætur en nokkru sinni fyrr. Getur verið að sú tala
nálgist hundrað milljón krónur. Þessa fjárhæð hlýtur ríkis-
sjóður að innheimta með auknum sköttum og er það bein
afleiðing af hinum ábyrgðarlausu verkfallsumbrotum komm-
únista í þjóðfélaginu.
6 FRAMLEIBSLUVÖUUR *-------------------------
Steingrímur Steinþórsson fé-
lagsmálaráðherra upplýsti það í
fyrirspurnatíma í Sameinuðu
þingi í gær að 6 framleiðsluvörur
væru nú greiddar niður af ríkis-
sjóði á innlendum markaði.
> Hér fer á eftir skýrsla ráð-
herrans um verðuppbætur þær
sem ríkissjóður hefur innt af
hfendi fyrst til 16. okt. og síðan
áætluð niðurgreiðsluupphæð til
áramóta.
Smjör:
Til 16. okt. .. 7,1 millj. kr.
Áætl. til ársl. 9,3 — —
Smjörlíki:
1 Til 16. okt. . . 5,1 — —
Áætl. til ársl. 6,7 — —
Saltfiskur:
Til 16. okt. .. 462 þús. kr.
Áætl. til ársl. 900 — —
Kjöt:
Til 16. okt. .. 2,0 millj.kr.
Áætl. til ársl. 3,4 — —
Mjólk:
Til 16. okt. .. 14,9 — —
Áætl. til ársl. 28,0 — —
Kartöflur:
Til 16. okt. .. 1,4 — —
; Áætl. til ársl. 4,0 — —
Framh. á bls. 4
3 bús
PARÍS, 18. okt. — I dag var
skýrt frá því, hversu margir
menn hafa látið lífið í óeirð-
unum í Alsír s.l. hálfan mán-
uð. — Um 3000 menn biðu
bana, þar af um 750 Frakkar.
Þá hafa Frakkar tekið um
2000 Araba höndum. - Reuter.
I err að herfocpn af Edin-
borg sé á móti ráðahagnum
íownsend og Margréf fóru úf saman 5 kvöld í röð
Lundúnum.
MARGRÉT prinsessa og Townsend fóru aftur til Lundúna í gær
og höfðu þá dvalizt saman uppi í sveit frá því fyrir helgi.
Townsend sem nú er 41 árs gamall ók í Renaultbifreiðinni sinni
til Lundúna og var rækilega fylgzt með ferðum hans. Prinsessan
fór litlu síðar til Buckingham-hallar.
Þetta stefnumót prinsessunnar og Townsend hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi og nú eru aftur komnar fram há-
værar raddir um það, að ekki komi til mála, að þau fái að
eigast, einkum vegna þess að Townsend er skilinn frá konu
sinni. Eru þessar raddir nú háværari en nokkru sinni fyrr.
7
NEW YORK, 18. okt. — í dag
fór fram þriðja atkvæða-
greiðslan um sæti í öryggis-
ráðinu. Var koið á milli Fil-
ippseyja og Júgóslavíu og
fengust engin úrslit. Filipps-
eyjar fengu 31 atkvæði og
Júgóslavía 37. — Reuter.
Nasser fer til
Póllands
KAIRÓ, 18. okt. — Nasser for-
sætisráðherra Egyptalands fer
innan skamms til Póllands í boði
pólsku stjórnarinnar. Tilkynning
þessa efnis var gefin út í Kairó
i dag eftir ráðuneytisfund. Eins
og kunnugt er, hefir Nasser
einnig verið boðið til Sovétríkj-
anna. —Reuter.
^AKVORÐUN TEKIN
| Sagt er, að hertoginn af Edin-
! borg sé einn þeirra sem er á móti
því, að ráðahagur takist með
prinsessunni og Townsend, og
hefur það vakið mikla athygli.
Þá er vitað, að konungsfjölskyld-
an er ekki á einu máli um þetta,
og mun hin 83 ára gamla prins-
essa, Maríe-Louise, einkum beita
sér gegn giftingunni. Sennilegt
þykir, að tekin verði ákvörðun í
máli þessu, þegar drottningin
ræðir við Eden forsætisráðherra
á morgun.
