Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 17

Morgunblaðið - 19.10.1956, Side 17
Fostudagur 19. okt. 1956 MORCV <V BLAÐ11 1? Eiiiar Befjason frá Kringsdal: Kennslubækur nar, hj artasj úkdómarnir og utanbókarlærdómarnir „Næst er minnið mannsins hjarta, minnir það á ríka hljóma.“ Matth. Joch. HINN 4. febr. s. á. ritaði ég grein um kennslubækur með fyrirsögn- ; inni: „Gjörið námið í skólunum : auðveldara og notadrýgra." Fjall- ar greinin um það, að spurningar vanti við flestar íslenzkar kénnslu bækur. Þykir mér það mikil vöntun, þar sem þetta vansmíöi bókanna kemur harðast niður á smælingjunum — „minnstu bræðrunum" meðal nemendanna, sem erfiðast veitist námið. Byggi ég þá skoðun mína á um 50 ára reynslu er ég hefi haft meiri og minni afskipti af kennslu barna og unglinga, og einnig á umsögn hinnar frægu ensku lesbókar „The Royal Readers," sem gefin er út í 6 hlutum eða bindum af frægum enskum bókmenntafræð- ingum og kennurum, eftir því, sem menntamaður, mjög vel kunnugur enskum bókmenntum, hefir tjáð mér. Bókafélag það, sem gefur bókina út, hefir bæki- stöðvar sínar bæði í London, New York og Ítalíu. Virðist því sem ekki ætti að vera í neitt kot vísað, þótt við íslendingar tækjum bæk- ur þessar okkur til fyrirmyndar. í bók þessari er sú kennsluaðferð viðhöfð, að eftir hvern kafla, sem það á við, koma spurningar, þar sem spurt er um allt það, úr efni kaflans, sem einhverju máli skiptir, að nemandinn viti. f for- mála að 5. hluta bókarinnar stendur þessi grein um spurning- arnar. í lauslegri þýðingu er greinin á þessa leið: „Spurning- unum við hvern kafla er lialdið áfram í þessari bók, ekki cin- göngu til þæginda fyrir kennar- ann, heldur líka í þeim tilgangi, að gera nemandanum færara að sannprófa hvort hann hafi til- einkað sér efni kaflans, eftir að hafa kynnt sér hann. Spurning- arnar munu þannig tryggja kenn- aranum, að hver ltafli hafi verið vandlega lærður, og eins og bent var á í undanfarandi bók, munu þær mynda ágætan grundvöil rit- gerðaæfinga“. í 6. hluta bókarinnar er sagt, auk þeirra atriða, sem talin eru í ofanritaðri grein í 5. hluta bók- arinnar spurningunum til gildis, að það sé sérstaklega mikilsvert fyrir foreldra og aðra vandamenn nemendanna, að spurningarnar auðveldi þeim að fylgjast með því, hvað námi barna þeirra og skjólstæðinga líði með því að prófa nemendurna með tilstyrk spurninganna, sem prentaðar eru við hvern kafla. En þá þarf sá, sem yfirheyrir, að hafa svör við hendina við spurningunum, sem samin væru af nemandanum eft- ir að hann hefði vandlega lesið yfir kaflann. Get ég ekki skilið í öðru, en að öllum foreldrum og öðrum vandamönnum, ætti að vera ánægja að slíku starfi, þar sem það veitti þeim fullvissu um, ef nemandinn gæti svarað rétt öllum spurningum, er ættu við kaflann, að hann stæði sig vel í skólanum og prófunum. Hafi foreldrar eða aðstandendur nem- enda ekki ástæður til, einhverra hluta vegna, að yfirheyra þá, geta þeir falið það öðrum í hendur, er þeir treysta. Ég þekki mann, sem mun nú lesa hagfræði við háskólann. Átti ég tal við hann um kennsluaðferð þessa, kom það þá upp úr kafinu, að hann hafði sjálfur notað aðferð þessa við sögunámið, sem hann sagði, að hefði verið sér erfitt og hann