Morgunblaðið - 19.10.1956, Page 16

Morgunblaðið - 19.10.1956, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Fðstudagur 19. okt. 1956 Skrumið um Samviimuiryggiregar LAUGARDAGINN 1. f. m. áttu Samvinnutryggingar 10 ára af- mæli, og í því tilefni birtu Tím- inn og Alþýðublaðið afmælis- greinar í sunnudagsblöðum sín- um, og notuðu þá jafnframt tæki- færið til að vega að öðrum trygg- ingarfélögum með órökstuddum fullyrðingum og dylgjum. Önnur tryggingarfélög hafa ekki til þessa haldið uppi áróðri gegn Samvinnutryggingum, né amazt við þeim á neinn hátt, þrátt fyrir ákafan áróður frá þeim, og er því kominn timi til að spyrna við fótum og gefa al- menningi kost á, að kynna sér málið frá báðum hliðum. Eru því skrif greindra blaða tilefni þess- arar greinar. VEITING AFSLÁTTAR Blöðin upplýsa, að bifreiða- deild Samvinnutrygginga hafi inn leitt þá nýjung, að veíta þeim bifreiðaeigendum afslátt, (bónus) sem ekki háfa valdið tjóni ákveðinn tíma. Þetta er helber fjarstæða og ér sambærilegt við, að þeir sem síðar tóku upp þá kenningu Galileis, að jörðin snerist kringum sólina, væru að boða eitthvað nýtt. Sannleikur- inn er sá að þetta er gamalt eins [innig [yririiggjandi vörur frá hinum feeimsþekktu Stoke- ley’s og Van Camp’s niðursuðuverksmiðj- Tómatsósa, 2 teg. Hvítur, gufusoðinn maís í mauki. Gulur gufusoðinn Gulur gufusoðinn maís í mauki Spanish rice (spánsk ur rísréttur), Eplasósa í hálfpunds dósum. innig frá louzoni Spaghettisósa, með sveppum, Spaghettisósa með kjöti, og Spaghetti í pökkum, ýmsar gerðir. Söluumboð: Afgreiðsla svnjörl í kisgerðanna hf. Þverbolti 21 — sími 1314. og flest annað undir sólinni. Bif- reiðatryggingarfélög þau er störf- uðu fyrir stríð (Sjóvátryggingar- félag íslands h.f. og Trolle & Rothe h.f.) höfðu um árabil reynt þessa nýjuna, með þeim árangri að þau urðu að hætta við hana, vegna almennrar óánægju bif- reiðaeigenda. Þá er Samvinnu- tryggingar hófu að veita bifreiða- eigendum afslátt urðu hin félög- in, nauðug, viijug, að gera slíkt hið sama, svo bifreiðaeigendum yrði ekki mismunað í iðgjöldum. Þá þegar vakti þetta nokkurn styr en síðan hafa sum bifreiða- eigendasamtök, svo sem F. f. B. o. fl. skorað á félögin, að hætta að veita afslátt. Þeir sem eru með og móti þessu fyrirkomulagi hafa báðir nokkuð til síns máls. Þeir, sem á móti eru, telja afsláttinn ýta undir menn að hlaupast frá þeim tjónum, sem þeir hafa vald- ið, en hinir telja sanngjarnt, að veita mönnum einhverja umbun fyrir að hafa ekki valdið tjóni, og fá þá að sjýlfsögðu allmargir afslátt vegna þess að þeir komust undan óséðir eftir að hafa valdið tjóni. Getúr það því orðið kald- hæðni örlaganna þegar verið er að hengja gullpening á mann, fyr- ir góðan og öruggan akstur í 5 ár, en sá hinn sami hefur valdið einu eða fleiri tjónum, þótt ekki hafi upp komizt. Það er riú orðið í fyllsta mátá tímabært fyrir löggjafann að at- huga hvort ekki eigi að banna að veita mönnum afslátt af ið- gjöldum bifreiðatrygginga, ef það mætti verða til þess, að fleiri fengju bætt tjón sitt, er sitja nú uppi með sárt enni vegna þess að einhver níðingurinn hugsaði iheira um að fá 2—300 kr, afslátt en að gera öðrum fært að fá bætt sitt 10 þúsund kr. tjón. koma félaganna er gagnvart end- urtryggingafélögunum. Hluti endurtryggjenda í tjónum % af endurtryggðum iðgjöldum Almennar Tryggingar 82.55 Samvinnutryggingar 51.80 Sjóvá 82.20 Þetta sýnir að bæði Almennar og Sjóvá fá svo til öll hin end- urtryggðu iðgjöld aftur en Sam- vinnutryggingar aðeins röskan helming. Ef athugað er hins vegar hvað hinir erlendu aðilar taka mikinn þátt í greiðslu heildartjóna félag- anna lítur það þannig út: Almennar Tryggingar 77.28% Samvinnutryggingar 37.62% Sjóvá 88.87% títkoman er sú, í fáum orð- um sagt, að Samvinnutrygg- ingar eyða meiru fé í endur- tryggingar og fá minna til baka en hvort hinna félag- anna, svo Samvinnutryggingar hafa ekki af miklu að státa, eða á