Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 2
(
MORClINfíT, AÐIÐ
Sunnudagur 22. júll 195C
Mikil aðsókíi að /e#V-
haðsfofunni a Hveragerði
STARFRÆKSLA leirbaðanna í
Hveragerði hófst fyrir nokkxu
sitSán. Er þetta sjöunda sumarið,
sem þau eru starfrækt. Hvera-
gerðishreppur hefur rekið þau,
undir umsjón Magnúsar Águsts-
sonar, héraðslæknis, síðan Land's-
spítalinn hætti starfrækslu
þeirra.
Aðsókn hefur farið sívaxar.di,
enda hafa margir fengið í boð-
unum bót meina sinna, einkum
gigtveikt og lamað fó!k.
Nú í sumar var komið fyrir
gufubaöstofu og hveravatnsböð-
um í sambandi við leirböðin og
njóta þau mikilla vinsælda bað-
gesta. I ráði er að hefja bygg-
ingu nýs húss fyrir leirböðin
innan tíðar, enda sú bygging sem
fyrir er af vanefnum gerð og
ekki ætluð til frambúðar.
Hollenzkur náms-
sfyrkur
HOLLENZKA ríkisstjórnin hsfur
ákveðið að veita íslenzkum kandi-
dat eða stúdent styrk til háskóla-
náms í Hollandi frá 1. októoer
1956 til júlíloka 1957. Styrkur-
inn nemur 2250 florinum (um
9.700 íslenzkum krónum). Gert
er ráð fyrir að sú fjárhæð nægi
fyrir fæði og húsnæði nefndan
tíma.
Námsmanninum er frjálst að
velja sér það námsefni, er hann
æskir, en geta ber þess í um-
sókninni, hvers konar nám hann
hyggst stunda. Talið er heppilegt
að kandidat verði veittur styrk-
urinn, eða þá stúdent, sem num-
ið hefur a. m. k. eilt ár við há-
skóla.
★
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrlc þenna, sæki um
hann til menntamálaráðuneytis-
ins fyrir 15. ágúst n. k.
Frá menntamálaráðuneytinu.
Nú í sumar hefur aðsókn verið
mikil. Margir baðgestanna búa í
Hótel Hverageroi, en aðrir í
tjöldum. Tjaldstæði eru góð með
fra-m Varmá og hafa dvalargestir
eldað sér mat í litlum hveralaug-
um sem þar eru. Getur það mikið
hjálpað þeim, sem þurfa að
stunda leirböðin langan tíma og
hafa ekki efni á að búa á hótel-
um og borða þar.
Leirbaðsvörður er Þórir Guðna
son, stud. med. í Hótel Hvera-
gerði dvelur nú um sinn þýzk
nuddkona og hafa margir bað-
gestanna fengir þar sjúkranudd.
' v ;< 4 %
Landskeppnin íslond — Heilond
Keppf er í Vlaardingen og Rotterdam
IDAG hefst í Ilollandi landskeppni íslands og Ilollands í frjálsum
íþróttum. Lýkur keppninni síðan á þriðjudagskvöldið. Fyrri
dagur keppninnar fer fram í smáborginni Vlaardingen, sem er
skammt frá Rotterdam, en síðari hluti keppninnar fer fram í
Rotterdam, en Rotterdam er næst stærsta borg Hollands meS uin
800 þúsund ibúa. Landsliðið átti í gær að fljúga frá Kaupmanna-
höfn til Amsterdam og taka lest þaðan til Rotterdam.
Á 7. LANDSKEPPNI
ÍSLANDS
Þessi landskeppni við Hol-
land er 7. landskeppni er ísl.
frjálsíþróttamenn ganga til.
Hinar eru þessar:
1948 við Noreg í Reykjavík.
Þá var ekki fullt „lands-
keppnisprógram" og Norð-
menn unnu með 93 stigum
gegn 72.
1950 var landskeppni í Rvík
við Danmörku og sigruðu ís-
lenzkum sigri. En við skulum
vona að vel gangi í dag og á
þriðjudaginn.
Ludvig C. Mðgnúss., skrifsfstj.
Sextugsafmæli.
HANN íæddist á Sauðárkróki
23. júlí 1896. Foreldrar hans
voru Magnús Guðmundsson
verzlunarmaður og kona hans
Hildur Margrét Pétursdóttir.
