Morgunblaðið - 12.08.1956, Síða 8
MORGV N BL AÐIÐ
Sunmidagur 12. ágúst 1958
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík
Framkv.stj.: Sigfus Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Lesbók: Arni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn: Aðalstraeti 6.
Auglýsingpr og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600
Áskriftargjald kr. 25,00 á mánuði innanlands.
í iausasölu kr. 1,50 eintakið
Að dýrka manninn er
að spotta manneskjuna
í
MERKU erindi eftir séra Sig-
urbjörn Einarsson prófessor,
sem birt er í síðasta félagsbréfi
Almenna bókafélagsins, ræðir
prófessorinn um ,,gerska“ stjórn-
arhætti. Jafnframt ræðir hann
ýtarlega hina taumlausu persónu
dýrkun kommúnista á 'Stalín.
Fyllsta ástæða er til þess að
vekja athygli á þessu bráðsnjalla
erindi, sem vel færi á, að hver
einasti íslendingur læsi og hug-
leiddi.
Séra Sigurbjörn Einarsson vek-
ur athygli á nokkrum ummælum
kommúnista um Stalín áður en
um aðeins fyririitlegur og ósjálf-
stæður múgur, sem á að skríða
í duftinu fyrir einræðisherrun-
Hinir meðseku
En nú hafa kommúnistar gefið
merki um það, segir séra Sigur-
björn, að dýrkun Stalíns skuli
lokið. Þar með er veröldin einu
föllnu falsgoði ríkari. En ýmsar
spurningar vakna í þessu sam-
bandi: Hvaða menn eru þetta,
sem hafa afhjúpað lýgi Stalín-
dýrkunarinnar, nú að þremur
honum var steypt af stalli. M. a. I árum liðnum írá dauða hans?
rekur hann eftirfarandi ummæli | Hafa þeir ekki allir eins og vafn
sem birt eru í ævisögu hans er
Marx-Engels-Lenin stofnunin
hefur gefið út:
„Á mörgum tungumálum yrkja
þjóðir Ráðstjórnarríkjanna ijóð
um Stalín. Þessi ljóð eru skugg-
sjá þeirrar djúpu ástar og tak-
markalausu elsku, sem þjóðir
Ráðstjórnarrikjanna bera í
brjósti til síns mikla foringja,
fræðara og vinar. í skáldskap
þjóðarinnar rennur nafn Stalins
saman við nafn Lenins: „Við
göngum með Stalin eins og með
Lenin, tölum við Stalín eins og
við Lenin, hann þekltir allar
okkar smæstu hugarhræringar,
allt sitt iíf er hann að hugsa um
okkur“ — þannig er að orði kom-
ist í einu hinna dásamlegu rúss-
nesku þjóðkvæða. Öllu voru
starfi og allri vorri baráttu stjórn
ar mesti maður nútímans ....
Jósep Vissarimovitsj Stalin. Hinn
vinnandi lýður lands vors og alls
heimsins á eina sameiginlega
hugsun, eina ósk, sem kemur frá
djúpi hjart-ans: Að vor mikli,
elskaði Stalin megi lifa og starfa
í mörg ár.“
„Nú heitir það
persónudýrkun‘ ‘
Eftir þessa tilvitnun í ástaróð
kommúnista til Stalins, kemst
séra Sigurbjörn Einarsson að,
orði á þessa leið:
„Nú heitir þetta persónu-
dýrkun. Manndýrkun hefur
alltaf verið einn af skuggum
kommúnismans, og hvað
skulu þeir dýrka, sem ekkert
viðurkenna æðra en manninn?
En að dýrka manninn er í
rauninni að spotta manneskj-
una, og það kemur alltaf fram,
dylst aldrei til lengdar, mann-
dýrkun er ævinlega annað
þorð mannfyrirlitningar, þó
að það birtist ekki að jafnaði
eins bert og í ummælum
manndýrkandans Nietsches
um drottinmennin, Iýðurinn
er ekki annað en mykja til
þess að fita þau, að öðru leyti
má djöfullinn og statisíikin
hafa lýðinn“.