stöðugt fengið lélegar einkunnir í sögu. Fór hann þá að nota þessa spurningaaðferð. Eftir það sagð- ist hann hafa fengið stöðugt á- gætiseinkunnir I sögu á prófum. VARÐAR FRAMTÍÐ NEMANDANS En það er tímatöf frá erfiðu námi, að semja nákvæmar spurn- ingar við kennslubækurnar, og svo munu það vera tiltölulega fá- ir af nemendunum, sem haf a fram tak eða dugnað í sér til að semja slíkar spurningar, svo í góðu lagi sé. Oftast munu þeir láta kylfu ráða kasti, hvað mikið þeir hafa tileinkað sér af efni kaflanna og koma því ver undirbúnir í tím- ana en æskilegt væri. Það hlýtur aftur að koma fram á prófunum, þeim sjálfum og foreldrum þeirra og aðstandendum til sárs kvíða og hugarangurs. Því á því getur oltið um framtíð nemendanna, hvernig námið og prófin takast. En það kunnara, en frá þurfi að i skýra, hvað mörgum foreldrum fellur það þungt, þegar börn þeirra falla á prófi. ÞAÐ DUGAR EKKI A» SEGJA ÞEIM AÐ LÆRA Sést á þessu, hversu afar nauð- synlegt það er, að kennararnir auðveldi nemendunum að nema kennslubækurnar. Það dugar ekki, að segja þeim að læra, held- ur veröur kennarinn, að sýna þeim, hvernig þeim sé auðveldast að læra. Að því er einmitt stefnt með þeirri aðferð, sem hér er verið að skýra frá. Því tel ég það hina mestu höfuðnauðsyn, að um leið og kennslubækur eru útgefn- ar í sögu, hagfræði, landafræði, náttúrufræði, dýrafræði, eðlis- fræði, efnafræði vélfræði og mál- fræði o. s. frv., séu spurningar prentaðar eftir hvern kafla bók- arinnar. Hins vegar ætti að gefa út sérprentaðar spurningar við þær kennslubækur, sem nú eru í umferð. Spurningar þessar þurfa að vera svo ýtarlegar, að engu sé því gleymt af því, sem spyrja þarf um og máli skiptir að nemandinn viti af efni kafl- ans, sem spurningarnar eiga við. Spurningarnar eiga valdir sam- vizkusamir menn að semja, sem og kennslubækurnar. Spurningar þessar á svo að nota við prófin. En til þess að velja úr þeim til prófs, séu fengnir óhlutdrægir, samvizkusamir menn og góð- gjarnir, sem starfinu eru vaxnir. Prófspurningunum sé svo vand- lega haldið leyndum þar til að prófi kemur. Mjög æskilegt og öruggast er, að nemandinn semji ritgjörð um hvern kafla, eins og bent er á í Royal Readers. Það festir efnið betur í minni og sam- lagar það betur huganum. Við það lærði nemandinn mikið, um leið og það æfði hann í ritleikni og efldi hann í hugmyndaauðgi og andagift. LÉTTIR UPPLESTUR FYRIR PRÓF Námsaðferðin verður því þann- ig: Nemandinn les hvern náms- kafla rækilega ofan í kjölinn. Þegar hann telur sig hafa tileink- að sér efni kaflanna nægilega vel, semur hann skrifleg svör við spurningunum. Reki hann ein- hvers staðar í vörðurnar, við samningu svaranna, verður hann að fá aðstoð kennarans eða þeirra manna, sem hann treystir til að veita sér rétta aðstoð eða leiðbein ingar, svo að svörin verði rétt. Þegar hann hefir sannfært sig um, að hann hafi tileinkað sér nógu rækilega efni svaranna, mætir hann þannig útbúinn í tíma, við búinn að notfæra sér útskýringar kennarans, sem Iiann veitir eftir beztu getu eftir tíma og öðrum ástæðum og þeirri skyldurækni og samvizkusemi sem hverjum er lagin. Þetta léttir líka stórkost- lega upplesturinn fyrir prófin, en skapar öryggi og ánægju hjá nem andanum, og