Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 4
4 MÖRCUNBLAÐIÐ Miðvilcudagur 30. ir aí 1936 — Dagbók — Þessi unga stúlka var fyrir nokkrum dögum kjörin fegurðar- drottning Danmerkur. Hún heitir Laila Menzer, er 19 ára og vinnur sem afgreiðslustúika í ilmvatnaverzlun. Hún * var kosin úr hópi 30« ungra stúlkna. Naest tekur hún þátt í keppni um titilinn Fegurðardrottning Evrópu. i i I dag er 153. dagur ársins. j Miðvikudagur 30. maí. J Árdegisflæði kl. 10,00. Síðdegisfiæði kl. 22,18. Slysavarðstofa Reykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni, er opin all an sólarhringinn, Læknavörður L. R. (fyrir vitjanir), er á sama stað. Næturviirður er í Ingólfsapóteki, sími 1330. Ennfremur eru Holts- apótek og Apótek Austurbæjar op- in daglega tii kl. 8, nema á laug- ardögum til kl. 4. Holtsapótek er opið á sunnudögum milli kl. 1—4. Hafnarf jarðar- og Keflavíkur- apótek eru opin alla virka daga frá kl. 9—19, laugardaga frá kl. 9—16 og helga daga frá kl. 13—16. RMR — Föstud. 1. 6. 20. — VS — Fr. — Hvb. I.O.O.F. es 1385308i/2 == • Brúðkaup • S. 1. sunnudag voru gefin saman í hjónaband í Þingvallakirkju af séra Bjarna Sigurðssyr.i á Mos- felli, ungfrú Ragnhildur Jónsdótt ir og Magnús Óskarsson cand. jur. Heimili ungu hjónanna verður að Bergstaðastræti 45. S.l. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband, af séra Jóni Thor- arensen, Guðlaug Ottesen og Þor- kell Gunnarsson, símvirki, heimilí ungu hjónanna er á Seljaveg 7. Reykjavík. • Hjónaefni • Nýlega hafa opmberr' trúlofun sína ungfrú Soffía Lúðvíksdóttir, Seljavegi 29 og Örn Jónsson, Frakkastíg 10, Reykjavík. • Afmæli • Sjötug verður í dag Árni Stef- ánsson, söðlasmiður, Húsavík. 60 ára er í dag Ingibergur Run- ólfsson, bifreiðastjóri, Víðimel 19, Reykjavik. • Skipafréttir • Skipadeild S. í. S.: Hvassafell er í Þorlákshöfn. — Amarfell fór 28. þ.m. frá Halm- stad til Leningrad. Jökulfell vænt anlegt til Leningrad 31. þ.m. — Dísarfell er á Djúpavogi. Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell fer frá Kotka í dag á- leiðis til Islands. Knattspyrnudómarinn 1 auglýsingu um knattspyrnu- leik milli úrvalsins úr Vestur- Berlin og knattspyrnufélagsins Fram, misritaðist að Þorlákur Þórðarson yrði dómari. Þetta er ekki rétt. Dómari leiksins verður Ingi Eyvinds. ( Sólheimadrengurinn fh. Mbl.: K P krónur 150,00. Lömuðu börnin Afh. Mbl.: Ninna kr. 10,00; — Stefán kr. 10,00. Bókmenntakynning verður í samkomusal þýzka sendiráðsins, Túngötu 18, í kvöld, miðvikudaginn 30. maí kl. 8 e.h. Þýzki sendikennarinn Edzard Koch les í þetta sinn upp ferða- sögur og kvæði eftir þýzka nútima höfunda. Öllum er heimill aðgang ur að upplestrarkvöldum þessum, sem haldin eru annan hvern mið- vikudag. Á þeim upplestrarkvÖld- um, sem haldin hafa verið fram að þessu, hefur verið húsfyllir, jafnt Islendingar sem Þjóðverjar hafa sótt samkomur þessar. Bágstadda konan Afh. Mbl.: Ónefndur kr. 100,00; „frá Akranesi" 100,00; Gunna 200,00; S J 25,00; Anna 200,00; sjómaður 50,00; N 100,00; X 100,00; I 300,00; í bréfi 500,00; Siggi, Baldur og Viðar 100,00. Sundkennsla Unnar Jónsdóttur hefst 1. júní í Sundlaug Austur- bæjarskólans. Fríkirkjan í Reykjavík Áheit: V. V. kr. 200,00. Bjarni 100,00; Gauja 100,00. — Kærar þakkir. — Safnaðarstjórnin. Orð lífsins: Og orðræða mín og prédikun mín studdist ekki við sannfær- andi visdómsorð, heldur við sönn- un anda og kraftar, til þess að trú yðar væri eigi hyggð á vísdómi manna, heldur á krafti Guðs. 1. Kor. 2, 4—5). Skandinavisk Boldklub mun gangast fyrir skemmtiferð t" Borgarfjarðar og er fyrst ekið um Kaldadal. Ferðin verður far- in þann 3. júní. Upplýsingar hjá Poul Hansen, sima 1195. Horfðu ekki á vínið hversu rautt það er, hversu það glitrar l hik- amum, að síðustu bítur það sem höggormar og spýtir eitri sem naðra." Umdæmisstúkan. Loftleiðir „SAGA“ millilandaflugvél Loft- leiða er væntanleg í kvöld frá New York, flugvélin fer eftir stutta viðstöðu til Stavangurs Kaupmannahafnar Hamborgar. Frá Háskólanum Prófprédikanir verða fluttar í kapellu Háskólans í dag kl. 2 e.h. Einar Þór Þorstemsson og Baldur Vilhelmsson. KI. 5 e.h. Ulfar Krist- mundsson og Sigurjón Einarsson. öllum er heimilt að hlýða á. Samsæti 1 tilefni 60 ára afmælis Guðrún- ar Brunborg, 5. júní, halda ís- lenzkir Oslóarstúdentar, ættingj- ar, og vinir henni samsæti. