Morgunblaðið - 22.07.1956, Síða 6

Morgunblaðið - 22.07.1956, Síða 6
6 MORCVNfíLAÐlÐ Sunnudagur 22. Jdlí 195C sömu fargjöldum og tíðkazt hjá stóru flugfélögunum. Og einu megum við ekki gleyma þessu viðvíkjandi, að vetrarfargjöld Loftleiða í dag eru mun lægri en þau fargjöld sem stóru flugfélög- in hafa ákveðið frá 1. október í haust. / táum orðum sagt: E Það ríkir ekki neinn ótti í herbúðum Loftíeiða um framtíð félagsins segtr AEfreð Eiíasson, framikvæmdastjóri félagsins Alfreð Elíasson með líkan af Sögu, nýjustu flugvél Loftleiða. — Halda Loftleiðir velli, þegar etóru flugfélögin iæklta fargjöld eín í haust og hvaða ráðstafanir ætlar félagið að gera til að geta haldið áfram starfsemi sinni þrátt fyrir lækkanirnar? — Stjóm félagsins hefur ekki enn tekið endanlegar ákvarðanir vegna þeirra nýju lágu fargjalda eem samsteypa stóru flugíélag- anna hefur ákveðið á Norður- Atlantshaísleiðinni. TVÆR LEEDIR — EÐA EIGINLEGA ÞRJÁR •— En hvaða leiðir eru hugs- enlegar? — Tvær leiðir eru hugsanlegar l fljótu bragði: sú fyrri að lækka enn fargjöldin með þeim flugvél- um sem félagið hefur nú yfir að ráða, hin síðari að kaupa nýrri gerðir flugvéla og hefja sam- keppni með sömu fargjöldum og þeim sem nú eru fyrirhuguð af etóru flugfélögunum. — Hvað um þessar leiðír, kosti þeirra og galla? — Fyrri leiðin er torveld vegna' þess að ekki er hægt að setja fargjöldin niður fyrir visst lágmark án þess að stefnt sé í fjárhagslega tvísýnu. Að vísu auka lægri fargjöld tölu farþega og um leið möguleika á betri hleðslu og hagkvæmari nýtingu á flugvélunum. Fargjaldalækk- unin hefur það áreiðanlega í för með sér að ferðamannastraum- urinn loftleiðis stóreykst. — En síðari leiðin? — Á henni er sá hængur að liún krefst meira fjármagns en þess sem Loftleiðir ræður yfir í dag. Flugvélar af þeirra gerð sem við notum nú (Skymaster) kosta um 11 milljónir króna, en nýju vélarnar kosta frá 25—80 millj. kr. Og er þá ekki reiknað með varahlutum. — Auk þess yrði að gera ráð fyrir að auka þurfi aug- lýsingakostnað til muna, ef við ættum ekki að hverfa í skugg- ann fyrir hinum öflugu keppi- nauturn okkar. Hin lágu fargjöld hafa öðru fremur orðið til þess að vekja athygli á félaginu, en ef við stæðum jafnt að vígi og aðrir um flugvélakost og far- gjöld, yrði ekki um annað að ræða en leita á troðnar slóðir stóru flugfélaganna og verja til þess öllu því fé sem nauðsynlegt er. — Og þriðja leiðin er ekki til? — Jú, því að alltaf má fara milliveginn, það er að segja: við gætum bæði lækkað fargjöldin enn með þeim flugvélum sem félagið notár nú og tekið smátt og smátt í notkun nýrri gerðir ílugvéla og hafið samkeppni með ENGINN ÓTTI — Óttist þér um framtíð félags- ins? — Nei. Ég get fullyrt að það ríkir ekki neinn ótti í herbúðum Loftleiða um framtið félagsins. FARÞEGAFLUTNINGUR STÓREYKST — En svo að við snúum okkur að öðru. Hefur farþegaflutning- ur aukizt með Loftleiðum það sem af er árinu? — Já, það má segja að hann hafi stóraukizt, eða um 41.42%. Fyrstu sex mánuði fyrra árs flutt um við 6074 farþega, en i júnílok þessa árs voru þeir orðnir 8590 — og er mismunurinn aðallega er- lendir ferðamenn. ÞRYSTILOFTSOLB? — Hver er annars afstaða Loft- leiða til þrýstiloftsaldar? — Svipaðri spurningu og þess- ari svaraði forráðamaður eins af bandarísku flugfélögunum fyrir nokkru á þessa lei{5: „Við erum að kaupa flugvélar sem ekki er lokið við að teikna. Þær kosta milljónir dollara sem við höfum ekki. Og við ætlum að „gera út“ þessar flugvélar frá flugvöllum sem eru oflitlir, verðum að not- ast við flugstjórn sem er ofsein- virk og verðum loks að flytja fleiri farþega en við höfum nokk- urn tíma gert áður“. ■— Nægileg reynsla af þrýstiloftsflugvélum hefur ekki enn fengizt, og þó að stjórn Loftleiða muni fylgjast vel með öllum nýjungum, er ekki tímabært að segja um, hvaða flugvélategundir henta félaginu bezt í framtíðinni. 