Morgunblaðið - 31.07.1956, Page 10
10
M O R C V N n L A f> / Ð
f>rið,iudagur 31. júlí 1956 \
tryggir yður
úrvals kaffi
Kaffibrennsla
©. JOHNSON & KAABER HF.
Urvalið sýndi góðan leik,
en Lokomótíf vann 5:2
LEIKURINN á laugardaginn milli Lokomótíf og úrvalsliðs
af Suo-Vesturlandi var tvímælalaust skemmtilegasti
leilcur þeirra þriggja er Rússarnir léku hér. Rússarnir voru
að sjálfsögðu sterkara liðið, en úrvalið kom að mörgu leyti
á óvart með ágætri frammistöðu sinni og virkum og skipu-
legum leik, og er þá að sjálfsögðu miðað við fyrri úrvals-
leiki sumarsins.
Úrval af Suð-Vesturlandi er ekki annað en .,dulnefni“ á
landsliðinu, enda valdi landsliðsnefnd liðið og ber að skoða
þennan leik sem nokkurskonar „generalprufu" fyrir lands-
leikinn við Englendinga 7. ágúst. Níu Akurnesingar og tveir
Reykvíkingar skipuðu liðið, sem sýndi bezta og skipuleg-
asta leik úrvalsliðs á sumrinu og þó lengra væri leitað aft-
ur í tímann. Er sannarlega ástæða að óska landsliðsnefnd-
inni til hamingju með þessa vel heppnuðu tilraun. Aldrei
hefir áður komið íyrir, að 9 leikmenn úr einu og sama liðinu
hafi fundið náð fyrir augum landsliðsnefndar, þar sem reynt
hefir verið hingað til að velja þá „11 beztu“ og reyna síð-
an á skömmum tíma — stundum mjög skömmum tíma —
að steypa úr þeim samstæða heild.
Nú er farin önnur leið. 80% úrvalsliðsins er sótt til eins
félags — toppliðsins í knattspymunni í dag — og árangur-
inn þessarar liðsheildar er mun betri en hinna „11 beztu“.
Landsl iðsnefndin fer þama inn á leið, sem aðrar þjóðir
hafa reynt töluvert, m. a. Rússar og Ungverjar, með góðum
árangri. Til gamans má geta þess, að Rússar hafa nýlega val-
ið úr 22 leikmenn til æfinga fyrir Olympíuleikina í Mel-
bourne og eru meðal þeirra útvöldu allt kapplið félagsins
Spartak í Moskvu, sem nú er eíst í deildakeppninni.
í>að er full ástæða til að samgleðjast nefndinni með þessa
vel heppnuðu tilraun — og hrósa henni svolítið um leið. —•
Hún hefir ekki fengið mikið af lofi undanfarið, en verður
víst ekki í neinum vandræðum með landsliðið 7. ágúst.
Ur vitaspyrnu skoruðu Rússar eitt marka sinna. Helgi lét
blekkjast af tilburðum þess er spyrnti og kastaði sér í rangt liorn.
LEIKURINN
Rússarnir völdu að leika á
syðra markið undan strekkings
golu. Samt var það úrvalið, sem
fékk fyrsta hættulega marktæki-
færið í leiknum þegar á 5. mín.
er leikurinn barst upp eftir
vinstri kantinn. Þar lék Þórður
Jónsson á Tsérnikoff bakvörð og
komst einn og óhindraður inn-
fyrir og í „dauðafæri", sem hann
misnotaði herfilega og skaut
framhj á.