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrifa sig á Iista, sem liggur frammi í Bókaverzlun Sig- fúsar Eymundsson, sem fyrst. Kvenfélag Laugarnessóknar fer gróðursetningarför í kvöld kl. 7.30 frá Laugarneskirkju. Starfsmannafélag Beykjavíkurbæjar fer gróðursetningarför i kvöld frá Varðarhúsinu kl 8. • Útvarpið • Miðvikudagur 30. maí: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 Við vinnuna: Tón- leikar af plötum. 19,30 Tónleikar: Óperulög (plötur). 20,30 „Langs og þvers“, krossgáta með upp- lestri og tónleikum. Stjórnandi: Jón Þórarinsson. 21,25 Einsöngur: Richard Tauber syngur þýzk þjóðlög (plötur). 21,40 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). — 22,10 „Baskerville-hundurinn", saga eft- ir Sir Arthur Conan Doyle; V. —■ (Þorsteinn Hannesson les). 22,30 Tónleikar: Björn R. Einarsson kynnir djassplötur. — 23,00 Dag- skrárlok. Fimmludagur 31. maí: Fagtir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar: Danslög (plötur)’ 20.30 Einsöngur: Kirsten Flag- stad syngur lög eftir Schubert og Brahms (plötur). 20,50 Erindi: Yðar land og mitt (Einar Haugen prófessor frá Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum). 21,15 Tónleikar (plötur). 21,30 Útvarpssagan: —• „Svartfugl" eftir Gunnar Gunn- arsson; XIV. (Höfundur les). — 22,10 „Baskervilie-hundurinn“, — saga eftir Sir Arthur Conan Doyle; VI. (Þorsteinn Hannesson les). 22,30 Sinfóníslcir tónleikar (plötur). 23,10 Dagskrárlok. Tónlistarfélagið — Íslenzk-ameríska félagið: Robert Shaw-kórinn Blandaður kór, einsöngvarar og hljóms\eit Stjórnandi Robert Shaw í kvöld kl. 9.15 í Austurbæjarbíói Aðgöngumiðar í Austurbæjarbíói eftir kl. 2 í dag. Kaldársel K. F. U. M., Hafnarfirði. Farið verður í Kaldársel rneð diengi á aldrinum 7— 12 ára, vikuna 8.—15. júní og viKuna 15.—22 júní. Tekið á móti umsóknum í sima 9630. STJÓRNIN. Kvers á „Hagrún“ að gjalda? ÚTHLUTUN listamapnafjár er án efa nok.’ítið vandasamt verk, þar sem taka þarf tilli' til margs og ýmis rjónarmið geta verið uppi. Þessu staríi hafa að und- anförnu go?nt þjóðkunnir menn og vel menntaðir. En síðasta út- hlucunin her það með sér, að þeim eru e.Kki síður en öðrum misiagðar hendur. Þegar ég las listann yfir það, hverjjr ættu að verða aðnjócandi listamannalaun- anna að þessu sinni, undraðist ég, að skáldkonan „Hugrún“ skyldi þar ekki vera með. Þessi rithöfundur hefir vcrið mikil- virkur, og cérstaklega látið frá sér iara hækur, sem eru holl lesning fyrii aesku þcr.sa lands. Að ondanförnu hefir m;ög mikið venð um útgáfur rita, sem hik- laust má teiia, að hafi s.æm áhrif á unglinga. Má t d. benda á öll glæparitin, sem hvarvetna hafa verið á boðstólum. Skáldkonan „Hugrún" hofir skrifað um betri hliðar mannlífsins, bendir á það góða og fagra, og hefir þannig bætandi áhrif á lesendur sína. Er ekki ástæða til þe.u að veita slíkum rithC fundi viðuikenningu, höfundi, sem skrifar íyrir æsku þessa lands og leitast við að leiða hana ? réttar brautir? Á síðastiiðinu ári kom út bókin „Ágúst í Ási“, eftir skaldkonuna. Var henni mjög vel tekið og mun uppiag bókarinnar að mestu leyti hafa verið uppselt fyrir jólin. ísafoldarprentsmiðja gaf bókina út. Skáldkonan „Hugrún" hefir ritscörfin í hjáverkum, þar sem hún verður að annast heimili. Þeir, sem kynnzt hafa verkum hennar munu vera á einn máli um það, að hún sé ekki síður en aðrir makicg þess að fá smn skerf af iistamannafé. Yfir verkum hennar er Jreiibrigður og hress- andi blær, og allar hennar bækur eiga erindi til æsku þessa lands. Ég trúi '■•kki öðru, en að út- hlucunarnefudin líti með velvilja til „Hugrúr.ar“ næst og bæti þamiig fyrir yfirsjónina í ár. Hún á áreiðanlega skilið að fá við- urkenningu Akurevringur. Stúlka 16—18 ára óskast til afgreiðslustarfa í eina af sérverziunum bæjarins. Kaup samkv. kjarasamningi verziunarmanna. Umsóknir merktar: „Sérverzlun —2379“, smdist af- greiðslu blaðsins sem fyrst. Ný sending Grayson dragtir Aðalstræti ATVINNA Nokkrar saumastúlkur geta fengið atvinnu nú þegar. Verksmiðjan DÚKUR HF. Brautarholti 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.