EINSDÆMI
En prinsessan mun nú sjálf
hafa tekið ákvörðun. Segja
fréttamenn, að hún hyggist
ganga í berhögg bæði við ríki
og kirkju og láta skeika að
sköpuðu. í fyrrakvöld voru
Frh. á bls. 2.
-AÞÁTTUR
MILLILIÐANNA
Ráðherrann hóf mál sitt með
því að rekja hverjir væru taldir
reka milliliðastarfsemi í þjóðfé-
laginu. Hann bar saman ástandið
í þjóðfélaginu eins og það var
fyrir 100 árum og svo nú en fyrr
meir voru engir milliliðir til. Þá
var verkaskipting engin eða fá-
breytt en almenningur lifði í ýtr-
ustu fátækt. En þegar landsfólk-
ið tók að skipta með sér verk-
um, eins og gerist í siðuðum þjóð-
félögum og alls konar þjónusta
og milliliðastarfsemi innbyrðis
hófst, urðu þáttaskil.
Ráðherrann kom víða við.
Hann benti á þátt hinna ýmsu
milliliða í búskap landsins, starf-
semi ríkisins, bankanna, skipa-
félaganna, samvinnufélaganna,
kaupmannanna og fjölda ann-
arra aðila, sem allir hefðu með
höndum milliliðaþjónustu hver
með sínu móti.
F orsætisráðherrami sann-
iðíð :3
KAUPMANNAHÖFN, 19. okt. —
Forsætisráðherra Danmerkur, H.
C. Hansen vísaði í dag á bug
fullyrðingum Extrablaðsins um
það, að erlendur her komi til
Danmerkur.
Blaðið hefir svarað forsætis-
áðherranum og segir að fullyrð-
ingar hans séu ekki sannfærandi.
Fyrrverandi sjávarútvegsmálaráð
herra, Ree, hefir krafizt þess, að
málið verði rætt á fundum
danska þingsins.
John Hodíak
NEW YORK, 18. okt. — Banda-
ríski kvikmyndaleikarinn John
Hodíak Tézt í dag. Banamein hans
var hjartaslag. Hodíak var að-
eins 41 árs að aldri og var kunn-
ur kvikmyndaleikari. Síðasta
myndin sem hann lék í var Caine
Mutiny.
Hodiak var kvæntur leikkon-
unni Ann Baxter, en þau höfðu
skilið samvistum. —Reuter.
VERZLUNARSTÉTTINNI
KENNT UM IIÁTT VERÐLAG
Nú hefði verið, að undanförntt
gerð hörð hríð að verzlunarstétt-
inni og henni kennt um hátt
vöruverð. En því væri oft gleymt
að kaupmenn væru ekki einir
um að bjóða landsmönnum vör-
ur, heldur væru samvinnufélög-
in stærsti einstaki verzlunaraðil-
I inn. Þau nytu stórfelldra hlunn-
inda fram yfir verzlanir kaup-
manna og ættu því að hafa að-
stöðu til að geta orðið ofan á í
samkeppninni. En sú staðreynd,
! að verzlanir kaupmanna blómg-
uðust, þrátt fyrir betri aðstöðu
keppinautanna sýndi að verzlan-
ir kaupmanna hefðu traust fólks-
ins, enda væri vöruverð þeirra
almennt ekki hærra en hjá fé-
lagsverzlunum.
UNDIRRÓT
DÝRTÍÐARINNAR
Orsakanna til dýrtíðarinnar
væri ekki fyrst og fremst að
leita hjá verzlunarstéttinni þó
reynt væri að skella skuldinni
á hana. Undirrótin væri að
atvinnuvegunum væri ofboð-
ið.
' Kauphækkanir eru knúðar
fram með verkföllum, þó viður-
kennt hafi verið af ráðamönnum
kommúnista og Alþýðuflokks
sumarið 1954 og veturinn 1955,
að höfuðatvinnuvegir okkar
jfengju ekki risið undir þeim
kröfum, sem til þeirra væru
gerðar. Viðleitni til að halda
Frh. á bls. 2.