Morgunblaðið - 24.12.1955, Síða 10

Morgunblaðið - 24.12.1955, Síða 10
26 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 24. des. 1955 LÍKNARSTARF ljósmóð- urinnar mun vera jafngamalt mannkyninu, þótt vitanlega hafi orðið mikil breyting á vinnu- brögðum Ijósmæðranna frá upp- hafi vega. — Fyrscu heimildir um ljósmæður eru í sjálfri biblíunni, í annarri bók Móses, þar er getið um er Egyptalandskonungur skipaði ljósmæðrunum að deyða öll sveinbörn, sem fæddust í heiminn en ljósmæðurnar létu sveinbörnin lifa. Ljósmæður hér á Jslandi eru nú orðnar fjölmargar og er þeirra víða getið í íslendingasögunum. En fyrsta lærða Ijósmóðirin, sem starfaði hér á landi var dönsk kona, Margrét Katrín að nafni. Var hún gift íslenzkum manni, er Benedikt Magnússon hét og komu þau hingað til landsins ár- ið 1761. Ein af elztu cg merkustu nú- lifandi ljósmæðium þessa lands er frk. Jóhanna Friðiiksdóttir, sem á að baki sár 40 ára ljós- móðurferil. — Kvennasíðan leit- aði til hennar í þeirri von að hún fengist til þess að segja eitthvað frá sínum langa starfsferli, því margt ber við í því liknarstarfi, sem vert er á að minnast. ÁKVEBUR AO VERBA LJÓSA — Hver voru tildrögin til þess að þú gerðist ljósmóðir Jóhanna? — Svo var mál með vexti að móðir mín, Jakobína Sveinsdótt- ir var ljósmóðir sveitarinnar. Við áttum fyrst heima á Gálm- arsstöðum á Gálmarsströnd við Eyjafjörð, en síðan fluttumst við í Götu á Árskógsströnd. Hafði ég lengi hugsað um það að mig langaði til þess að verða Ijósmóðir- En samt var það at- vik, sem varð þess valdandi að ég batt þetta fastmælum. Móðir mín hafði, verið sótt til konu í barnsnauð á yzta bæ í sveitinni og skömmu eftir er ég var vi,ð vinnu mína úti á túni kom maður og spurði eftir móður minnL Varð hann að fara einn heim aftur til konu sinnar, sem m beið eftir Ijósmóðurinni. Mér féll það þungt, þegar ég sá manninn ganga einan í burtu og ákvað að ég skyldi verða Ijós- móðir. Næsta haust fór ég til Reykja- víkur á Ljósmæðraskolann og þá var námstíminn 6 mánuðir. Þetta var 1913 og er ég útskrifaðist 1914 haíði ég ákveðið að sigla til frekara náms til Hafnar um haustið. Þá brauzt heimsstyrj- öldin fyrri út svo ég fór heim til mín í Eyjafjörð og hinn 20. júlí sat ég yfir fyrstu konunni. Móðir mín var veik er maður kom til þess að sækja hana til sængurkonu í Hrísey. Var ég ijósmóðir þarna fyrir norðan í rúm 7 ár og árið 1921 sigldi ég til náms við Ljósmæðra- skólann danska. Lauk prófi frá honum i september 1922. — Hvað lá þá fyrir þér? — Ég hafði hugsað mér að sækja um Ijósmóðurembætti á Akureyri, sem hafði verið laust er ég fór utan, en þangað var nú komin Ijósmóðir. En svo vildi til að þá var Bolungarvík ljós- móðurlaus og sótti ég um það og fór þangað. Féll mér mjög vel vistin hjá Bolvikingum en af starfi minu lét ég eftir hálft þriðja ár og kom til Reykjavíkur 1925. — Það þótti mér nokkuð í frásögur færandi að mikið var um tvíburafæðingar í Bolungar- vík, t. d. átti ein kona þar 15 börn og þar af voru 6 tvíburar! TII. HÓFUÐBORGARINNAR — Svo bvrjaðirðu að hjálpa reykvískum konum? — Já. Ég hafði hjólhest og þeyttist um bæinn og næsta ná- grenni hans. Hinn 20. júní tók ég á móti fyrsta barninu mínu i Reykjavík og var það í verka- i mannaskýlinu á hafnarbakkan- um. Frant til áramóta tók ég á móti 26 börnum, en talan jókst fljótt því næsta ár éftir tók ég á móti 126 bognum. — ’Sfc þér ekki eitthvað minnis- stætt frá fyrstu ápunum í Reykja- vík? Líknnrsturf Ijosmóðnrinnor er jnfn gamclt monnkpinu — Ekki neita ég því. Margt er mér minnisstætt og sérlega þó ein fæðing, en nú eru einmitt liðin rétt 30 ár síðan hún var. Það var hinn 19. desember að hringt var til mín og ég spurð hvort ég treysti mér til þess að fara út í Viðey og taka á móti barni. Ég svaraði því vitanlega játandi og þá sagði maðurinn að úti væ>’i aftakaveður, varla hefði gefið í land. En mér stóð alveg