Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 1

Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 1
24 síður <y 43. árgangur 240. tbl. — Föstudagur 19. október 1956 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Jæja, spenningurinn er liðinn hjá. Sigurvegarinn í „Miss World“ íegurðarsamkeppninni varð „Ungfrú Þýzkaland“, en hún hét Petra Schumann, 23 ára gömul stúdina frá Cologne. önnur varð „Ungfrú Bandaríkin". Endanlegur dómsúrskurður var ekki viðburðalaus. Þegar 6 höfðu \ærið vald- ar af 24 þátttakendum, og gengu í síðasta sinn fyrir dómara, þá bar „Ungfrú Bandaríkin" borða um öxl sem á stóð „Miss World“. Aðstoðarmaður hljóp fram á pallinn og tók borðann af henni. Síðar sagði hún: „Þetta voru aðeins mistök. Einhver setti þetta á mig. Ég vissi ekki hver það var.“ Myndin t. v. sýnir stúlkurnar 6 í úrslitunum (og sú bandariska lengst til hægri með borðann). Til hægri er „Miss World“. A tæpu ári fæst gufuorka í Krísuvík til hitaveitu fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð Bani sennilega valinn sem framkvæmdastj. ,Notendabandalagsins‘ Lundúnum, 18. okt. — frá Reuter—NTB. gELWYN LLOYD utanríkisráðherra gaf á fundi fulltrúa aðildar- ríkja „Notendasambandsins" skýrslu um umræðurnar van Súezmálið í Öryggisráðinu og einkaviðtöl sín við utanrikisráðherra Egypta. ★ FBAMKV ÆMD AST J ÓRI «-----------------------------—• VALINN Að firndi þessum loknum var ákveðið að fulltrúarnir mættust á öðrum lokuðum fundi, og að þá yrðu settar reglur um starfsemi „notendasambandsins". M.a. munu fulltrúarnir ræða um og ákveða, hver verður fram- kvæmdastjóri bandalagsins. Herma góðar heimildir að danski sendiherrann Eyvind Bartels, sem einnig er ráðgjafi í efnahagsmálum við OEEC í París sé líklegur til að verða valinn til starfans. Einnig liggur fyrir að ákveða um fjármál bandalagsins, hvar aðalstöðvar þess eiga að vera o.fl. Storvirkur jarðbor keyptur di Reykjavíkurbæ og ríkinu i sameiningu /^UNNAR THORODDSEN borgarstjóri undirritaði fyrir nokkru af hálfu Reykjavíkurbæjar, samning um kaup á afkastamiklum jarðbor til gufuborunar. Bor þessi mun kosta um 6 milljónir króna. Áætlað er að bora í Krísuvík fyrsta árið, en úr stærstu borholunni þar fást nú 20 smálestir af gufu á klst. Með nýja bornum þykir mjög líklegt, að 150—200 lestir fáist á klst., en það nægir til hitaveitu hér í Reykjavík, Hafnarfirð og fleiri framkvæmda. Er tahð að borunin eftir þessu gufumagni muni taka 6—9 mánuði. Frá þessu skýrði borgarstjóri á fundi bæjarstjórnar Reykja- víkur í gær. SAMNINGUR VIÐ HAFNARFJÖRB Hafnarfjarðarbær á hitaveitu- réttindin í Krísuvík og hafa und- anfarið staðið yfir samninga- umleitanir milli borgarstjórans í Reykjavík og bæjarstjórans í Hafnarfirði. Kvaðst Gunnar Thoroddsen borgarstjóri hafa trú á því að samkomulag næðist milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur um nýtingu orkunnar í Krísuvík. Þessi stórvirki bor verður rek- inn sem sjálfstætt fyrirtæki, og hefur hann hlotið nafnið Gufu- boranir ríkisins og Rvíkurbæj- ar. Skipuð hefur verið fjögurra manna nefnd til að hafa á hendi rekstur fyrirtækisins og umsjón með jarðborununum og skipa hana þeir Jakob Gíslason raforku málastjóri og Þorbjörn Sigur- geirsson framkvæmdastj. Rann- sóknarráðs ríkisins af hálfu ríkis- ins, og Árni Snævarr formaður hitaveitunefndar og Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri, af hálfu bæjarins. Gunnar Böðvarsson yfirverkfræðingur mun annast framkvæmdastjórn. — Dvelst hann og Þorbjöm Karlsson verk- fræðingur nú í Bandaríkjunum til þess að kaupa borinn og kynna sér meðferð hans. Til að halda uppi buxunum LUNDÚNUM, 17. okt. — 16 ára