Morgunblaðið - 24.12.1955, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. des. 1955
2«
Samdi flest sín lög meÖ
þreytandi og lýjandi
145 ÁR var hann kirkju-
organisti, þar af 36 ár í
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði —
í 46 ár söngk'/inari. — Hann
hefur starfað að og gefið út
fjölða söngbóka. — Hann er
með fróðustu mönnum í ís-
lenzkri tónlistarsögu. — í
ættfræði og ýmsum þjóðieg-
um fróðleik er hann vel
kennslustarfi
Rabbað við Friðrik
Bjarnason tónskáld
heima. — Og síðast en ekki
sízt er hann eitt af okkar
beztu tónskáldum. Hann hefur
samið fjöldan allan af kór-
lögum, sem oft eru sungin,
t. d. Hóiadans, Rökkvar í hlíð-
um, Hrím, Hofnarfjörð; fyrir
blandaða kóra hin þekktu lög
Abba, labba, iá og Hafið bláa
hafið; handa skólakórum:
Fyrr var oft í koti kátt, Nú
er Gyða á gulum kjól, göngu
vísur og fjólmörg önnur;
kirkjuleg lög; Lofið drottin
áramótasöngva o. fl. Frá hans
hendi hafa ko/nið 10 einsöngs-
Iög: TónaflUg, Hvíldin, Sólar-
lag. Þá hefir hann gefið út
10 orgellög, og enn á hann
mörg lög í fóvum sínum, sem
hann hefur í hyggju að gefa
út.
(★} (★:• •;;★;•
Hér hefur verið brugðið upp
nokkurri mynd af lífsstarfi Frið-
riks Bjarn^sor.ar tónskálds,
mannsins, sem unnið hefur ómet-
anlegt gagn á sviði söngmála hér
á landi og lagt þar meira til mál-
anna en flestir aðrir. — Friðrik
varð 75 ára 27. fyrra mánaðar
og í því tilefni heimsótti ég hann
að Sunnuvegi 5 Hafnarfirði og
rabbaði við hann nokkra stund
um liðna daga.
(★} (★} (★}
Friðrik er kominn af hinni svo
kölluðu Bergsætt á Stokkseyri,
en af þeirri ætt eru — svo sem
kunnugt er — margir af okkar
mestu tónlistarfrömuðum, t. d.
dr. Páll ísólfsson og Sigfús heit.
Einarsson. Langt fram i ættir
hafa verið miklir söngmenn í
Bergsættinni, og voru þeir jafn-
an forsöngvarar í Stokkseyrar-
kirkju. Faðir Friðriks, Bjarni
Pálsson, varð t. d. forsöngvari
þar þegar hann var 16 ára, •— og
síðar fyrsti organleikari kirkj-
unni (1876) og til daugadags.
Var hann talinn bezti organleik-
ari hér á landi á sinni tíð og
einnig mikið! tónskáld. Fékkst
Bjarni mikið við orgel- og söng-
kennslu, og var heimilið einna
líkast söngskóla, þar sem orgelið
ómaði frá morgni til kvölds. En
áður en varði skail óhamingjan
yfir. Bjarni dukknaði í fiskiróðri
við sjötta mann árið 1887, þá að-
eins 29 ára gamall. Fnðrik var
þá 6 ára. Flestir voru pessir menn
ungir að árum, og þrír þeirra
organistar í kirkjum í nærliggj-
andi sveitum. Einn þeirra, Sig-
urður Jónsson frá Meðalholti í
Flóa, var ákaflega hagur og
smíðaði t. d. orgel, sem að öllu
leyti var gert af sama mannin-
um. Má nærri géta, að mikill
söknuður var að þessum efnilegu
mönnum, sem svo ungir að árum
féllu frá, svo að segja í flæðar-
málinu, en bátnum hvolfdi í
1 ólagi, þegar hann var að lenda.
Eins og fyrr segir, voru í föð-
urætt Friðriks margir merkis-
menn. Má til dæmis nefna Teit
hinn ríka (Vopna-Teit) í Auðs-
holti, sem var 40 ár formaður
á Stokkseyri og mikiil athafna-
maður. Er hann talinn síðastur
þeirra manna, sem borið hafa
vopn á mannafundum hér á
landi. Teitur var fæddur 1529
og dó 1605. Annar ættingi Frið-
riks var Einar Ólafsson, sem var
prestur í Görðum til ársins 1571.
Er Friðrik 12. maður frá hon-
um. Talið er að Einar hafi verið
síðasti kaþólski presturinn í
Görðum, — og til gamans má
geta þess, að Friðrik var síðasti
organleikari kirkjunnar eða til
ársins 1913, en þá var hún lögð
niður.
