Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.07.1956, Qupperneq 2
( MORClINfíT, AÐIÐ Sunnudagur 22. júll 195C Mikil aðsókíi að /e#V- haðsfofunni a Hveragerði STARFRÆKSLA leirbaðanna í Hveragerði hófst fyrir nokkxu sitSán. Er þetta sjöunda sumarið, sem þau eru starfrækt. Hvera- gerðishreppur hefur rekið þau, undir umsjón Magnúsar Águsts- sonar, héraðslæknis, síðan Land's- spítalinn hætti starfrækslu þeirra. Aðsókn hefur farið sívaxar.di, enda hafa margir fengið í boð- unum bót meina sinna, einkum gigtveikt og lamað fó!k. Nú í sumar var komið fyrir gufubaöstofu og hveravatnsböð- um í sambandi við leirböðin og njóta þau mikilla vinsælda bað- gesta. I ráði er að hefja bygg- ingu nýs húss fyrir leirböðin innan tíðar, enda sú bygging sem fyrir er af vanefnum gerð og ekki ætluð til frambúðar. Hollenzkur náms- sfyrkur HOLLENZKA ríkisstjórnin hsfur ákveðið að veita íslenzkum kandi- dat eða stúdent styrk til háskóla- náms í Hollandi frá 1. októoer 1956 til júlíloka 1957. Styrkur- inn nemur 2250 florinum (um 9.700 íslenzkum krónum). Gert er ráð fyrir að sú fjárhæð nægi fyrir fæði og húsnæði nefndan tíma. Námsmanninum er frjálst að velja sér það námsefni, er hann æskir, en geta ber þess í um- sókninni, hvers konar nám hann hyggst stunda. Talið er heppilegt að kandidat verði veittur styrk- urinn, eða þá stúdent, sem num- ið hefur a. m. k. eilt ár við há- skóla. ★ Þeir, sem kynnu að hafa hug á að hljóta styrlc þenna, sæki um hann til menntamálaráðuneytis- ins fyrir 15. ágúst n. k. Frá menntamálaráðuneytinu. Nú í sumar hefur aðsókn verið mikil. Margir baðgestanna búa í Hótel Hverageroi, en aðrir í tjöldum. Tjaldstæði eru góð með fra-m Varmá og hafa dvalargestir eldað sér mat í litlum hveralaug- um sem þar eru. Getur það mikið hjálpað þeim, sem þurfa að stunda leirböðin langan tíma og hafa ekki efni á að búa á hótel- um og borða þar. Leirbaðsvörður er Þórir Guðna son, stud. med. í Hótel Hvera- gerði dvelur nú um sinn þýzk nuddkona og hafa margir bað- gestanna fengir þar sjúkranudd. ' v ;< 4 % Landskeppnin íslond — Heilond Keppf er í Vlaardingen og Rotterdam IDAG hefst í Ilollandi landskeppni íslands og Ilollands í frjálsum íþróttum. Lýkur keppninni síðan á þriðjudagskvöldið. Fyrri dagur keppninnar fer fram í smáborginni Vlaardingen, sem er skammt frá Rotterdam, en síðari hluti keppninnar fer fram í Rotterdam, en Rotterdam er næst stærsta borg Hollands meS uin 800 þúsund ibúa. Landsliðið átti í gær að fljúga frá Kaupmanna- höfn til Amsterdam og taka lest þaðan til Rotterdam. Á 7. LANDSKEPPNI ÍSLANDS Þessi landskeppni við Hol- land er 7. landskeppni er ísl. frjálsíþróttamenn ganga til. Hinar eru þessar: 1948 við Noreg í Reykjavík. Þá var ekki fullt „lands- keppnisprógram" og Norð- menn unnu með 93 stigum gegn 72. 