gamall unglingur kom í dag fyrir unglingadómstól í Lundúnum. Hafði hann skáta- belti sér um mitti. Dómarinn spurði ungling þennan: „Ert þú skáti“. „Nei“ svaraði ungl- ingurinn. „En hvers vegna hefur þú þá skátabelti“, spurði dómar- inn. „Til að halda uppi um mig buxunum, Sir“. — Reuter. Framh. á bls. 2. Ncbelsverðiaununum í lækn- isfræði skipt milli 3 lækna ■jyrOBELSVERÐLAUN i læknisfræði fyrir árið 1956 hafa verið veitt og er ákveðið að skipta þeim á milli þriggja lækna. Einn þeirra er þýzkur, hinir tveir bandarískir. Allir fá þeir verð- launin fyrir rannsóknir á sviði hjartasjúkdóma. ★ VERÐLAUNAMENNIRNIR Læknar þessir eru prófessor Cournard og próf Richards, báð- ir við Columbíaháskólann í New York og dr. Forsmann, en hann á sína eigin lækninga- og rann- sóknarstofu í Þýzkalandi. Hann var áður prófessor við Berlínar- háskóla. Nngy orðinn proíessor okt. Vínarborg, 18, Reuter. IMRE NAGY, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverja- lands, sem nú hefur fengið uppreisn æru og komizt til valda í kommúnistaflokknum á ný, hefur verið tilnefndur sem prófessor í landbúnaðar- vísindum og þjóðlegri hag- fræði við Karl Marx háskól- ann í Budapest. Skammt er öfganna á millU! i ★ ÖTULIR LÆKNAR Þessir þrír menn hafa unnið á sama sviði. Dr. Forsmann gerði fyrstur aðgerð, sem hinir síðar endurbættu. Þeir hafa og gert víðtækar rannsóknir á sviði blóð þrýstings. Dr. Forsmann er 52 ára gamall, en Bandaríkjamennirnir eru báð- ir 61 árs. NÆSTA SKREFIÐ Góðar heimildir herma að skoðun Selwyn Lloyds og Pin- eaus sé sú, að Egyptar verði að taka næsta skrefið um samningaumleitanir í deil- Milliríkjadeila út af 2 ára stúlkubarni! LUNDÚNUM, 18. okt. — Sendi- herra Rússlands í Englandi gekk í dag á fund Nuttings, aðstoðar- utanríkisráðherra, til að mót- mæla því, að Bretar hafa bannað tveggja ára gamalli stúlku að fara til Rússlands með föður sín- um, sem er rússneskur. — Kom stúlkan til Bretlands frá Banda- ríkjunum í s.l. viku, en faðirinn ætlaði austur til Rússíá. Ástæðan til þess að stúlkan fær ekki að fara úr landi er sú, að móðir barnsins, sem er banda- rísk, vill með engu móti, að barn- ið fari austur til Rússlands. Nutting mun hafa svarað sendi herranum, að þetta væri mál sem réttinn varðaði. Til Austurheims vil ég halda...: Er íslenzka ríkisstjórnin ú semja um viðurkenningu Austur-Þýzkalands ? tlÉR Á LANDI eru nú staddir 6 sendimenn frá austur-þýzkum stjórnarvöldum. Og í dag mun von á sjö öðrum sendimönnum frá sömu slóðum. Sendimenn þessir munu eiga að vinna að því að setja hér á laggirnaar einhvers konar opinhera skrif- stofu á vegum austur-þýzku stjórnarinnar, sem er eins og kunnugt er leppstjórn Rússa og hvergi viðurkennd sem þýzk ríkisstjórn nema í þeim löndum, sem komm- únistar stjórna. MIKIÐ ALVÖRUMÁL Það er vissulega hið mesta alvörumál, ef ríkisstjórn Islands er nú að undirhúa viðurkenningu á þessari austur-þýzku leppstjórn, sem alls ekki er hægt að líta á sem þýzka ríkisstjórn. Væri það hin mesta móðgun við Sambandslýðveldi Vestur-Þýzkalands og ríkis- stjórn þess, ef kommúnistar í ríkisstjórn íslands knúðu fram slíka viðurkenningu. Gæti slík framkoma af hálfu íslcnzku stjórnarinnar valdið íslendingum tjóni og vandkvæðum. STRAUMURINN FRÁ LEPPRÍKJUNUM Það er engin smáræðis sendinefnd, sem hin austur- þýzku stjórnarvöld hafa sent hingað. En það sýnir hvert stefnir í íslenzkum utanríkismálum og við- skiptamálum, að straumurinn af alls konar nefndum og sendimönnum frá leppríkjum kommúnista vex með mánuði hverjum. Til Áusturheims vil ég halda, er kjörorð stjórnar þeirra Hermanns og Hannibals!!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.