Ludvig ólst upp með foreldr
um sínum þar á Sauðárkróki, en
fór, er aldur leyfði, í Verzlunar-
skólann í Reykjavik og lauk það-
an prófi árið 1915. Hann stundaði
framhaldsnám í verziunarfræöi
og tók próf i endurskoðun.
Eftir þetta lagði Ludvig fyrir
sig verzlunarstörf allmörg ár.
Var fyrst fulltrúi heildverzlunar
O. J. Hafsteen, en stofnaði síðan
eigin heildsöluverzlun. Um nokk-
urt árabil rak hann útgerð í
félagi við aðra. Árið 1930 gerði
hann endurskoðun að aðalstarfi.
JEn árið 1936 varð hann skrif-
stofustjóri hjá Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur og er það enn.
Ludvig hefur haft mikinn
áhuga á mörgum menningarmál-
um þjóðar sinnar, og lagt fram
til styrktar þeim mikilsvert starf
án hagsmunasjónai’miðs. Hann
var meðstofnandi og aðalstofn-
andi hestamannafélaga bæði í
Reykjavík og utan Reykjavíkur.
Og löngum hefur hann verið
dómari á kappreiðum. Hann hef-
ur gert að áhugamálum sínum
íþróttamál, tónlistarmál, mann-
úðarmál, svo sem dýravemdun-
armálið, og bindindismál. Alls
staðar hefur hann lagt fram mik-
ils vert starf án endurgjalds. Og
háttvísi hans og ljúfmennska
hafa orkað miklu til vinsælda j
þeim málum, er hann barðist j
fyrir.
Ludvig er tvíkvæntur. Fyrri
konu sína, Ragnheiði Sumarliða-
dóttur, missti hann árið 1938.
Eignuðust þau fimm börn. Eru
fjórir synir þeirra á lííi, Agnar,
Hilmar, Valtýr og Reynir, sem
iagt hafa fyrir sig verzlun eða
iðnað, og af þeim farið orð fyrir
dugnað og framtakssemi. Siðari
kcna hans er Ágústa Pálsdóttir
frá Stokkseyri. Hennar dóttir frá
fyrra hjónabandi er hin ágæta
söngkona Guðrún Á. Símonar.
Ludvig er því stjúpfaðir Guð-
rúnar. Hafa þau hjónin lagt
mikla alúð við að mennta þessa
dóttur sína, og sparað þar hvorki
fé né fyrirhöfn. En ekki heldur
tekið steininn í staðinn, því eins
og alþjóð er kunnugt, er Guðrún
óskabarn íslenzku þjóðarinnar
sökum snilli sinnar.
Sigurður Kristjánsson.
lendingar meS 108 stigum
gegn 90.
1951 tók ísiand þátt i tveim
landskeppnum samtímis. Var
það við Norðmenn og Dani og
fór keppnin fram í Ósló. ís-
land sigraði Noreg með 110Í4
stigi gegn 101 Vi. ísland sigr-
aði þá einnig Danmörku með
11314 stigi gegn 98 !4 stigi
Dana.
1955 fór fram landskeppni
við Holland í Reykjavík og
sigruðu Hollendingar með 111
stigum gegn 103.
Nú í vikunni fór fram lands
keppni við Danmörku í Kaup-
mannahöfn og sigrúðu íslcnd-
ingar mcð 108 * á stigi gegn
10214.
9 Það má segja, að þetta
sé glæsilegur ferill hjá fá-
mennri hreyfingu í litlu landi.
En frjálsíþróttamenn hafa oft
sýnt og sananð að þeir geta
gengið að stórum verkefnum
með miklum árangri. Má í því
sambandi bcnda á keppnina
1951.
Um keppnina sem hefst í
dag skal engu spáð. En af af-
rekaskrám beggja landanna
það sem af er árinu má ætla
að keppnin verði jöfn. Hún
gæti farið á báða bóga, en lík-
urnar eru bó meiri fyrir hol-
Fyrsti leikur
Rússanna
RÚSSNESKA knattspyrnu-
liðið Lokomótíf kemur
hingað til lands í dag í boði
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur
og leikur sinn fyrsta leik ann-
að kvöld kl. 8.30 og mæta
þeir þá úrvalsliði Reykjavík-
urfélaganna.
