Morgunblaðið - 10.11.1956, Page 10

Morgunblaðið - 10.11.1956, Page 10
10 MORCVSBLAÐtÐ * t Laugardngur 10. nóv. 1S5€ Rúmgott geymslupláss óskast um mánaöartíma. Má vera í kjallara eða íok- heldu húsi. Sími 2800, utan skrifstofutíma 6078. Afgreiðslustörf í hljóðfæraverzlun Ungur maður, snyrtilegur og ráðvandur, sem hefir á- huga fyrir hljómlist, getur fengið atvinnu nú þegar við afgreiðslustörf í einni stærstu hljóðfæraverzlun bæjar- ins. Nauðsynlegt er að nokkur menntun, t.d. verzlunarskóla eða hliðstæð mermtun sé fyrir hendi. Einnig æskilegt að um nokkra þekkingu á tónlist, og æfingu í afgreiðslu- störfum sé að ræða. Tilboð merkt „Hljómlist — 3276“ leggist inn á af- greiðslu Morgunblaðsins, með upplýsingum og meðmæl- um, ef fyrir hendi eru, fyrir 17. þ.m. (laugardag). Amerísk nælonefnl í barnakjóla og popplin regnkápur fóðraðar á kr. 495,00 Dömu- og Herrabúðin Laugaveg 55 — Sími 81890 Úfwatpsbotð Erum aftur búnir að fá hin vinsælu útvarpsborð með innbvggðum plötuspilara og plötugeymslu. — Pantanir óskast sóttar sem fyrst. —- Verð kr. 2.380,00. Sendum gegn pésíkröfu. RADIOSTOFA VILBERGS & ÞORSTEINS Laugaveg 72, sími 81127 Fimmtugur i dag: Sr. Ján ÞorvarBsson SÍRA Jón Þorvarðsson er fædd- ur 10. nóvember 1906. Er hann af gamalkunnri góðklerkaætt. — Kann varð stúdent 1927 og tók embættispróf í guðfræði 1932. — Síðar stundaði hann um hríð íramhaldsnám við crlenda há- skóla. I-Iann tók prestvígslu 23. júní 1932, var um tíma seítur sóknarprestur í Garðaþingum á Akranesi, en síðan aðstoðarprest- ur í Mýrdalsþingum og íckk veit- ingu fyrir því embætti 15. júní 1934. Hélt hann Mýrdalsþing, unz honum var veitt Háteigs- prestakall 1. nóvember 1952, enda þjónar hann því brauði síðan. Hann var próíastur Vestur- Skaftaíells prófastsdæmis frá 31. júlí 1935, unz hann fluttis úr hér- aði. Þá var hann skólastjóri hér- aðsskóla Vestur-Skaftalellssýslu 1933—1952. Kona síra Jóns er Laufey Eiriksdóttir, góð kona og merk. Eiga þau þrjú börn, tvo sonu við liáskólanám og eina dóttur í kennaraskóla. Er þetta íólk hið gjörvilegasta. Löngum er það svo um vora landa, að sögur eru skráðar af þeim mönnum, sem slys hendir um dagana og voveiflegir atburð- ir, og er þeim sumt ósjálfrátt, en margri mætti afstýra mæðunni, ef vit og viiji væri til. Miklu síður eru í letur færðar írásagnir af ævum hógværra og viturra friðmanna, enda snýst þeim að vonum flest til gæfu. Síra Jón er einn þeirra prúðu og giftu- drjúgu manna, sem ekki verður ritað um með þeim hætti sem greinir af ógæfusömum forn- köppum. Hann er heldur ekki gamall maöur, aðeins fimmtug- ur. Engu að síður er starf hans þegar merkilegt orðið og frá- sagnarvert. Síra Jón var velmenntaður maður, er hann tók embætti. — Öflum ber saman um, að hann hafi reynzt nýtur skólamaður, enda hlaut hann í því starfi drjúga reynslu. í prestsembætti sínu gerðist hann brátt vinsæll. Bar allt til þess. Hann er vitur maður og góðgjarn og leggur til gott í hverju máli. Þá er hann skörulegur kennimaður, radd- maður góður og harla næmur á tónlist, enda ræðumaður ágætur. Það hefði mátt ætla, að síra Jón gerðist hóglífur með aldrinum og sæti áfram sem velmetinn kirkjuhöfðingi á æskustöðvum