Morgunblaðið - 10.11.1956, Blaðsíða 16
Láfa aldrei bugasf
Sjá gr«iu á bte. 9.
259. tb. — Laugardagw* 19. névember 1959
Geysifjölmennur fundur um
Ungverjalandsmálin á Akureyri
STtri>ENTAFÉLAGH> hér í bæ gekkst fyrir borgarafundi í Nýja-
Bíói í gærkvöldi og var hvert sæti hússins skipað. Formaður
félagsins, Kristján Jónsson fulitrúi, setti fundinn og tilnefndi sem
fundarstjóra Gísta Jónsson menntaskólakennara. Ræðumenn voru
Jóhann Frímann, skólastjóri, sr. Sigurður Einarseon í Holti og
Þórarmn Bjömsson, skólameistari.
Flóttamannanefnd-
in athugar flótta-
mannavandamálið
v/ð ungversku
landamærin
T LÓTTAMANNANEFND
Evrópuráðsins hefur verið kölluð
saman til skyndifundar í þing-
húsinu í Vínarborg á mánudag-
inn kemur kl. 11 árd.
Þessi þingmannanefnd Evrópu
ráðsins mun fara að ungversku
landamærunum og kynna sér á-
standið þar og ræða flóttamanna
vandamálið og möguleika ann-
arra ríkja til aðstoðar.
Af hálfu fslendinga mun Jó-
hann Hafstein alþm. sækja þenn-
an fund, en hann er varamaður
Jóhanns Þ. Jósefssonar, sem sæti
á í flóttamannanefnd Evrópu-
ráðsins.
Að loknum erindum sínum í
Austurríki mun Jóhann Haf-
stein mæta á þingmannaráðstefnu
meðlimaríkja Atlantshafsbanda-
lagsins, sem hefst í París 17. þ.
m. og stendur í vikutíma.
Jóhann Hafstein fer flugleiðis
utan árdegis í dag.
Hann ber sig
undursamlega
f GÆR spurðist Mbl. fyrir um
líðan Sigmars Maríussonar frá
Ásseli, sem stórslasaðist um sið-
ustu helgi, er hann varð milli
tveggja bíla. Missti Sigmar þá
annan fótinn, sem kunnugt er, en
hinn urðu læknar á Akureyri að
taka af. Sigmar ber sig undur-
samlega vel eftir þetta mikla á-
fall. Hann hefur stöðugt haft
þjáningar.
í gær ætlaði Mbl. að leita
fregna hjá lögreglunni á Þórshöfn
um nánari tildrög þessa hörmu-
lega slyss. — Lögreglumaður-
inn, sem fyrir svörum varð,
kvaöst ekki hafa leyfi til þess að
segja blöðunum neitt frá því,
heldur bæri blaðinu að snúa sér
til yfirmanns síns, Björns Ingv-
arssonar á Keflavíkurflugvelli!
— En á þessu stigi málsins var
það tilgangslaust, því hann var
ekki búinn að fá skýrsluna 1
hendur, þar eð ekkert flugveður
hafði verið, en sjálfur kvaðst lög-
reglumaðurinn mundu fara með
skýrsluna suður.
Reynt var einnig að spyrjast
fyrir um mál þetta hjá hrepp-
stjóranum. Hann gaf þær upp-
lýsingar, að slysið hafi orðið fyrir
utan hans embættissvæði. Sjálf-
ur kvaðst hann ekki geta gefið
neinar upplýsingar í málinu. —
Taldi rétt að tíðindamaður blaðs-
ins hefði tal af lögreglunni!!
FIRMAKEPPNI Bridgesambands
íslands hefst sunnudaginn 11. þ.
m., kl. 1,30, í Skátaheimilinu.
Keppt er um fagran farand-
bikar, en handhafi bikarsins er
Heildverzlun Árna Jónssonar h.f.,
sem varð sigurvegari á síðasta
ári. Heildverzlun Árna Jónssonar
er meðal hinna mörgu fyrirtækja
sem nú taka þát-t í firmakeppn-
imú.
^VOTTA UNGVERJUM
SAMÚ®
f lok fundarins var svohljóð-
andi ályktun samþykkt sam-
hljóða:
„Almennur fundur í Nýja
Bíói, Akureyri, haldinn 8. nóv.
1956 að frumkvæði Stúdenta-
fclagsins á Akureyri, lýsir yf-
ir samúð og stuðningi við allar
þjóðir, er sæta ofbeldi og kúg-
un og berjast fyrir frelsá sínu
og sjálfstæði.
