Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.11.1956, Qupperneq 2
2 MORCr\Bl4Ð1Ð Föstudagur 16. nðv. 1956 Framkvæmdir v/ð byggingu sorpeybingarstöðvarinnar hefjast næstu daga Framkvæmdum verbur lokib seinni hluta næsta árs GUNNAR THORODDSEN borgarstjóri skýrði frá því á bæjar- stjómaríundi í gær, að nú væri fengið fjárfestingarleyfi til að hefja byggingu sorpeyðingarstöðvar. Kvaðst borgarstjóri af þessu tilefni vilja gefa nokkurt yfirlit yfir gang þessa máls frá upphafi og fram að þessu. ÞRJÁR LEIÐIR Borgarstjóri skýrði frá því að nokkur ár væru liðin síðan, að heilbrigðisfulltrúinn, sem þá var dr. Jón Sigurðsson, núverandi borgarlæknir, hefði skrifað grein- argerð og tillögur varðandi sorp- eyðingu og gerði hann það að tillögu sinni, að byggð yrði sorp- eyðingarstöð. Litlu síðar var skipuð þriggja manna nefnd til að athuga þetta mál nánar og vom í henni, dr. Jón Sigurðsson, Ásgeir Þorsteinsson verkfræðing- ur, sem áður hafði gert tillögur um þetta efni, og loks Þór Sand- holt, forstöðumaður skipulags- deildar. Þessi nefnd skilaði ýtar- legu áliti og kom þar fram, að um þrjár leiðir væri að ræða til þess að losna við sorp. í fyrsta lagi sorpbrennslustöð, í öðru lagi skipulagðir sorphaugar og í þriðja lagi sorpeyðingarstöð, með svokallaðri DANO-aðferð. Töldu nefndarmenn eftir ýtarlega at- hugun málsins, að heppilegast væri að byggja sorpeyðingar- stöð, þar sem fram færi mölun og blöndun sorpsins, sem síðan yrði, að meginefni til, notað til lífræns áburðar. Eftir þetta var unnið að málinu og gerðar áætl- anir, aflað nýrra upplýsinga um slíka sorpeyðingarstöð, en á þess- um árum hafði þessi svonefnda DANO-aðíerð tekið ýmsum breyt ingum. Á þessari aðferð er nú komin allmikil reynsla erlendis. Má í því sambandi geta þess að stöð á borð við það, sem hér er fyrirhuguð, hefur verið reist í Edinborg í Skotlandi og allvíða annars staðar. VALINN STAÐUR í ÁRTÚNSHÖFÐA Fyrir nokkrum árum var ákveð ið að velja sorpeyðingarstöðinni svæði innan við Elliðaár, eða í Ártúnshöfða vestan Krossmýrar- vegar. Á sl. ári var málinu það komið áleiðis, að í júní var sam- þykkt að fela borgarlækni og borgarstjóra að undirbúa samn- inga um byggingu stöðvarinnar og var þá um tvennt að ræða, annað hvort að kaupa vélarnar erlendis frá eða að fá sem mest af þeim smíðað hér, ef unnt væri. Vélsmiðjan Héðinn náði samkomulagi við DANO-verk- smiðjumar í Danmörku um leyfi til að smíða slík tæki. Borgar- stjóri undirritaði samninga við „Héðinn" 31. des. 1955 um að smíða vélar og tæki, sem nán- ar eru tiltekin í þeim samningi og er verð þeirra tæpar 3 millj. króna. Auk þessa eru svo bygg- ingarframkvæmdir og annað, sem stöðinni tilheyrir. Það er erfitt að áætla hvað stöðin muni kosta uppkomin, sagði borgarstjóri, en borgarlæknir telur að hún muni kosta um það bil 4,5 millj. kr. Smíði véla er nú hafin fyrir nokkru siðan. í sl. mánuði fékkst loks leyfi fyrir byggingarfram- kvæmdum. Uppdráttur hefur ver ið gerður að undirstöðum og framkvæmdir verða hafnar á næstunni. Ef ekkert sérstakt ó- vænt kemur fyrir er áætlað að stöðin geti tekið til starfa siðari hluta árs 1957. hafi þess og sýnt í því lofsverðan áhuga og dugnað. Alfreð