Morgunblaðið - 03.01.1957, Page 1

Morgunblaðið - 03.01.1957, Page 1
Eisenhower forseti: Aukin efnahagsaðsioð vi nálæg Ausfurldnd Bandaríhin sfefna aB því að koma í veg fyrir vopnaHa árás Rússa við ausfanverf Miðjarðarhaf Washington, 2. jan. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TILLÖGURNAR, sem Eisenhower hefur lagt fyrir leiðtoga þjóð- þingsins varðandi nýja stefnu Bandaríkjanna í nálægum Aust- urlöndum, hafa ekki verið kunngerðar í smáatriðum ennþá, en það hefur kvisazt í Washington, að í hinni formlegu ræðu, sem hann heldur í þinginu, muni hann leggja höfuðáherzlu á eftirfarandi atriði: 1) Nálaeg Austurlönd ásamt Vest ur-Evrópu og Foitnósu eru nú þau svaeði í heíminum, þar sem tryggja verður frið og öryggi. Öryggi þeirra skiptir meginmáli fyrir Bandaríkin. 2) Þjóðþingið' samþykki stjórn- arskrárlegan rétt forsetans til að senda hersveitir til ná- lægra Austurlanda, ef þörf krefur. Slík samþykkt yrði órækur löglegur grundvöllur allra aðgerða, þar sem þjóð- þingið eitt hefur vald til að segja öðru ríki stríð á hendur. 3) Slík samþykkt ætti að draga úr árásarvilja Rússa, og þann- ig mundi hún veita nálægum Austurlöndum nokkurt jafn- vægi og kærkomið tækifæri tii að vinna að lausn þeirra pólitísku og efnahagslegu vandamála, sem um langan aldur hafa hrjáð þau. AIXSHERJ ARUMRÆÐ UR UM UTANRÍKISMÁL Það er haft fyrir satt í Was- hington, að enda þótt forsetinn leggi frapi tillögur sínar með það fyrir augum að fá fljóta af- greiðslu, sé ekki hægt að búast við endanlegri ákvörðun þings- ins fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Talið er, að utanríkis- nefndir beggja deilda þingsins muni krefjast þess, að fram fari ýtarlegar allsherjarumræður um utanríkismál Bandaríkjanna. Síðustu fréttir herma, að Eis- enhower muni tala til þjóð- þingsins á föstudag og gera þá grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi nálæg Austurlönd. EFNAHAGSAÐSTOÐ Á fundi sínum við leiðtoga þjóðþingsins í gær, lagði Eisen- hower áherzlu á efnahagslega aðstoð Bandaríkjanna við nálæg Austurlönd sem öruggustu leið- ina til að bægja frá þeim ógnum kommúnismans og tryggja þeim pólitískt sjálfstæði. EIMN EYKST FLOTTA- MANNASTRAUMURINN Vínarborg, 2. jan. Frá Reuter. AUSTURRÍSK yfirvöld hafa tilkynnt að flóttamanna- straumurinn frá Ungverja- landi sé enn í örum vexti. Á 24 tímum í gær komu t. d. til Austurríkis yfir 1000 ung- verskir flóttamenn, en það er hæsta tala flóttamanna á ein- um sólarhring síðan fyrir jól. Eisenhower forseti Banda- ríkjanna tilkynnti í dag, að haldið yrði áfram að veita ungverskum flóttamönnum landvistarleyfi um óákveðinn tíma. Nixon varaforseti hafði áður lýst því yfir, að hækka þyrfti þá hámarkstölu flótta- manna, sem árlega fá hæli í Bandaríkjunum, en hún er nú 21.500. Þegar síðast fréttist höfðu um 13.000 ungverskir flóttamenn fengið hæli í Bandarík j unum. Hastingsmótið eftir 6. umferð: Larsen efsftur með 4% v. Friðrik með tveim í 2. sæti 16. umferð skákmótsins í Hastings skildu þeir Friðrik og Toran frá Spáni jafnir. Var skák þeirra lokið á 4 klst. og 15 min. og varð hún 25 leikir. Gligoric og Szabo skildu jafnir, skák O’Kellys og Alexanders fór í bið, en Larsen vann sína skák, svo að hann hefur nú tekið forystuna með 4% vinning. Lík Moorehouse sent heim TEL AVIV 2, jan.: — Samkvæmt fréttum frá AFP-fréttastofunm hefur Burns hershöfðingi, yfir- maður öryggissveita S.