á sama um veðurofsann og við lögðum af stað á nokkuð stór- um bát, sem á voru 5 menn. — Héldum við sem leið liggur út í Viðey og mér þótti undarlegt að ég, sem venjulega var ákaflega sjóveðc kenndi mér nú einskis meins. En er til Viðeyjar kom hafði bryggjan brotnað í veður- ofsanum en einhvernveginn tókst mönnunum að tosa mér í land ásamt ljósmóðurtöskunni. — Ég hélt nú i bæinn, tók á móti barninu, sem var stór og stæðilegur drengur. — Daginn eftir hélt ég svo heim aftur. Þá var komin sól og blíðskapar veð- ur, svo úr þessu varð hreinasti „listitúr". — Heldurðu nokkrum kunn- ingsskap við ljósubörnin þín? — Sum, já, en þó vitanlega ekki meginhluta þeirra, því þau eru nú orðin svo morg. En er drengurinn, sem ég tók á móti í Viðey fyrir 30 árum átti 25 ára afmæli hittumst við ásamt mönnunum sem fluttu mig í eyna. Drengurinn er nú kvæntur og hef ég nú tekið á móti fyrsta barninu hans. VERÐUR YFIRLJÓSMGÐIR — Réðist þú ekki til fæðing- ardeildarinnar strax og hún tók til starfa? — Jú. Þegar fæðingardeildin, sem var í spítalanum sjálfum og nefnd hefur verið sú gamla eftir að núverandi deild tók til starfa, var opnuð hinn 20. desember fyrir 25 árum, réðist ég til henn- ar sem yfirljósmóðir, en raun- verulega var ég eina ljósmóðirin við deildina, þar til eftir rúmt ár að mér var fengin önnur til aðstoðar. — Voru nemarnir þínir ekki margir? — Jú, um ævina hef ég haft fjölmarga nema. Vil ég gjarnan nota þetta tækifæri og biðja kvennasíðuna að skila til þeirra innilegu þakklæti mínu fyrir alla þeirra góðu aðstoð og hjólpsemi og sömuleiðis til allra þeirra Ijósmæðra sem hafa stritað og strítt með mér á þessum árum. — Hvað var þessi nýja deild stór? — Hún var ekkí stór, ekki nema 12 rúm. Mér fannst hún vera alltof lítil eins og síðar kom á daginn. En ekki virtist aðsókn- in ætla að verða mikil því fyrsta konan var ekki lögð inn fyrr en á nýársdag og fyrsta barnið fæddist ekki fyrr en 3. janúar, 13 dögum eftir að deildin tók til starfa. — Var því barni gefin silfurskeið og gafall með áritun frá stofnuninni. — Af starfi mínu við fæðingadeildina lét ég árið 1949, þá sextug og farin að heilsu og kröftum. — Hefur þú tekið á móti börn- um síðan þá? — Já, ég hef tekið á móti 14 börnum, síðan ég hætti störf- um. FELAGSMALIN — Hefur þú ekki tekið drjúg- an þátt í félagslífi Jjósmæðra? — Ég gekk í Ljósmæðrafélag- ið árið 1925 og var þ^ kosin í stjórn, sem ritari félagSins. Var ég það þar til 1949 að ég Var kosinn formaður, og þá jhfnframt ritstjóri Ljós.mæðrabiaðsins 'og er ég það enn. ■jr Ijósmóðar í ÞAGNARSKYLDA Þótt kvehnasíðuna langaði til þess að heyra meira af írásögn- um frk, Jóhönnu um „svaðil- farir“ er hún hefði lent í á, ferð- um sínum, þá fékkst hún ekki til þess að segja meira. Jóhanna Friðriksdóttir, Ijósm. — Við Ijósmæðuinar erum bundnar þagnarskyldu eins og læknarnir. sagði hún brosandi. — Þetta verður að nægja. o—O—o En gaman væri að rifja eitt- hvað upp úr grein, sem próf. Guðmundur Thoroddsen fyrr- verandi yfirlæknir skrifaði um Jóhönnu í Ljósmæðrablaðið er hún lét af störfum 1949. Þar segir m. a.: „Það kom í minn hlut, sem væntanlegs yfir- læknis deildarinn að velja ljós- móður", .... og ennfremur: „Ég valdi Jóhörmu Friðriksdóttur Ijósmóður. Hún átti þá þegar all- mikið starf að baki og reynslu, sem. ljósmóðir og hafði sýnt mikinn áþuga á starfi sínu og reynt að afla sér sem beztrar ljósrnóðurfræðslu". ,,Og yfirljós- móðirin hlýfði sér ekki“, held- ur prófessorinn áfram, „hún var vakin og sofín í starfi sínu fyrir deildina og jafnvel svo að mörg- um þótti nóg um og fannst hún gæti hlýft sér meir en hún gerði“. o—O—o Þetta er mjög góður vitnis- burður sem hin reynda ljósmóðir hefur íengið, en bezta vitnis- burð hennar tel ég vera hin fjölmörgu börn, sem hún hefur hjálpað til þess að komast í þenn- an heim, börn sem e. t. v. vita ekki hve mikið þau eiga henni að