Morgunblaðið - 30.05.1956, Síða 2
2
IHOR'CUNBL'AÐ 1Ð
Miðvikudagur 30. ma' 1956
Tíminn kemur upp um launráð
Hermanns Jónassonar
HVAÐ sem annars má segja um
kommúnista, þá er víst að
þeir vita hvað þeir vilja, og
stefna að marki sínu, upplausn og
'iruni hins íslenzka þjóðfélags,
með ýmsu móti og með hjálp
jafnvel ólíklegustu manna. Eitt
af því sem þeir hafa haft auga-
stað á á síðari árum er óánægja
hins metnaðargjarna formanns
ITramsóknarflokksins. Hvað langt
til vinstri væri hægt að teygja
Hermann Jónasson? Það væri
skki einhlítt að láta kommúnista-
öflin innan Framsóknar vinna að
úitum friðsamlegrar stjórnar-
;amvinnu Framsóknar og Sjálf-
stæðismanna um nauðsynja- og
'ramfaramál þjóðarinnar.Tryggja
yrði að hin nýja svokallaða
vinstri samvinna sem við tæki
næði eins langt í kommúnistaátt
og frekast mætti lánast.
Kommúnistarnir innan
Framsóknar voru látnir æsa
sig upp og þykjast vera full-
trúar hinnar yngri kynslóðar
innan flokksins. Og árangur-
inn hefur ekki brugðizt. Þótti
nú báðum gott — Framsókn-
arkommum að geta notað sér
óánægju Hermanns Jónasson-
ar tii þess að ýta honum út
í hið nýja „vinstri" ævintýri,
og honum að gcta notað þá,
til að hræða hina vitrari menn
flokksins, með hávaða og hót-
unum.
En hvað svo — hvað langt gat
Hermann gengið til samvinnu við
kommúniskan hugsunarhátt? —
Auðvitað varð að halda áfram
að afneita kommúnistaflokknum
—• en hins vegar engin von til
þess að Hræðslubandalagið íengi
meiri hluta við kosningarnar og
gæti stjórnað án stuðnings frá
einhverjum kommúnistum.
„LÝÐRÆ»ISSINNAÐIR“
KOMMÚNISTAR
Þá var það að Tíminn fór að
láta skína í möguleika til nýrrar
stjórnarsamvinnu með „öllum
umbótamönnum“ — þar á meðal
„lýðræðissinnuðum" kommúnist-
um! Undruðust margir slíkt
blygðunarleysx, þvi að enginn
hafði nokkru sinni heyrt svo
fláráðlega til orða tekið í einu
blaði þeirra flokka, sem verja
vilja lýðræðið gegn úlfahjörðum
kommúnismans. Að tala um lýð-
og ef talað væri um sannkristna
guðlastara eða strangheiðarlega
þjófa.
En þetta var hin nýja lína
Hermanns Jónassonar, og í ræðu
sinni á flokksþingi Framsóknar
í vetur harkar hann af sér alla
feimni, býður þessum mönnum
samstarf og lofar þeim miklum
áhrifum og völdum, ef þeir vilji
styrkja þá ríkisstjórn, sem hann
vonast til að geta myndað.
HERMANN BÝBUR
KOMMÚNISTUM
GULL OG GRÆNA SKÓGA
Ekki voru þó kommúnistar
nefndir á nafn í tilboði Hermanns
— til þess að fulltrúar utan af
landi skyldu ekki falla í yfirlið
— heldur er nafn ílokksins falið
í klaufalegum umbúðum, sem þó
verða að vera gagnsæjar, svo að
kommúnistar sjálfir geti ekki
verið í varfa um, hvert fyrirheit-
inu um völd og fríðindi er beint.
Skal þessi kafli úr ræðunni
tekinn hér upp, með því að hann
þyrfti hvéc Framsóknarbóndi og
hver af vitrari mönnum flokks-
ins að læra utan að, og hugleiða
dag hvern til kosninga.
