Morgunblaðið - 05.01.1957, Síða 2
2
MORCrVNBLAVIÐ
Laugardagur 5. jan. 1957.
Elzta og stærsta brunatryggingar-
fékg
landsins 40 dra
Brautryijendastarf Brunabótafálags íslands
IGÆR kailaði framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri Bruna-
bótafélags íslands blaffamenn á sinn fund vegna þess að þann
dag voru liðin 40 ár frá þvi að Brunabótafélag íslands hóf starf-
semi sína. Stefán Jóhann Stefánsson, framkvæmdastjóri, hafði orð
fyrir framkvæmdastjórninni og skýrði stofnun og starfsemi félags-
SVEINN BJÖRNSSON
FYRSTI FORSTJÓRINN
Lög um Brunabótafélag íslands
voru sett 3. nóv. 1915, en félagið
tók ekki til starfa fyrr en 1. jan.
1917. Er félagið eign þeirra, sem
hjá því tryggja. f ársbyrjun 1916
haíði Sveini Björnssyni, síðár for
seta íslands, verið falið að koma
félaginu á stofn og taka að sér
framkvæmdastjórn. Byrjunar-
störf félagsins voru miklum erfið
leikum háð enda bundust er-
lend tryggingarfélög bæði í Dan-
mörku og Sviþjóð, samtökum
um að neita þessu íslenzka félagi
um endurtryggingu. Var það
ekki fyrr en samkomulag náðist
við norska ti-yggingarfélagið
Storebrand í Ósló um endur-
tryggingu fyrir Brunabótafélag-
ið, að grundvöllur var lagður að
starfsemi þess.
Félagið hóf starfsemi sína með
því að tilkynning var gefin út um
að ákvæði laganna um Bruna-
bótafélagið skyldi ná til bruna-
tiygginga á húsum í 21 tilgreind
um kaupstað og kauptúni utan
Reýkjavíkur.
Sjá má af þessu, að Brunabóta-
félag íslands markar tímamót í
sögu tryggingamála hér á landi,
þar sem það er elzta alinnlenda
tryggingafélagið. Áður höfðu er-
lend tryggingafélög annast vá-
tryggingu húsa og voru trygg-
ingariðgjöldin þá mjög há, eða
þetta 10—11 af þúsundi. Þegar er
B. í tók til starfa lækkaði það
iðgjöldin um rúman helmir.g.
FRAMKVÆMDARSTJÓRAR
FÉLAGSINS
Framkvæmdastjórar félagsins
hafa verið þessir: Sveinn Bjöms-
son 1916—1920, Guðmundur Ól-
afsson, hæstaréttarlögmaður 1920
—1922, Gunnar Egilsson 1922—
1925, Árni Jónsson frá Múla 1925
—1928, Halldór Stefánsson fyrv.
alþm. 1928—1945, og loks Stefán
Jóhann Stefánsson frá 1945 og
síðan.
Með lögum frá 1955 var skipu-
lagsháttum BÍ breytt. Var þá á-
kveðið að öll bæjarfélög utan
Reykjavíkur og öll sýslufélög
landsins skildu eftir hverjar
reglulegar bæjar- og sýslunefnd-
arkosningar tilnefna einn mann
hvert og annan til vara í full-
trúaráð fyrir félagið, og skyldi
það koma saman fjórða hvert ár.
Aðalfundur kýs þrjá menn og
þrjá til vara í framkvæmda-
stjórn fyrir félagið. Á fyrsta að-
alfundi fulltrúaráðsins í Reykja-
vtk í júní 1955 voru eftirtaldir
menn kjörnir í framkvæmda-
stjórn:
Jón G. Sólnes, bankafulltrúi
Akureyri, formaður, Emil Jóns-
son, vitamálastjóri, Hafnarfirði,
varaformaður og Jón Steingríms-
son, sýslumaður Borgarnesi, rit-
arL
BREYTT STARFSSVBÖ
í upphafi var starfssvið BÍ
næsta takmarkað, þar sem fyrst
og fremst var um tryggingar
fasteigna að ræða. Frá 1932 var
lögfest að skylt væri að tryggja
hjá félaginu allar húseignir ut-
an Reykjavíkiur. Hafði félagið
þannig allar fasteignatryggingar,
eða því sem næst, í samfellt rúm
20 ár, eða frá 1934—1955. Var
þetta orsök þess að félagið er í
dag stærsta brunatryggingafélag
landsins. Önnur meginbreyting
var gerð á starfsviði félagsins
með lögum 1955. Er félaginu nú
Fyrsti framkvæmdastjóri
Brunabótafélags íslands
Sveinn Björnsson
heimilt að brunatryggja allt
lausafé og ennfremur að taka að
sér rekstur nýrra trygginga og
jafnframt var öðrum tryggingar-
félögum veitt heimild til að taka
að sér tryggingu fasteigna utan
Reykjavíkur. Er nú óðum verið
að breyta starfssviði félagsins.
