Morgunblaðið - 30.10.1955, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók
12 árgnogur
248. tbl. — Sunnudagur 30. október 1955
Prentsml8|a MorgunblaSsins
Stöðugt berast fregnir af blóðugum óeirðum í franska Marokkó. Einkum hafa átökin orðið hörð
i Atlasfjöllunum, en þar hafa franskar liðssveitir átt fullt í fangi við að brjóta á bak aftur upp-
reisn Berba-ættflokkanna. En Berbarnir — sem eru miklu fjölmennari — verða oft að lúta í lægra
haldi, þar sem frönsku hermennirnir eru miklu betur vopnum búnir. Á myndinni sést heill hóp-
ur Berba, sem varð að gefast upp fyrir nokkrum frönskum hermönnum.
' >
er fi!7 að ufannkisrá^herrarnir
fiHisf \ faðma í veiz!ummi
LUNDÚNUM, 29. okt.
ID A G voru utanríkisráðherrar f jórveldanna enn á fundi og
þykir stjórnmálafréttarHurum ekki góðar horfur um að sam-
komulag náist. — Molotov utanríkisráðherra Rússa var í forsæti
á fundinum í dag.
í dag var enn rætt um Þýzkalandsmálin og öryggisbandalag
Evrópu. Fulltrúar Vesturveldanna fluttu málamiðlunartillögur en
Molotov tók heldur kuldalega í þær.
VARATILLÖGUR?
Enda þótt lítill árangur hafi
enn orðið á fundum utanríkis-
ráðherranna, telja fréttaritarar
ekki vonlaust um jákvæðan
árangur fundanna. Benda þeir á,
að upp á síðkastið hafi mestur
árangur orðið í veizlum cg af
einkasamtölum fjórveldafulltrú-
anna.
Þá segja þeir og, að svo geti
farið, að Molotov hafi varatil-
lögur upp á vasann, en vilji ekki
leggja þær fram, fyrr en Vest-
urveldin hafa hafnað tillögum
þeim, sem Rússar hafa nú borið
fram.
NÝJAR TILLÖGUR
Stassen, yfirmaður kjarn-
orkumálanefndar Bandaríkj-
anna, kemur til Genfar á
mánudag með nýjar tillögur
í kjarnorku- og afvopnunar-
málum. Ekki er fullvíst um
efni tillagnanna.
H. K. Laxness:
□------------------□
Enn eitt
slysið
ENN varð meiriháttar um-
ferðaslys hér í bænumí gær-
kvöldi um kl. 10, er Buickbíll,
R-8388, sem í voru tveir menn,
ók aftur undir pall vörubíls
austur í Borgartúni, skammt
frá Laugarnesvegi.
Var áreksíurinn mjög harður
cg maður sá, er bílnum ók,1
var meðvitundarlaus er lög-.
regla og sjúkraliðsmenn komu
á vettvang. Var maðurinn
klemmdur á milli stýris og
baksins í stólnum. Hann hafði
lilotið höfuðhögg og var með
áverka á liöfði. Maður sá, er
við hlið hans sat meiddist
einnig nokkuð. Með menn
þessa var farið í slysvarðstof-
una og var verið að búa að
sárum þeirra, er blaðið hafði
siðast fregnir af mönnunum.
□------------------□
fílilm á lofti
LUNDÚNUM, 29. okt.: — Egypsk '
ir hermenn gerðu í dag atlögu að
landamæravörðum ísraelsmanna
á Gazasvæðinu. Ekki varð þó
manníall.
á Hætt er nú við að ófriðnr sé
W ekki langt undan mi’li Egypta
og ísraelsmanna og hafa báðir
dregið mikið lið að landamrsrun-
um. Formælmdi egypzku stjórn-
arinnar sagði í dag, að Egyptar
mundu ekki mimika landarnæra-
lið sitt nema ísraelsmenn gerðu
slíkt hið sama. t
Móbelsverðlauitaveitingin
er mikill heiður
*
fyrir Island
KAUPMANNAHÖFN, 29. okt.: —
Bókaútgáfa Gyldendals hélt í
gærkvöld veizlu til heiðurs Hall-
dóri Kiljan Laxness Nóbelsverð-
launahöfundi á Hótel Angleterre.j
— Skáldið flutti ræðu við það
tækifæri, þar sem hann drap m.a.
á þá álcvörðun íslenzku ríkis-
stjórnarinnar, að Nóbelsverðlaun
hans skyldu undanþegin skatti.
Kvaðst hann mjög ánægður yfir
þessari ákvörðun ríkisstjórnar-
innar og sagði: — Ég hefi aldrei
búizt við því, að sérstök lagasetn-
ing mundi ná til mín eingöngu.
Þessi ákvörðun stjórnarinnar
gleður mig mjög, hélt skáldið
áfram, og sé ég nú betur en
nokkru sinni fyrr, að veiting
Nóbelsverðlaunanna til mín er
mikill heiður fyrir ísland.
