Morgunblaðið - 16.11.1956, Side 3

Morgunblaðið - 16.11.1956, Side 3
Föstudagur 16. nóv. 1956 MORGUNBLAÐIÐ 3 Frá Alþingi: 5 aurum af benzínlítra veroi va rið til að malbika eða steinsteypa vegi í FUNDI neðri deildar Alþingis í gær flutti Kjartan Jóhanns- J*. son framsöguræðu fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um bifreiðaskatt. Er efni frumvarpsins það að 5 aurum af hverjum benzínlítra skuli varið til þess að steypa og malbika vegi í kaupstöðum og kauptúnum. Greiða skai helming kostnað- ar á móti þeim bæjar- eða sveitarsjóði sem í hlut á. RÖK FRUMVARPSINS ! frumvarp þetta fram og vísaði Flutningsmaður rakti nokkuð til meðfylgjandi greinargerðar. helztu rökin til þess að hann bæri I Með vaxandi umferð bifreiða verður ekki lengur komizt hjá því að malbika eða steypa helztu umferðargöturnar í kaupstöðum og kauptúnum. Malarvegir verða óhóflega við- haldsfrekir, þegar umferð er mikil, og þó oftast illfærir eða fara að minnsta kosti mjög illa með bifreiðir og slíta úr hófi fram. ferðin væri hagkvæmari gat hann þess að það færi nokkuð eftir staðháttum. Steinsteypan er nokkru dýrari en malbikið en hins vegar hefir hún gefið mjög góða raun í veg- arlagningu og þegar innlenda sementið kemur á markaðinn má búast við að auðveldara verði að steinsteypa vegi en nú er. Hent- ugt er að steinsteypa ef um stutta götuspotta er að ræða en varla að malbika nema um 1 km. vega7 lengd sé að ræða vegna hinna stórvirku vinnuvélg sem til þess þarf, og kostnaður verður hlut- fallslega óþarflega mikill. Frumvarpið var að lokinni framsöguræðu Kjartans Jóhanns- sonar vísað til annarar umræðu og fjórhagsnefndar. Jarðarför Péturs prófasts Oddsonar ÚTFÖR Péturs prófasts Odds- sonar var gerð í gær frá Foss- vogskirkju. Séra Garðar Svav- arsson jarðsöng og biskupirw herra Ásmundur Guðmundsson flutti ræðu. Flokkur úr karla- kór Reykjavíkur söng, dr. Páll ísólfsson og Þórarinn Guðmunds- son léku á orgel og fiðlu en Guðmundur Jónsson óperusöngv- ari söng. Var mikið fjölmenni við at- höfnina enda var Séra Pétur víða þekktur og vinsæll og vel- metinn af öllum. Tvœr þingsályktunar- tillögur um hafnar- geröir og athugun nýrra hafnarstœÖa ÁSGEIR SIGURÐSSON skipstjóri, sem sæti tók á Alþingi fyrir nokkrum dögum hefir borið fram tvær tillögur til þings- ályktunar. Fjalla þær báðar um hafnargerðir, sú fyrri um athugun á hafnarstæðum allvíða á strandlengjunni sunnanlands og norðan og hin síðari um athugun á því hvort ekki sé hagkvæmt að fullgera hafnir í einu átaki. Skrípoleikur komm- únista út at aflétt- ingu löndunar- bannsins! Ei þeir vilja vera ábyrgðarlausir verða kommúnistar oð segja af sér MÖRG HAFNARSTÆÐI Tillagan um athugun á hafn- arstæðum er svohljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta fram fara á sumri komanda athugun ó hafnar stæðum á eftirtöldum stöðum: á Papaósi austan Vestra-Horns, í Njarðvík á Borgarfirði eystra, á Lóninu inn af Nýpsfirði við norð- anverðan Vopnafjörð, í Eiðisvík á Langanesi, á Fjallahöfn við vest- anverðan Axarfjörð, við Höfða- vatn innan Þórðarhöfða í Skaga- firði. í greinargerð segir: Það er kunnara en frá þurfi að segja, að miklar hafnleysur eru víða á landi voru og að hafna er brýn þörf til þess að tryggja afkomu fólksins, sem úti á lands- byggðinni býr og á við örðug- leika að etja í þessu