Fundurinn vottar ungversku
þjóðinni sérstaklega djúpr
samúð sína, aðdáun og virð-
ingu í hetjulegri baráttu henn
ar gegn hinu rússneska stór-
veldi, sem með dæmafárri
grimmd hefur fótumtroðið
mannréttindi hennar og leit-
ast nú við með vopnavaldi að
þröngva henni til fylgis við
stjórnskipulag, sem andstætt
er vilja hennar.“
GJALLARHORN UTAN DYRA
Fundur þessi var sem fyrr
segir geysifjölmennur. Var
komið fyrir gjallarhornum
fyrir útidyrum hússins og er
talið að þar hafi hlustað um
209 manns á meðan flest var.
Fundur þessi var hinn glæsi-
legasti í alla stað og Stúdenta-
félaginu til sóma. — job.
Ekkeit kolfi
STJÓRNARBLÖÐIN skrökva
því hvert í kapp við annað,
að kaffiveitingar hafi verið
búnar í Sjálfstæðishúsinu
þcim, er stóðu úti í rigning-
unni og fylgdust með veizlu-
gestum Rússa hinn 7. nóv.
Hauk Snorrason hefur auð-
sjáanlega langað í heitan
kaffisopa til að taka úr sér
hroilinn. Honum hefur senni-
lcga leiðzt að mega ekki
slást í hópinn. Honum tii hug-
arléttis skal sagt, að þessi
saga um kaffiveitingarnar er
uppspuni frá rótum.
Meira gert úr somþykktinni
en otburðunum sjúlíum
mm
!®r
Heimdellingar!
EFNT verður tii hópferðar á
mót ungra Sjálfstæðismanna
á Suðurlandi, sem haldið verð-
ur að Hellu i kvöld. Farið
verður frá Valhöli kl. 6 í dag.
Tilkynnið þátttöku í sima 7103.
Takið þátt í skemmtilegri ferð
og komið sem flest.
__ , tbr miiir k>r| ...............
j«st verjact en» gega ofereHimi - •
.
ZZ3v*y*&*0* * w ivoc*.
á«( "X\ r
-
rírv V.<r>y^ +>:•. <**■>> ■#<•<< ,» ■+•.+
• -'-•" . W* ***■' *>
m í Egyptaland hafin «g sagt ;
v. >-•.<■>•. <«.,<. <
sS Porl Sauí «m þaft U s5 falk
> r—-^ %>»vV xj'}'tvÁwy-v
Þessi mynd er
af fyrstu forsíðu
Tímans eftir að
þeir atburðir gerð
ust, sem Timinn
sjáifur segir að hafi
„breytt ásýnd
heimsins". Flestir
munu telja, að hin
„grimmúðlega og
svívirðilega ofbeld-
isárás Rússa á Ung-
verja“ hafi átt
meiri þátt í að
breyta „heimsásýnd
inni“ en samþykkt
ríkisstjórnar ís-
lands um þessa at-
burði og aðra. En
ef svo er, af hverju
gerir Tíminn þá
miklu meira úr
samþykktinni en at
burðunum sjálfum?
Spilakeppni
félaganna
NÆSTA umferð í spilakeppni
Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
byrjar í næstu viku, að Hótel
KEA. Spilað verður tvö kvöld
um verðlaun, fimmtudagskvöldin
15. og 29. þ. m.
Keppt verður um þrenn verð-
laun:
1. verðlaun: Kápa eða kjóll frá
Markaðinum fyrir allt að kr.
1.500,00, eða karlmannsföt frá
Sjálfstæðis-
á Akureyri
Ultíma fyrir allt að sömu upp-
hæð. 2. verðlaun: Hraðsuðuketill
frá Verzlunin „Vísir“. 3. verð-
laun: Brauðrist frá Verzl. „Vísir“.
Aðgöngumiðar að báðum kvöld-
unum verða seldir í skrifstofu
Mót ungra Sjálfstæðis-
manna að Hellu í kvöld
Cunnar Tfaoroddaen ræðir írelsis-
baráttu járntjaldsþjóðanna
IKVÖLD gengst Samband ungra Sjálfstæðismanna fyrir móti
fyrir unga Sjálfstæðismenn og verður það haldið að Hellu.
Munu ungir Sjálfstæðismenn sunnanlands fjölmenna til mótsins
og gengst Heimdallur fyrir hópferð úr Reykjavík. Aðalræðuna
flytur Gunnar Thoroddsen borgarstjóri.
