Morgunblaðið - 03.01.1957, Side 15

Morgunblaðið - 03.01.1957, Side 15
Fimmtudagur 3. jan. 1957 MORCTITV fíT/AmÐ 15 — Gaotaborgarliréf Frh. af bls. 10 GAUTABORG SJÓNVARPS- MIÐSTÖB Á fundi Norðurlandaráðsins í febrúar næsta ár verður borin fram tillaga um sænsk-nosk- og danska samvinnu á sviði sjón- varpsins. Ef tillaga þessi nær fram að ganga hefur það í för með sér að Gautaborg verður skandinavisk sjónvarpsmiðstöð. Ekki er aðeins um að ræða að senda skandinaviskt efni frá einu landinu til annars, heldur einnig að Svíþjóð og Noregur eigi kost á að sjá efní frá öðrum löndum Evrópu um Danmörk. Eins og kunnugt er, hefur Danmörk nú þegar sjónvarpssamband við V- Þýzkaland. Guðm. Þór Pálsson. Hurðanafnspjöld Bréfaiokur Skiltagerðin. SkólavörSustíg 8. Hötúut Ólafsson Málflutningsbkrifsiofa. Smiðjustíg 4. Sími 80332 og 7073. Kristján Guðiaugsson hæstaréttarlögmaffur. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. Austurstræti 1. Sími 3400. Gísli Einarsson héraðsdómslögmaður. Málflutningsskrifstofa. Laugavegi 20B. — Sími 82631. Pranskir miðsiödvarofnar til sölu 274 eliment 30" 4 leggja. 32 eliment 36" 4 leggja 64 eliment 18" 6 leggja Tilboð óskast sent Mbl. fyrir laugardaginn 5. jan. Merkt: „7472“. Sankowur K.F.U.M. og K. Jólatrésfagnaður fyrir yngstu b'5m félagsfólks, verður haldinn í húsi félaganna mánudaginn 7. lan. n.k. og hefst kl. 3% e.h. — Aðgöngumiðar Verða seldir í dag og á morgun í K.F.U.M. frá kl. 4i/2—6% e.h. K.F.U.K. — UD. Munið fundinn í kvöld kl. 8,30. Þorkell Pálsson og Ingvar Kol- beinsson annast dagskrána. AHar stúlkur velkomnar. Fxladelfía. Almenn samkoma kl. 8.30. Ræðu menn: Garðar Ragnarsson og Árni Arinbjarnarson. Allir velkomnir. Hj álpræðisherinn 1 dag kl. 14.00. Jólatréshátíð fyrir börn. Aðgangur kr. 2,00. 1 dag kl. 20,30. Jólatréshátíð fyrir almenning. Velkomin. E. O. G. T. St. Frón nr. 227. Fundur í kvöld kl. 8,30. Kosn- ing embættismanna. Kaffi. — Æ.T. St. Andvari nr. 265. Fundur í kvöld kl. 8,30. Kosn- ing og innsetning embættismanna. Fjölsækið. — Æ.t. Félagslíf Skemmtifund halda sunddeildir Ármanns og K.R. í K.R.-heimilinu í kvöld kl. 8,30. Alltaf sama fjörið. — Skemmtinefndimar. K.R. knattspyrnuiuenn 1. og Meistaraflokkur áríðandi fundur verður kl. 8,30 i kvöld í félagsheimilinu. —• Stjómin. Knattspyrnufélagið Fram. Jólaskemmtifundur verður fyrir yngri félaga í dag kl. 5 í félags- heimilinu. — Stjnrnin. SIc transit giorla mundi MOSKVU — Hinn 21. des. er fæðingardagur Stalins — og á fyrri árum var sá dagur hald- inn hátíðlegur um gervöll Ráðstjórnarríkin. Sl. 21. des. voru 77 ár liðin frá fæðingu Staíins, en hans að engu minnzt í blöðum né útvarpi þar austur frá: Sic transit gloria mundi. — Armann Framh. af bls. 11 brandur Guðjcnsson, Ásta Niel- sen. í varastjórn eru Ásgeir Guð- mundsson, Hannes Hall og Hauk- ur Bjarnason. Vetrarstarfsemin hófst að venju 1. okt. sl. og er æft í öll- um flokkum, sem hér eru táldir upp að framan, og er þar að íinna eitthvað fyrir alla til að æfa. Félagið hefur mjög hæfum kennurum á að skipa. Grikkir hafna stjórnarskráimi New York 2. jan. Frá Reuter GRIKKIR höfnuðu I dag tillög- um Breta um nýja stjórnarskrá til handa Kýpur-búum á þeim for sendum, að hún mundi verða verkfæri í höndum erlendra kúg- ara, sem vildu þvinga henni npp á þjóðina. Það var Kristian Palamas, fastafulltrúi Grikkja hjá S.Þ., sem sendi Hammarskjöld bréf þessa efnis rétt áður en stjórnmálanefnd Allsherjarþings- ins kæmi saman til að ákveða, hvenær Kýpur-málið yrði tekið til umræðu. Samkvæmt hinni nýju stjórn- arskrá ætti Kýpur að fá eigið löggjafarþing, en landsstjórinn færi með utanríkismál, varnar- mál og öryggismál innan lands. í bréfi sínu segir Palamas, að Kýpur-búar séu með öllu ófrjáls- ir og verði að lúta brezkum duttl- ungum, hagsmunum og heims- valdapólitík. Hin nýja stjórnar- skrá gefi þeim ekki einu sinni vonir um betri framtíð og meira frelsi, enda sé hún ólýðræðisleg og virði að