Morgunblaðið - 30.10.1955, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.10.1955, Blaðsíða 2
Sunnudagur 30. okt 1955 MORGUNBLAÐIÐ skynsamlegum ráSymog hjálp nágrssisia lókst ikl En nærri klukkustund tók að kæfa eld í hlöðu á Móeiðarhvoli. AFIMMTUDAGSKVÖLDI'Ð varð íkviknun í stórri heyhlöðu á Móeiðarhvoli i Rangárvallasýslu. Var eldurinn niðri á botni í henni, en með skynsamlegum ráðstöfunum og mikilli hjálpsemi sveitunga, sem drifu að úr öllum áttum, tókst að forða miklu tjóni. Við slökkvistarfið vann og brunaliðið frá Selfossi. Tók næstum eólarhring að ráða niðurlögum eldsins. DJÚP HLAÐA Á Móeiðarhvoli er tvíbýli og kom eldurinn upp í hlöðu Val- mundar Pálssonar. Voru í henni um 800 hestar af töðu. Hlaðan er gamall hellir, sem hið náttúrlega þak hafði verið brotið af og þak smíðað yfir fyrir mörgum ára- tugum. Er hún mjög djúp um 10 metrar, þar sem hún er dýpst. Eldurinn kviknaði á botninum í norðurenda hlöðunnar, þar sem hún er dýpst. Sagði Valmundur Mbl., að snemma í sumar hefði þar verið látið hey, sem ekki var vel þurrt. Hitnaði í þvi í sumar svo þurfti að losa það, en eftir að sú ylgra var horfin var annað hev sett þar ofan á og héldu þeir að það væri óhætt. RKYKI R SÁST SÍÐLA KVÖLDS Um 7 leytið á fimmtudags- kvöldið sáu bæjarmenn að svo lítill reykur steig upp með hlöðuveggnum. Var það sann- arlega heppni, að þeir skyldu taka eftir því. Ef að ekkert hefði verið gert alla nóttina, má búast við, að allt hefði ver- ið brunnið, (800 heyhestar), þegar fólk hefði komið út um morguninn. Valmundur hríngdi þegar á eímstöðina og bað að leitað yrði eftir aðstoð slökkviliðsins á Sel- fossi. Þá flaug fréttin út um sveit- ina og nágrannar komu fljótt til aðstoðar. Fyrst var ákveðið að verpa heyið í suðurenda hlöð- unnar. Var það gert þannig að geii var grafin þvert yfir miðja hlöðuna. Síðan var seglum og Btriga lagt niður geilina og yfir héyið í suðurendanum. Vegna þess að botn hlöðunnar er grynnri þar mun þetta hey vera óskemmt og vatn ekki hafa komizt undir þáð. Þeir bændur gerðu skynsam- lega í að hreyfa ekki við heyinu í norðurenda hlöðunnar fyrr en slökkviliðið var komið og hafði 6ett dælur í gang. Var vatninu dælt norðan úr Rangá, sem er um 300 metra frá bænum. RÁÐIST AÐ ELDINUM Þegar dælan var tilbúin réðust nvenn að eldinum. Var þak norð- urhluta hlöðunnar rofið og síðan gengið í að rífa heyið út. Var það geysimikið verk og eftir því sem neðan dró og loft fór að komast að eldinum fylltist allt af reyk, 6vo að menn urðu að nota reyk- grunur. Var unnið að þessu alla nóttina og það var eltki fyrr en «einnihluta föstudagsins, sem eld urin.'i var kæfður. MESTU BJARGAÐ 200 HESTAR ÓNÝTIR Alls telur Valmundur að 500 hestar af heyi hafi verið teknir dt. Þar af munu 300 hestar hafa verið lítt skemmdir og voru þeir settir upp í lön, en 200 hestar munu vera gereyðilagðir og er hér um verulegt tjón að ræða, ekki sízt eftir slíkt óþurrkasumar. Við íkviknun þessar er athyglis vert hve slökkviiiðið á Selfossi «g þá ekki síður hin mikla hjálp- semi