Morgunblaðið - 30.12.1956, Síða 2
2
MORCTirntLA&lfí
Sunnudaeur 30. des. 1956
Hagstœtt ár til lands og
sjávar að kve&ja
Frásagnlr nokkurra fréttaritara Mbl.
1VTOKKRIR fréttaritarar MorgunblaSsins út um land símuðu
í gærdag til blaðsins áramótafregnir sínar, yfirlit um
atvinnulíf í byggðarlögum sínum og afkomu raanna. Það má
heita sammmerkt með þessum fregnum öllum, að árið 1956
hafi verið hagstætt fyrir fólk til lands og sjávar. — Eru þessar
áramótafregnir fréttaritaranna um margt hinar athyglisverð-
ustu.
STAKSTEIMAR
„Tækifæri fyrir S.l.S.
að græða að mun“
Á föstudaginn birtist löng
grein í Tímanum eftir nafnlaus-
an „utanflokkamann", og nefnist
hún „Hamrafell og Hamrafelis-
leysingjar“. Þar segir m.a.:
„Fn þarna kom tækifærið fyrir
SÍS a S græða að mun og gefa
samt eftir mikinn hluta af hugs-
anlegum ágóða, bara vegna sann-
girni sinnar og öðrum til fræðslu
um hverja stefnu hafa skuli í við-
skiptum — — —.“
Hún er vissulega ekki lítil
sanngirnin eða einskisvirði
fræðslulöngunin hjá þessum herr
um að láta sér nægja aðeins 14
millj. króna hreinan, áliættulaus-
an gróða, fyrir 5 mánaða siglingu'
„Væri ekki tekið neitt
af neinum“
í þessari sömu grein segir enn-
fremur:
„Ef allir væru í samvinnufé-
lögum með öll viðskipti sin, þá
væri ekki tekið neitt af neinum
nema það væri unnið af ótýndum
þjófum, sem auðvitað geta skotið
þar upp hausnum eins og í öðr-
iim stöðum. Þá yrði bara klofið
fjármagnið, þvi skipt í tvo vasa
sama eiganda og bundið að því
búnu fyrir asman, svo ekki yrði
sótt í hann athugalaust og í bráð-
ræði“.
Já, ef og ef. „Ef sumir væru við
suma eins og sumir eru við suma,
þá væri sumir öðru vísi við suma
en sumir eru við suma“, sagði
pilturinn forðum við stúlkuna,
sem ekki vildi þýðast hann.
Engan veginn er þó víst, að
allir samvinnumenn séu þakk-
látir fyrir, að á þeim sé okrað,
þeir féflettir og peningar þeirra
látnir í vasa, sem „bundið er
fyrir“, svo að þeir séu ekki frjáls-
ir að því að ráðstafa eignum sín-
um.
„Láta sér þó nægja
að skattleggja“
Sanngirni „utanflokksmanns-
ins“ birtist hins vegar í þessum
samanburði á starfsbræðrum
Framsóknar í ríkisstjórninni,
kommúnistunum, og eigendum
Hamrafeils:
„Ég læt þetta nú gott heita hjá
þeim, samanborið við pynding-
arnar, sem þeir beita að órann-
sökuðu máli við jafnvel saklausa,
þangað til sakborningarnir ljúga
•pp á sjálfa sig hverri sökinni á
fætur annarri til þess að verð'1
heldur tryggilega drepnir en búa
lengur við kvalir þær, sem fanga-
verðirnir eru þeim látnir búa.
Eigendur Hamrafells láta sér
þó nægja að skattleggja að vísu
i erfiðu verzlunarári þá menn,
lem þeir ná til og eru þeír bján-
ar — að dómi SÍS — að vera ekki
i samvinnufélagi með alla olíu-
verzlun sína og þeir gera eigin
mcðlimum sömu þjónustu að
nokkru, en því fé er hellt í sam-
eiginlega sjóði---“
Mikil er nú mildin, að Fram-
sókn skuli láta sér nægja skatt-
lagninguna, þar sem kommúnist-
arnir vilja bæta pyndingunum
við eignaránið!
Landslýðurinn á von á góðu,
þegar stjórnendurnir hafa til fuils
komið sér fyrir og lært listirnar
hver af öðum.
Fár Of' bitur crremja*'
Ljóst er líka *t þessu sama
Timablaði að of mikið þykir þar
í sveit talað um Ungverjalands-
málin. „F.inn af átján“ segir svo
i grein, sem heitir „Því trúir eng-
inn“.