efni. Yrði of langt mál að fara frekar út í það í greinargerð með tillögu þessari. Verða einstök atriði málsins nán- ar skýrð í framsögu. Síðari tillagan um hafnargerðir hljóðar svo: EITT ÁTAK Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta athuga, hvort eigi sé hagkvæmara fyrir ríkið og alla aðila, sem hlut eiga að máli, og hvort eigi verði við komið, að haínir séu fullgerðar í einu átaki. VEGNA ÖRYGGIS í greinargerð segir: Siglingar eru nauðsyn, en til þess að geta haldið upþi sigling- um, þótt á góðum skipum sé, þarf góðar hafnir. Ekkert öryggi er ella um samgöngur við stað- ina úti á landsbyggðinni, þegar vetrarstormarnir hefjast. Allvíða er unnið að hafnar- gerðum í senn, en af þeim sökum miðar of hægt á hverjum stað, og hafnarmannvirkin liggja undir skemmdum af ágangi sjávar o. fl., þegar sjór tekur að ókyrrast og vetur gengur í garð. Því ber að athuga, hvort eigi sé kleift að gera í þessu efni mik- ið ótak, bæði öryggisins vegna og af hagsmunaástæðum, og taka til þess lán, inúlent eða erlent, svo að um muni. NÚ ER farinn að léttast róður skógræktar í Skorradal. Eins og mönnum er almenna kunnugt hefir hinn góðkunni norski skipa- útgerðarmaður og flugvélaeig- ándi, Ludvig G. Braathen, gefið röskar 45 þús. kr., er verður var- ið til skógræktar hér á landi, einkum í Skorradal, því þar eru hin beztu skógræktarskilyrði sem kunnugt er. í vor voru settar niður 30.500 plöntur í 6 hektara lands, en að vori mun gróðursett í eina 4 hektara, svo að skógarteigurinn verður alls um 10 hektarar. Þegar Braathen var staddur hér fyrir nokkrum vikum skrapp hann upp að Stálpastöðum ásamt nokkrum mönnum frá Loftleið- um og Skógrækt ríkisms, til þess að líta á framkvæmdirnar. Þeir skoðuðu einnig lundinn í Háa- fellslandi, þar sem hæstu Sitka- DÝRIR VEGIR Malbikaðir eða steyptir vegir eru svo dýrir, að ekki er von til þess, að kaupstaðir og kauptún geti lagt .þá algerlega á eigin spýtur, enda ekki nema sann- gjarnt, að hluti af benzínskatti gangi til þessa. Var og ætlazt til þess, þegar lögin um bifreiða- skatt o. fl. voru sett 1932, að 15% skattsins rynni frá 1. jan. 1934 til stofnunar sjóðs, er varið skyldi til að leggja fram helming kostn- aðar við varanlega gatnagerð í kaupstöðum og kauptúnum. Af þessu hefur þó ekki orðið í framkvæmd, nema hvað 100 þús. kr. hafa verið á fjárlögum í þessu skyni undanfarin ár, en sú upphæð er allsendis ófullnægj- andi. Hér er þvl lagt til, að svipaður hluti af benzínskatti og upphaf- lega var gert ráð fyrir renni framvegis til þessara vega. STEYPA EÐA MALBIKA Þá gat Kjartan Jóhannsson þess að rykvarnarefni á malar- vegi væru mjög dýr enda ent- ust þau stutt og væri því mun hagkvæmara að steypa eða mal- bika vegina. Um það hvor að- HAFNARFIRBI. — Rétt fyrir kl. 9 í gærnrorgun (fimmtudag) var slökkviiiðið kallað að íbúðarhúsi Ásgeirs Einarssonar, málara- meistara að Norðurbraut 25B. í húsinu, sem er úr timbri, eru tvö herbergi og eldhús og tvö herbergi í risi. Mun eldur- inn hafa komið upp í herbergi inn af eldhúsinu og var hann all- magnaður þegar liðið kom á vett- vang. Menn, sem voru við smíöar „ÞJÓÐVILJINN“ birtír í gær forsíðugrein um lok löndunar- bannsins í Bretlandi. Yfirskrift greinarinnar er þannig: „Verður löndunarbanninu í Bretlandi af- létt? Hefur Guðmundur í. sam- þykkt makk Thorsaranna