1950 var landskeppni í Rvík við Danmörku og sigruðu ís- lenzkum sigri. En við skulum vona að vel gangi í dag og á þriðjudaginn. Ludvig C. Mðgnúss., skrifsfstj. Sextugsafmæli. HANN íæddist á Sauðárkróki 23. júlí 1896. Foreldrar hans voru Magnús Guðmundsson verzlunarmaður og kona hans Hildur Margrét Pétursdóttir. Ludvig ólst upp með foreldr um sínum þar á Sauðárkróki, en fór, er aldur leyfði, í Verzlunar- skólann í Reykjavik og lauk það- an prófi árið 1915. Hann stundaði framhaldsnám í verziunarfræöi og tók próf i endurskoðun. Eftir þetta lagði Ludvig fyrir sig verzlunarstörf allmörg ár. Var fyrst fulltrúi heildverzlunar O. J. Hafsteen, en stofnaði síðan eigin heildsöluverzlun. Um nokk- urt árabil rak hann útgerð í félagi við aðra. Árið 1930 gerði hann endurskoðun að aðalstarfi. JEn árið 1936 varð hann skrif- stofustjóri hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur og er það enn. Ludvig hefur haft mikinn áhuga á mörgum menningarmál- um þjóðar sinnar, og lagt fram til styrktar þeim mikilsvert starf án hagsmunasjónai’miðs. Hann var meðstofnandi og aðalstofn- andi hestamannafélaga bæði í Reykjavík og utan Reykjavíkur. Og löngum hefur hann verið dómari á kappreiðum. Hann hef- ur gert að áhugamálum sínum íþróttamál, tónlistarmál, mann- úðarmál, svo sem dýravemdun- armálið, og bindindismál. Alls staðar hefur hann lagt fram mik- ils vert starf án endurgjalds. Og háttvísi hans og ljúfmennska hafa orkað miklu til vinsælda j þeim málum, er hann barðist j fyrir. Ludvig er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Ragnheiði Sumarliða- dóttur, missti hann árið 1938. Eignuðust þau fimm börn. Eru fjórir synir þeirra á lííi, Agnar, Hilmar, Valtýr og Reynir, sem iagt hafa fyrir sig verzlun eða iðnað, og af þeim farið orð fyrir dugnað og framtakssemi. Siðari kcna hans er Ágústa Pálsdóttir frá Stokkseyri. Hennar dóttir frá fyrra hjónabandi er hin ágæta söngkona Guðrún Á. Símonar. Ludvig er því stjúpfaðir Guð- rúnar. Hafa þau hjónin lagt mikla alúð við að mennta þessa dóttur sína, og sparað þar hvorki fé né fyrirhöfn. En ekki heldur tekið steininn í staðinn, því eins og alþjóð er kunnugt, er Guðrún óskabarn íslenzku þjóðarinnar sökum snilli sinnar. Sigurður Kristjánsson. lendingar meS 108 stigum gegn 90. 1951 tók ísiand þátt i tveim landskeppnum samtímis. Var það við Norðmenn og Dani og fór keppnin fram í Ósló. ís- land sigraði Noreg með 110Í4 stigi gegn 101 Vi. ísland sigr- aði þá einnig Danmörku með 11314 stigi gegn 98 !4 stigi Dana. 1955 fór fram landskeppni við Holland í Reykjavík og sigruðu Hollendingar með 111 stigum gegn 103. Nú í vikunni fór fram lands keppni við Danmörku í Kaup- mannahöfn og sigrúðu íslcnd- ingar mcð 108 * á stigi gegn 10214. 9 Það má segja, að þetta sé glæsilegur ferill hjá fá- mennri hreyfingu í litlu landi. En frjálsíþróttamenn hafa oft sýnt og sananð að þeir geta gengið að stórum verkefnum með miklum árangri. Má í því sambandi bcnda á keppnina 1951. Um keppnina sem hefst í dag skal engu spáð. En af af- rekaskrám beggja landanna það sem af er árinu má ætla að keppnin verði jöfn. Hún gæti farið á báða bóga, en lík- urnar eru bó meiri fyrir hol- Fyrsti leikur Rússanna RÚSSNESKA knattspyrnu- liðið Lokomótíf kemur hingað til lands í dag í boði Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og leikur sinn fyrsta leik ann- að kvöld kl. 8.30 og mæta þeir þá úrvalsliði Reykjavík- urfélaganna. Lið Reykjavíkurfélaganna skipa