í þessum ummælum er upp-
haf og eðli persónudýrkunarinn-
ar krufið til mergjar. Og niður-
staða hennar fer ekkert á milli
mála. Manndýrkunin er ævin-
lega annað borð mannfyrirlitn-
ingar, segir séra Sigurbjörn. Og
hafa ekki kommúnistar einmitt
sýnt það greinilega, að þeir meta
einstaklinginn einskis, að þeir
byggja stefnu sína og baráttu á
því, að setja einstök Skurðgoð
á stalla og íalla fram og tilbiðja
þau? Fjöldinn, hin nafnlausa
fylking fólksins er í þeirra aug-
ingssprotar vafið sig upp hinn
sterka stofn þessarar persónu og
hlotið allan sinn frama af hans
náð?
„Allt, sem þeir játa á Stalín,
þeir Malenkoff, Krustjoff,
Bulganin, Mikojan, Vorosji-
loff, það játa þeir á sjálfa sig,
og sér í lagi eru þeir sekir
um nýjustu höfuðsyndina,
persónudýrkun. En það kát-
grátlega í þessu er það, að
þeir prettast einmitt um að
játa eigin sakir og skella öll-
um skuldum á Stalin dauðan."
Persónudýrkunin
heldur áfram
Ummæli séra Sigurbjarnar Ein
arssonar í þessu merka erindi
verða ekki rakin hér frekar að
sinni. En ástæða er til þess að
spyrja: Hafa kommúnistar látið
af persónudýrkun einræðisherra
sinna enda þótt þeir hafi fellt
Stalin af stalli og lýsi honum nú
sem glæpamanni og blóðhundi?
Nei, ekkert bendir til þess, að
um slík varanleg sinnaskipti sé
að ræða. Kommúnistar halda
áfram að falla fram og tilbiðja
þá Marx og Lenin. Það er lengra
síðan þeir hurfu úr þessum heimi
en Stalin. Þess vegna er óhætt að
halda þeim áfram í tölu hjáguða.
En kjarni málsins er þó sá, að
með úthrópan Stalíns sem glæpa-
manns og harðstjóra, hefur hið
kommúníska skipulag í raun og
veru hrunið til grunna. Komm-
únistar hafa viðurkennt það
sjálfir og lýst því yfir fyrir öll-
um heiminum, að hin fyrsta
„ráðstjórn" hafi verið ógnar-
stjórn sem byggðist á skelfilegri
kúgun, réttarglæpum og rangs-
leitni.
Þetta höfðu aðrir að vísu
séð og sagt löngu fyrr. Nú
loks hafa kommúnistar játað
það sjálfir. En væri þeim ekki
sæmst að lýsa jafnframt yfir
allsherjarskipbroti hins komm
úníska skipulags og hinna úr-
eltu og rykföllnu fræðikenn-
inga þeirra Marx og Lenins?
UTAN UR HEIMI
J i uikmuncli
mni
myn
45
^incjcirncir
íieilci
tel?
\dt
tóh
ur a
U
tri&i&
tuo
iXhorfendur að kvik-
myndinni „Húsbóndinn" (The
Boss), sem innan skamms kem-
ur á markaðinn, munu horfa á
atriði þar sem þrír menn eru
drepnir með vélbyssum — fórn-
ardýrin þrjú eru handjárnuð sam-
an og velt hverjum um annan
þveran niður langan marmara-
stiga og hafna á götunni. Atriðið
tekur 45 sek. í kvikmyndinni, en
það tók tvo heila daga að æfa
það. „Höfuðvandamálið var að
vera í réttum stellingum í upp-
hafi. Þegar það væri fengið,
myndi áhrifaþungi atriðsins koma
af sjálfu sér,“ sagði Paul Stader,
staðgengillinn, sem skipulagði
atriðið.