sveitunganna, en þegar flest var munu uirt 70 manns hafa unn- ið við slökkvistarfið. Fyrsti hóp- urinn kom strax um kvöldið og vann alla nóttina. Um morguninn kom svo annar hópur og leysti hinn af verði. Bað Valmundur Mbl. að færa öllum þakkir, sem lögðu hör.d að verki. Afhugasemd út af þýzku fánumim ÚTAF frásögn í blaði yðar í dag um lán til frystihúsa í Hafnar- firði og Akureyri, þá þykir mér rétt að taka eftirfarandi fram: Það er ekki rétt að ég hafi boðist til að „útvega Akureyring- um og Hafnfirðingum hvorum um sig 6 milljón króna lán í Þýzka- landi til 7 ára með 6% vöxtum og 10% þóknun til verkfræðinga og til umsjónar með verkinu". Forráðamenn Hafnarfjarðar og Akureyrar fóru þess á leit við mig að ég reyndi að útvega lán til hraðfrystihúsa á þessum stöð- um og var strax í upphafi talað um 6% vexti, en það eru venju- legir vextir á „exportkredit" í Þýzkalandi. — Lánstíminn var 4 ár. Þýzk fyrirtæki ætluðu að lána fé til þessara framkvæmda. Áttu þau að fá. 10% þóknun, ekki að- eins „til verkfræðinga og til um- sjónar með verkinu", heldur og fyrir það að sjá um öll innkaup á efni og vélum. Engin skylda var að kaupa þýzkar vélar í hraðfrystihúsin, eins og haldið hefir verið fram af mönnum, sem vissu betur, heldur var það alveg á valdi Hafnfirð- inga og Akureyringa. Þegar samningar lágu fyrir til samþykktar viðskiptamálaráð- herra, kom fyrst í ljós, að þeir þóttu óaðgengilegir og urðu fleiri en ég forviða þegar um samþykkt þeirra var synjað. I september tilkynnti ég aðilj- um, að vextír væru lækkaðir úr 6% í 5%, en þá höfðu þeir fengið lán í Landsbankanum. Reykjavík, 27. okt. 1955. Gísli Sigurbjörnsson. Got) tíðartar í Sfrandasýslu GJÖGRI á Ströndum, 26. okt.: — Ágætis tíðarfar hefur verið und- anfarið í Strandasýslu. Sauðfjár- slátrun hjá Kaupfélagi Stranda- manna lauk um miðjan mánuðinn og var slátrað 300 kindum fleira en í fyrra. Kemúr það til af því, að bændur hafa yfirleitt fjölgað fé sínu og einnig vegna þess að vorið var gott og lambahöld með ágætum. Þyngsta lambið sem slátrað var við Kaupfélag Strandamanna á þessu hausti, vóg 49 pund og var eign Guðmundar Guðmundssonar bónda á Melum. Annars var með- alþyngd lambanna frá 12 Vz—15% kíló, sem er mjög sæmileg vigt. Kýr voru teknar á fulla gjöf hér kring um 10. október, og má í því sambandi geta þess að í fyrra voru þær teknar á gjöf um 12 september, eða mánuði fyrr. Eru þær farnar að græða sig til muna, síðan þær komu i fjós. Bændur eru yfirleitt vel hey- birgir hér um slóðir, þrátt fyrir að útengi var óvenju illa sprottið. Pilnik tetldi fjölleili við siarfsmenn Sam- ARGENTINSKI stórmeistarinn Herman Pilnik, tefldi í fyrra- kvöld fjöltefli við starl.menn Sameinaðra verktaka á Keflavík urflugvelli, i samkomusal starfs- fólksins. Hófst fjölteflið, sem var mjög spennandi, klukkan tæplega hálf níu og var lokið um klukkan eitt. ! Hafði Piinik þá hlotið 37% vinn- ing, en hann tefldi á 42 borðum. i Hann gerði fimm jafntefli og tap aoi aðeins tveim. fvrir þeim Hjálmari Theodórssyni og