vettugi sjálfsákvörð- unarrétt þjóða og einstaklinga. Innilega þökkum við öllum þeim, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsdegi okkar, með gjöfum, skeytum, blómum og heimsóknum. — Guð blessi ykkur öll. Ólína og Ólafur Thoroddsen, Blómvallagötu 13. Innilegustu þakkir til ykkar allra, sem sýnt hafa okkur vináttu með gjöfum og annarri fyrirgreiðslu í erfiðleik- um okkar á hinu nýliðna ári. Guð blessi ykkur öll! Fjölskyldan Svarfhóli, Geiradal. EVFIRÐIIMGAR! Spilakvöld félagsins verður haldið í Silfurtunglinu, fimmtudaginn 3. janúar kl. 8,30 stundvíslega. Félagar fjölmennið. E YFIRÐIN G AFÉL AGIÐ. Lokað í dag klukkan 12—4 vegna jarðarfarar JJ^ann6er^s6reeður Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir GUÐMUNDUR LAXDAL FRIÐRIKSSON bílstjóri, Grund við Elliðaár, lézt af slysförum 2. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Guðrún Þorláksdóttir Herdís Gröndal, Ingi D. Gröndal. Konan mín GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR andaðist að heimili sínu Kirkjuvegi 5, Selfossi, miðviku- daginn 2. janúar. Vegna allra vandamanna. CARL GRÁNZ Útför fósturmóður minnar GUDRÚNAR JÓNSDÓTTUR verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. janúar kl. 1,30 síðd. Húskveðja verður að Fellsmúla 4. jan. kl. 1,30 síðd. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu með blómum, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Athöfn- inni í Fossvogskirkju verður útvarpað. F. h. vandamanna. Hanncs Guðmundsson. Móðir okkar INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR frá Gerðum andaðist 30. f.m. að heimili sínu Hamrahlíð 25. Börnin. Faðir okkar ÓLAF HENRIKSEN lézt í sjúkrahúsi Siglufjarðar á gamlársdag. Birgit, Guðlaugur og Henning Henriksen. Sonur minn. ÓSKAR GUÐMUNDSSON lézt af slysförum 29. desember. Gróa Hannesdóttir, Urðarstíg 8. BJARGEY PÉTURSDÓTTIR andaðist á heimili sínu Ráðhústorgi 5, Akureyri, 28. des. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 4. janúar 1957 kl. 2 e.h. Blóm og kransar vinsamlega afbeð- ið, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknar- stofnanir. Vegna fjarstaddra ættingja. Ólafur Agústsson. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og út- för mannsins míns GÍSLA Ó. THORLACIUS Fyrir hönd vandamanna. Hólmfríður Pétursdóítir. Við þökkum öllum þeim, sem á einn eða annan hátt létu í ljós samúð sína og hluttekningu við andlát og jarðar- för föður okkar og tengdaföður JÓHANNESAR ÞÓRÐARSONAR trésmiðs, sem andaðist hinn 16. desember sl. Böm og tengdabörn. Þökkum alla samúð við útför sonar okkar og bróður PÁLMA JÓNSSONAR Geitabergi. Foreldrar og systkini. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föðursystur minnar GUDRÚNAR HELGADÓTTUR Gróðrarstöðinni, Laufássvegi 74. Eiríkur Einarsson. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er sýndu mér samúð og vinsemd við andlát og jarðarför mannsins míns ÓLAFS M. GUÐMUNDSSONAR trésmiðs. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Sigríður Jónasdóttir, Njarðargötu 25. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar ÞÓREY HARALDÍNA EINARSDÓTTIR frá Norðfirði, verður jarðsungin í dag, fimmtudaginn 3. janúar. Athöfnin hefst með bæn að heimili hennar Suð- urlandsbraut 59 klukkan 1,15. Jarðað verður frá Foss- vogskirkju. Jarðarförinni verður útvarpað. Ólafur Theódórsson Guðrún Ólafsdóttir, Einar Ólafsson. Dóttir mín HELGA verður jörðuð frá Fossvogskirkju kl. 10,30 f.h. föstud. 4. þ.m. Fyrir mína hönd og barnanna og annarra vanda- manna. Bjargmumlur Sveinsson. Jarðarför konunnar minnar JÓHÖNNU G. ÞORVALDSDÓTTUR fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 3. janúar kl. 1,30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir. Björn Jónsson. Móðir mín MARGRÉT GUÐNADÓTTIR frá Miðkoti lézt að heimili mínu Hvolsvelli 28. f.m. Jarð- sett verður að Hlíðarenda laugardaginn 5. janúar kl. 2. ísleifur Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.