Tekur það nú að sér ábyrgðar-
tryggingar, vélatryggingar, ferða
og slysatryggingar, flutiíinga-
tryggingar og rekstursstöðvunar-
tryggingar, auk hinna fyrri
trygginga.
Félagið hefur ávallt verið í
leiguhúsnæði, en hefur nú fest
kaup á einni hæð stórhýsis við
Hlemmtorg, sem það gerir sér
vonir um að flytja í 1958.
Um endurtryggingar félagsins
er það að segja, að það hefir nú
um tvo þriðju hluta á eigin á-
byrgð, en endurtryggir um %
hluta og hefir það haft aðalend-
urtryggingar sínar hjá Store-
brand í Osló og íslenzkri endur-
tryggingu í Reykjavík. Vara-
sjóðir B. í. nema rúmlega 26
milljónum króna.
NOKKRAR TÖLULEGAR
UPPLÝSINGAR
Vátryggingaupphæðir fast-
eigna voru 1931 51.541.625 kr., en
1956 voru þær 3.566.425.100 kr.
Brunabótaiðgjöldin hafa frá 1917
vaxið úr 80.439 kr. í 5.931.555 kr.
árið 1956. Meðaliðgjöld af vá-
tryggingarupphæðum hafa fallið
úr 5.19 af þúsundi .931 í 1.83 af
þúsundi 1956. Bótagreiðslur (fast
eign og lausafé) voru árið 1917
5.260 kr., en 1956 voru þær
4.488.406 kr. og alls hafa tjónbæt-
ur á 40 reikningsárum numið kr.
32.197.540.
LÁNVEITINGAR OG STUÐN-
INGUR VH) BRUNAVARNIR.
Auk þess að endurgreiða til
viðskiptamanna sinna á undan-
Núvcrandi framkvæmdastjóri
Brunabótafélags Islands,
Stefán Jóhann Stefánsson.
förnum árum um 2.5 millj. kr.,
hefir B. f. annast allmikla lána-
starfsemi, einkum til vatnsveitna
og brunavarna. Nema lánin til
bæjar- og sveitarfélaga nú tæp-
um 22 millj. kr., mest allt í þessu
skini.
Félagið hefir beitt sér mikið
fyrir brunavörnum í landinu og
hefir Geir G. Zoéga haft á hendi
yfirumsjón brunavarna, en hon-
um til aðstoðar hefir verið Er-
lendur Halldórsson, vélstjóri. Fé-
lagið hefir keypt húseign í Hafn-
arfirði og rekur þar byrgðastöð
fyrir slökkvitæki og verkstæði
til þess að smíða ýmis slík tæki.
Er þessi þáttur félagsins einstak-
ur meðal tryggingarfélaga hér-
lendis.
Áður óprenlað kvæði eftir Davíð
í nýju hefti af „Heima er bczf
N1
ÝLEGA er komið út des.-heftið af tímaritinu „Heima er bezt“.
Ritið hefst á kvæði eftir DaVíð Stefánsson frá Fagraskógi. Er
kvæði þetta nýort og hefur ekki verið birt áður á prenti. Það
heitir: „Jólabréf frú dúfunum til fjarverandi konu“ og er ort í
tilefni manméttindadags Sameinuðu þjóðanna 10. desember 1956.
Kvæði þetta er stórglæsilegt. Ekki verður efni þess nánar rakið
þar sem eftirprentun þess er bönnuð.
