Morgunblaðið - 22.07.1956, Page 9

Morgunblaðið - 22.07.1956, Page 9
Sunnudagur 22. júlí 1950 MORCVNBZAÐIÐ 9 Reykjavíkurbréf: Laugardagur 21. júlí Þegar Framsókn skammaði Sjálfslœðismenn fyrir nýjar síldarverksmiðjur - Gamlar minningar rifjasl upp - Þjóðfundurinn í Alþingishúsinu - Verða gerð málverk af sambandslagaþinginu og lýðveldissfofnunni að Lögbergi! - Sljórnmálaviðhorfið - Drembilæti Alþýðuflokksins - Á vegamótum - Nú fær þjóðin að sjá úr- Þjóðfundurinn í Alþingishúsinu MEÐAL menningarþjóða er það mjög tíðkað, að listamönnum sé íalið að gera myndir af merkum atburðum úr sögu þeirra. Þjóð- irnar láta sér ekki nœgja að eiga sögu þessara viðburða skráða í bókum. Þær vilja sjá þá lifandi Stjórnmálaviðhorfið SÍÐAN alþingiskosningarnar f óru fram er nú liðinn tæpur mánuð- ur. Nær allan þann tíma hafa hinir svokölluðu vinstri flokkar, Framsókn, Alþýðuflokkurinn og kommúnistar, setið á fundum hér í Reykjavík og rætt og samið um myndun margumræddrar vinstri stjórnar. Þegar þetta er Igili Skailagrúnsson kemur hlaðinn að bryggju é IljaMeyri «. l. fimmtudag. ræði vinstri stjórnar - Sfundarsamb lástur sundurleitra flokka ,££■ KRtFST ÞVKR\ VAHP! FVLC-IR >.'• „Ffi- £Gr M EKKl Ai> FARA TIL OSFOV Kröfur Alþýðuflokksins — en hvað fœr hann? Loksins kom síld LOKSINS kom að því að síldin gerði vart við sig fyrir Norður- landi, S.l. 12 ár hefur þessi mik- ilvægi þáttur í atvinnulífi þjóð- arinnar, sumarsíldveiðin, brugð- izt hrapalega. í stríðslokin voru fyrir frumkvæði nýsköpunar- stjórnarinnar og einstaklings- framtaksins byggðar stórvirkar síldarverksmiðjur fyrir norðan. Allar þessar verksmiðjur hafa staðið auðar og óhreyfðar í rúm- an áratug. En nú koma þær að góðu haldi, ef áframhald verður á svipaðri veiði og í þessari viku. Síldarverksmiðjurnar fyrir norð- an geta brætt um 80 þúsund mál síldar á sólarhring. Sjálfvirk löndunartæki eru við flestar þeirra. Og þrær þeirra geta geymt nokkur hundruð þúsund mál síldar. Sjómönnum og útgerðarmönn- um á vonandi eftir að verða mik- ið gagn að þessum mikla verk- smiðjukosti. Á árunum fyrir síð- ustu styrjöld olli það útgerðinni og þjóðinni í heild miklu tjóni, að síldveiðiskipin urðu að bíða dögum og jafnvel vikum saman eftir löndun vegna skorts á síld- arverksmiðjum. Úr þessum verk- smiðjuskorti bætti nýsköpunar- stjórnin verulega undir forystu Sj álfstæðismanna. En þá var víðsýni og fram- sýni Framsóknarmanna ekki mcirl en svo, að þeir hund- skömmuðu Ólaf Thors og stjórn hans fyrir að beita sér fyrir aukningu afkastamögu- leika sildarvcrksmiðjanna. I dag munu islenzkir sjó- mcnn og útvegsmenn minnast þess, hverjir það voru, sem beittu scr fyrir byggingu fleiri og betri síldarverk- smiðja, og hverjir það voru, sem börðust gegn því. Fram- sóknarmenn þjónuðu eins og fyrri daginn aftuihaldseðli sínu. Hagsmunir útgerðarinn- ar og sjómanna skipti þá engu máli. Gamlar minningar rifjast upp ÞEGAR síldarskipin hafa þessa viku komið sökkhlaðin inn til verksmiðjanna og söltunarstöðv- ar.na, haí'a rúmlega áratugsgaml- ar minningar rifjazt upp. Fólkið hefur lifað aftur þann tíma, þeg- ar ös og annríki ríkti í byggðar- lögunum við verkun síldarinnar. Nú hefur það í fyrsta skipti hent, að Reykjavíkurtogari af nýsköpunargerð hefur komið hlaðinn