„Síðustu dagana er fyrirferða-
mesta blað landsins orðið svo
BátafSotinn
eykst
BJÖRN Guðmundsson fréttaritari
í Vestmannaeyjum skrifar:
Atvinna á árinu hefur verið
mikil hér í Eyjum, þótt fremur
hafi dregið úr henni er á árið
leið, þar sem sérstaklega siðustu
mánuðina hefur verið dauft yfir
atvinnulífinu. Kom það til af því
að fisklandanir úr togurum voru
svo að segja engar og veðrátta til
sjósóknar síðustu haustmánuðina
frámunalega stirð og erfið.
Vertíðin gekk fremur vel,
meðalafli á línu og netabát var
rúmlega 450 lestir og var það
heldur betra en árið á undan
Sumarsíldveiðarnar fyrir Norð-
urlandi gengu í betra lagi hjá
Eyjabátum en veiði var þó ákaf-
lega misjöfn og komu margir bát-
ar út með mikið tap eftir þær
veiðar. Reknetjaveiðin við Suð-
Vesturland og Faxaflóa gekk yfir-
leitt mjög illa, einkum vegna
slæmrar veðráttu. Var um stór-
felldan taprekstur að ræða hjá
mörgum bátunum. Fremur illa
gekk að manna bátaflotann, bæði
á vertíð og eins á síldveiðar. Var
hér mikið af útlendum sjómönn-
um á flotanum.
Við flotann bættust mörg skip
á árinu eins og áður hefur verið
getið um.
Húsbyggingar voru mjög mikl-
ar hér á árinu. Hafa sennilega
aldrei verið fleiri hús í smíðum
hér en á þessu ári.
GÓÐAR ATVINNUHORFUR
Atvinnuhorfur við þessi áramót
eru í betra lagi þar sem fullt
útlit er fyrir að vertíð hefjist
strax í janúarbyrjun og útgerð-
arþátttaka verður mjög mikil.
E. t. v. verða gerðir út á næsta
ári fleiri bátar í Eyjum en nokkru
sinni fyrr. Nú í ársbyrjun er von
á tveimur 60 lesta vélbátum, til
viðbótar við þann fiskiflota sem
fyrir er, er það Fiskiðjan h. f.
sem á báða þessa báta. Útlit er
troðfullt af alls konar óhæfu-
verkum frá Ungverjalandi einu,
í orðum og myndum, aS stór-
slysaraunir okkar komast tæp-
Iega að, hvað þá annað“.
Hinn frumlegi rithöfundur hef-
ur og fundið skýringuna á því,
hvað menn voru að gera í rúss-
neska sendiráðinu hinn 7. nóv sl.
og segir:
„Gat ekki þarna, var það ekki
líklegt eða er annað hugsanlegt,
en að þarna hafi ríkt fár og bitur
gremja yfir mistökum og harð-
yðgi“.
Og enn segir hann:
„Jafnvel að auðvelt sé að geta
þess til, að hátíðisdagurinn hafi
verið sorgardagur öllum þar og
ekki sizt mönnum og konum í
hcrsetnu Iandi. Herseta getur
tæplega haft annað en illt í för
með sér“.
Óskiljanlegt er af hverju Fram
sóknarráðherrarnir sóttu ekki
þessa sorgarsamkomu úr því að
tilefni hennar var að tárast yfir
hersetu, því að eins og kunnugt
er héldu þeir enn hinn 7. nóv
fast við yfirlýsingar sínar um, að
hersetan væri íslauds mesta
meln.
fyrir, að skortur verði á fólki til
að vinna við framleiðsluna og
fullvíst er, að mikil vandræði
verður að manna flotann af inn-
lendum sjómönnum og fullvíst er
einnig, að fá verður mikið af út-
lendum sjómönnum svo fremi, að
ýtt verði úr vör öllum þeim fleyt-
um sem héðan eiga að ganga til
fiskveiða á næstu vertíð.
Árferði goft
í Homafirði
GUNNAR Snjólfsson, fréttaritari
Mbl. í Höfn í Hornafirði, skrifar
eftirfarandi:
Árið 1956 má teljast í heild
mjög gott ár, bæði til lands og
sjávar. Vertíð var óvenju hag-
stæð og afli einhver sá allra mesti
sem hér hefur þekkst. — Á síld-
veiðum öfluðu bátarnir eftir von-
um. Hins vegar hefur haustvertíð
veríð lítil þar sem í allan vetur,
sem af er, hefur verið samfelld
hafátt.
Vel voraði og afkoma með sauð-
fé var yfirleitt mjög góð. Gras-
spretta mátti teljast vel í meðal-
lagi. Þurrkdeyfur voru framan af
slætti, einkum í júlímánuði. Eft-
ir það mátti teljast samfelld
þurrkatíð og heyfengur bænda
mikill. Nýting góð.