við brezka togaraeigendúr? Ríkis- stjórnin hefur enga samninga gert — Samningur íslenzkra tog- araeigenda við brezka togaraeig- endur eru heimildarlausir.1* Eftir þessa fyrirsögn, sem er 6 í nærliggjandi húsi, urðu eldsins fyrst varir og gerðu fólkinu að- vart. Komst það fáklætt út, — og Ásgeir, sem svaf á rishæð, fór út um glugga og skarst þá illa á hendi. Slökkviliöinu gekk greiðlega að slökkva eldinn, en þrátt fyrir það skemmdist húsið mjög mikið af eldi og vatni. Auk þess brunnu allir innanstokksmunir og annað, sem fólkið átti, en það var allt óvátryggt. — G.E. feitletraðar línur hefst svo sjálf frásögnin með þessum orðum: „Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisréðherra Alþýðuflokks- ins, sendi í gær út tilkynningu frá Efnahagssamvinnustofnuninni í París, um að fisklöndunardeila íslendinga og Breta væri leyst.“ Síðar segir, að yfirlýsing sú, sem Hans G. Andersen ambassador hafi gefið í þessu sambandi hafi eingöngu verið „persónuleg af- staða hans til málsins." Blaðið segir að Hans G. Andersen hafi verið „umboðslaus"! RÁÐHERRAR KOMMÚNISTA BERA ÁBYRGÐ Það er raunar tæplega hægt annað en brosa að allri þeirri vit- leysu, sem „Þjóðviljinn“ ber hér á borð. Nú á utanríkisráðherrann að vera sérstakur „utanríkisráð- herra Alþýðuflokksins" en vita- skuld er hann ráðherra alira þeirra flokka, sem að ríkisstjórn- inni standa og þar með kommún- ista. Ef „Alþýðubandalagið“ ekki vill bera ábyrgð á því að þessi ráðherra hefur nú samþykkt nið- urfellingu löndunarbannsins fyr- ir milligöngu Efnahagssarnvinnu- stofnunarinnar, verður það að „draga“ ráðherra sína út úr stjórninni. Annars er, að venju- legum þingræðisreglum litið svo á, að ríkisstjórnin í heild beri ábyrgð á því, sem gert hefur ver- ið. Þá er það í meira lagi hjákát- legt þegar „Þjóðviljinn“ telur að sú yfirlýsing, sem Hans G. And- ersen ambassador gefur I umboði ríkisstjórnar íslands sýni einung- is „persónulega afstöðu hans til málsins, og að hann hafi verið ,,umboðslaus“. Yfirlýsingin sjálf hefur auðvitað verið samþykkt af*ríkisstjórninni og ambassador- inn þar á eftir borið hana fram skv. beinni fyrirskipun ríkis- stjórnarinnar. Þjóðviljaráðherr- arnir bera því óbyrgð á þessari yfirlýsingu meðan þeir sitja í stjórn. Hér skiptir auðvitað engu máli þó „Þjóðviljinn“ rjúki upp með alls konar endileysu. Það er skiljanlegt að honum falli það illa að þurfa nú að kyngja öllu sem hann hefur þyrlað upp um lausn löndunarmálsins, en það i hefur verið eitt fyrirferðarmesta rógsefni, sem blaðið hefur velt sér í nú um langa hríð. En ef nokkuð má marka „Þjóð- j viljann“ virðist samkomulagið innan ríkisstjórnarinnar ekki vera sem bezt, þannig að vinstri höndin sýnist ekki vita hvað sú hægri gerir. ú>3renitren eru komin yfir 3 metra. Daníel Kristjánsson, Alfreð Elíasson, Ludvig G. Braathen, skipa- og flugvléaeigandi, Sigurður Magnússon og Vilhjálmur Krlstjáns- son. Er myndin tekin inni í Skorradal, en á þessum slóðum hafa verið gróðursettar trjáplöntur í landi Braathens. Góður gestur í Skorradal Þessi mynd er tekin í Skorradal, í svonefndum Háafells- reit, þar sem grenitré voru gróðursett 1938. — Á myndinni eru: Alfreð Elíasson, Daníel Kristjánsson, L. Braathen og Sigurður Magnússon. Brnnatjón í Hafnarikii

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.