Morgunblaðið - 16.11.1956, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.11.1956, Blaðsíða 17
Fostudagur Ifi. nóv. 1956 MORCVNBLAÐIf, n Kvibmynd um Ungverju sýnd UNGVERSKA þjóðin hefur fyrr en nú á þessum síðustu og verstu tímum orðið fyrir miklum og þungum „búsifjum" (sbr. orð nóbelsverðlaunaskáldsins okkar) af hendi erlendra yfirdrottnara og kúgara, — einnig Rússa. Svo var það um miðja öldina sem leið. Þá fór frelsisalda um gjörvalla Evrópu og smáþjóðirnar risu upp gegn harðstjórum sínum og kúg- urura. Þeirra á meðal voru Ung- írelsisboníttu í Tjcrnarbíói verjar, er risu gegn ofbeldi Habs- borgaranna, er leituðu á náðir Rússakeisara og fengu hann til þess með herjum sínum, að berja niður frelsishreyfingu þessarar gáfuðu en fámennu þjóðar, er ann ættjörð sinni og frelsi fram- ar öllu öðru. Svo hörmulega get- ur sagan stundum endurtekið sig. Ungverska óperu-kyikmyndin „Erkeh' sem Tjarnarbíó sýnir nú, fjallar um frelsisbaráttu Ung- Meniatcnskóliien á Lcmgarvntni settur MENNTASKÓLINN á Laugar- vatni var settur sl. sunnudag þ. 11. nóv. Hófst athöfnin með því, að sunginn var sálmur, en síðan flutti sóknarpresturinn, sr. Ing- ólfur Ástmarsson á Mosfelli, baen. Þar næst tók skólameistri, dr. Sveinn Þórðarson, til máls. Gat hann þess, að skólinn væri þegar búinn að starfa um mánað- artíma þótt setning færi nú fyrst fram. Stafaði þetta af fjai’veru skólameistara, sem nýkominn er úr tveggja mánaða kynnisför um Bandaríkin í boði Bandaríkja- stjórnar. Gegndi Ólafur Briem störfum skólameistara á meðan. Á starfsliði skólans væri sú breyting, að Eiríkur Jónsson, stærðfræðikennari skólans, hefir fengið orlof í eitt ár, og tekur Ottó J. Björnsson við starfi hans á meðan. Aðsókn að skólanum er meiri en hún hefir áður verið, 102 reglulegir nemendur, en auk þess eru 7 piltar, sem ætla í fram- haldsdeild bændaskólans á Hvanneyri, nemendur að Laug- arvatni í vetur og sitja sumpart í tímum með 1. bekk, eða fá sér- staka kennslu. Skólameistari gat þess, að unnið hefði verið að lag færingum innanhúss í skólahús- inu og hefði við það fengizt nokk- urt húspláss. Hins vegar væri ekki enn hafizt handa um það sem mest væri aðkallandi, að byggja miðálmu skólahússins, en á með- an hún væri ekki komin upp, væri öll aðstaða til heimavista- halds í skólahúsinu svo örðug, að ekki væri við unandi, og ætti þetta jafnt við um nemendur og kennaralið. Kvaðst skólarheistari fastlega vona, að dráttur sá, sem orðinn væri á því að hefja þessar fram- kvæmdir, væri nú senn á enda og að skólanum yrði séð fyrir því húsrými, sem hann vanhagaði svo tilfinnanlega um. Gat skólameist- ari þess, að jafnvel þótt svo færi, að skólinn yrði einhvern tíma fluttur í Skálholt, sem allt væri þó í óvissu um, þá tæki það langan tíma að koma þar upp nauðsynlegum húsum, og að Menntaskólinn að Laugarvatni gæti ekki á meðan unnað við þau ófullkomnu skilyrði, sem hann nú hefði. Skólameistari gat þess, að er hann tók við starfi sínu að Laug- arvatni, hefði hann meðal annars talið, að gera þyrfti samning um sameiginlegan rekstur mötuneyt- is vegna skólanna á staðnum. Þetta hefði enn ekki orðið og væri nú kominn tími til að hafizt yrði handa um það. Að síðustu beindi skólameistari orðum sínum til nemenda, bauð þá velkomna til starfsins. Hann benti þeim á þýðingu framfara og nýrra hugmynda, og hversu marg ar hugmyndir, sem á sínum tíma þóttu góðar og gildar, væru nú orðnar úreltar og jafnvel rangar. Bað hann nemendur að hafa huga og hjörtu opin fyrir nýjum hugs- unum og framförum á sviði and- ans og verklegrar menningar. Athöfninni lauk með því, að sunginn var sálmurinn „Faðir andanna“. Hárgreiðslustofan Lórelei Lattgavegi 5G — sími 82922. hefur þá ánægju að tilkynna, að frú Inga G. Böðv- arsson, er komin heim aftur og byrjar að vinna 19. þ. m. Virðingarfyllst, Árdís J. Freymóðs. verja, sem þeir háðu gegn ofur- efli hinna erlendu kúgara fyrir rúmum hundrað árum. í þeirri baráttu stóðu fremstir allir beztu menn þjóðarinnar, þeirra á meðal forystumenn mennta og lista. Einn þessara manna var tón- skáldið og hljómsveitarstjórinn Ferenc Erkel (1810—93), er með tónverkum sínum, einkum al- þýðulögum og óperum, blés eld- móði og baráttukjarki í ung- versku þjóðina. Er kvikmyndin byggð á tónverkum þessa djarfa og brennandi ættjarðarvinar, og eru þar sýndir þættir úr helztu óperum hans, svo sem Hunýardý Laszló og Bank Bán, sem hrífa hugi allra Ungverja enn í dag, enda fjaila þær um forna baráttu þjóðarinnar fyrir frelsi sínu. Tónlistin í mynd þessari er fögur og heillandi, og undir- straumurinn þar er hin eldheita ættjarðarást og frelsisþrá ung- versku þjóðarinnar, sem aldrei hefur brunnið heitar en í dag. — Listamennirnir sem koma fram í myndinni, leikstjórinn, leikarar og söngvarar, fara frábærlega með hlutverk sín, en þó er það ekki hvað sízt hinn sterki per- sónuleiki Erkels, fölskvalaus'ætt- jarðarátt hans og djarfmannleg framkoma, sem heillar áhorfand- ann og gerir myndina svo hugð- næma. Þessa mynd ættu sem flestir að sjá. Hún er vissulega tímabær og varpar skýru ljósi á þá atburði, sem gerzt hafa í Ungverjalandi síðustu daga. , Myndinni lýkur með sigur- göngu hinnar kúguðu þjóðar gegn ofbeldinu. Þá stóðu fallbyssur hinna erlendu kúgara þar sem skriðdrekar þeirra standa í dag. Mætti harmleiknum í Ungverja- landi ljúka flú eins og þá með frelsis- og sigurgöngu ungversku þjóðarinnar. Ego Glœsilegt úrval af KARLMANNASKÓM með leður og svampsólum Verz/ið þar sem úrvalið er mest Aðalstr. 8, Laugav. 20, Laugav. 38, Snorrabr. 38, Garð. G. Tékknesk PÍANÖ og FL¥G1AE Hin heirrtsfcekktu merki Pv.Iroí — August Försíer — Rösler Verð- og myndlistar til sýnis á skrifstofu okkar. Einkaumboð: MARS TRADING CO. Klapparstíg 20 — Sími 7373. » LIGNA PKAG l i '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.