GLÆSILEG FORSÍÐA
Á forsíðu þessa heftis er mynd
af forsetafrú Dóru Þórhallsdóttur
og tvær greinar um hana í blað-
inu eftir þau Láru Ámadóttur og
Steindór Steindórsson. Frágang-
ur þessarar kápu, svo og líkri
Jólatrésskemmtun
JÓLATRÉSSKEMMTUN Vél-
stjórafélagsins verður á sunnu-
daginn n.k. 6. jan. Aðgöngumiða-
salan verður frá kl. 10 f.h. í dag
til kl. 18.00 og á öðrum áður
auglýstum stöðum.
„Ferðin til tunglsins” sýnd nftur
Leikendurnir vaxnir upp úr
hlutvcrkunum!
i
DAG verður frumsýning á hinu vinsæla barnaleikriti „Ferðin
til tunglsins". Varð það sýnt hér í Þjóðleikhúsinu fyrir tveim-
ur árum við feykilegan fögnuð yngstu kynslóðarinnar. Nú fer
Hildur Kalman með leikstjórnina en leikritið verður í þeim sama
búningi og leikstjórinn Edwardsen bjó því þegar leikhúsið sýndi
það í fyrsta sinn.
LEIKENDUR
STÆKKUÐU
Leikendatal hefir nokkuð
breytzt vegna þeirrar eðlilegu
ástæðu að þau börn sem léku
fyrir tveimur árum hafa hækk-
að svo í loftinu á þeim tíma að
önnur skipa sæti þeirra nú.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik
ur þó áfram sitt fyrja hlutverk
en börnin tvö eru nú leikin af
Önnu Brandsdóttur sem dansaði
svo fallega í Dimmalimm og er
aðeins 12 ára að aldri. Þá leikur
líka Stefán Ólafsson en hann er
í Balletskóla Þjóðleikshússins.
Anna Guðmundsdóttir, Bessi
Bjarnason, Róbert Arnfinnsson
og Gestur Pálsson leika önnur
hlutverk.
DANSAR
Þau Erik Bidsted og Bryndís
Schram dansa sólódansa, en all-
margt unglinga úr balletskólan-
um dansar einnig í leikritinu.
Úr „Ferðin til tunglsins".
f dag er frumsýningin kl. þrjú
og eru allir miðar uppseldir. Næst
verður leikritið sýnt á þriðju-
daginn kl. 18
kápu næsta heftis á undan, er
bar mynd forseta fslands, er ein-
hver hinn glæsilegasti, sem getur
að líta.
FJÖLBREYTT EFNI
Þá hefur ritstjórinn valið
nokkra kafla úr ýmsum ræðum
núverandi forseta íslands, er
hann hefur flutt við ýmis tæki-
færi. Þá er í heftinu þriðja verð-
launaritgerð „Heima er bezt“
eftir Helga Valtýsson, hinn þjóð-
kunna blaðamann og rithöfund.
Heitir greinin: „f lífsháska á
Norðursjó og í Leith Walk. Þá
er grein um tækifærisvisur, sem
nefnist „Gamlir kunningjar" eft-
ir Jóh. Ásgeirsson.
34 MYNDIR I EINNI GREIN
Þá er greinin „Fuglaveiðar í
Vesmannaeyjum" eftir Áma
Ámason. Grein þessi er prýdd
34 myndum úr bjargsigi og fugla-
tekju í Eyjum. Enn er grein, er
nefnist „Fyrir hundrað árum“
eftir Björn Egilsson svo er og
þáttur æskunnar „Hvað ungur
nemur —“ og er ritstjóri hans
Stefán Jónsson, námsstjóri. Segir
þar frá Örævabyggð og fylgir
fjöldi mynda; þá eru heilabrot
og skákþáttur og skólasaga frá
Hollandi. Þá er í blaðinu áttundi
hluti framhaldssögunnar „3
óboðnir gestir". Auk þessa skrif-
ar Karl Kristjánsson um hátíðir
Þá er og myndasaga og vísur.