af síld að landi. Var það Egill Skallagrímsson, sem kom til Hjalteyrar í fyrradag með á fjórða þúsund mál inn- anborðs. Framleiðslugeta þjóðarinnar er allt önnur og meiri nú, en hún var á árunum fyrir stríð. Afköst síldarverksmiðjanna eru marg- föld við það, sem áður var og skipin eru stærri og fullkomnari. í góðu síldarári er nú hægt að ausa upp gífurlegu magni af hin- um silfurlitaða kenja-fiski. í gær, föstudagskvöld, var samtals búið að salta á Norð- urlandi í rúmar 200 þús. tunn- ur. Bræöslusíldaraflinn nam þá einnig um 190 þús. mál. Út- flutningsverðmæti þessa afla- magns mun nema töiuvert á annað hundraö milljóna króna. fyrir augum sér, og geta skapað sér þannig sem gleggsta hug- mynd um svip þeirra og inni- hald. Við íslendingar höfum til skamms tíma lítið gert að því að minnast merkisatburða úr sögu okkar með slikum hætti. í þann mund, sem Lýðveldishátíð- in var haldin, var þó merkilegt spor stigið í þessa átt. Fyrir frumkvæði þingforseta, alþingis- manna, þjóðhátíðarnefndar og nefndar þeirrar, sem undirbjó sögulegu sýninguna, sem haldin var í sambandi við Lýðveldis- stofnunina, var ákveðið að gert skyldi málverk að Þjóðfundin- um árið 1851, og var Gunnlaugi Blöndal listmálara falið það vandasama verlc. Þetta málverk hefur nú verið fullgert og var s.l. mánudag sett upp í anddyri Alþingishússins. En þar er setustofa þingmanna og gesta þeirra. Hér skal ekki lagður dómur á listrænt gildi þessa verks. Það er þó skoðun margra, að lista- maðurinn hafi með því unnið mikið afrek. En aðalatriðið er það, að einn sögulegasti viðburð- ur þingsögunnar hefur verið fest- ui á léreft og málverkinu af hon- um valinn staður í húsakynnum löggjafarsamkomunnar. Þar mun það verða meðan lýðræði og þingræði er í heiðri haft og fs- lendingar unna sögu frelsisbar- áttu sinnar. Málverkið af Þjóðfundinum á aðeins að vera upphaf a'ð gerð sögulegra málverka af merkustu viðburðum íslenzkr- ar sögu. Vel færi á því, að næst yrði gert málverk af Al- þingi því, er samþykkti Sam- bandslögin 1918. Þá verður að teljast sjálfsagt, að málverk verði gert af Alþingi á Lög- bergi við Öxará, er samþykkt var stofnun lýðveldis á ís- landi. Er tillögum um þetta hér með varpað fram til at- hugunar og framkvæmda. ritað, eru horfur á að slík stjórn kunni að verða sett á laggirnar næstu daga. Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn lýstu því að vísu báðir yfir fyrir kosn- ingarnar, að „allt samstarf við kommúnista væri útilok- að“. Eftir kosningarnar hafa þessir flokkar hins vegar lýst því yfir, að fyrri yfirlýsingar þeirra um afstöðuna til komm únista bæri að hafa að engu. Sérstaklega hefur Tímanum orðið tíðrætt um það, sem hann kallar „hcilindi“ komm- únista. Hefur aðalmálgagn Framsóknarflokksins verið sérstaklega ánægt með það og farið fögrum orðum um. Stórmennska Alþýðuflokksins MÁLAFYLGJA Alþýðuflokks- manna hefur undanfarið mótazt mjög af barnalegri stórmennsku og drembilæti. Flokksstjórn þeirra lýsir því yfir, að floklcur- inn krefjist þess að fá „í sinn hlut þau mál, sem mestur vandi fylgir og þjóðinni ríður á að ráðið verði til farsællar lausnar." Heyr á endemi. Alþýðu- flokkurinn hefur þá líka sýnt það, eða hitt þó heldur, að hann sé fær um að ráða þeim málum, „sem mestur vandi fylgir“ til lykta. Hann hefur verið stefnulaus og eins og blaktandi strá í hverju máli. Og nú vinnur hann það sér til valdaaðstöðu að éta ofan í sig yfirlýsingu formanns síns, Haraldar Guðmundssonar, í útvarpsræðu fyrir kosning- ar, um að „allt samstarf við kommúnista sé útilokað.