lík atriði í kvikmynd-
um eru leyst af hendi af sérstök-
um staðgenglum kvikmynda-
leikararma. Stader og tveir aðrir
staðgenglar, Saul Gorss og Har-
clc
ClCfCL
myndin „The Perils Pauline" og
gamanmyndir Mack Sennetts
voru á döfinni, var litið á stað-
genglana í hættulegustu atriðun-
um sem fífldjarfa menn, sem
hefðu jafnvel tilhneigingu til að
fyrirfara sér. Þeir mynduðu með
sér samtök, er þeir nefndu Sjálfs-
morðsklúbbinn, og oft sóttu þeir
hugrekki til flöskunnar. Meðlimir
klúbbsins voru 75 í upphafi 1915,
en árið 1935 var aðeins einn eftir
— hinir höfðu farizt í slysum við
starf sitt. Nú er meiri von fyrir
staðgenglana að halda lífi.
Víliff Lyons, 55 ára að
aldri, er sá, sem gerði starf stað-
genglanna að nákvæmnisverki.
„Staðgenglar nútímans geta gert
hvað sem er, þeir geta það full-
komlega án þess að áhættan sé
mikil. Og ekki nóg með það, þeir
geta einnig leikið,“ segir Lyons.
Allir staðgenglar eru nú félagar
í stéttarsamtökum. kvikmynda-
myndavélina til að fallið verði
sem áhrifaríkast, fær hann 100
dollara. Fyrir að láta hestinn
ausa og detta af honum, fær hann
200 dollara. Detti hann af baki,
en festi fótinn í ístaðinu og drag-
ist með hestinum íær hann 300
til 500 dollara eftir því hvað hann
dregst langt. Önnur hættulegri
atriði gefa enn meira í aðra hönd.
Slagsmál með stólum og viskí-
flöskum geta lcostað kvikmynda-
framleiðandann 400 dollara á dag
fyrir hvérn staðgengil. Ef stað-
gengill stingur sér til sunds af
90 feta háum kletti, fær hann
1000 dollara.
JL yons fékk sjálfur ein
hæstu laun, sem staðgengli hafa
verið greidd fyrir eitt atriði, en
það var, þegar hann var stað-
gengill fyrir bæði Tyrone Power
og Henry Fonda í „Jesse James".
Lyons hleypti hesti tvisvar fram
af 75 feta háum kletti út í
Missourivatnið. Hann fékk, 2,350
dollara þann daginn. Þó mun
enginn hafa gert betur en Paul
Mantz. Hann þurfti að nauðlenda
B-17 sem staðgengill Gregory
Pecks í „Twelve O’clock High.“
Enginn hefur fyrr eða síðar flog-
ið einn í B-17, sem venjulega
hefur níu manna áhöfn. Mantz
lét flugvélina lenda á maganum,
skreið út úr henni ómeiddur og
fékk 6.000 dollara í aðra hönd.
k3 ú var tíðin, að trygg-
ingafélög vildu ekki líftryggja
staðgengla, en þau hafa nú breytt
afstöðu sinni í þeim efnum. Að-
W
Úr kvikmyndinni „Húsbóndinn'
vey Parry, eyddu klukkustund
eftir klukkustund við að æfa fall-
ið og við að ákveða, hvaða Hk-
amshlutar tækju við högginu á
hverju þrepi. Því næst komu þeir
fyrir smápúðum á mjöðmum,
hnjám og olnbogum, og nú tók
hraðinn í æfingunum að aukast.
Er kvikmynda átti atriðið vildi
svo illa til, að handjárnin hrukku
sundur á leiðinni niður stigann.
Reynt var í annað skipti, og allt
tókst vel. Hver staðgenglanna
þriggja stungu 500 dollurum í
vasann, að viðbættum 200 dollur-
um fyrir að verða að endurtaka
atriðið fyrir framan kvikmynda-
vélina, og héldu síðan heim.