veitir honum þrótt og kjark. En vafinn, kvíðinn og öryggisleysið leiðir af sér deyfð og Icjarkléysi og getur ef til vill lagt námið í rústir. HLYNNIÐ AÐ „MINNSTU BRÆBRUNUM" Þeir kennarar, sem segja nem- endum meira en það, sem er í kennslubókunum af fræðandi, á- ríðandi efni, ættu ávallt að láta þá skrifa það niður hjá sér, svo öllum nemendunum jafnt sé gef- inn kostur á að festa sér það í minni. Sé það ekki gert, kemur sú kennsla eða ræðuhöld ein- göngu þeim gáfaðri og eftirtekt- arsamari að notum, en fer inn um annað og út um hitt eyrað á þeim ógáfaðri og eftirtektarminni. Væri þá rangt gagnvart þeim síð- artöldu að láta spurningar úr slík, um fróðleik koma á prófum. Með, því væri minni bræðrunum sýnd ónærgætni, sem þó, eftir boðum! kristninnar, er mest þörfin að hlynna að. PROFSKREKKUR ORSOK HJARTASJÚKDÓMA? Nú sitja menn við bókalestur í skólunum frá 7 upp í 20 ár, nema aðeins kringluna úr sumr- unum. Taka þeir 2—3 próf á ári, og í barnaskólunum fleiri. Allan þennan langa skólatima sitja rnenn við lesturinn meira og minna kvíðafullir um sinn and- lega hag við prófin, sem svo þegar að þeim kemur nær hámarki. Þar mæta margir skjálfandi á beinun- um, náfölir af hræðslu og ýmsu er því fylgir, og dæmi munu vera til þess, að sumum hafi legið við taugaáfalli, er þeir hafa fallið við próf. Að ofan er getið hversu ill áhrif slíkt hefir á foreldrana. Þetta er mikið að kenna því, að ég tel, að við kennslubækurnar vant ar spurningar eins og lýst hefir verið hér að ofan. Og er nú ekki einmitt hér að finna eina orsök hjartasjúkdómanna, sem nú herja hatrammlega á þjóðina og eru, samkvæmt dánarskýrslum 1953, skæðastir allra sjúkdóma, sem þjá íslenzku þjóðina? Næstskæð- ast er svo krabbameinið. Árið 1953, sem er síðasta ár, sem skýrslur fást um, eru dauðsföll af hjartasjúkdómum 228 á árinu, eða 19 á hverjum mánuði. Þar næst kemur krabbameinið með 211 dauðsföll á árinu, eða rúm- lega 17 á mánuði. Árið 1951 urðu 204 dauðsföll af völdum hjarta- sjúkdóma og 213 krabbameins- dauðsföll. Sést á því, að á þessum tveimur árum hefir krabbameins- dauðsföllum fækkað um ca. 0,94% en hjarta sjúkdómstilfellum hefir fjölgað um ca. 11,76%. Enginn er svo tilfinningalaus fyrir afkom- endum sínum, að honum finnist þetta ekki ill tíðindi. Nýlega segja blöðin, að helmingur allra sjúklinga á sjúkrahúsum Evrópu séu taugaveiklaðir, og tæpur Vs dauðsfalla í Danmörku er af hjartabilun. Ætti því öllum að vera augljóst, hversu afarmikil nauðsyn það er, að allir taki hönd um saman um að útrýma þessum sjúkdómsvoða hjá þjóðunum, og ættum við fslendingar ekki að láta okkar eftir liggja í því efni. Tel ég að hér sé verið að benda á rétt spor í áttina til þess, því ekki trúi ég, að nokkur læknir sé svo skyni skroppinn, að hann telji það kvíða- og hræðsluástand ekki óhollt fyrir heilsuna, sem því miður margur nemandinn verður að þola fyrir próf og á prófi og hér að ofan hefir verið lýst. Mér finnst að hverri þeirri kennslubók, sem viðeigandi spurningar vantar við, megi líkja við bitlítinn ljá, sem aðeins hraustmennin geta þvingað sig til að nota, en slíkt verkfæri of- býður kröftum lítilmagnans, og gerir starfið verkleysu. Eins er um spurningalausu kennslubók- ina. Hinn gáfaði námsmaður