FRELSISBARÁTTA JÁRN-
TJALDSÞJÓÐANNA
í fyrra efndi Samband ungra
Sjálfstæðismanna til veglegs
haustmóts á Hellu og var þar
geysifjölmenni úr sveitum Suð-
urlands. Til þessa móts í kvöld
hefir verið vandað og er ekki að
efa, að það verður mjög fjöl-
mennt. Mótið hefst kl. 9 e. h.
Ásgeir Pétursson formaður S.
U. S. flytur ávarp.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri flytur ræffia og gerir þar
einkum grein fyrir frelsisbar-
áttu þjóðanna að baki jám-
tjaldsins.
VÖNDUÐ DAGSKRÁ
Að lokinni ræðu borgarstjóra
syngur Guðmundur Jónsson Gunnar Thoroddsen
operusöngvari íslenzk log með
undirleik Fritz Weisshappel. Þá
verður gert hlé á dagskránni, en manna hefir gengizt fyrir all-
að því loknu sýna tvær stúlkur mörgum mótum sem þessum
akrobatik. Hjálmar Gíslason og hafa þau öll tekizt vel og
syngur og fer með gamanvísur farið ágætlega fram. Er ekki
og hljómsveit úr Reykjavík leik- að efa að þetta mót ungra
ur fyrir dansi. Sjálfstæðismanna á Suður-
Samband ungra Sjálfstæðis- landi verður hið bezta.
Ungverjalands-
söinunin gengur
vel
UNGVERJALANDSSÖFNUN
Rauða Krossins hefir gengið mjög
vel og hafa nú borizt um 140 þús.
krónur. í gær bárust Rauða Kross
inum 80 þús. kr. — og gaf Vinnu-
veitendasamband íslands m. a.
20 þús., Þjóðkirkjan 10 þús., Eim-
skipafél. íslands 10 þús., Lands-
málafélagið Vörður 10 þús. og
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt 5
þús. Rauði Kross íslands mun
leita fyrirmæla alþjóða Rauða
ICrossins um ráðstöfun fjárins,
en sennilegt er, að það verði að
mestu notað til lýsiskaupa, en þó
mun einhver hluti þess verða
sendur ungversku flóttafólki í
Austurríki. Söfnunin stendur til
15. þ. rr
öjálfstæðisflokksins, Hafnarstr.
101 (sími 1578) næstk. mánudag
kl. 5—8 síðdegis, einnig við inn-
ganginn, ef eitthvað verður óselt
af miðum. Þátttaka bæði kvöldin
kostar kr. 40.00.
Spilakvöldin hefjast stundvís-
lega kl. 9 og verður dansað að
keppni lokinni.
Orgel í Laugar-
neskirkju
Laugarneskirkja verður opnuð
aftur á morgun með guðþjónustu,
sem hefst kl. 11 f.h. Hafa þar
farið fram gagngerar breytingar
nú í sumar. Pípuorgelið, sem þar
verður vígt og tekið í notkun
á morgun, er 19 radda byggt
af Walckers-verksmiðjunni í
Þýzkalandi. Sendu þær mann
hingað, er sá um uppsetningu.
Ennfremur var söngpallur
stækkaður og hafði Páll Guðjóns-
son, byggingameistari þá bygg-
ingu með höndum. Kirkjan öll
var máluð einnig með táknræn-
um skreytingum. Höfðu það verk
með höndum þau hjónin Jón
Björnsson og Greta Björnsson
listmálari. Raflagnir annaðist
Tengill h.f.
Ennfremur hefir fleira verið
gert kirkjunni til bóta og á sókn-
arnefnd og aðrir, sem að unnu,
miklar þakkir skilið.
Bílhappdrætti
Sjálfstæðisflókks-
ins
DregiB verður á mánudagskvo/d
NÚ ER aS verða síðasta tækl-
færi til að tryggja sér miða í
bílhappdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins. Lokaátakið er nú um helg-
ina, því aö dregið verður að
kvöldi næstkomandi mánudags.
Eins og kunnugt er, er vinningurinn stórglæsileg amerisk bif-
reið. Slíkt tækifæri má enginn láta sér úr greipum ganga.
Miðar, sem enn eru eftir, eru seldir í happdrættisbílnum f
Austurstræti, og í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Skrifstofan er
opin allan daginn, sími 7109.