Slátrað var svipaðri tölu og
undanfarin ár af sauðfé en dilkar
reyndust allvel eða rösk 13 kg.
til jafnaðar. M. a. má það teljast
gott þar sem mikill fjöldi þeirra
voru tvílembingar.
Kartöfluuppskera var vel í
meðallagi og gulrófnarækt mikil
en erfiðlega hefur gengið með
sölu á þeim.
Ein skurðgrafa hefur verið í
gangi yfir sumarið og unnið að
þessu sinni mest sunnan Horna-
fjarðar. Jarðræktarsambönd eru
tvö, annað sunnan en hitt austan
Hornafjarðarfljóta. Hafa þau í
þjónustu sinni fimm jarðýtur. Má
nú segja að nær allur heyfengur
sé fenginn á ræktuðu landi.
Aðeins hefur ein brú verið
byggð í héraðinu á árinu og var
það á Staðará í Suðursveit. Á
Höfn eru 9 íbúðarhús í smíðum
og eru þau misjafnlega langt kom
in, sum allt að því að verða íbúð-
arhæð. Nýr barnaskóli er í smíð-
um. Er búið að steypa neðri hæð
hans. Þá er bygging nýs félags-
heimilis langt komin. Nýtt frysti-
hús var tekið í notkun hjá kaup-
félaginu á árinu. Er með því bætt
úr mikilli þörf við vinnslu sjáv-
arafurða. í sumar hefur verið
unnið að vatnsveitu á vegum
Hafnarhrepps, ofan frá Fjalli og
út þorpið. Er það 7,8 km á lengd.
Áætlaður kostnaður er um 840
þús. kr. Eru nú aðeins ólagðir 150
metrar sem vantar rör í. Leiðslan
er lögð í 5 tommu asbeströrum,
nema 800 metrar af henni eru
lagðir í sjávarleiðslu í stálrörum.
Heilsufar hefur yfirleitt verið
gott síðan í marz, en þá gekk hér
mjög slæm inflúenza og létust
nokkrir úr henni. Var það mest
eldra fólk og heilsutæpt.
SEX BÁTAR Á VERTÍÐ
Útvegsmenn rmdirbúa nú báta
sína fyrir vertíðina og er ætlun-
in að vertíð hefjist strax upp úr
áramótum ef tíð leyfir. Alls eru
heimabátar nú sex og er ætlunin
að þeir verði allir gerðir út í
vetur.
Jörð er nú alauð hér upp á efstu
fjallatinda og veðrátta blíð.
* jr
E Arnesþingi
FRÉTTARXTARI Mbl. í Selja-
tungu í Gaulverjabæjarhreppi,
Gunnar Sigurðsson, símaði í gær:
Árið, sem brátt er á enda runn-
ið, hefur um margt verið hag-
stætt og á því ári miklum og
margvíslegum framkvæmdum
lokið og byrjað á öðrum. Á það
við hér um Árnesþing svo sem
víðast hvar annars staðar á land-
inu Veðurfar hefur yfirleitt ver-
ið hagstætt, vetrarríki ekkert og
menn björguðust alls staðar vel
fram með búpening sinn, eftir
hina grimmu veðráttu sumarsins
1955. Það sem af er þessum vetri
hefur veðráttan verið mild, engan
snjó fest á jörð og klakalaust er
með öllu. Mun það fátítt að svo
sé um áramót. Stormasamt hef-
ur hins vegar verið í haus . og pað
sem af er vetri óstillt veður
flesta daga. Sauðfé fer nú fjölg-
andi hér í sýslu og kemur þar til
hreysti fjárstofnsins og miklar
heybirgðir bændn frá S’ðasta
sumri. Nautgripa- og hrossaeign
mun hins vegar nokkuð svipuð og
árrð áður. Ræktunarf’-amkvæmd-
ir alls staðar einhverjar og á ýms
um bæjum allmiklar, svo og
skurgröftur, þurrkanir og áveitur
eftir því sem vélar ræktunarsam-
bandsins hér hafa annað og fjár-
þol bænda frekast leyfir. Bygg-
ingaframkvæmdir eru og miklar
og margvíslegar hér í sýslu,
bæði í sveitum og þorpum, en
þar er að sjálfsögðu stórtækastar
framkvæmdir Mjólkurbús Flóa-
manna á Selfossi, sem verið er
að endurbyggja og auka, svo sem
áður er vitað. Án þess að ég geti
um það fullyrt virðist mér að
mikið verk sé bar óunnið ennþá
og langt þangað til að húsakostur
þar verði komið í það horf sem
fyrirhugað er. Þá eru og miklar
byggingaframkvæmdir hafnai
hjá Kaupfélagi Árnesinga, þar
sem er nýsmíði á trésmiðju, yfir-
byggingaverkstæði, renniverk-
stæði og járnsmiðju, en húsa-
kostur þessara iðngreina eyði-
lagðist í eldi síðastliðið sumar.
