Morgunblaðið - 24.10.1956, Síða 3

Morgunblaðið - 24.10.1956, Síða 3
Miðvikudagur 24. okt. 1956 MORGTJNBLAÐ1Ð Lena er syfjuð á morgnana því að hún er bara níu ára Gitfu og Lenu langar til að koma affur til islands FJÖLLEIKAFÓLKIÐ, sem undanfarið hefur skemmt Keykvíking- i um á Blaðamannakabarettinum, heldur heimleiðis í dag. Meðal þess eru litlu systurnar Gitta og Lena Pylow, sem hvað mest hafa vakið hrifningu áhorfenda, með hinum snilldarlega sýlófón-leik s.ínum. Þetta er í ánnað skipti sem Gitta kemur hingað, en í fyrra skiptið kom hún 1953, þá níu ára að aldri. Fréttamaður Morgun- blaðsins átti samtal við þær systur í gærkvöldi, en þær láta mjög vel af dvöl sinni hér. — Þið eruð danskar, er það elcki? — Jú, við erum frá Hróars- keldu, en þar eiga foreldrar okk- ai heima. — Hvað eruð þið gamlar? — Ég er 12 ára, en Lena systir er 9 ára. — Það var Gitta sem hafði orð fyrir þeim systrunum. — Eigið þið mörg systkini? — Við erum bara þrjú. Við eigum einn bróður, sem er 15 ára. kunnum við nú ekkert í henni, en við getum vel leiltið okkur og skoðað myndir, þá skiljum við hana alveg. — Farið þið snemma á fætur á morgnana? — Nei, við klæðum okkur svona um 10-leytið, það finnst okkur ekki snemmt. En fyrsta daginn fórum við ekki á fætur fyrr en klukkan að ganga 2 um daginn. Þá vorum við þreyttar eftir ferðina. Annars er Lena mikið syfjaðri á morgnana en ég, en hún er nú svo ung, bara 9 ára. FÓRU XIL GEYSIS — Og hvað hafiði svo ferðazt um hérna? — Við fórum um daginn með ,,buss“ yfir fjall að „einhverjum Geysi“, og ... (hér tók Lena við) þar var heitt vatn, sem sprautað- ist upp í loftið og voðalega heitt í kring. Það var mjög skemmti- legt, við sáum mörg fjöll og stór- ar ár. — Hefur ykkur leiðzt hérna? — Nei, nei (tvíraadað), það hefur verið voða gaman. Okkur langar til að koma aftur ein- hvern tíma, en þá helzt að sumr- inu, þegar er heitara. — En þið hlakkið til að koma heim? — Já, til mömmu. Það verður margt sem við getum sagt henni úr þessari ferð. — M. Th. ★ Gitta og Lena — Spilar hann á sýlófón eins og þið? — Nei, hann kann ekki á neitt hljóðfæri. — Gangið þið ekki í skóla? — Jú, við erum báðar í skóla að vetrinum. — En hvernig fer með námið þegar þið eruð að ferðast um? — Ja, þá getum við bara ekki mætt í skólann. Annars ferðumst við mest um að sumrinu. Það er lítið sem við förum að vetrinum. FERÐAST VÍÐA — Hvað hafiði annars ferðazt víða? — Ég, (það var Gitta), hefi spilað í Þýzkalandi, Frakklandi, Austurríki, Belgíu, Svíþjóð, Nor- egi og íslandi, og þetta er í ann- að skipti sem ég kem hingað. Systir mín hefur nú ekki farið til allra þessara landa, því hún er ekki búin að spila svo lengi. — Hvenær byrjuðuð þið að spila á sýlófón? -— Ég byrjaði að koma opin- berlega fram þegar ég var átta ára gömul, en þá var ég búin að læra nokkuð lengi. Lena systir kom fyrst fram 7 ára gömul. — Þykir ykkur ekki gaman að ferðast um og spila? — Ja, jú, jú, það er gaman stundum. .— Hver er með ykkur hérna? -— Pabbi okkar, hann fer alltaf með okkur. „VIÐ ÞEKKJUM ESTER, HÚN ER VINKONA OKKAR" — En segðu mér nú Gitta, hvernig eyðið þið dögunum hérna á íslandi? — Við æfum okkur á daginn, svo lesum við líka fögin okkar, eftir því sem við getum, en stundum leikum við okkur. — Já, við þekkjum hana Ester, hún er vinkona okkar. Hún er dóttir konunnar í Austurbæjar- bíói. „Hun er en dejlig Pige“. — Jæja, það var nú gaman. En skiljið þið hana þá? — Við erum nú náttúrlega ekki góðar í íslenzku, eiginlega SÉRSTÆTT OG GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI Kr. 10, e e x X fo m H Ci H e m M S U • * e . m m X m m S C#5 e H m > X e Menningarsjóður Starfsmannafélags Reykjavíkurb*jar mjóiti íEI*í4 K cx pp cA +"c£ {[\ 1. Píanó, Hornung & Möller..................kr. 25,000.00 2. Píanó, Louis Zwicki ...................... — 25,000.00 3. Píanó, Bogs & Voight ..................... — 20,000.00 4. Píanó, Georg Jensen ...................... — 15,000.00 5. Píanó, Waidberg ........................ — 15,000.00 6. Radíó-grammófónn með segulbandstæki — 20,000.00 (Grundig) PIANO OC tlTVARP m PLÖTUSPILARA” OC SfflJLBANDSTfPI MIÐAR SELDIR HJÁ ÖLLUM FÉLAGSMÖNNUM OG í BÓKABÚÐUM LÁRUSAR BLÖNDAL SkÓLAVÖRÐUSTIG OG VESTURVERI, OG VÍÐAR ER AUGLÝST VERÐUR SÍÐAR STARFSMANIMAFÉLAG REYKJAVÍKURBÆJAR T - HEIIVfDAFLUR - ÓDIMM akvöld halda Sjálfstœðisfélögin í Reykjavik í kvöld kl. 8,30 Skemmtiatriði: 1. Félagsvist. — 2. Ávarp: 3. Verðlaunaafhending. — 4. Dregið í happ- drætti. — 5. Kvikmyndasýning. — Aðgöngumiðar verða afhentir í skrifstofu Sjálfstæð- isflokksins í dag frá kl. 5—6 e.h. SMEMMTINEFNDIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.