Þ. í ná- lægum Austurlöndum, staðfest fregnir þess efnis, að líkið af Moorehouse liðsforingja hafi ver- ið fengið í hendur sænsku örygg- issveitunum á miðvikudagsmorg- un. Burns sagði ennfremur, að líkið yrði kistulagt og sent til búða öryggissveitanna við egypzka flugvöllinn í Abu Suweir. Þaðan verður því flogið til Napoli og fengið í hendur Bret- um. — Reuter. Zhukov heimsækir Nehru Moskva, 2. jan. Frá Reuter. Z H U K O V landvarnaráðherra Sovétríkjanna hefur verið boðið í opinbera heimsókn til Indlands, og hefur hann þekkzt boðið. Til- kynnti Moskvu-útvarpið að hann færi þangað síðari hluta þessa mánaðar. Talið er líklegt, að Eden hætti við fyrirhugaða heimsókn sína til Moskvu nema því aðeins að Rússar taki upp breytta stefnu í heimsmálunum, en honum var boðið þangað í fyrra, þegar Búl- ganin og Krúsjeff gistu England. EISENHOWER f EGYPTAR ÓÁNÆGBIR Blöð í Egyptalandi hafa yfir- leitt verið gagnrýn á hina nýju stefnu Bandaríkjanna í nálægum Austurlöndum, og komst eitt þeirra svo að orði, að Arabaríkin kæri sig ekki um, að rússnesk og bandarísk áhrif komi í stað brezkra og franskra við austan- vert Miðjarðarhaf. 11 dogo í fárviðri — engin hjnlp París 2. jan. Frá Reuter. FÁRVIÐRI hefur hindrað þa». að hægt væri að koma 10 mönn um til hjálpar, þar sem þeir eru tepptir hátt uppi í hlíðum Mont Blanc. Eini möguleikinn til að bjarga þeim er að senda þyrilvængju á vettvang strax og citthvað rofar til. Tveir þessara manna ungir stúdentar, sem verið hafa á f jallinu í 11 daga og eru nú aðframkomnir. Hinir eru björgunarmenn, m.a. áhöfn þyrilvængju, sem reyndi að bjarga stúdentunum en skemmdist. Stúdertaunir halda nú kyrru fyrir í þyril- vængjunni, því þeir voru svo máttvana að ekki var !»ægt að flytja þá í kofa, þar sem björgunarmennirnir fundu sér hæli. Síðustu fregnir lierma, að stúdentarnir séu nú alveg að þrotum komnir. Áætlað er, að þessar björgunartilraunir hafi þegar kostað sem nemur 11 milljónum og 400 þúsund ísl. krónum. Andi Stalins á að ríkja í bókmenntum og listum ★ SKÁKIRNAR I GÆR Næst honum kemur O’Kelly sem hefur 4 vinninga og biðskák og síðan Friðrik og Gligoric sem hafa 4 vinninga. Skák Gligorics og Szabo tók 4 klst. og varð 34 leikir. Skák Larsens við Horseman varð 37 leikir og stóð í 4Vz klst. Ekki er minnzt á skák Penrose og Clarks í skeytinu. ★ 4 UMFERÐ í 4. umferð sem tefld var s.l. sunnudag urðu úrslit þau, að Lar- sen og Gligoric sömdu um jafn- tefli eftir 22 leiki. Clark og Al- exander sömdu um jafntefli eftir 30 leiki og þeir Friðrik og Szabo sömdu um jafntefli eftir 23 leiki. O’Kelly vann Toran og ein skák- in fór í bið. Var það skák Horse- mans og Penrose. Henni lauk síð- an eftir rúml. 7 klst. viðureign samtals með sigri Horsemans. ★ 5. UMFERÐ 5. umferð hófst á gamlársdag og varð mikið um biðskákir, en úrslit umferðarinnar urðu þessi: Gligoric og Clark gerðu jafn- tefli, eftir 47 leiki, Toran vann Horseman 1 59 leikjum, Szabo vann Alexander í 54 leikjum, Cligoric og Clark gerðu jafn- tefli, en Larsen vann Penrose. 