“ En það verður gaman að sjá hvaða mál maddama Framsókn skammtar Alþýðuflokknum úr lófa sínum, þegar stjórn þeirra og kommúnista sezt á laggirn- ar! Það er sannarlega engin furða þótt formaður Alþýðuflokksins, sá sem gaf yfirlýsinguna í út- varpið, hafi meiri hug á því í bili að setjast í rólegt sendi- herraembætti í Ósló, heldur en að taka þátt í vinstra ævintýr- inu með Hermanni Jónassyni og kommúnistum. Aldrei meiri framleiðála TÍMINN heldur því enn einu sinni fram í fyrradag, að hér ríki nú meiri gjaldeyris- og vöru- skortur en oftast áður. Ekki er þetta í góðu samræmi við stað- reyndirnar, og minna mætti Tím- ann á það, að aðalfundur SÍS lýsti því yfir fyrir skömmu, að aldrei hafi verzlunarvelta Sam- bandsins verið meiri en nú. — Hvernig gæti svo verið, ef hér ríkti hatramlegur gjaldeyris- og vöruskortur? Sannleikurinn í málinu er í raun og veru sá, að fram- leiðsla þjóðarinnar og gjald- eyrisöflun hefur aldrei verið mciri en einmitt nú og á s.l. ári. Aldrei hefur heldur verið meira flutt inn af gagnlegum vörum til neyzlu og uppbygg- ingar í landinu. Og þetta'ger- ist án þess, að þjóðin taki er- lend lán svo nokkru nemi. Á vegamótum SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur tekið þátt í stjórn landsins s.l. 17 ár og oft haft forys'tu um hana á þessu tímabili. Það er margsögð saga, sem alþjóð er kunn, að þetta hefur verið mesta framfaraskeið í sögu hennar. Og nú, þegar vel má svo fara, að Sjálfstæðismenn verði í stjórnar- andstöðu um skeið, standa yfir stórfelldar framkvæmuir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði for- ystu um að hafnar væru. Raf- væðing landsins stendur sem hæst, húsnæðisumbætur eru meiri en nokkru sinni fyrr, og þjóðin á betri og fullkomnari framleiðslutæki til lands og sjáv- ar en nokkru sinni fyrr. Þannig hefur Sjálístæðis- flokkurinn notað þau völd, sem þjóðin hefur fengið hon- um. Hann hefur notað þau til þess að berjast fyrir bættri aðstöðu fólksins í lífi þess og starfi. Aldrei sterkari en nú EN í dag eru íslendingar staddir á vegamótum í stjórnmálum sín- um. Sundurleit hjörð Framsókn- armanna, kommúnista og Al- þýðuflokksmanna, hefur á- kveðið að sameinast um að einangra Sjálfstæðisflokkinn. Því höggi mun hönd þeirra verða skamma stund fegin. Það mun eklti saka Sjálfstæðisfiokkinn, stefnu hans eða traust hans með- al þjóðarinnar. Við síðustu kosningar hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 42,4% at- kvæða. Hann vann verulega á og er nú sterlcari en hann hefur verið mörg undanfarin ár. Stundar samblástur sundurleitra flokka SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR- INN er það afl, sem ekki verður barið niður með stund ar samblæstri sundurleitra flokka, sem í raun og veru eiga ekkert sameiginlegt nema hatrið til stærsta og þrótt- mesta stjórnmálaflokks þjóð- arinnar. Islendingar vita, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn Framh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.