Bæði liðin léku stutt og vel
saman og voru okkar menn Rúss-
unum hvað eftir annað skeinu-
hættir. Vöm úrValsins lék alveg
frammi á vítateigslínu, sem
gerði það að verkum, að Rúss-
arnir urðu að skjóta af lengra
færi og áttu á hættu að verða
rangstæðir, ef þeir geystust hratt
upp. Þeir gættu sín á rangstöð-
unni, en notuðu langskotin, sem
Helgi fangaði mörg vel og örugg-
lega. Allt hjálþaðist að til að gera
leik úrvalsins áferðarfallegan og
skemmtilegan. Hliðarframverðirn
ir uðjón og Jón Leósson studdu
vöm og sókn dyggilega. Innherj-
arnir báðir, Ríkharður og Helgi
létu heldur ekki sitt eftir liggja.
Sérstaklega var Ríkharður virk-
ur og duglegur. Hann var alltaf
kominn þar sem með þurfti og
var aðal driffjöður liðsins. Átti
hann nú sinn langbezta leik í
sumar.
Á 18. mínútu kemur fyrsta
mark leiksins, er snillingurinn
Búbúkin undirbýr frá vinstri
væng og sendir Sokoloíf inn á
miðjan vítateig. Sokoloff varð að
teygja sig eftir knettinum, en
náði að spyma viðstöðulaust
rajög fastri spymu í vinstra horn
syðra marksins, sem Helgi átti
enga möguleika á að ná til. Mín-
útu síðar hefir knötturinn enn
borizt inn fyrir vítateig úrvals-
ins og er þar nokkur þvaga til
hægri við markið. Jón Leósson
fólmaði þar til knattarins, að því
er virtist algjörlega að óþörfu
með þeim afleiðingum, að víta-
spyrna var dæmd á úrvalið. —
Vinstri innherji Vorcshilof fram-
kvæmdi og hljóp þannig að knett
inum, eins og hann ætlaði hon-
um í vinstra horn marksins, en
skaut til hægri við Helga, sem
lét blekkjast af tilburðum inn-
berjans, og var 2. mark Rússanna
orðið að veruleika.
Á 26. mínútu skapar Ríkharð-
ur Þórði bróður sínum prýðis-
færi á mark, en Þórður hafði
lítinn tíma til að átta sig, var
auk þess í erfiðri stöðu og spyrnti
enn framhjá marki. Rússarnir
voru ófeimnir að skjóta á mark
sem fyrri daginn og dundu skot-
in á markið af löngu færi, en
mörg voru þau yfir og fram-
hjá. Á 38. mínútu fara Rússarn-
ir upp hægri kantinn og berst
knötturinn inn að vítateig, þar
er hann gefinn til baka til
Tsérnikoffs bakvarðar, sem send-
ir knöttinn með hárri fastri og
fallegri spyrnu af yfir 20 metra
færi í hægra horn marksins.
Úrvalið tekur nú miðju i
þriðja sinn og er leikið upp
hægri vænginn. Þórður, Ríkharð-
ur og Halldór leika þar fallega
upp og á vítateig er RíhaTði
sendur knötturinn. Hann leikur
á rússneska framvörðinn og af
sínum alkunna flýti brýst hann
áfram eftir vítateigslinunni og
fyrir miðju marki spyrnir hann
föstum knetti með vinstri fæti,
fallegri hárri spyrnu, sem rúss-
neski markvörðurinn réði ekki
við og varð að sækja inn í mark-
ið. Úrvalið átti sannarlega skilið
þetta mark og raunverulega hefði
3—2 verið hin réttaláta staða eft-
ir fyrri hálfleikinn.
© SÍÐARI HÁLFLEIKUR
í síðari hálfleik hafði úrval-
ið vindinn með sér, en náði samt
aldrei jafngóðum og fallegum
upphlaupum og í fyrri hálfleikn-
um. Vindurinn háði raunar báð-
um liðunum allan leikinn, þann-
ig að hvorug liðin fengu hamið
knöttinn sem þau vildu, hvort
sem undan eða á móti var leik-
ið. —
Rússarnir voru heldur ágeng-
ari og sóttu fast á, en vörnin
stóð sig vel og skot Rússanna
voru mörg ónákvæm og framhjá
markinu.
