Morgunblaðið - 10.11.1956, Side 1

Morgunblaðið - 10.11.1956, Side 1
16 sföur og Lesbók 43. árgangur 259. tb. — Laugardagur 10. nóvember 1950 Prenlsmiðja MorgunblaSsins EndurskoBun varnarsamningsins í þeim tilgangi að nauðsyn/egar varnir landsins séu tryggðar Endurmat þjóðarinnar á ástandinu í alþjóðamálum 15 bílar at stað GENF, 9 nóv — Framkvæmda nefnd alþjóða Rauða krossins hefur ákveðið að í kvöld leggi af stað 15 flutningavagnar með lyf og sjúkravörur Fara þeir frá Vtnarborg og munu freista þess að komast yfir landamærin tii Ungverjalands. Veí yður hrœsnarar" LUNDÚNUM, 9. nóv. — Moskvu- útvarpið tilkynnti í dag, að verk smiðjufólk í Moskvu ætlaði að vinna 2 klukkustunda yfirvinnu á morgun til þess „að hjálpa egypzku þjóðinni“. Verkamenn hafa fjölmennt á fundi þar sem „mótmælt var árás Breta, Frakka og ísraels á Egyptaland". PARÍS, 9. nóv.: — Tilkynnt hef- ur verið í Bagdað, að stjórn Irak hafi ákveðið að slíta stjórnmála- sambandið við Frakkland. — Reuter. Jean P. Sartre Snfr við FRANSKI rithöfundurinn og heimsspekingurinn, Jean Paul Sartre hefur látið út ganga að hann hafi megna fyrirlitn- ingu á aðgerðum Rússa í Ui»g- verjalandi. Hann sagði að hann mundi nú slíta ölium samskiptum við franska kommúnistaflokkinn. Sartre er ekki félagi í flokknum, en hefur lengi stutt hann með ráðum og dáð og óspart verið notaður til áróðurs fyrir flokkinn. Alþingi kjósi 5 manna nefnd fil þess að semja um endurskoðun samningsins Tillögur þinginanna Sjálf- stæðisflokksins á Alþingi CJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN lagSi í gær fram á Alþingi ^ tvær þingsályktunartillögur varðandi varnir íslands. Er hin fyrri þeirra um endurskoðun vamarsamningsins en hin síðari um kosningu nefndar til þess að semja um endur- skoðun samningsins. Bjarni Benediktsson, 1. þingmaður Reykvíkinga, er fyrsti flutningsmaður beggja tillagnanna en allir þingmenn flokks- ins eru meðflutningsmenn að þeim. ENDURMAT Á ALÞJÓÐASAMSKIPTUM Fyrri tillagan er svohljóðandi: „Álþingi ályktar, að vegná hinna ógnþrungnu at- burða, sem sýna að enginn er lengur öruggur, og kalla á endurmat þjóðarinnar á alþjóðasamskiptum, skuli fyrirhuguð endurskoðun varnarsamningsins framkvæmd með það fyrir augum, að nauðsynlegar varnir landsins séu tryggðar, jafnframt því sem bætt sé úr göllum þeim, er fram hafa komið á samningn- um“. ALÞINGI KJÓSI 5 MANNA NEFND Síðari tillaga Sjálfstæðismanna er á þessa leið: „Alþingi ályktar að kjósa með hlutfallskosningu í sameinuðu þingi fimm menn til þess undir forystu utanríkisráðherra að semja af íslands hálfu um end- urskoðun á varnarsamningnum við Bandarikin“. Skæruliðar frelsissveitu geru mikinn uslu í liði Rússu Lundúnum og Vínarborg, 9. nóv. — frá Reuter. | TRANÍUM-NÁMURNAR við Pecs eru rjúkandi rústir. Frelsissveitarmenn sprengdu þar öll mannvirki í loft upp í dag, svo að þessar auðugustu uraníumnámur Evrópu verða ónothæfar um margra ára skeið. Víða í Ungverjalandi er barizt. Urslitakostir Rússa (að afhenda vopn fyrir kl. 3 í dag) voru að vettugi virtir. Smáhópur frelsis- sveitarmanna, sem ætlaði að taka tilboði Rússa um sakaruppgjöf og lagði niður vopn, var látinn ganga að torgi einu þar sem allir voru skotnir. ★ í SMÁHÓPUM í Búdapest hefur frelsissveit- um orðið vel ágengt. Þær tóku í dag, að sögn Búdapest-útvarps- ins, sem Rússar ráða, kastalann gamla í Búda á vesturbökkum Dónár. Útvarpið sagði einnig, að freJsissveitimar yfirgæfu nú sumar þeirra sterkustu vamar- stöðvar, skiptu sér í smáhópa, sem herjuðu á stöðvar Rauða hei-sins. Þessir hópar splundra hverjum skriðdrekanum af öðr- um og skjóta á Rússa frá ólík- legustu stöðum. * SVÍFAST EINSKIS Allar fregnir frá smástöðvum í Ungverjalandi herma að Rússar gangi nú fram af æ meiri grimmd. Þeir svífast einskis í við- skiptum sínum við óbreytta borg- ara sem frelsissveitarmenn. í AUsherjarjþinffinu Allsherjarþing S. Þ. hefur aft- ur komið saman til fundar um Ungverjalandsmálin. Fyrsti ræðu maður var fulltrúi Bandarikj- anna. Hann ræddi um það er hann kallaði „hryllilegt misk- unnarleysi rússneska hersins í Ungverjalandi. — Rússar hefðu jafnvel skipt sér af ferðum flutn- ingavagna Rauða krossins með lyf og aðrar birgðir. Ekkert get- ur afmáð hryllingsverk Rússa, sem æ Ijósari sögur heyrast af.