3 MILLJ. KRÓNA TIL AUGLÝSINGA — Að lokum, Alfreð. Hve miklu fé verja Loftleiðir árlega til auglýsingastarfsemi erlendis? — Síðast liðið ár greiddi Loft- leiðir tæpar 3 milljónir króna vegna kostnaðar við auglýsinga- og kynningarstarfsemi erlendis. Þetta er há tala, en þess ber að gæta að víðast hvar erlendis er tilgangslaust að halda uppi flug- rekstri án þess að verja stórfé til auglýsinga og því erum við þeirr- ar skoðunar að þessi fjárveiting hafi verið nauðsynleg. í þessum auglýsingum er mikil landkynn- ing, svo að þær hafa hagnýtt gildi fyrir þjóðina, enda er fé- lagið stærsti íslenzki auglýsandi á erlendum markaði. shrifar úr dagiega lifinu Landsmói gslfleikaro IGÆR var háð hér í Reykjavik 15. ársþing Golfsambands íslands. Mættir voru til þingsins fulltrúar allra golfklúbba landsins, en þeír eru fimm talsins. Stefán Árnason, Akureyri, var lcjörinn forseti þingsins, sem ræddi hagsmunamál golfleikara landsins almennt, en ekkert stóx-mál, ef svo má segja, lá fyrir þessu þingi. „ÖLDUNGAKEPPNIN“ Sl. fimmtudag fór fram öld- ungakeppni Golfsambandsins og voru keppendur 9 talsins, þar af 4 frá Reykjavík, 3 frá Akureyri og 2 írá Hellu á Rangárvöllum. Keppni þessari er þannig varið, að hún er höggakeppni, bæði með forgjöf og án forgjafar, og eru veitt verðlaun fyrir hvort tveggja. — Sigurvegari í báðum þessum keppnum varð að þessu sinni Ásgeir Ólafsson, en hann er einn af frumherjum golfleiksins hér á landi. Leiknar voru 18 hol- ur í keppninni og lék Ásgeir á 82 höggum brúttó, var með 10 í forgjöf og leikur því á 72 högg- um nettó, eins og sagt er á máli golfleikara. Næstur í keppni án forgjafar varð Jakob Gíslason frá Akureyri, en með forgjöf Halldór Magnússon, Reykjavík. LANDSMÓTIÐ í gær hófst svo Ísíandsmeistara mótið í golíleik og taka þátt í því 42 menn úr öllum golfklúbbum landsins, en þetta er í fyrsta sinn sem klúbbarnir allir senda þátt- ta.kendur til landsmóts. íslandsmeistari 1.955 varð Her- mann Ingimarsson frá Akureyri og núverandi Reykjavíkurmeist- ari er Ólafur Bjarki Ragnarsson og eru þeir báðir meðal þátttak- enda. Keppni er þannig háttað, að í gær voru leiknar 18 holur, í dag verða leiknar aðrar 18 og á morg- un stendur úrslitaoiTustan og eru þá leiknar 36 holur. Ferðamaður í heima- borg sinni ÆTLIÐ þið hjónin ekki að leggja land undir fót í sum- arleyfinu? spurði ég kunningja- konu mína íyrir skemmstu. Ætli við bregðum okkur ekki eitt- hvað, úr því að Fólksvagninn er nú loksins við höndina, sagði hún. Annars er ekki ósennilegt, að við eyðum sumarleyfinu að einhverju leyti í að skoða næsta umhverfi Reykjavíkur og jafn- vel ýmislegt hér í bænum, t.d. listasafn Einars Jónssonar, en þangað hef ég aldrei komið þau tíu ár, sem við höfum búið hér — þótt skömm sé frá að segja. Þetta svar kom vel á vondan, ef svo mætti segja. Ég er sem sé einn af þeim, sem hef flengt Is- land þvert og endilangt — að ör- æfu.num undanteknum — en hins vegar hefur mér aldrei unn- izt tími til að skoða listasafnið á Skólavörðuhæðinn’. Já, það er i nxörgu að snúast. 