(★}• (iir: (iir)
Eftir lát föður síns bjó Friðrik
með móður sinni og bræðrum.
Hét hún Margrét Gísladóttir og
var frá Hafliðakoti við Stokks-
eyri. Bræður Friðriks voru Þórð-
ur vitavörður, sem var elztur,
Páll skólastjóri og Páll Þorgeir,
nú í Ameríku. Hinir tveir fyrr-
nefndu eru nú látmr. — Um
móður sína segir Friðrik:
— Hún trúði á Guð —
treysti honum — og ól okknr
upp í Guðsótta og góðum sið-
um. Tók hún okkur vara við
því, sem illt er og siðspill-
Friðrik Bjarnason tónskáld. — Myndin var tekin af ljósm. Mbl.,
Ól. K. M., núna rétt fyrir jólin.
andi, og bjuggum við bræður
lengi að því.
(★}• •(★} (★}•
Friðrik var ungur að árum,
þegar hann tók til við sönginn.
Ðrengurinn hafði sem sagt erft
sönggáfu föður síns. Má marka
það nokkuð af því, að þegar hann
var í seinasta bekk barnaskól-
ans á Stokkseyri, lét kennarinn
hann kenna börnunurn lög einn
tima í viku, — og marga vetur
kenndi hann einnig mórgum sjó-
mönnum á staðnum lög og radd-
ir við þau.
Friðrik var mjög ungur að ár-
um, þegar hann byrjaði að syngja
með undirleik föður síns. Man
hann sérstaklega eftir einu at-
viku, en þá var hann þriggja ára.
Voru margir gestir staddir á
heimilinu við það tækifæri.
Hnaut Friðrik um þröskuidinn,
þegar hann ætlaði inn í stofuna,
þar sem orgelið var. Litli dreng-
urinn fór þá að gráta, en móðir
hans tók hann upp og huggaði.
Síðan söng hann fyrir fólkið og
var mikið klappað fyrir honum.
(★}• (★} (★}
Þegar ég innti Friðrik eftir
endurminningum frá jólahá-
tíðinni á uppvaxtarárum hans
komst hann svo að orði:
— Oft var þá þröngt í búi á
heimilinu, þó einkum eftir að
föður míns naut ekki lengur við.
Á jólunum fengum við systkin-
in þó kerti, sem voru í öllum
regnbogans litum, og kostuðu þá
tvo aura. Aldrei hefi ég glaðzt
eins innilega yfir nokKurru ljósi
GLEÐILEG JÓL!
Haflampagerðin,
Suðurgötu 3
GLEÐILEG JÓL!
Gott og farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin
á liðna árinu. Seglagerðin Ægir,
Ægisgötu 1
GLEÐILEG JÓL!
V,
GLEÐILEG JÓL!
7
Kexverksmiðjan Frón. h.f.
GLEÐILEG JÓL!
•jQ\
-ell.
Bernh. Peter-en
Eevkjavík ^
GLEÐILEG JÓL!
í
gott og farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin
á liðna árinu. Vélsm. Kristjáns Gíslasonar.
GLEÐILEG JÓL!
Gott og farsae’.t nýár. Þökkum viðskiptin á liðnu
ári. Hárgreiðslustofan Píróla
Grettisgötu 31
Sundh&llin, Sundlaugarnar
og Baiihús Reykjavíkur
óska öílum viðskiptavinum sínum
GLEÐILEGRA JÓLA!
og góðs nýárs
Kristján G. Gíslason & Co. h.f.
'VXs'v_.. ■xs>i
GLEÐILEG JÓL!
og farsæit komamli ár!
Timburverzlunin Viilundur h.f.
GLEÐILEG JÖL!
\>
LUSÍð, ^
Re; Uhúsið,
Grettisgötu 50 ~j
GLEÐILEG JÓL!
H.F. OFNASMIHJAN
Einholti 10
1
4
l
GLEÐILEG JOL!
Verzlunin Árnes
GLEÐILEG JOL!
Verzlun Benónýs Benónýssonar,
Hafnarstræti 19
GLEÐILEG JOL!
fansælt komandi ár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu
Snijörbruuðsstofun Björninn,
Njáisgötu 49. — Sími 5105
GLEÐILEG JOL!
HÓTEL BOH(,
GLEÐILEG JOL!
Við sendum öllu okkar verkafólki og viðskipta-
vinum beztu jólaóskir.
JÓN GÍSLASON