get- ur helzt eitthvað tjónkað við hana, en hún er lamandi, og liggur við borð, að hún sé sálar- drepandi til náms fyrir hinn gáfnatrega, samvizkusama og taugaveiklaða nemanda. En þeir gáfnatregu geta líka orðið til sóma og gagns föðurlandinu, ef þeir eru reglu-, skapfestu-, mann- lcosta- og gæfumenn. En gáfurn- ar eru því aðeins æskilegar, að þær séu notaðar mannfélaginu til j góðs. Áð námsbókunum, sem | margar eru samdar af ágætum j mér lærðari mönnum, finn ég | ekki annað en það, að við þær vanti viðeigandi spurningar svo nákvæmar, að þeir sem gætu svar að þeim öllum rétt, séu öruggir að standast prýðilega vel próf í þeirri námsgrein, sem bókin fjall- ar um, þar sem spurningarnar eru lagðar til grundvallar prófinu. HÆFIR MENN SEMJI SPURNINGARNAR Þetta öryggi skapar ánægju og lífsgleði hjá nemendunum og eyk ur hjá þeim sálarþrótt, þar sem á hinn bóginn óvissan og örygg- isleysið dregur úr honum, gerir menn daufa og kjarklausa, veik- ir vonina, sem er lifsins verndár- engill, skapar taugaveiklun og minnimáttarkennd. Breytingar þær, sem ég hér að framan hefi lagt til að gerðar verði á mörg- um af kennslubókunum og á próf- unum, eiga að verða til þess að gera nemendunum námið auð- veldara, notadrýgra og hollara og létta aðstandendum þeirra starfið stórkostlega, við að búa nemend- urna undir kennsluna i skólunum, sem ég sé nú í blöðunum að einn skóli hér óskar eftir. Auk þess tryggir það, að námið yrði betur af hendi leyst. Það væri líka miklu meiri trygging fyrir því, 1 að spurningarnar væru í sem beztu lagi, ef valdir, ágætir kenn- arar semdu þær, heldur en að ýmsir misjafnir kennarar gerðu það, eins og nú mun eiga sér stað, en sumir gefa þær alls eng- ar. Með þessu móti fengju líka allir nemendur á landinu, sem notuðu sömu kennslubækurnar, sömu spurningar, og fengist þann ig miklu meira samræmi í prófin og gleggra og ábyggilegra yfir- lit yfir kennsluna í skólunum, en gerði prófin um leið ábyggilegri. EKKI MINNA, HELDUR NOTADRÝGRA NÁM Þér foreldrar og aðrir aðstand- endur nemenda, sem eruð margir lærðir menn og prýðilega ritfær- ir og sjálfsagt margir áhrifarík- ir, ef þér viljið beita yður fyrir málinu, sem hér um ræðir, en berið ef til vill leyndan kvíða sumir um traustleika skjólstæð- inga ykkar við námið eða á próf- j unum, því hvern tekur sárt til sinna. Munduð þér nú ekki vilja , taka yður penna í hönd og rita um þetta mál, og beita áhrifum yðar til þess að fá breytingar j þær á námsbókunum og prófun- um í sambandi við það í fram- kvæmd, eins og hér að ofan hefir verið lagt til? Minnist þess, sem hinir lærðu útgefandur. „Royal Rcaders“, segja um spurningarn- ar: „Að þær tryggi kennurunum, að nemendurnir hafi tilcinkað sér nákvæmlega efni kaflans, auk þess, sem þær séu ágætur grund- völlur fyrir ritgerðum, og veiti foreldrum og aðstandenduin betri aðstöðu til þess að fylgjast með náminu“. Nái þessar breytingar fram að ganga, er ég sannfærður um, að þær munu verlca eins á nemendurnar, nám þeirra og próf, og námsmanninn, sem ég hér að ofan nefndi, að námið og prófin mundu ganga prýðilega, þar sem spurningarnar næðu til að hafa áhrif, og auk þess valda ykkur, aðstandendur góðir, og nemend- unum minni kvíða og áhyggjum. Nemendurnir