3n sú hugmynd að gerast ferðamaður í Reykia- vík í nokkra daga þótti mér af- burðasnjöll, og ég er ókveðinn í að láta verða af því — við tæki- færi. Reyndar er útþráin flestum svo í blóð borin, að þeim er nauð synleg sú tilbreyting, sem nýtt umhverfi, annað landslag og ókunn andlit veita. Fæstir eru svo vel birgir andlega né hafa aí svo miklu að taka hjá sjálfum sér, að þeir geti varizt andlegu gjaldþroti, ef þeir sitja alltaf á „sömu þúfunni“. Menn ganga dag eftir dag sömu leið til sömu starfa, húsmæðurn- ar þvo upp sömu diskana og hirða sömu flíkumar mánuð eftir mán- uð — og menn eru oftast áhorf- : endur en ekki þátttakendur í þeirri dægrastyttingu, sem þeir veita sér að afloknum skyldstörf- um. Áhrif vélaaldarinnar segja til sín. Hver minúta er dýrmæt og metin í peningum. Fæstir gefa sér tima til að vera til í orðsins eigir.iegu merkingu — hugsa og þroskast andlega — þeir lifa á harðaspani og eygja ekki iengra fram í tímann en til næstu helg- ar — og umhugsunarefnið er hvað þeir eigi þá að gera sér til afþreyingar. Ég hitti nýlega vin minn, sem dvalizt haíði um tveggja vikna skeið uppi í sveit — heima í átt- högunum við heyskap. Sagðist hann vera sem endurnærður. — Annimar eru revndar miklar í sveitinni á þessum tíma, sagði hann. En þær eru allt annars eðlis en hér. Þar eru menn ekki á harðaspretti til að komast í bíó á kvöldin .... Og samt þyrpist fólkið úr sveitunum til borganna — til að flýja tilbreytingarleysið og taka þátt í hrunadansi véla- aldarinnar, þar sem hann er trylltastur — á götum borganna, sagði vinur minn, yppti öxlum og gaf bersýnilega frá sér að „komast til botns“ í aldarandan- um á þessum fáu mínútum, sem við gáfum okkur tíma til að rabba saman á horninu við Lækj- aríorg. Súrt skyr SKYRGÁMUR" skrifar drjúg- an spistil um þjóðarrétt okk- ar skyrið og ágæti þess. Er ég hon um fyllilega sammála — skyr er svalandi, seðjandi og hollt. í bréfi sínu segir „Skyrgámur“ m.a.: „Einn af eftirlætisréttum mínum er skyr. Þetta veit konan mín, og skyr er því oft á borðum á heimili okkar. En til þess að skyi-ið sé Ijúffengt, þarl það að vera óskemmt. Því miður kemur það allt of oft fyrir, að skyrið, sem við fáum hér í Reykjavík, er ekld gott — það er súrt og kekk- ótt, þó að það hafi verið hræi't rækilega í hrærivél. Þó þótti mér keyra um þverbak fyrir nokkrum dögum, skyrið var svo eldsúrt, að varla var hægt að leggja sér það til munns. Hafði skyrspóiminn verið keyptur í mjólkurbúðipni á næsta. götu- horni hálfri klukkustund áður en það var borið á borð, svo að ekki var vondri geymslu heima fyrir um að kenna. Það má vel vera, að ýmis vand- kvæði séu á því að geyma skyrið á þessum tíma árs, en sé skyrið orðið eldsúrt, er engin sanngirni í því að selja það sem íyrsta flokks vöru. Tel ég, að tiltölulega auðvelt ætti að vera að rétta hlut kaupendanna með því að flokka skyrið, ef ástæðan fyrir því, að skyrið er svo súrt, er léleg geymsla — sumum finnst m.a.s. sórt skyr betra, og geta þeir þá íengið sitt súra skyr. En sé skyrið svo súrt vegna þess að það er illa síað, þarf róttækari ráðstafana vio til að ráða bót á þessu“. Fciminn — og fyndinn rjERSHÖFÐINGI, ég held, að „íl ég sé ofurlítið feiminn. Ekki vænti ég, að yður sé eins innan- brjóts?“ sagoi Mark Twain við Grant hershöfðingja, er þeir hitt- ust í fyrsta skipti, og vandræða- legar þagnir urðu í samræðunum. Hershöfðinginn skellihló, og sam- ræðurnar urðu h i n a r f jörug- ustu. Mark T w a i n haf ði sérlega gott lag á að gera mönn um glatt í geði, ' h v o r t heldur sem var í sam- ræðum eða með bókum sínum. Öll höfum við í æsku lesið sögurnar um Stikil- berja-Finn og Tom Sawyer — og síðar óviðjafnanlega fjarstæðar ferðasögur hans. Nú eigum við kost á að njóta fyndni hans á kvikmyndatjald- inu. Tjarnarbló sýnir um þessar mundir Milljón punda seðilinn eft ir samnefndri sögu Mark Twains. Söguþræðinum er reyndar ekki fylgt út í yztu æsar, en engu síð- ur er kvikmyndin vel þess virði að eyða kvöldstund í að horfa á hana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.