Magn- úsi Benediktssyni. — Jafntefii gerðu Guðmundur Einarsson verklegur framkvæmdastjóri, Gísli Hafliðason, Baldur Davíðs- son, Kristinn Jónsson og Banda- ríkjamaður Mr. Webster að nafni, sem tefldi sem gestur. Margt góðra skákmanna er að finna meðal starfsmanna Smeinaðra verktaka. í gærmorgun fór Pilnik til Ak- urevrar og mun tefla þar við skákmenn. — í næstu viku mun einvígi hans og Friðriks Ólafs- sonar hefjast. — í samtali við Mbl. kvaðst Pilnik hlakka mjög til þess að mæta Friðrik, sem hann telur mjög snjallan skák- mann. /E / Guðmundur Friðjónsson á Sandi. 45809 te. NorSan- frá Paufarhöfn RAUFARHÖFN, 29. okt.: — Hér er stöðugt unnið að útskipun síld arinnar, sem söltuð var hér í sumar, en alls var saltað í 60,000 tunnur. Skip hafa komið hér í viku hverri til að taka síld og eru nú eftir 15000 tunnur. Á morgun er næsta skip væntanlegt og mun það taka síld til Finnlands. í sambandi við afskipun síldar- innar er mikil vinna því það er síður en svo að allri síldarvinnu sé lokið, þó búið sé að setja síld- ina í tunnurnar. Um áramótin er gert ráð fyrir að síðasta síldin fari héðan. — Einar. RABAT — Franska leynilögregl- an upplýsti nýlega, að óeirðunum í Marokkó væri stjórnað af hin- um þekkta hermdarverkamanni, Rached Toufik. Hann er Egypti. úttjáfa af rítverkum Cuð- ar Friðjónssonar ai bma út ísr cru skáldsins, sögnr cg rifgerðir GUÐMUNDUR Friðjónsson skáld á Sandi var, eins og kunnugt er, eitt helzta skáld landsins á síðara hluta 19 .ald.ar og fyrra hluta þessarar aldar. Hann stóðdjúpum rótum í forníslenzkum skáldskap, var þjóðlegt og kjarnyrt skáld og má segja, að í ljóðum hans og Stephans G. Stephanssonar hafi íslenzkur alþýðuskáldskapur ris- ið hæst. í tíð Guðmundar á Sandi var blómleg og sérstæð alþýðu- menning í Þingeyjarsýslu og átti Guðmundur ríkan þátt í því að móta hana. Hann var mikilvirk- ur höfundur og er með eindæm- um, hverju hann afkastaði, þegar litið er á aðstöðu hans til skáld- skapariðkana. Hann var bóndi allt sitt líf á kostalítilli jörð og hafði fyrir stóru heimili að sjá, en hann lét brauðstritið ekki leggja skáldið að velli frekar en Stephan G. Stephansson. Er ekki nóg með, að hann hafi ort kynstr- in öll af ljóðum á andvökustund- um og í önnum dagsins, heldur Hvað greiðir ríkissjóður ■ heyflutniugastyrk EINS og sagt hefir verið frá í blöðum og útvarpi verður greitt framlag úr ríkissjóði til þess að létta undir með þeím bændum á óþurrkasvæðinu, sem hafa keypt og kaupa hey nú í haust og flytja það að sér úr öðrum sýslum. Framlög til flutninganna eru ákveðin þannig talið í krónum á hvern heyhest eða 100 kíló sem flutt eru: Úr Suður-Þingeyjarsýslu í Borgarfjörð......... kr. 49.00 á Snæfellsnes........... — 57.00 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 65.50 í Árnessýslu ........... — 65.50 í Rangárvallasýslu .... — 80.00 Úr Eyjafjarðarsýslu í Borgarfjörð ...........— 43.00 á Snæfellsnes .......... — 50.00 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 59.00 í Árnessýslu ............