þessir menn talið frá markverði til vinstri útherja: Ólafur Eiríksson, Víking Árni Njálsson, Val Haukur Bjarnason, Fram Reynir Karlsson, Fram Einar Halldórsson, Val Ólafur Gíslason, KR Gunnar Guðmannsson, KR Sigurður Bergsson, KR Gunnar Gunnarsson, Val Marinó Dalberg, Fram Karl Bergmann, Fram. Varamenn: Björgvin Her- mannsson, Val, Hörður Ósk- arsr.cn KR. WiUiam Sherriff, Þrótti, Guðmundur Óskarsson Fram, Sigurður Sigurðsson, Val. Ekki cr að efa, að hið rúss- neska lið bjóði upp á góða knattspymu, eins og önnur lið rússnesk, er gist hafa Norðurlönd. Þessi mynd er tekin þcgar Egill Skaltagrímsson kom tU Hjalt- eyrar nú í mestu síldarhrotunni. Hafði Egill þá á fjórða þúsund tunnur innanborðs og cr það með mesta aflamagni, sem eitt skip hefur borið að landi í einni veiði- ferð af síldveiðum. Eftirfarandi skeyti kom i fyrradag frá Njáli Símonar- syni: „Gúðlaug komst ekki í xirslit, en varð landi sínu íil stórsóma". Þegar síðast fréttist, voru margir þeirrar skoðunar að Miss Ameríka mundi verða hlutskörpust í Miss Universe keppninni. Hornafirði, 21. júlí. í Hornarfirði hafa verið sam- felldir óþurrkar það sem af er þessum mánuði, þokuloft, en ekki miklar rigningar. Bændur hafa haldið að sér höndum með slátt, en tún fara að verða úr sér vaxin og verður vart dregið lengur að slá þau. Sauðfé er víðast órúið ennþá, þar sem ekki hefur verið hægt að smala fé fyrir þokum og dimm- viðri. — Gunnar. MþýSuílokksmenn vása ú huff aíiri sumvinnu við kommúnistu ALÞÝÐUFLOKKURINN hef- ur aldrei dregið dul á, að hon- um væri all hjartfólgið sam- bandið við „bræðraflokkana“ á Norðnrlöndum og viljað taka þá sér til íyrirmyndar í flestu. Eitt af megin undirstöðu- atriðum í stefnu „bræðraflokk anna“ hefur jafnan verið, að samvinna við kommúnista kæmi aldrei til greina. Hafa þeir haldið mjög fast við þetta og hefur þó ekki skort á það, að þarlendhr kommúnistar hafi gert þeim tilboð um samfylk- ingu, þegar sú lína hefur ver- ið fyrirskipuð af húsbændun- um í austurvcgi. E. t. v. er það tilviljun, að Alþýðublaðið lætur sér ekki ýkja tíðrætt um „bræðraflokk- ana“ upp á síðkastið, eða er það máske vegna þess, að Al- þýðuflokkurinn hefur látið hrekja sig út af línunni og er kominn í ríkisstjórn með sjálf- um höfuðóvininum. Er þá ekki úr vegi að minna á atvik, sem skeði í vikunni sem leið og varpar enn Ijósi á afstöðu „bræðraflokkanna“ í þessu máli. ★—★ Var þá haldið flokksþing þýzka Alþýðuflokksins og til þess boðið fulltrúum frá ,bræðraflokkum‘ ýmissa landa Einn gestanna var forsætisráð- lierra Dana, H. C. Hansen, og héit hann þar ræðu. í ræðu þessari komst II. C. Ilanscn m. a. þannig að orði, að ckki leyndi sér, að nokkur mcining- armunur væri milli þýzka Al- þýðuflokksins og Alþýðu- fiokka annarra landa. En ljóst væri þó, að í afstöðu sinni til hinna vestrænu þjóða og í því að visa algerlega á bug allri samvmnu við kommúnista stæðu þeir órjúfanlcga saman. Orðrétt sagði hann: „Nú sem ávallt vísum við algerlega á bug allri samvinnu við stjóvn- málaflokka, sem nota þvingun og ógnanir til að ná takmarki sínu“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.