Gislason bft. (U) taldi að eitt hefði gleymzt í ræðu borg arstjóra og það væri að geta þess að illa hefði gengið að fá fjár- festingarleyíi, þar sem sífelldar synjanir hefði komið frá nefnd- inni, en það væri fyrir sérstaka framgöngu núveranai viðskipta- málaráðherra að leyfi loks hefði fengizt. Taldi hann að borg- arstjóri hefði vel mátt geta þess ama. Rorgarstjóri tók aftur til máls og kvaðst sízt af öllu hafa ætlað að breiða yfir það eða leyna því ef viðskiptamálaráðherrann hefði átt þarna góðan hlut að máli, en um það hefði hann alls ekk- ert vitað. Hins vegar tók hann fram, að fulltrúi Sjálfstæðis- manna í innflutningsncfnd hefði ætíð verið þessu máli fylgjandi, en það hefði strandað á atkvæði íuiltrúa Framsóknarmanna í nefndinni, sem hefði feilt að veita Reykjavíkurbæ leyfið. Iðnaðurinn fái 5 millj. kr. árlega til nauðsynlegra I uiMliii>úningi stoínun iðnaðarmálaráðuneyti Frá fuadi í Félagi íil. iinrekenda ALMENNUR félagsfundur í Félagi ísl. iðnrekenda var haldinn í Tjamarcafé sl. laug- ardag. Form. félagsins, Sveinn B. Valfells, setti fundinn með nokkr um orðum og bauð gesti félags- ins velkomna á fundinn, en þeir voru dr. Gylfi Þ. Gíslason, iðn- aðarmálaráðherra, dr. Árni Helgason, ræðismaður frá Chica- go og Skarphéðinn Jóhannsson, arkitekt. Fundarstjóri var kjör- inn Magnús Víglundsson, ræðis- maður. ★ Dr. Gylfi Þ. Gíslason, iðnaðar- málaráðherra, flutti ræðu um vandamál og framtíðarhorfur í iðnaði Islendinga. Iðnaðurinn væri nú orðinn stærsta atvinnu- grein landsmanna og þar væru stærstu verkefnin óunnin. Enda þótt búast mætti við miklum breytingum á mörgum sviðum á næstu áratugum, mundu breyt- ingarnar verða mestar á sviði iðnaðar. Ráðherra kvað íslenzkan iðnað búa við skert skilyrði til þess að færa út kvíamar. Væru bætt skilyrði til fjáröflunar því höfuð- mál iðnaðarins í dag. Ræðumað- ur las síðan tölur um skiptingu á lánsfé bankanna milli atvinnu- greina, sem sýndu glöggt, hve iðnaðurinn er afskiptur með lnásfé. Hér þarf stórt átak, sagði ráð- herrann, Það bezta, sem hægt er fyrir iðnaðinn að gera, er að bæta úr lánsfjárskorti iðnfyrir- tækja. Kæmi þá fyrst til greina efling Iðnlánasjóðs og svo út- vegun á 15 millj. kr. láni þvi, sem Iðnaðarbankanum hafði ver- ið lofað. ¥ Iðnlánasjóðsmálið mundi verða tekið til athugunar nú á þessu þingi og mundi verða haft fullt samráð við samtök iðnaðarins um undirbúning málsins og lausn þess. Reynt myndi að út- vega erlent lánsfé til ýmsra framkvæmda og mundi Iðnaðar- bankanum þá ekki gleymt og því loforði, sem honum hefði verið gefið. Að lokum skýrði ráðherr- ann frá því að á döfinni væri skipulagsbreyting varðandi með- ferð iðnaðarmála í stjórnarráð- inu, væri ákveðið að alveg á næstunni yrði sett á stofn iðn- aðarmálaráðuneyti og mundi til þess fenginn sérstakur trúnaðar- maður, sem samtök iðnaðarins gætu borið traust til. ★ Annað dagskrármálið var bygging sýningarskála. Sveinn Guðmundsson var framsögumað- ur og gerði grein fyrir tillög- um að samkomulagi um bygg- ingu sýningar- og íþróttáhúss í Reykjavík, sem bæjarráð Reykja víkur hefur þegar samþykkt. Er í tillögum þessum gert ráð fyrir samstarfi milli samtaka atvinnu- veganna