“ — Bandaríkjafulltrúinn spurði, hvort stjórn sú sem Rússar hefðu skipað i Ungverjalandi og Rúss- ar, myndu vilja vinna með aðal- ritara S. Þ. að því að framfylgja áiyktun Bandarikjastjórnar. Það þyrfti skjótra aðgerða við. Banda ríkjafulltrúinn las síðan ályktun lands sins. Þar eru Rússar beðnir þegar í stað að hætta að- för að ungversku þjóðinni, sem er brot á viðurkennd- Framh. á bls. 2. Gæzlulið á ítaiiu Lundúnum, 9. nóv. FYRSTU sveitir gæzluliðs S. Þ., sem fara eiga til Súez- skurðar, koma til Ítalíu í nótt. Var tilkynning um þetta gefin út í Rómaborg. Munu sveit- irnar safnast saman við Nea- pel. Meðal hinna fyrstu sveita verða Norðmenn. — Reuter. BREYTT VIÐHORF Tillögu Sjálfstæðismanna um endurskoðun varnarsamningsins fylgir svohljóðandi greinargerð: „Flestir íslendingar munu taka undir með Tímanum hinn 6. nóv., að „hin grimmúðlega og svívirðilega ofbeldisárás Rússa á Ungverja" hafi „breytt ásýnd heimsinsí“ og að „það sem nú hafi gerzt, kalli á endurmat á viðliorfi alira þjóða á alþjóðasamskipt- um“. Ummæli þessi eru því athyglisverðari sem blaðið hafði lengi áður spáð batnandi horfum í alþjóðamálum, en þó játað hinn 2. nóv., að „það mundi auka viðsjár“, ef Rúss- ar gripu til þess ráðs að herða tökin á fylgiríkjum sínum. Ummæli Tímans hinn 6. nóv. eru þess vegna bersýnilega sögð að vel íhuguðu mál. Timinn er og ekki einn með- al málgagna ríkisstjórnarinn- ar um þessa skoðun, því að hinn 6. nóv. segir AlþýðuMað- ið, að „öllum sé Ijóst, a* eug- inn er öruggur. AHar verstu fullyrðingarnar um ætlun og tilgang skrímsiisins eru su»- aðar sem staðreyndir“. KOM MÖRGU GÓ»U TIL LEIÐAR Samvinna lýðræðisflokk- anna um utanríkismál kom mörgu góðu til leiðar, meðan hún stóð. Sjálfstæðisflokkur- inn metur meira að koma nú á þjóðhollu samstarfi um þessi mál en sakast um orðinn hlut, og er tillaga þessi því flutt af flokksins hálfu í því skynl að freista þess að endurnýja samstarfið um nauðsynlegar varnir fslands. Þetta er því mikilsverðara sem einn af stuðningsflokkum rikisstjórnarinnar hefur ðreg- ið gagnólíkar ályktanir »f þessum geigvænlegu atburð- um. í yfirlýsingu sinni frá 5. nóv. herðir Alþýðubandalagið mjög á fyrri samþykktum, sin- um um, að ísland skuM gert varnarlaust, og segir, að At- lantshafssamningurlnn sé „i raun réttri úr gildi fallinn“. Að óreyndu verður því ekki trúað að nokkur lýðræðis- sinni á íslandi vilji láta lausn varnarmálanna vera komna undir atkvæðum þeirra, er slíku halda fram“. HORFIR EKKI TIL GÓBS AÐ ÚTILOKA STÆRSTA ÞINGFLOKKINN Tillögu Sjálfstæðismanna nn kosningu nefndar til þess að semja um endurskoðun varn- arsamningsins fylgir svohljóð- andi greinargerð: „Þegar varnarsamningurinn var gerður 1951, voru til þeirr- ar samningsgerðar kvaddir fulltrúar allra lýðræðisflokk- anna, einnig Alþýðuflokksins, sem þá var í stjórnarandstöðu. Sá háttur, sem þá var á hafð- Framh. á bls. 2. Þjéðviljoneitn! Hár kemnr „límth“ ykkor F'R Allsherjarþingið ræddi í gær þjóðarmorð Rússa á Ung- ^ verjum, stóð fulltrúi Rússa upp og sagði: „Það er beinlínis brot á sáttmála S.Þ., að ræða þessi málefni Ungverjalands hér í þinginu. Það er verið að nota Sam. þjóðirnar til að hjálpa fasistasveitum til að koma á úreltu stjórnskipulagi í Ungverjalandi. Það er verið að nota Sam. þjóðirnar til þess að beina hug- um fólksins frá vopnaðri árás á Egyptaland“. Þarna er „línan“, sem kommúnistar hafa fengið. Á þessum grundvelli reyna nú öll kommúnistablöð heimsins að draga athygli fólks frá Ungverjalandi og hinum hryllilegu atburð- um sem þar eru að gerast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.