Morgunblaðið - 03.01.1956, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1956, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIB Þíiðjudagur 3. janúar Í95ð ANNA KRISTÍN EFTIR LALLI KNUTSEN 2C Framh'aldssagan 39 hingað. Og það get ég sagt yður, jómfrú, að ef hún kemur, er ekki verra að hafa prest á heimilinu. Hún er áreiðanlega í ætt við fjandann sjálfan. Þar með var hann sofnaður. Éð stóð stundarkorn og virti hann fyrir mér. Svo slökkti ég ijósið. Niðri í gangi stóð Lárus Og beið eftir mér. Hann hafði íekið af sér skinnhúfuna og bjarminn frá ósandi lýsisluktinni lék um svart hár hans. — Hvers vegna fórstu ekki inn í stofu eins og ég sagði þér? Þú ert þreyttur og kaidur. — Það sæmir ekki vinnumanni að gera slíkt, sagði hann og brosti sínu fallegasta brosi. Ég varð gröm. f hvert skipti sem ég sá Lárus fann ég að hon- um hæfði betur æðri staða en vinnumannsstaðan. Hinn góði líkamsvöxtur hans, léttar og ör- uggar hreyfingarnar, fyrirmann- legur svipurinn og svart hárið, ' allt þetta mælti í móti því að hann bæri þjóns klæði. —Komdu, sagði ég og gekk á und an honum inn. Ég helti víni í bikar, rétti honum hann og sagði. Segðu mér nú hvar þú fannst þennan mann og hver hann er. — Það er fljótsagt, svaraði hann. Pabbi vissi að Katja var væntanleg. Hann sendi míg af stað til að leita að henni, því að hann þóttist vita að hún rataði ekki í þessu veðri. ; — Er Katja virkilega komin? greip ég fram í. Ef nokkur gæti hjálpað systur minni til heilsu, þá var það Katja. — Já, hún liggur í Hlíð hjá Ingunni. Hún komst ekki lengra. : Við fórum tveir að leita, sonur Ingunnar og ég. Okkur bar fljótt i yfir, því við vorum á skíðum. ; Skammt fyrir sunnan Hlíð rák- ; umst við á manninn. Hann staul- : aðist áfram með veikum burð- j um óg teymdi hestinn. Hann var ; alveg að þrotum kommn, en gat | þó sagt okkur að Katja væri í ; sleðanum, sem hann hafði orðið ; að skilja eftir á leiðinni. Við lét- um hann biða á meðan við náð- um í Kötju. Hún v'ar aðfram- komin. Magisterinn, sem setið hafði í stofunni og lesið, blandaði sér nú allt í einu í samræðurnar. — Manneskja eins og hún, gefa nú ekki upp andann fyrr en í síðustu lög, sagði hann þurrlega. Brosi brá fyrir andiit Lárusar. — Ætli Katja sé nú eins merki. ; leg og margur vill láta, sagði hann. Að minnsta kosti virtist hún vera langt leidd þegar við : fundum hana. Hún hafði yfirgef- ið sleðann og gengið af stað, en uppgefist, og iá í snjónum þegar okkur bar að. Við fluttum hana heim að Hlíð, en maðurinn vildi óður og uppvægur komast hingað, , svo við urðum að halda áfram ; ferðinni. — Hann var hvorki í ferða- frakka né með almennilega húfu, sagði ég ásakandi. Hvað æ.tli Ebbe Carstensson hugsi að senda manninn svona af stað? Lárus hló kankvíslega. — Fyrst og fremst hefir hann víst viljað losna við hann af sínu heiniili. Hann hefir verið hjá Carstensson í allan vetur og var farinn að þreyta systkinin, eða svo er mér sagt. Skmnkápu, og önnur ferðaföt, hefir Carstens- son útbúið hann með, því ég sá það á sleðanum. Honum hefir líklega fundist að léttara yrði að ganga frakkalaus. Hann er ekki vanur vetrarveðrinu í Noregi. — Biddu stúlkurnar að búa upp rúm handa þér, Lárus, sagði ég. Þú verður hér í nótt. Fáðu þér !svo að borða áður en þú háttar. — Ég fer heim, sagði hann þurrlega. Faðir minn væntir mín. Hann var horfinn út um dyrnar áður en mér gafst t.ími til and- mæla. Svo heyrði ég að hann itók skíðin sín, sem staðið höfðu ' við útidyrnar. 1 — Það er furðulegt þrek, sem þessir bændur hafa, sagði magist- erinn hægiátlega og tók skarið af kertinu. Ég kinnkaði kolli. Þó voru hugsanir mínar ekki hjá Lárusi. ' — Ég er að fara upp og vitja um sjúklinginn, sagði ég. Góða nótt, magister, — Góða nótt, sagði hann annars hugar og rýndi ofan í bókina. | Áður en ég fór inn til systur ' minnar leit ég inn í jómfrúr- herbergið. Hann svaf, Hann lá á bakinu og andaði reglulega. Hörundslitur hans var orðinn eðlilegur. Nátttreyja ívars var opin í hálsinn og ég sá að bringa hans var hvít og hárlaus. Dökkir baugar voru undir augunum og fallegar hendur hans voru hálf- opnar og fingurnir lítið eitt krepptir. Mér datt ósjálfrátt í hug hendur Randulfs, þegar við ívar stóðum yfir honum í rjóðr- inu, og það fór hrollur um mig. En andlitið minnti ekki á Rand- ulf. Svipurinn var harðlegur og karlmannlegur. Um varir hans lék örlítið bros, sem gaf til kynna að viðkvæmni mundi þó búa í þessum manni. Það var ekki fyrr en seint um kvöldið að ég mundi eftir því að ég hafði fengið bréf frá Ebbe. 23. KAFLI Það leið nokkur tími þar til hann mátti klæðast. en honum tókst ótrúlega fljótt að kynnast okkur. Strax og hann hresstist bað hann um að hafa einhvern hjá sér. Og þar sem Katja var nú komin, og farin að hjúkra systur minni, og fvar dvaldi hjá Gynt- er, þá varð það úr að ég tók rokk inn minn eða saumana og sat hjá honum. En hann þoldi ekki rokk- hljóðið. Honum