annars vegar og Reykja víkurbæjar og íþróttahreyfing- arinnar hins vegar, um að hrinda þessu þýðingarmikla máli í fram- kvæmd. Jafnframt er gert ráð fyrir því, að á sama stað skuli skipulagt sýningarsvæði, ■ þar sem samtökum atvinnuveganna skal gefinn kostur á að reisa sína eigin sýningarskála. Hafði Félag ísL iðnrekenda á sínum tíma forgöngu um, að samtök atvinnuveganna fóru þess á leit við bæjaryfirvöld Reykjavíkur, að þeim yrði sameiginlega látið í té landssvæði fyrir þessa að- ila. Hófust síðan umræður um samstarf milli samtaka atvinnu- veganna og Reykjavíkurbæjar um hugsanlegt samstarf og voru tillögumar árangur af þeim við- ræðum. ★ Lýsti fundurinn ánægju sinni yfir tilboði Reykjavíkurbæjar um samstarf við atvinnuvegina um byggingu sýningarskála og HVERNIG SORPEYÐINGIN FER FRAM í stórum dráttum vinnur sorp- eyðingarstöðin þannig, að bílar steypa öllu sorpinu í sérstaka gryfju, en það fer síðan inn í sívalninga, sem mala sorpið, en áður er pappír og járn tekið frá. Auk þess er tekinn frá alls konar annar úrgangur, sem ekki kemur til mölunar. Málmar em teknir úr með segulmagni og er fyrir- hugað að koma þeim úrgangi í verð sérstaklega. Megnið af sorp- inu fer af færibandinu inn í sí- valningana, þar sem bætt er í vatni og súrefni vegna gerjunar og kemur síðan efni úr sívaln- ingnum, eftir nokkurn tíma, sem þá er fullgerjað og er það hinn svonefndi Kompost-áburður, sem er lífrænn áburður og hentugur til margs konar nota. Sá úrgang- ur sem ekki er nothæfur til á- burðar og ekki er hægt að koma í verð á annan hátt, verður síðan grafinn í jörð hjá stöðinni. Allur meginhluti sorpsins verður að áburði og má geta þess, sagði borgarstjóri, að nú falla hér til um það bil 20 þú'sundir smálesta af sorpi á hverju ári. Gert er ráð fyrir að um % af sorpinu verði að áburði, sem síðan verður not- aður á ýmsan hátt og telur rækt- unarráðunautur bæjarins, sem hefur samið álitsgerðir hér um, að þessi áburður sé mjög þýðing- armikill til ræktunar í görðum manna í bænum, í garðlöndum bæjarbúa yfirleitt og vegna rækt- unar mela og hrjósturlendis í ná- grenni bæjarins. Er talið, að áburðargildi þessa efnis sé á borð við hrossa- eða sauðatað. Borgarstjóri gat um sorphaug- ana, sem nú eru til leiðinda og óþrifnaðar í nágrenninu. Hann sagði að kcstnaður af haugunum væri nú um 300 þúsund krónur á ári, sem mundi sparast, þegar stöðin tæki til starfa. Reksturs- kostnaður stöðvarinnar mundi verða nokkur, þar sem 4 menn þyrftu að staðaldri til að vinna við stöðina en gera mætti ráð fyrir að talsvert verðmæti mætti fá úr sorpinu, bæði úrgangsefni, járn og pappír og svo áburðinn sjálfan, sem vafalaust mætti gera að góðri söluvöru. Loks þakkaði borgarstjóri sér- skipulagningu sýningarsvæðis og staklega dr. Jóni Sigurðssyni fól félagsstjóminni að vinna að j borgarlækni, sem hefði haft veg ítrekari framgangi málsins. 