INNLENT EFNI
„Heima er bezt“ er að þessu
sinni, sem jafnan áður í höndum
núverandi útgefenda, Bókafor-
lags Odds Bjömssonar, hið glæsi-
legasta að öllum búnaði, flytur
eingöngu innlent efni, þegar
undanskildar eru framhaldssög-
ur. Það sem sérstaka athygli vek-
ur er hinn mikli fjöldi mynda
sem birtast í ritinu, sem allt eru
myndir teknar hér á landi. Alls
eru þar að þessu sinni 54 myndir
auk forsíðumyndar
RADDIR OG ÁLIT
EINSTAKLINGA
Veglegt afmælisrit, sem Bruna-
bótafélag íslands hefir gefið út
um 40 ára starfsemi sína endar á
umsögnum og kveðjum bæði frá
endurtryggjendum, erlendum og
innlendum svo og ýmsum fyrir-
svarsmönnum hinna einstöku
sveitarfélaga um allt land. Er þar
að finna vinsamleg ummæli og
þakkir í garð hins merka félags-
skapar.
Maður játar á sig
skemmdarverk
F Y RIR nokkru var kært
til rannsóknarlögreglunnar yfir
því, að skemmdarverk hefðu ver-
ið unnin á fjórum litlum flug-
vélum eign Þyts h.f., þar sem
þær voru í einu flugskýlanna á
Reyk j avíkurf lugvelli.
f sambandi við rannsókn máls-
ins var 19 ára piltur handtekinn.
Hann hefur nú játað á sig þennan
verknað, en tjón það sem hann
olli á flugvélunum er metið á
5000—6000 krónur.
Pilturinn sem aldrei fyrr hef-
ur komizt undir manna hendur,
sagðist hafa gert þetta í ölæði.
Hann kvaðst hafa komizt inn á
flugvöllinn beint út Vatnsmýrinni
gegnum girðinguna þar, og síðan
gengið eftir flugbrautinni allt til
þess að hann kom að skýli Þyts,
sem er nokkuð fyrir sunnan flug-
stjórnarturninn á Reykjavíkur-
flugvelli.
Brúin yfir Laxá
í Kjós gölluð
VALDASTÖÐUM, 3. jan.: —
Fyrir stuttu varð vart við
töluverðan galla á öðrum
vængnum, sem brúin yfir Laxá
í Kjós hvílir á. Allmikið stykki
hefir hrunið úr vængnum, og
lítur út fyrir að muni geta farið
meira.
Hefir farið fram bráðabirgða
viðgerð, og mun verða bætt úr
þessu svo fljótt, sem verða má.
Umferð er mikil um brúna, svo að
illt væri ef hún tepptist, þó að
ekki væri nema nokkra klukku-
tíma í einu.
Fyrir nokkrum árum, kom
fram galli í hinum brúarstöplin-
um, og var það þá lagað.
Brúin yfir Laxá er byggð árið
1932. — St.G.
Bandaríkjamaður
vill kosla Ivo íslend-
iirga lil náms vesfra
NOKKUR undanfarin ár hefur
kunnur Bandaríkjamaður, Thom-
as E. Brittingham jr. að nafni,
veitt námsmönnum frá Norður-
löndum styrki til náms við Wis-
consin-háskólann i Bandaríkjun-
um.
Mr. Brittingham mun veita ein
um til tveimur íslenzkum náms-
mönnum styrk til náms við fram-
angreindan háskóla skólaárið
1957—,58. Hefur hann í hyggju að
koma til Reykjavíkur í næstu
viku og hafa viðtöl við náms-
menn, sem áhuga kynnu að hafa
á styrkjum þessum. Styrk-
irnir nema skólagjöldum svo og
nauðsynlegum dvalarkostnaði að
viðbættum nokkrum ferðakostn-
aði. '
Umsækjendur skulu vera karl-
ar á aldrinum 19 til 22 ára, hafa
lokið stúdentsprófi eða ljúki því
á næsta vori og hafa gott vald
á enskri tungu.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga
á áðurnefndum styrkjum, eru
beðnir-úm að snúa sér til skrif-
stofu Íslenzk-ameríska félagsins,
Hafnarstræti 19, n.k. mánudag,
7. janúar, kl. 5,30 til 7 e.h. Munu
þar verða veittar allar frekari
upplýsingar um styrkveitingar
þessar.
(Frá Íslenzk-ameríska félaginu).