— 67.00 í Rangárvallasýslu .... — 73.50 Úr Skagafjarðarsýslu í Borgarfjörð............— 30.00 á Snæfellsnes .......... — 38.00 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 46.50 í Arnessýslu ............— 54.00 í Rangárvallasýslu .... — 61.00 Úr Austur-Húnavatnssýslu í Borgarfjörð............— 23.50 á Snæfellsnes .......... — 31.50 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 39.50 í Árnessýslu ........... — 47.50 í Rangárvallasýslu .... — 54.00 Úr Vestur-Húnavatnssýslu i Borgarfjörð........... — 17.00 á Snæfellsnes .......... — 25.00 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 33.50 í Árnessýslu ........... — 41.50 í Rangárvallasýslu .... — 48.00 Úr Dalasýslu í Borgarfjörð .......... — 11.00 á Snæfellsnes .......... — 19.00 í Gullbr. og Kjósarsýslu — 29.50 í Árnessýslu ........... — 37.00 í Rangárvallasýslu .... — 44.00 Vegna flutnings á heyi, til hreppa í Vestur-Barðastrandar- sýslu, sjóleiðis frá höfnum á Norðurlandi, verður greitt fram- lag allt að % af kostnaði við sjóflutninginn, samkvæmt reikn- ingum og gildandi flutnings- gjölduni. gerðist hann einnig afkastamikill rithöfundur á óbundið mál, skrif* aði fjölmargar sögur, ritgerðiffl og blaðagreinar. Vöktu greinart hans ætíð athygli og urðu þó oíí tilefni til ritdeilna, enda var Guð- mundur ófeiminn við að láta skoð anir sínar í ljósi, hvar sem var. 1 I 3 SAGNABINDI Nú hafa börn Guðmundar Friðjónssonar tekið sig saman um að ijúka heildarútgáfu þeirri af verkum skáldsins sem byrjað var á fyrir nokkrum árum. — í heild- arútgáfunni verða þrjú sagna- bindi, um 500 blaðsíður hvert. I safninu eru sögurnar Einar, Ólöf í Ási, Undir beru lofti, 12 sögur, 10 sögur, Úr öllum áttum, Sólhvöirf, Kveldglæður, Héðan og handan, Úr byggð og borg, og auk þess um 30 sögur sem hafa ekki verið gefnar út áður. KVÆÐIN f TVEIMUR BINDUM Kvæðin eru í tveimur bindum. um 500 bls. hvort. Þar verða öll kvæði sem þegar hafa birzt eftir skáldið, auk þess á annað hundr- að kvæði sem hafa ekki verið gefin út áður. Öll þessi bindi, sem hér hefir verið minnzt á, koma út fyrip jólin, og að auki fyrra bindið af Bréfum og ritgerðum frá árunum 1893—1918. ★ ★ ★ Útgáfa þessi er hin vandaðasta og sér Prentverk Odds Björnsson- ar á Akureyri um hana. í ár verð ur ekki unnt að selja hana í bóka- búðum, því að áskrifendur verða iátnir sitja fyrir á þessu ári, enda eru þeir mjög margir. Ritsafnið verður aftur á móti sett í bóka- búðir, þegar útgáfu síðara bind- isins af ritgerðunum er lokið. Má búast við því, að það verði á næsta ári. — Verð útgáfunnar er á þessu ári kr. 600 í vönduðu geitarskinnsbandi. AKRANESI, 29. okt.: — í fyrra- dag meiddist hérna maður, Hjört- ur Sigurðsson, bílstjóri. Verið var að skipa upp tómuro tunnum úr Goðafossi. Var Hjört- ur að strengja taugar yfir hlassið á háfermdum bílnum, þegar ein tunnan skriðnaði undan fótum hans og féll hann niður á hafnar- garðinn. Var strax farið með hann upp í sjúkrahús, og hafði hann marist og tognað. — Odur. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.