Eftir að hafa getið þeirrar
skoðunar, að Kommúnistaflokk-
urinn sé „fremur en jafnaðar-
menn ráðandi í verkalýðshreyf-
ingunni" (sem er rangt, því báð-
ir flokkar ráða þar miklu) segir
Hermann Jónasson:
„En þessi ríkisstjórn (þ. ?.
væntanleg ríkisstjórn Fram-
sóknar og Alþýðuflokks)
mundi að sjálfsögðu um leið
og hún tæki við völdum bjóða
fuiltrúum hins vinnandi fólks
alveg án tillits til þess hvaða
flokkur stjórnar verkalýðs-
hreyfingunni, að skipa fulltrúa
sína, sem ásamt fulltrúum
ríkisstjórnarinnar, hafi meiri
hluta til þess að gæta réttar
hins vinnandi fólks á öllum
þeim stöðum og í öllum þeim
stofnunum, þar sem hætt er
við að arðrán ætti sér stað
ella.“
FRÍÐINDI OG VÖI.D
Síðan fylgir sundurliðuð skrá
yfir þau fríðindi og völd, sem
kommúnistum eru ætluð: „Gildir
þetta fyrst og fremst um þau mál
og þær stofnanir, sem ég hef
ræðissinnaða kommúnista er eins nefnt hér að framan: Útlán
bankanna, úthlutun erlends
gjaldeyris, ákvarðanir um fjár-
festingu, yfirráð verðlagseftir-
litsins, yfirráð hinna stóru verk-
unarstöðva við sjávarsíðuna, fisk-
sala til útlanda, eftirlit með
húsaleigu og önnur hliðstæð
mál.“
Hér er ekki litlu lofað. Sjald-
an hefur umhyggjan fyrir hinu
vinnandi fólki verið notuð, til að
láta skína í fleiri bitlinga og
margvíslegri fríðinda-aðstöðu í
pólitísku bónorðsbréfi. Þetta urðu
Framsóknarbændurnir að hlusta
á, og láta eins og ekkert væri,
og sýnast hinir kátustu meðan
ljósmyndari Tímans var að taka
af þeim allar brosleitu myndirn-
ar.
Svo komu vonbrigðin. Hinum
reyndari kommúnistum þótti til-
boð Hermanns ósmekklegt eins
og á stóð, og móðgun við flokk
þeirra. Þeir neituðu um hlutleysi
flokksins við fyrirhugaða stjórn
Hermanns Jónassonar.
„Það er alltaf hægt að tala við
þessa herra síðar,“ hugsuðu
kommúnistar. „Nú eru kosningar
framundan, og við verðum að
beina öllum áhuga okkar að þvi,
að tapa ekki fylgi — heldur ekki
á makki við Hermann Jónasson."
En þá fékk Hermann nýja hug-
mynd: Hvernig væri að reyna
að krækja í Hannibal, Rút og
Alfreð?
Og í vikunni sem leiS gerð-
ust þau stórtíóindi, aff Tíminn
birtir forustugrein um þessa
þrjá félaga, þar sem ráðgert
er að fá þá til að svíkja hina
kommúnistana eftir kosningar,
og ganga í lið með Framsókn,
ef með þurfi.
Skal þessi ráðagerð nánar
rædd síðar.
Margrét Skúladóttir
áttrœð
Jakob Thorarensen
Kveðja á sjötugsafmœlinu
Angrið sefar söngur þinn,
sögur, stef og ljóðin.
Enginn hefur heilli um sinn
hjartanu gefið óðinn.
Kveif er sá, er kalt og hart
kenna þykist frá þér.
Sönnu nær, að svalt og bjart
sérhvað muni hjá þér.
Hlær við brá und sól að sjá
sýn um lá og ögur.
Þíniun háu hæðum frá
hvergi smá en fögur.
SIGURÐUR EINARSSON
Afmæliskveðja þessi til skáldsins birtist hér með
seinni skipunum vegna veikinda höfundarins.
Tuttugu íslenzkum únglingum
boðið ú æsbulýðsmót í London
DAGANA 14.—26. júlí n. k. verð-
ur haldið alþjóðlegt æskulýðsmót
London á vegum Bretlandsdeild-
ar Alþjóða vinahreyfingarinnar
( World Friendship Federation).
í fyrrasumar héldu samtökin
æskulýðsmót í Kaupmannahöfn,
og sótti það hópur frá íslandi. —
Að þessu sinni er íslendingum
boðið að senda 20 unglinga á
æskulýðsmótið í London. Að mót
inu loknu er hópnum boðið að
dvelja um hálfsmánaðar skeið í
Skotlandi.
fslenzki hópurinn mun leggja
af stað hinn 7. júlí með m.s.