Hví lagðist ,,Borg
leyndardómanna" í eyði?
Svarið er e. I. v. að (inna hjá lívíusi.
Aidone (Sikiley).
BANDARÍSKIR fornleifafræðingar vinna nú að því að grafa
gamla borg á Sikiley úr rústum, enda hefur hún geymt leynd-
ardóma sína, moldu orpin, í 22 aldir.
Ekki er vitað um nafn borgar þessarar og hefur hún verið
kölluð „Borg leyndardómanna”. Komið var niður á rústir hennar
á síðustu öld, en hún hefur ekki verið grafin upp fyrr en nú.
Vitað er, að borg þessi vár voldug og rík á sinni tíð og hafði
mikil verzlunarviðskipti við Grikkland.
Á HULDU
Allt er enn á huldu um örlög
borgarinnar og endalok. Er ekki
annað að sjá en hún hafi lagzt í
rúst í einu vettvangi, hvort sem
um má kenna styrjöld eða nátt-
úruhamförum. — Borgin stóð á
miðri eynni á hálendi sem nefnist
Serra Orlando, og var hún því vel
í sveit sett til að verja miðhluta
eyjarinnar ágangi óvina.
LUTU GRÍSKRI STJÓRN
íbúar „Borgar leyndardóm-
anna“ lutu grískri stjórn allt frá
4. öld. f.Kr. Menning þeirra var
áreiðanlega grísk og sennilega
hafa þeir einnig talað grísku,
a. m. k. eru bæði handritabrotin 1
sem fundust í rústunum á því |
máli. — Annars er það m. a. mark i
mið rannsóknanna að svara -
spurningunni um grísk áhrif á
eynni. „
HRINGLAGA TORG
Nú þegar hafa vísindamennirn-
ir grafið upp markaðstorg borg-
arinnar og kom það mönnum á
óvart, að það skyldi vera hring-
laga, eins og tíðkaðist um útileik-
húsin; þá var það einnig með
upphækkaðri sætaröð.
SELDIR MANSALI
Margt þykir benda til þess, að
borgin hafi verið lögð í rúst af
óvígum innrósarher. Rómverski
sagnritarinn Livíus segir, að
nokkrar borgir á Sikiley hafi bar-
izt með Karþagó gegn Róm í ann-
arri púnversku styrjöldinni (á
3ju öld). Bætir hann því við, að
íbúar þeirra hafi verið seldir
mansali eftir ósigurinn. Má vera,
að þetta sé ein orsök þess, að
borgin lagðist í eyði.
ÚRSLIT
URSLIT stúdentaráðskosning-
anna urðu þau að listi Vöku, fé-
lags lýðræðissinnaðra stúdenta,
hlaut 273 atkv. og 4 menn kjörna,
sameiginlegur listi komma, krata
og Þjóðvarnar 249 atkv. og 4
menn kjörna og listi framsóknar-
stúdenta 84 atkv. og einn mann
kjörinn.
Á kjörskrá voru 849 stúdentar
en atkv. greiddu 620. — 14 at-
kvæðaseðlar voru auðir.
OSLÓ, 29. okt.: — í dag afhehti
norski sendiherrann í Aþena
stjórn landsins mótmælaskjal
vegna þess að griskir stúdentar
réðust að sendiráðinu í gær og
gerðu þar ýmis hervirki, brutu
rúður og létu öllum illum látum.
Sharett ræðir við Molotov
nm vopnasölu kommúnista
Rússnesk skip i vopnaflutningum
LUNDÚNUM, 29. okt. — Mose
Sharett forsætisráðherra ísra- j
els, er kominn til Genfar og
hyggst ræða við Molotov um
vopnasölu kommúnista til Ar-'
abaríkjanna. Eins og kunnugt
er, hafa Tékkar aðallega ann-
azt þessa sölu, en rússnesk
skip hafa flutt vopnin til Alex
andríu.
RÆÐIR VIÐ MOLTOV
Sharett hefir rætt við utan-
ríkisráðherra Vesturveldanna
um vopnasöluna, en hefir ekki
enn þá náð tali af Molotov.
I dag var tilkynnt, að Molo-
tov hafi fallizt á að reifa við
hann málin í næstu viku og
hyggst Shareíí áðui fá fullan
stuðning Vesturveldanna. —
Mun hann því ræða enn einu
sinni við utanrikisráðherra
þeirra, áður en hann fer á
fund Molotovs.
★
Almennt eru menn þeirrar
skoðunar í Vestur-Evrópu,
að vopnasölur kommúnista til
Arabaríkjanna geti orðið til
þess, að upp úr sióði í lönd-
unum fyrir botni Miðjarðar-
hafsins. Hafa Vesturveldin
því skorað á kommúnista að
hætta sölunni, en án árang-
urs.