Framkvæmdir .hófust í október
sl og er búizt við að byggingin
verði ekki fullgerð fyrr en eftir
eitt ár. Stærð hússins mun vera
kringum 300 ferm og stendur
skammt fyrir austan Flóabúið é
Seifossi. Þannig eru verkefni í
lífi félaga og einstaklinga óþrjót-
andi og breytileg, á meðan trú á
framfarir og bætta aðstöðu er
ríkjandi meðal landsfólksins.
Framar öðru horfir fólkið í
sveitunum þó til þess að raforkan
dreifist um byggðir þess. Hér '.
sýslunni hefur býlum fjölgað
nokkuð sem fengið hafa rafmagn
frá Soginu hin síðari ár og enn
eru frekari áætlanir um aukningu
á komandi ári. Má það gjarnan
verða, því oss Árnesingum hefur
fundizt seint sækjast að
raflýsa hérað vort og er þó
stærsti orkugjafinn í héraðinu
þar sem Sogið er. Þá er og annað
hagsmunamál okkar að skríða af
stað, lagning Austurvegar, en
þess er að vænta að hann verði
í framtíðinni hinn öruggasti vetr-
arvegur, er tengi saman fram-
leiðsluhéruðin austan Fjalls og
höfuðþorgina. Vaxandi áhugi er
hér fyrir að reynt verði að brúa
Ölfusá hjá Óseyrarnesi. en brú
sú mun hafa verið tekir. á brúar-
lög fyrir nokkrum árum.
Á ísafirði
TSAFXRÐX: — Mikil atvinna og
annríki setti svip sinn á ísfirzkt
atvinnulíf á árinu sem nú er að
líða. Atvinna mátti heita stöðug
allt árið og hið árstíðabundna
atvinnuleysi virðist nú ekki leng-
ur gera vart við sig hér. Veldur
þar mestu um aukinn og fjölþætt
ari fiskiðnaður, sem risið hefur
upp í bænum á síðari árum, sam-
fara stórauknum handiðnaði, svo
sem skipasmíði; sem nú er unnið
að allt árið. — Á þessu ári var
hleypt af stokkunum tveim nýj-
um bátum í skipasmíðastöð M.
Bernharðssonar hf., sem bættust
í ísfirzka bátafiotann og nú stend
ur þar fullbúinn, nýr og vandaður
bátur fyrir Hnífsdælinga, sem
væntanlega verður hleypt af
stokkunum um miðjan janúar
næstkomandi.' — Miklar bygg-
ingaframkvæmdir voru nér í sum
ar. Lokið var við að útibyrgja
hið nýja hraðfrystihús ísfirðings
hf. við hafnarbakkann í Neðsta-
kaupstað Einnig var lokið við að
útibyrgja kjallara og neðstu hæð
útibús Lréindsbanka Tslands við
Pólgötu og nýtt rafstöðvarhús að
Fossum í Engidal. Þá var unnið
að endurbótum á hinum nyju
húsakynnum Útvegsbanka ís-
lands, sem tekin voru í notkun
rétt fyrir jólin. íbúðahúsabygg-
ir.gar voru miklar í sumar og er
útlit fyrir að þær verði enn meiri
næsta sumar. Hefur aldrei fyrr
verið úthlutað jafnmörgum bygg-
ingarlóðum á einu, ári eins og því
sem nú er að líða.
Allar þessar framkvæmdir
hafa miðað að auknu atvinr.uör-
yggi bæjarbúa. ísfirðingar lita
almennt björtum augum til árs-
ins 1957. — J.P.
Haufar horfur
ÞINGEYRI: — Atvinna manna
var hér all-sæmileg, en hana
urðu Þingeyríngar að sækja
til annarra staða. Var það eink-
um vega- og brúarvinna, vinnan
við virkjunarframkvæmdir í
Mjólkurárvirkjun og byggingar
þær sem nú er verið að reisa á
Hiafnseyri. Búskapur hjá bænd-
um hefur gengið vel, enda mjög
sæmilegt tíðarfar. í Núpsskóla
eru nú yfir 109 nemendur, en þar
hafa áður verið kringum 60 nem-
endur. Hefur húsakostur skólans
verið bættur mjög og þeim fram-
Frh. á bls. 9.
• Afmæli •
80 ára verður á morgun, garnl-
ársdag, frú Lovísa Símonardótt-
ir, Njálsgötu 47. Á afmælisdaginn
verður hún á heimili sonar síns,
Lúðvíks Þorgeirssonar, kaupm.,
Sigtúni 47.
Skók-keppnín
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
11. DdlxDd8
2. BORB
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. Kristlnss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
10..Dd8—c7