Gullfossi. Verður komið til Edin-
borgar hinn 10. sama mánaðar og
staðið þar við þann dag og bær-
inn skoðaður. Síðan verður hald-
ið með leiðarvagni frá Edinborg
til London. Kemur hópurinn til
London 11. júlí. í London munu
unglingarnir hafast við á völd-
um einkaheimilum, meðan á
æskulýðsmótinu stendur. Að mót-
inu í London loknu mun, eins og
áður greinir, haldið til Skotlands
og dvalizt þar um hálfsmánaðar
tíma á vegum samtakanna. Einnig
þar verður hafizt við á einka-
heimilum. Haldið verður heim
frá Glasgow með fhigvél frá
Flugfélagi íslands hinn 10. ágúst.
í hinum íslenzka hóp munu
verða tíu stúlkur og tíu drengir
á aldrinum 16—-20 ára. Umsókn-
ir um þátttöku sendist Magnúsi
Gíslasyni, námsstjóra, Hafnar-
stræti 20 fyrir 15. júní. Umsókn
fylgi upplýsingar um aldur, nám
eða atvinnu, ásamt meðmælum
frá skólastjóra, kennara eða
vinnuveitanda, svo og önnur með
mæli ef fyrir hendi eru. Þá fylgi
og vottorð um enskukunnáttu.
f ráði er, að hér verði um skipti
heimsókn að ræða. Mun jafnstór
hópur brezkra unglinga væntan-
lega koma til íslands sumarið
1957, og er hugmyndin að ungl-
ingarnir búi þá á íslenzkum heim-
ilum. Er því mjög æskilegt, að
væntanlegir þátttakendur í Bret-
landsferðinni gætu tekið brezka
unglinga til dvalar um allt að
þriggja vikna tíma næsta sumar.
Af þessum sökum verður að
þessu sinni að takmarka þátt-
töku við unglinga frá Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði.
Kostnaður fyrir hvern þátttak
anda verður 1500 krónur, og eru
þar í innifalin öll fargjöld og
þátttökugjald vegna bæði
Lundúna og Skotlandsdvalar, svo
og ferðatrygging.
(Fra menntamálaráðun.)
F
Oveður tefur
eggjatökumenn
ÍSAFIRÐI, 28. mai. — Alla síð-
ustu viku hefur tíðin verið mjög
stirð hér og stundum fennt allt
niður í byggð. í fyrrinótt skall
hér á vestan ofsaveður og hef-
ur það staðið óslitið síðan, þó
heldur fari það lygnandi nú í
lcvöld.
Ekki er kunnugt um að veðr-
ið hafi valdið neinu tjóni hér
í bænum eða kauptúnum hér á
Vestfjörðum.
Eggjatökumenn úr Bolungar-
vík töfðust vegna óveðursins á
bátum sínum Jódísi og Sædísi,
en þeir fóru í Hornbjarg og til
að safna reka, á Hornsstranda-
fjörum. Hér er um að ræða gamla
Norðanmenn, eins og þeir eru
kallaðir.
Norðanmenn höfðu farið á
föstudaginn og ekkert samband
haft við land. Strax og loft-
skeytastöðin á ísafirði kom boð-
um til mannanna á bátunum um
að svara, um útvarpið, svöruðu
þeir og var allt í bezta lagi hjá
þeim. — J.P.________
Johannes Jörgensen
látinn
KAUPMANNAHÖFN: — Danski
rithöfundurinn Johannes Jörgen-
sen andaðist í Svendborg í dag.
Kosniraaskrifsfofa
Sjálfsfæðisflokksins
í Reykjavík
KOSNINGASKRIFSTOFUB
Sjálfstæðisflokksins i Rcykjavík
I SJÁLFSTÆÐISHÚSINU
shni 7100. Skrifstofan er opin
frá kl. 9—7 daglega.
VONARSTRÆTI 4,
III. hæð (V.R.)
Þar eru gefnar allar upplýs-
ingar varðandi utankjörstaða-
atkvæðagreiðslu og kjörskrá. —
Skrifstofan er opin kl. 10—10
daglega. Simar 81860 og 7574.
VALHÖLL,
félagsheimili Sjálfstæðismann.t
við Suðurgötu.
Þar er skrifstofa fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
og Heimdallar. Skrifstofurnar
eru opnar frá kl. 9—7 daglega.
Símar 7102—81192.