7. umferð verður tefld í dag og teflir þá Friðrik við Horse- man, en síðan á hann eftir að tefla við Alexander og Gligoric. Moskva, 2. jan. Frá Reuter. Á FIMMTUDAG fengust nýjar sannanir fyrir því, að rússneskir leiðtogar ætli sér að taka upp aft- ur ýmsa þætti Stalins-tímans, og þá einkum að halda við lýði hinni gömlu afstöðu til bókmennta og lista. Þetta er auðsætt af grein, sem birtist í tímaritinu „Heim- spekileg vandamál“, sem er gefið út af rússnesku Vísinda-akadem- íunni. í þessu tímariti ber Molo- tov, fyrsti varaforsætisráðherra, ábyrgð á öllum svörum varðandi hina hugsjónalegu hlið á listum og menningarlífi 1 Sovétríkjun- um. FLEIRI VERK í ANDA STALÍNS Tímaritið er oft máipípa þeirra Einokun rannsökuB London 2. jan. Frá Reuter. NEFND sú, sém rannsakar ein- okun og er skipuð af brezku stjórninni, gaf í dag skýrslu, þar sem segir að nefndin álíti starf- semi Súrefnafélagsins h.f. nær algera einokun á súrefnafram- leiðslu í Bretlandi, og sé slíkt gagnstætt hagsmunum almenn- ings. Ennfremur áiítur nefndin, að tekjur félagsins, sem nema milli 23 og 25%, séu miklu hærri en réttlætanlegt sé. Þess vegna leggur hún til, að gerðar verði ráðstafanir til að koma í veg fyr- ir það, að félagið setji upp hærra verð en sanngjarnt sé. LEYNDI NÖFNUM Nefndin hefur komlzt að því, að félagið reyndi að hafa algert vald á allri framleiðslu súrefna í Bretlandi, og fram á árið 1955 leyndi það nöfnunum á eigendum þriggja fyrirtækja, sem voru að því er virtist í samkeppni hvert við annað, en voru í reyndinni sama fyrirtækið. Þessi rannsókn ríkisstjórnarinnar á einokunar- starfsemi eins fyrirtækis hefur vakið athygli viða um heim. sjónarmiða, sem eru efst á baugi meðal ráðamanna Sovétrikjanna. Á miðvikudag birtist þar leiðari, sem fór hörðum gagnrýnisorðum um þá borgara Sovétríkjanna, sem ganga of langt í gagnrýninni á Stalín. Tímaritið fordæmir þá kommúnista, sem hvarfli frá einu sjónarmiði til annars, og tali illa um verk, er byggð voru á hugsjónum kommúnismans og komu út fyrir dauða Stalíns. Síð- an tekur það sér fyrir hendur að gera eins konar endurmat á hinum miklu áhrifum Stalíns á menningarlífið og listina, og bið- ur unt fleiri verk, sem byggð séu á hugsjónum sovét-sósíalismans og sýni hinn róttæka mismun á honurn og vestrænu lýðræði. ÁRÁS Á RÚSSNESKA RITHÖFUNDA Meðal Vesturlandamanna í Moskvu er álitið, að umrædd grein sé hnefahögg í andlit rúss- neskra rithöfunda, sem nýlega fóru að taka upp í bókmenntum og leiklist stílbrögð og form, sem tíðkuðust fyrir byltinguna, þar sem lögð er minni áherzla á hina hugsjónlegu hlið verksins. Egyptar ógilda samning — Bretar mótmœla London, 2. jan. Frá Reuter. l^ORMÆLANDI brezka utanríkisráðuneytisins hefur lýst F yfir því, að Bretar viðurkenni ekki rétt egypzku stjórn- arinnar til að ógilda samninginn milli þessara tveggja ríkja frá 1954 upp á sitt eindæmi. Það var tilkynnt í Kaíró-út- varpinu, að samningurinn væri nú úr gildi fallinn, en brezka stjórnin hefur ekki fengið neina opinbera tilkynningu um það. Formælandinn sagði ennfremur, að það væri skoðun Breta, að ógilding samningsins gæfi Egyptum engan rétt til að taka brezkar eignir í Port Said, þar sem samningurinn geymir ótvíræð ákvæði um það, að Bretar g'eti flutt burt eða ráðstafað öllum eignum sínum við Súez-skurðinn jafn- skjótt og samningurinn fellur úr gildi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.