ö,
11 sambærileg atriði í
nútíma kvikmyndum eru gerð af
nákvæmum fagmönnum, sem
taka starf sitt hátíðlega. Það var
ekki svo fyrr á tímum. Þegar kvik
Staðgenglarnir fá nokkuð fyrir
fyrir bylturnar.
leikara. Þegar staðgengill tekur |
að sér að hlaupa í skarðið í hættu
legu atriði, fær hann 80 dollara,
áður en hann hefir aðhafst nokk-
uð. Því næst semur hann við
kvikmyndaframleiðandann um
sérstakt gjald fyrir sjálft atrið-
ið, sem er mismunandi, eftir því
hversu mikilvægt og áhættusamt
vérk hans er. 300 beztu staðgengl-
arnir í Hollywood vinna sér inn
að meðaltali um 30 þús. dollara
á ári.
K
vikmyndirnar
úr „villta vestrinu” veita stað-
genglunum mesta atvinnu og gefa
að jafnaði einnig mest í aðra
hönd. Ef staðgengillinn þeysir á
hesti niður brekku, skotið er á
hann og hann stekkur af baki og
kemur niður standandi, fær hann
50 dollara. Ef hann verður að
steypast af baki rétt við kvik-
Vélin ,,magalenti“ — allir björguðust
KAUPMANNAHOFN: — Það er
ekki . oft sem farþegaflugvélar
þurfa að magalenda, eins og sagt
er. Ja, sem betur fer má víst
áreiðanlega bæta við, því að það
er ekkert grín að lenda í slíku.
Þetta kom þó fyrir nú í fyrra-
dag við Kírúna í Svíþjóð. Ein af
farþegaflugvéium skandíoaviska
flugfélagsins SAS, Grim Viking,
var að lenda á Kalifors-flugvell-
inum við Kiruna, þegar hjólaút-
búnaðurinn bilaði skyndilega
með þeim afleiðingum að vélin
lenti á „maganum". Hreyflarnir
stórskemmdust auðvitað, en
áhöfn vélarinnar og farþegar, 8
að tölu, sluppu heilir á húfi.
Fengu þeir ekki einu sinni smá-
skrámu, og mun óhætt að segja
að það sé vel sloppið. Vélin
skemmdist aftur á móti talsvert
mikið og er nú unnið að viðgerð
á henni. Er talið líklegt, að hún
verði orðin flugfær aftur eftir
nokkrar vikur.
snúð sinn — 700 dollara hver
eins ein kona er viðurkenndur
staðgengill í stéttarsamtökum
kvikmyndaleikara. Helen Thru-
ston, lagleg og ljóshærð, og var
upp á sitt bezta á sældardögum
Macks Sennetts. Hún var stað-
gengill Marlene Dietrich í hinu
fræga atriði í kránni í kvik-
myndinni „Destry Rides Again“,
fyrir Marilyn Monroe í „River of
No Return" og fyrir Eleanor
Parker, er söguhetjan varpaði
sér frá þriðju hæð til að binda
endi á líf sitt í kvikmyndinni
„The Man With the Golden
Arm.“
rr
„Meðan sólin skín
á Akureyri
AICUREYRI, 10 ágúst: — Sumar
leikhúsið „Iðnó“ frá Reykjavík
sýndi hér í gærkvöldi sjónleikinn
„Meðan sólin skín“ og voru und-
irtektir áhorfenda mjög góðar.
Leikendur og leikstjórinn, Gísli
Halldórsson, voru ákaft hylltir
í leikslok.
Leikflokkurinn hefir að minnsta
kosti tvær sýningar hér enn og
eru aðgöngumiðar þegar nær upp
seldir að þeim báðum.
Það er alltaf vel þegið, og vek-
ur verðskuldaða athygli hér þeg-
ar leikflokkar sækja oklcur heim,
einkum á þessum tíma árs, þegar
skemmtanalíf er fáskrúðugt í
bænum. —H.Vald.