maður að segja Timinn j og Alþýðnblaðið. Það er einnig nokkuð gama.n i að koma því að í blöðunum að félagið endurtryggi Andrea Doria, | Stöckholm eða jafnvel Queen | Mary. Jafnvel þótt hlutur þess, í j iðgjaldinu sé ekki nema 10—20 i kr. Já, miklir menn erum við Hrólfur minn!! ENDURTRYGGINGAR ÓHAGSTÆÐARI Greind blöð skrifa og mikið um hina hagkvæmu endurtrygg- ingasamninga Samvinnutrygg- inga, og hvað þær spari þjóðinni mikinn gjaldeyri á ári hverju. Það er nú svo, að „ekki er allt gull, sem gióír“. Því miður má segja, því þá værum vér öll rík og Samvinnutryggingar spöruðu gjaldeyri. Við athugun á reikningum 3ja tryggingarfélaga, en þau eru, Samvinnutryggingar, Almennar Tryggingar og Sjóvátryggingar- félag fslands (Vátryggingarfélag- ið var ekki unnt að taka með í samanburð þar eð það hefur starf að aðeins í tæp 3 ár) s. 1. 5 ár þ. e. 1951—1855 incl. kemur í ljós að endurtryggingasamning- ar Samvinnutrygginga eru mun óhagstæðari en hinna félaganna, sé miðað við gjaldeyrissparnað. Öllum má það ljóst vera, að hin íslenzku félög eru hvergi nærri það sterk fjárnagslega, að þau geti staðið undir öllum þeim samningum, sem gerðir eru við hina tryggðu og eiga þau þá tveggja kosta völ, til að dreifa ábyrgðinni, en það er, að tryggja á innlendum eða erlendum mark- aði. Þótt eitt félag fæli öðru | endurtryggingu myndi svo fara ] að félag það er endurtrygging- 1 una tæki að sér, tryggði stóran | eða litinri hluta þess hjá erlendu | félagi. Sé gengið út frá því að j mestur hluti endurtrygginga fari til erlendra félaga, sem greiðist þá að sjálfsögðu með erlendum gjaldeyri er það þó ekki nema hálf sögð saga hvað gjaldeyris- eyðslu snertir, því jafnframt því að hin erlendu félög fá iðgjöld verða þau að greiða stóran eða lítinn hluta tjóna þeirra, er ís- lenzku félögin hafa greitt. Mis- munurinn á iðgjöldum og tjónum, að viðbættum og frádregnum um- boðslaunum, er hin raunverulega gjaldeyriseyðsla eða hagnaður eft ir atvikum. IFKOMAN GAGNVART rNDURTRYGGINGAFÉI.ÖGUM Látum oss þá sjá hverning af- „BRAUTRYD TENn * srr AW FID'* Þá er það brautry öjendastarfið. Jú, mikil býsn. En nú þegar Rúss- er eru hættir að halda því fram, að þeir hafi fundið upp allt rnilli himins og jarðar, og láta sér lík- lega að lokum nægja að hafa fundið upp „Vodkað" er þá ekki rétt að aðrir gangi hljóðlega á sínum inniskóm? Ekki er nú í fljótu bragði hægt að koma auga á brautryðjenda- starfið, nema ef það væri þá „bónusinn". Nei, þetta hljóta bara að vera hugarórar blaðanna. Hvers konar okursamtök eru eiginlega þessi tryggingarfélög? (að Samvinnutryggingum auð- vitað undanskildum?) Þau hækka og hækka iðgjöldin til þess að græða meira og meira. Alþýðublaðið segir að Sam- vinnutryggingar hafi .... neitað að taka þátt í samtokum félag- anna (sem aðallega semja um iðgjöldin). Hvers vegna er nú blaðið að halda fram þessari firru? Er þarna þjónustuiund blaðamanns- ins að verki? Eða er von á aug- lýsingu eða hvað? Það rétta er, að Samvinnu- tryggingar hafa frá upphafi verið aðilar að öllum iðgjöldum og breytingum, sem gerðar hafa ver- ið.á þeim, enda þótt Samvinnu- tryggingar séu í eðli sínu „non tarif“ félag. Að sjálfsögðu hafa engar iðgjaldabreytingar átt sér stað nema að undangenginni ýtar legri rannsókn og athugun á þörf- um félaganna fyrir slíkar breyt- ingar. Þá sæta félögin ákúrum fyrir að hafa ekki veitt Samvinnu- tryggingum aðstoð við að brjóta á bak aftur einkaleyfi það, er Brunabótafélag íslands hafði á húsatryggingum utan lögsagnar- umdæmis Reykjavíkur. Þar er mikill aðstöðumunur á. Annars vegar Samvinnutryggingar með óskiptan þingflokk á bak við sig, en hin félögin án slikrar liðs- sveitar. Mega allir sjá aðstöðu- muninn. Ýmislegt fleira mætti tína til, en ekki er ástæða til að elta ólar við allar fjarstæður greindra blaða, en gjarnan mættu þau muna að svo má lofa einn, að annar sé ekki lastaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.