lærðu meira, en yrðu sér sjálfum, ykkur og kenn- urum sínum til gleði og sóma. Því sá er munurinn mestur, er mjúkt bítur ljár í skára, grasið á grænu engi, greitt í unnvörpum fella. Var sagt eitt sinn, er maður hafði staðið í þurrki á grýttum harðvelli og skörð höfðu brotnað í ljáinn. Svipað er með náms- bækurnar. Því eins og allir vita, að hægt er að hvetja eða brýna ljáina, svo þeir verði flugbeittir og „bíti mjúkt í skára“, eins má bæta spurningum við námsbæk- urnar, svo þær verði auðveldari, notadrýgri og hollari til náms. Athugið! að hér er ekki með grein þessari verið, að óska eftir minna námi, heldur eftir nota- drýgra námi, betur af hendi leyst, en þó með minni kvíða og á- hyggjum. Með spurningunum er ætlazt til, að efni kaflanna sé þjappað saman, en þess nákvæm- lega gætt að kjarni þess ekki skerðist. Hið gullna en vandrat- aða meðalhóf er bezt á utanbók- arlærdóminum eins og öðru. Sum ir andstæðingar utanbókarlær- dómsins hafa í lítilsvirðingar skyni líkt honum við páfagauks lærdóm. V UTANBÓKARLÆRDÓMUR » ÞROSKANDI Fyrir nokkrum árum hélt Karl Strand læknir erindi í útvarpið. í erindi þessu staðhæfði hann, að nú væru fengnar vísindaleg- ar sannanir fyrir því, að utan- bókarlærdómur hefði þroskandi áhrif á mannsheilann, en ekki páfagauksheilann. Taldi hann því, að andúðin, sem menn hefðu haft á utanbókarlærdóminum hlyti að hverfa. Þessar visinda- legu sannanir þyrftu kennarar ! þeir og skólamenn, sem andstæð- ir eru utanbókarlærdóminum, að leggja sér á hjarta, sem efalaust gæti orðið til þess, að sálarsjón- ir þeirra skýrðust, svo þeir röt- uðu á hinn rétta veg til að leiða nemendur sína eftir. Ekki væri heldur ef til vill úr vegi, að yfir- stjórn kennslumálanna í landinu hugleiddi þessar vísindalegu sannanir, þar sem henni ber sjálf- sagt skylda til, að stjórna vörð- un vegarins, sem kennararnir eiga svo að þræða með nemend- urnar, sem sjálfsagt er að þroska sem mest. Tvær ágætar bækur finnst mér ég þurfi að minnast á. Það er Stafsetningarorðabók Halldórs Halldórssonar, með skýringum og Kennslubók í stafsetningu eft- ir þá Árna Þórðarson skólastjóra og Gunnar Guðmundsson kenn- ara. Það var ómetanlegur fengur fyrir alla þjóðina, og ekki sízt þá, sem fást við réttritunar- kennslu, að þessar bækur voru útgefnar. Útgáfa þessara bóka v?r því hið mesta þjóðþarfaverk. Er staf setnin gar orðabókin 258 blaðsíður í ágætu bandi gyllt á kjöl. Hin bókin er 180 blaðsíður. Æitu bækur þessar að vera til á hverju hsimili á landinu. Þær kosta báðar samtals 55 krónur. Það er að mínu áliti nauðsynlegt að kenna sem fyrst börnum og unglingum rétta stafsetningu, því að því munu þau búa alla ævi. Því, „smekkurinn sá sem kémst í ker keiminn lengi á eftir ber“. Eina bók vil ég auk þessara bóka nefna, og þr.ð er Málfræði fyrir barnaskóla eftir Jónas B. Jóns- son, fræðslufulltrúa og Friðrik Hjartar, skólastjóra, sem að mínu áliti er sú langfullkomnasta mál- I fræði handa börnum, sem út hef- ir verið gefin, enda vantar hér ekki spurningarnar. Er á því auð- séð að höúmdarnir hafa boric I fullt skyn á gagnsemi og nauðsyr. I spurninganna fyrir nemendurna. — Munið eftir smælingjunum 1 sem gengur námið erftðlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.