sínum fram til elli. Það var og ekki til metorða, er hann lét af prófastsembætti, til þess að hefja starf sem prestur í öðru héraði. Þessa fýsti hann þó, enda þótt hann væri þá kominn yfir hálf- íimmtugt og þannig bráðum aí léttasta skeiði. En hér fieistaði lians meira verkefni. Hér tekur hann við fjölmennum söfnuði, sem enga á kirkjuna, enda var fram undan stórt starf við að 24 smálestir með 110 hestafla vél er til sölu. — Veiðarfæri, net og lína, geta fylgt. — Upplýsingar gefa Snorri Árnason fulltrúi, Seiiossi og Guöjón Jóns son, Móhúsum, Stokkseyri. Vélskófla Vökvaknúin vélskóíla fæst leig'ð til vinnu. Skóflustærð vélarinnar %—2/3 kúbikyard. Uppl. í síma 3450. Jón Hjálmarsson, Skúlagötu 60. Geí bætt við nokkrurn nemcndum Æskilegur aldur 10—15 ára. — Get einnig tekið nem- endur í GÍTARLEIK Er til viðtals alla virka daga frá kl. 10—12 og 14—17. KARL JÓNATANSSON, Háteigsvogi 30 (kjallara) Sírni: 82181. ^Lar/s SKOIS ? onaianssonar koma saman hugðarefnum sókn- arbarna cg koma í horf kristni- haldi í kallinu og heilbrigðu safnaðarlííi. Þetta verkefni var við hæíi slíks manns. Mun svo reynast, að séra Jóni farnist vel og giftusamlega þetta starf sem önnur, og því drýgri veroi hans gifta sem stærri verða -starfs efnin. Sú er nú von vina síra Jóns, að hann eigi enn eftir langan vinnu- dag, enda blessist honum vel starfið og fylgi honum auöna jafnan. Z. Skemmlun HR í Hlégarði REYKJUM, 5. nóv. — Mjólkur- félag Reykjavíkur hélt hina ár- legu skemmtun sína í Hlégarði s. 1. laugardagskvöld. Var alveg húsfyllir eins og framast var unnt að koma í húsið, enda nær félags- svæðið yfir alla Gullbringu- og Kjósarsýslu og hluta af Borgar- fjarðarsýslu. Skemmtunin hófst með því að formaður félagsstjórnar, Ólafur Bjarnason, Brautarholti, setti sam komuna með stuttri ræðu og bauð síoan Kristni Guðmundssyni bónda á Mosfelli að taka við stjórn samkomunnar, sem fórst það prýðilega úr hendi. Þá sungu þau frú Þuríður Pálsdóttir og Kristinn Hallsson einsöngva og dúetta við mikil fagnaðarlæti með i.ndirleik Weishappel. Séra Bjarni Sigurðsson á Mosfelli nélt ræðu um séra Jó'nann Benediktsson er þjónaði hér í Mosíellsprestakalli á árunum 1862—1865. Var erind- ið ágætlega flutt og fróðlegt. Hafði séra Bjarni grafið upp ýms- an fróðleik um séra Jóhann, sem annars hefði ef til vill glatazt. Að þessu loknu hófst almenn kaffidrykkja en síðan skemmti Kart' Guðmundsson með gaman- vísum. Að lokum var dansað fram á nótt af miklu fjöri. Oddur Jónsson framkvæmda- stjóri Mjólkurfélagsins sá urn all- an undirbúning og framkvæmdir veg'na samkomu þossarar og fórst það ágætlega. Þessar félags- skemmtanir Mjólkurfélagsins hafa náð feikna vinsældum enda er framkvæmdastjórinn ötull við að undirbúa þær með beztu fá- anlegum skemmtikröftum og komast jafnan íærri að en vilja. — J. AKRANESI, 8. nóvember. — f morgun kl. 11—11,05 var þögn á öllum vinnustöðvum og í skól- um á Akranesi, til þess að votta u’ngversku þjóðinni hluttekningu og samúð í frelsisbai-áttu henn- ar. Fánar drúptu í hálfa stöng í dag, livarvetna í bænum. llSiifaveita Verður í Listamannaskálanum á morgun KINIATTSPYRNtFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.