FRÚ MARGRÉT Skúladóttir í
Stykkishólmi á áttræðisafmæli í
dag. Fædd er hún í Fagurey á
Breiðafirði, dóttir merkishjón-
anna Málfríðar Pétursdóttur og
Skúla Skúlasonar, sem þar
bjuggu. En bæði þau hjón voru
komin af merkum ættum og
kjamafólki. Er Margrét því af
góðu bergi brotin og það vega-
nesti hlaut hún í vöggugjöf, sem
hefur er.zt henni til þessa, gefið
henni kjark og þor til að mæta
því, sem að höndum ber og sigra
erfiðleikana, en þeim hefur hún
ekki farið varhluta af í lífínu.
Trygglynd er hún og vinaföst,
jafnan ákveðin og stendur á því,
sem hún veit sannast og réttast.
Margrét ólst upp í Fagurey. Það-
an giftist hún til ísafjarðar Sig-
urði Kristjánssyni úrsmíðameist-
ara. Bjuggu þau þar lengi og
eignuðust 9 börn, en af þeim eru
5 á lífi. Eftir að Margrét fluttist
frá ísafirði bjó hún í Reykjavík
um hríð. En seinustu 10 árin hef-
ur hún átt heima í Stykkishólmi
hjá Kristjáni syni sínum. Vinir
hennar óska henni allrar bless-
unar á þessum merkisdegi henn-
ar og þakka henni vináttu liðinna
ára. — Arni.
Stöðugt fjölgar bifreiðum
HAGTÍÐINDI skýra frá bifreiðaeign laridsmanna og var hún
orðin við árslok 1955 alls 15.611 fólks- og vörubifreiðar. Lang-
flestar efú bifreiðarriar að sjálfsögðu í Reykjavík eða 7.667, næ t
kemur svo Gullbr. og Kjósarsýsla og Hafnarfjörður með 1.466,
siðan Akureyri og Eyjafjarðarsýsla með 964 og þá Árnessýsla með
792 bifreiðir.
TEGUNDAFJÖLDINN
GÍFURLEGUR
Alls eru tegundir fólksbifreiða
hér 87, en vörubifreiða 95. Af
fólksbifreiðum er flest af Jeep
(Willys)-teg. eða 1970, þá Ford
1311, þá Chevrolet 945. Af vöru-
bifreiðum er flest af Chevrolet
1495 og þá Ford 1201. Af fólks-
flutninga-bifreiðum voru í árs-
lok 1955 328 almenningsvagnar
(,,rútur“) sem flutt geta fleiri en
6 farþega.
MEÐALALDURINN LÆKKAÐl
Á ÁRINU
Aldur bifreiðanna er þannig að
innan við 5 ára eru 5319 eða
34,1%, 5—9 ára eru 5340 eða
LUNDÚNUM, 25. maí. — Flug-
málaráðherra Breta og ýmsum
háttsettum foringjum úr brezka
flughemum hefir verið boðið til
Moskvu í næsta mánuði í til-
efni af flugdegi Ráðstjórnarríkj-
anna 24. jún, n.k. Forseta her-
ráðs bandaríska flughersins hef-
ir einnig verið boðið í tilefni
þessa dags.
34,2%, 10—14 ára 20,7%, 15—19
ára 6,2%, 20—24 ára 2,9% og
25 ára og þar yfir eru alls 296
bifreiðir eða 1,9%. Meðalaldur
bifreiða var við árslok 1955: —
Vörubifreiða 9,9 ár, almennings-
bifreiða 8,8 ár og almennra fólks-
bifreiða 7,6 ár. í árslok 1954 var
aftur á móti meðalaldur vöru-
bifreiða 10,7 ár, almenningsbif-
reiða 8,9 ár og almennra fólks-
bifreiða 9,3 ár. Hefur því meðal-
aldur allra bifreiða lækkað nema
á almenningsbifreiðum.
Hlutu 141/2 vinning
HAFNARFIRÐI — S.l. laugardag
fóru 20 menn úr taflfélaginu hér
austur á 'Selfoss, þar sem þeir
háðu keppni við menn á staðn-
um, Stokkseyri og Hveragerði.
Keppnin hófst kl. 8,30 og stóð til
kl. 1 e. m. og fóru leikar þann-
ig, að Hafnfirðingar hlutu 14 Vt
vinning á móti 5 Vz. Þeir unnu 12
skákir, gerðu 5 jafntefli og töp-
uðu þremur. — Að keppni lok-
inni var Hafnfirðingunum boðið
upp á kaffi. — G. E.