Á 61. mínútu á úrvalið
skemmtilegt upphlaup upp
vinstri væng. Ríkharður fær
knöttinn við vítateig, leikur hon-
um áfram að markinu og m. a.
á bakvörð Rússanna og var nú
í opnu færi, en rússneski mark-
vörðurinn, sá hvað verða vildi
og flutti sig til í markinu, hár-
rétt miðað við, að Ríkharði tæk-
ist að leika á bakvörðinn og fá
skotfæri. Hið fasta skot Ríkharð-
ar af stuttu færi varði hann með
#— í DAG eru þeir væntan-
legir heim, frjálsíþrótta-
mennirnir úr landskeppnis-
ferð sinni tll Danmerkur og
Ilollands. Sú fcrð þeirra var
írækileg og verður lengi
minnzt, annars vegar fyrir sig
urinn yfir Dönum og hins
heppni á síðustu stundu og var
það fyrst og fremst staðsetning-
unni að þakka.
Á 70. mínútu spyrnir Helgi
markvörður knettinum fram á
miðjuna og inn á vallarhelming
Rússanna, Sabelin miðframvörð-
ur tekur knöttinn niður og
byggst spyma til baka inn á
vallarhelming úrvalsins, en Þórð-
ur Þórðarson fylgdi fast eftir og
kom skot Sabelins í fætur Þórði
og hrökk knötturinn af Þórði og
áleiðis að rússneska markinu. —•
Þórði tókst með sínum mikla f lýti
að komast framfyrir Sabelin og
brunaði á eftir knettinum, náði
honum við vítahring og skaut
föstum bolta í markið framhjá
úthlaupandi markverðinum. —
Sabelin veitti Þórði eftirför, en
hraði Þórðar var svo mikill, að
Sabelin hafði hvergi við honum.
Mikill fögnuður greip áhorfend-
ur staðan var nú orðinn 3—2 og
úrvalið óspart hvatt til að jafna
metin.
Rússunum hefir fundizt þessi
markamunur helzt til of lítill og
hefja nú stórsókn, sem leiðir til
marka ú 71.. og 74. mínútu. —
Komust vinstri innherjinn og
miðframherjinn Sokoloff þá í
góð færi inni á vítateig og gótu
af stuttu færi sent knöttinn rétta
boðleið.
© LIDIN
Rússarnir fengu nú mestu
Framhald á bls. 11.
vegar fyrir frækilega baráttu
og drengilega í Hollandi, en
þar áttu þeir að mæta á sum-
um sviðum framkomu, se»>’
ekki er í anda íþróttann;..
Þessi keppni þeirra er öllum
í fersku rninni.
•— Síðan héldu þeir til
Þýzkalands og kepptu
þar. Útvarpið flutti þær
fréttir í gær (sennilega frá
fararstjórn liðsins) að dreng-
irnir hefðu unnið í mörgum
greinum og athyglisvcrðustu
afrekin hefðu verið hlaup
Hilmars í 100 m á 10,5 sek.,
en það er jafnt ísl. metinu.
Hitt var afrek Hallgríms í
kringlukasti, en hann varpaði
51,42 metra. Bæði eru afrek
þessi afbragðsgóð, og þurfa
engum að koma á óvart, því
báðir eru Hilmar og Hall-
grimur áður komnir á afreka-
skrá beztu manna Evrópu í
ár fyrir spretthlaup og kringlu
kast. Ililmar kemur nú heini
sem frækilegasti maðurinn í
liðinu, að öðrum ólöstuðum.
Hann hefur jafnað ísl. metin
í 100 og 200 metrum, og hver
hefði búizt við því, svo góð
sem þau met voru fyrir.
Ljósm. IVlbl. Ol. ---------- ... Rússanna
við Suð-Vesturland. Hér sést Rikharöur (nr. 8) skora fyrra mark
úrvalsie'
Hilmar heiur jainoð
metin í 100 og 200 m
Hallgrímur kasSaSi
51,42 m