Lið Reykjavíkurfélaganna
skipa þessir menn talið frá
markverði til vinstri útherja:
Ólafur Eiríksson, Víking
Árni Njálsson, Val
Haukur Bjarnason, Fram
Reynir Karlsson, Fram
Einar Halldórsson, Val
Ólafur Gíslason, KR
Gunnar Guðmannsson, KR
Sigurður Bergsson, KR
Gunnar Gunnarsson, Val
Marinó Dalberg, Fram
Karl Bergmann, Fram.
Varamenn: Björgvin Her-
mannsson, Val, Hörður Ósk-
arsr.cn KR. WiUiam Sherriff,
Þrótti, Guðmundur Óskarsson
Fram, Sigurður Sigurðsson,
Val.
Ekki cr að efa, að hið rúss-
neska lið bjóði upp á góða
knattspymu, eins og önnur
lið rússnesk, er gist hafa
Norðurlönd.
Þessi mynd er tekin þcgar Egill
Skaltagrímsson kom tU Hjalt-
eyrar nú í mestu síldarhrotunni.
Hafði Egill þá á fjórða þúsund
tunnur innanborðs og cr það með
mesta aflamagni, sem eitt skip
hefur borið að landi í einni veiði-
ferð af síldveiðum.
Eftirfarandi skeyti kom i
fyrradag frá Njáli Símonar-
syni: „Gúðlaug komst ekki í
xirslit, en varð landi sínu íil
stórsóma".
Þegar síðast fréttist, voru
margir þeirrar skoðunar að
Miss Ameríka mundi verða
hlutskörpust í Miss Universe
keppninni.
Hornafirði, 21. júlí.
í Hornarfirði hafa verið sam-
felldir óþurrkar það sem af er
þessum mánuði, þokuloft, en ekki
miklar rigningar. Bændur hafa
haldið að sér höndum með slátt,
en tún fara að verða úr sér vaxin
og verður vart dregið lengur að
slá þau.
Sauðfé er víðast órúið ennþá,
þar sem ekki hefur verið hægt að
smala fé fyrir þokum og dimm-
viðri. — Gunnar.
MþýSuílokksmenn vása ú huff
aíiri sumvinnu við kommúnistu
ALÞÝÐUFLOKKURINN hef-
ur aldrei dregið dul á, að hon-
um væri all hjartfólgið sam-
bandið við „bræðraflokkana“
á Norðnrlöndum og viljað taka
þá sér til íyrirmyndar í flestu.
Eitt af megin undirstöðu-
atriðum í stefnu „bræðraflokk
anna“ hefur jafnan verið, að
samvinna við kommúnista
kæmi aldrei til greina. Hafa
þeir haldið mjög fast við þetta
og hefur þó ekki skort á það,
að þarlendhr kommúnistar hafi
gert þeim tilboð um samfylk-
ingu, þegar sú lína hefur ver-
ið fyrirskipuð af húsbændun-
um í austurvcgi.
E. t. v. er það tilviljun, að
Alþýðublaðið lætur sér ekki
ýkja tíðrætt um „bræðraflokk-
ana“ upp á síðkastið, eða er
það máske vegna þess, að Al-
þýðuflokkurinn hefur látið
hrekja sig út af línunni og er
kominn í ríkisstjórn með sjálf-
um höfuðóvininum. Er þá ekki
úr vegi að minna á atvik, sem
skeði í vikunni sem leið og
varpar enn Ijósi á afstöðu
„bræðraflokkanna“ í þessu
máli.
★—★
Var þá haldið flokksþing
þýzka Alþýðuflokksins og til
þess boðið fulltrúum frá
,bræðraflokkum‘ ýmissa landa
Einn gestanna var forsætisráð-
lierra Dana, H. C. Hansen, og
héit hann þar ræðu. í ræðu
þessari komst II. C. Ilanscn m.
a. þannig að orði, að ckki
leyndi sér, að nokkur mcining-
armunur væri milli þýzka Al-
þýðuflokksins og Alþýðu-
fiokka annarra landa. En ljóst
væri þó, að í afstöðu sinni til
hinna vestrænu þjóða og í því
að visa algerlega á bug allri
samvmnu við kommúnista
stæðu þeir órjúfanlcga saman.
Orðrétt sagði hann: „Nú sem
ávallt vísum við algerlega á
bug allri samvinnu við stjóvn-
málaflokka, sem nota þvingun
og ógnanir til að ná takmarki
sínu“.