þótti bezt þegar við gátum talað saman 1 kyrrð og næði. En hann var örlyndur og við höfðum ólíkar skoðanir á mörgu og deildum oft. Daginn eftir að hann kom að Mæri varð ég þess vísari að hann var af þýzkum ættum eins og Ebbe og hafði átt að vera her- maður, eins og forfeður hans höfðu verið, mann fram af manni. En hann var rekinn ungur úr hernum fyrir þær sakir að hann strauk með höfuðsmannsfrú nokkurri og særði eiginmann hennar við það tækifærí. Seinna yfirgaf hann náttúrlega frúna. Ættingjar hans björguðu hon- um frá frekari hneisu og sendu hann í prestaskóla. Árið sem hann útskrifaðist það- an nam hann á brott unga greifa- dóttur, sem bjó í nágrenni við hann. Greifinn elti bau og náði þeim. Enn komu ættingjarnir til skjalanna og útveguðu honum af- skekkt prestakall til að losna við hann. Þar eyddi hann tímanum í að drekka með bændunum, spila við þá og leika sér að dætrum þeirra. Hann missti kallið. f þriðja og síðasta sinn brugðu | skyldmenni hans við til hjálpar.) Nú var honn orðinn prestur við 1 Þrándarneskirkju nyrst í Noregi, og var á leið þangað er hann lenti í hrakningunum. — Lengra komu þeir mér ekki, sagði hann og hló. — Þér endist ekki til að vera Kötturinii og músin 4 Þú hýrist hér heima, í gráa vaðmálskjólnum þínum, allan guðslangan daginn og kemur aldrei út undir bert loft.“ Meðan kötturinn var að heiman, gerði músin hreint í húsinu, hátt og lágt. En kötturinn laumaðist út í kirkju og sleikti upp allt flotið. „Sannarlega líður manni vel, þegar allt er uppétið,“ taut- aði hann við sjálfan sig og kom ekki heim fyrr en um mið- nætti og var þá alveg sprengsaddur. Músin spurði hann, um leið og hann kom inn úr dyrunum, hvað þetta barn hefði verið skírt. „Ég er hræddur um, að þér muni þykja nafnið skrítið," svaraði kötturinn. „Strákurinn var látinn heita Albúinn.“ j „Albúinn,“ át músin eftir honum. „Það nafn hef ég aldrei nokkum tíma séð á prenti. Hvað þýðir það?“ Kötturinn nennti ekki að svara henni, svo að hún fór að búa um sig og lagðist til svefns. Nú var kettinum ekki boðið oftar í skírnarveizlur. Og þegar komið var fram á vetur og þrengjast fór í búi hjá þeim, hugsaði músin til vetrarforðans og sagði við köttinn: „Við skulum fara og sækja flotið, sem við eigum geymt í kirkjunni, — ég hlakka til að smakka á því.“ „Ekki efa ég það,“ svaraði kötturinn. „En mér er nær að halda, að það verði líkt á bragðið og þegar maður rekur tunguna út um gluggann." Þau fóru n útil kirkjunnar og fundu að vísu krukkuna, en auðvitað var hún tóm. Aumingja músin fór nú að væla: „Nú skil ég, hvernig í öllu liggur. Nú kemur það á daginn, hversu tryggur vinur þú hefur verið mér. Þú hefur verið að gæða þér á vetrarforðanum okkar í hvert sinn, sem þú hefur þótzt vera boðinn í skímarveizlu. fyrst skáninni, svo helmingnum og síðast....“ „Viltu gera svo vel að halda munni,“ sagði kötturinn. „Ef þú segir eitt einasta orð meira, skal ég éta þig.“ Og með þessum ummælum stökk kötturinn á músina og át hana. — Svona er heimurinn. Sögulok. Unglinga vantar til að bera blaðið til kaupenda víðsvegar um bæinn JpÉlorguwMafcið H. F, EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFIJIMDUR Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavik, laugardaginn 9. júní 1956 og hefst kl. 1,30 e. h. DAGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstil- höguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar end- urskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1955 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarir.nar og til- lögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt sam- þykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félags- ins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða, Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf- um og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 5.—7. júní næstkomandi. Menr geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrif- stofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 30. maí 1956. Reykjavík, 28. desember 1955. STJÓRNIN Ungur maður vanur skrifstofustörfum getur fengið atvinnu hjá stóru fyrirtæki nú þegar. Umsóknir ásamt mynd og upplýsing- um um fyrri störf, sendist afgr. Mbl fyrir næstu helgi, merkt: „Strax“. Handavivinunámskeið Byrja næsta handavinnunámskeið 16. þ. m. Kenni fjölfcreyttan útsaum. Einnig að hekla, orkera, gimba, prjóna, kúnststoppa o. fl. — Áteiknuð verkefni fyrir- liggjandi. — Allar nánari uppl. kl. 2—7 e. h. Ólína Jónsdóttir handavinnukennari Bjarnastíg 7 — Sími 3196 4ra herb. íbuðarhæð á bezta stað í Austurbænum, hitaveitusvæði. er til sölu. Rannvcig Þorsteinsdóttir Fasteignasala — Norðurstíg 7, sími 82960 Afgreiðslustarf Ábyggileg stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax. Uppl. í síma 80365, kl. 1—3 í dag. Ennfremur vantar stúlku í formiðdag. Uppl. í sama síma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.