1 og vanda af þessu máli frá upp- bygginga og vélakaupa Úr framsöguræðii Magnúsar Jónssonar í gær IG Æ R fór fram fyrsta umræða í neðri deild um frumvarp Magnúsar Jónssonar og Jóhanns Hafsteins um að afla iðnaðinum mjög aukins fjármagns eða allt að 5 millj. krónum árlega, með því að gjald af innlendum tollvörutegundum skiptist til helm- inga milli iðnlánasjóðs og rikissjóðs, en það hefir allt runnið i ríkissjóð til þessa. Gat Magnús Jónsson itarlega um meginatriði frumvarpsins í framsöguræðu sinni á þingi í gær. Kom hann fram með þær upp- lýsingar að tollur þessi af inn- lendum vörutegundum, að mestu iðnaðarvarningi sem unninn er innanlands, hefði numið árið 1955 alls kr. 11.7 millj. Væri toll- urinn áætlaður í ár 11 milj. kr. og fengi iðnlánasjóður því yfir 5 millj. kr. til sinna þarfa. Síðan rakti Magnús Jónsson það, hve brýn nauðsyn bæri til þess að iðnaðurinn fengi sinn stofnlánasjóð, svo sem t. d. sjávarútvegurinn og hver nauðsyn væri á því að leysa úr lánsfjársborf iðnaðarins á tryggan og framsýnan hátt. Hér væri farið fram á að iðnaðurinn fengi aftur lielm- inginn af því gjaldi, sem hann borgaði til ríkisins og væri það sanngirniskrafa. í greinargerð frumvarpsins segir svo: Flutningsmenn þessa frv. háfa nú endurflutt frv. það um breyt- ing á lögum um iðnlánasjóð, sem sjálfstæðismenn hafa áður flutt á tveim þingum, en eigi náð þá fram að ganga. Er þar lagt til, að iðnlánasjóður veiti eingöngu stofnlán og framlag ríkissjóðs verði aukið um helming. Síðan frv. þetta var lagt fram, hefur iðnþing rætt ýtarlega lána- mál iðnaðarins og lagt áherzlu á nauðsyn þess, að iðnaðurinn féi sérstakan byggingarlánasjóð, hliðstæðan stofnlánasjóðum land- búnaðar og sjávarútvegs. SANNGIRNISMÁL Hér er vitanlega um fúllkomið sanngirnismál að ræða vegna hinnar miklu þjóðhagslegu þýð- ingar iðju og iðnaðar. Iðnlána- sjóður er þess alls ómegnugur að veita lán til stórframkvæmda á þessu sviði, en eins og nú standa sakir, er það nær ein- göngu fiskiðja, sem á kost að stofnlánum, Með tvöföldun á framlagi til iðnlánasjóðs er ekki séð fyrir þessari miklu þörf, heldur er með því frv. aðeins leitazt við að auðvelda sjóðnum að hlaupa undir bagga með smá- lánveitingum, svo sem verið hef- ur, því að þótt sjóðurinn hafi ekki getað veitt stórlán, hefur hann samt með 1 ánum sínum tryggt mörgum iðnfyrirtækjum starfsgrundvöll. EFLING IÐNAÐARINS Flutningsmenn þessa frv. telja sjálfsagt, að Alþingi mæti sann- gjörnum óskum samtaka iðnrek- enda og iðnaðarmanna um stofn- lánasjóð, er veitt geti lán til nauðsynlegra bygginga og véla- kaupa til eflingar iðju og iðnaði í landinu. Nú er lagt hátt toll- gjald á ýmsar innlendar iðnað- arvörur. Fiskveiaðsjóður er fyrst og fremst byggður upp af sjáv- arútveginum sjálfum með á- kveðnu gjaldi af sjávarafurðum. Á sama hátt sýnist eðlilegt og sanngjamt, að iðnaðurinn njóti sjálfur að verulegu leyti þess gjalds, sem honum er gert að greiða af framleíðslu sinni. Þar sem gjald af innlendum tollvör- um er allstór tekjustofn fyrir ríkissjóð, þykir flm. ekki fært að svipta ríkissjóð þessum tekj- um að öllu leyti, en leggja til, að gjaldið skiptist að hálfu milli ríkissjóðs og iðnlánasjóðs. Með hliðsjón af því, að flm. þessa frv. hafa í frv. um breyt- ing á lögum um iðnlánasjóð lagt til, að sá sjóður verði eingöngu stofnlánasjóður, virðist heppi- legra að leysa stofnfjárþörfina að öllu leyti gegnum þann sjóð heldur en mynda nýjan sjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.