þakka. o-—O—o Og ér við kveðjum frk. Jó- hönnu og þökkum henni fyrir rabbið og kaffisopann, dettur okkur í hug hve oendanlega margt það er, sem hún hefur séð og reynt á sinni löngu ævi og hve gaman væri að fá að heyra meira um það. — En hún er samvizkusöm og veit hvað má og hvað ekki. Það hlýtur að vera dásamlegt að Ijúka svo löngum starísdegi og frk. Jóhanna eftir að hafa unnið í 40 ár að líknarstarfi, sem ljósmóðurstarfið er. Sagði ekki frelsarinn sjálfur: „Það sem þér gjörið mínum minnsta bróður, það gjörið þér mér. Gleðileg jól! A. Bj, Vift verzlum meft FAGRA GRIPI og höfum gert svo í hálfa öid. Starfsfólk okkar hefir þekkingu og þjálfun í gerð og vali slikra gripa. Skartgripir: guU, siJfur, gimsteinar Borftsilfur Smelttir Ustmunir Úr: Rolex og aftrar tegundir Klukkur: Ljúnsmerkið Kristall Keramik: Lauganesíeír Postulín Sjónaukar „Fagur gripur er æ til yndís". GLEÐILEG JÓL! tiA - Feisirsta grafsýsið Frmh. af bls. 24. milligöngu hlutu margir dauða- dæmdir líf og frelsi. Fylgdi hún manni sínum eins og skugginn hans, og einnig á herferðum hans um hið víðlenda ríki til að bæla niður óeirðir. í einni slíkri ferð andaðist hún eftir barnsburð, hafði hún fætt manni sínum 14 börn í 17 ára ástríku hjónabandi. KONUNGURINN ÓHUGGANDI Sorg konungsins var ólýsanleg. í margar vikur neitaði hann að ræða við ráðgjafa sína eða sinna stjórnarstörfum. Öll hirðin var látin klæðast hvítum klæðum, sem er táknlitur hinnar dýpstu sorgar. Öll veizluhöld voru for- boðin, einnig bannað að nota ilmvötn eða bera gimsteina. Konungurinn hugleiddi jafnvel að afsala sér konungdómi og skipta ríkinu milli sona sinna. Á tveimur árum varð hár hans silf- urhvítt. Hvern föstudag (sem er sabb- athsdagur múhameðstrúar- manna) vitjaði hann um gröf hennar og lét syngja messur og gera fyrirbænir. Og loks eftir tvö ár hófst hann handa um að láta reisa minnismerkið eftir ósk hinnar látnu drottningar. Kallaði hann til verksins alla frægustu byggingameistara á Ind landi, Persíu, Arabíu og Tyrk- landi. Sautján ár tók að reisa allar byggingarnar og sagt er að tuttugu þúsund manns hafi dag- lega unnið að því. Var byggð sér stök borg handa þeim og orð á því gert hve vel hefði verið búið áð þeim, á meðan á verk- ihu stóð. KONUNGURINN FANGI Árið 1658 eða 28 árum eftir andlát Mumtaz Mahalí veikist Shahjahan konungur snögglega í Delhi. Notaði þá einn sona hans tækifærið til þess að brjótast til valda. Hélt hann föður sínum í fangelsi í þau 7 ár, sem hann átti eftir ólifuð. i Sem fangi, átti konungurinn að eins eina ósk. Að hann fengi að vera í kastalanum í Agra, þar gat hann talið stundirnar þang- að til hann fengi að hvíla þar | við hlið hennar, sem iiafði verið Ijós augna hans. Sigr. J. Magnússon. - Sinn er siður,.. Frh. af bls. 25 milli handanna. Við krakkarnir vorum alltaf send með körfur fylltar af jólaglaðningi til þeirra. Það minnir mig á ævintýrið eftir H. C. Andersen um litlu ríku stúlkuna, sem var full eftirvænt- ingar að bíða eftir jólunum og var send heim á fátæka heimilið með körfu og hitti þar fyrir jafn- öldru sína, sem varð svo himin- lifandi yfir því sem í körfunni var. — Við vorum jafn-eftirvænting arfull og litla stúlkan og okkur þótti svo gaman að geta miðlað öðrum. Okkur datt aldrei í hug, hve auðmýkjandi það gæti, e.t.v. verið fyrir þá sem alltaf þurftu að þiggja af öðrum og gátu ekk- eft gefið í staðinn, sagði frú Estrid Brekkan að lokum, LÍKAR VEL Á ÍSLANDI — Hvernig fellur yður svo að vera hér á íslandi, spyrjum við um leið og við kveðjum frúna. — Mér líkar ákaflega vel að búa hér, ságði hún brosandi og elskuleg. — Hér er mjög gott að vera. Við þökkum fyrir góðar og skemmtilegar móttökur og höld- um út í frískandi desembersól- ina og hugsum um jólin, sem nú nálgast óðum. Gleðileg jól. A. Bj. [••1 1 Kvewntssíðan óskar öllum gleðilegra jóla V) H)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.