Morgunblaðið - 05.01.1957, Síða 13

Morgunblaðið - 05.01.1957, Síða 13
Laugarflagur 5. jan. 1957. MORGVISBLAÐIÐ 13 Helgi Irá Brennu sjötugur GAMALL maður komst einu sinni svo að orði, að árin liðu svo fljótt, að hann hefði ekki tíma til að eldast. Þetta sannast á vini mínum Helga frá Brennu, sem á nýjársdag sl. var að stíga inn á áttræðisaldurinn. — Hann stígur þangað léttur í spori og glaður í anda, eins og hann hefur verið lengst af ævinni, og finnur hvorki til bratta né ófærðar, því að léttur í spori og óragur við torfærurnar hefur hann verið alla sína ævi, og þeir eiginleikar hans láta furðulítið á sjá, þó sjö- tíu ár séu að baki. Að vísu geri ég ekki ráð fyrir að hann hlaupi jafnfimlega yfir hestinn og þegar ég sá hann á sýningu íþróttafé- lagsins í Barnaskólaportinu fyrir 50 árum og líklega hefur eitthvað dregið úr hraðanum síðan í fyrsta víðavangshlaupi hans. fín þetta er allt til bóta. Þegar við vorum saman í gönguferðum í gamla daga, óskaði ég oft að ég væri kominn á hestbak til þess að hafa við honum. En síðar minnkaði bilið milli okkar nokkuð. þó að aldrei hverfi það alveg. Ég og margir fleiri eiga Helga frá Brennu mikið að þakka. — Hann var fæddur íþróttamaður af lífi og sál og hafði dug í sér til að láta ekki sitja við orðin tóm, heldur framkvæma hug- sjónir sínar, á þeim tímum, sem íþróttalífið var fáskrúðugt hér á landi, samanborið við það sem nú er. Hann var einn af stofn- endum íþróttafélags Reykjavík- ur og starfaði þar, bæði sem í- þróttamaður og að framkvæmd- um félagsins um áratugi. Þó er það annað, sem lengur mun lialda nafni hans á lofti, nefnilega afskipti hans af kynnis- ferðamálum íslendinga. Á þessu ári voru liðin fimmtíu ár síðan nokkrir unglingsmenn í Reykja- vík voru farnir að leggja í vana sinn að fara gönguferðir um ná- grenni Reykjavíkur og að skoða náttúrufyrirbæri og fallega og fáséða staði, sem engir lögðu leið sína um I þá daga. „Hvatur“ hét félagsskapur þessara ungu manna, en þeir voru auk Helga, Sigurbjörn Þorkelsson, Skafti Davíðsson og Matthías Þorsteins- son. í einni ferðinni fundu þeir gamlan og gleymdan helli ná- lægt Setbergi við Hafnarfjörð Síra Friðrik Friðriksson skrifaði ítarlega lýsingu á helli þessum í Fjallkonuna (7. sept. 1906) og hvetur unglinga til að fara að dæmi þessara ungu manna og nota frístundirnar til að skoða náttúruna og fara í gönguferðir. „Að betra og heilnæmara loft sé utanbæjar en innan, að hollara og skemmtilegra sé að ganga úti í sumarblómum en að reika eftir rykugum götunum, er viðurkennt af öllum, en furðulítið farið eftir pví“, segir síra Friðrik x þessari grein. „Nafnlausa félagið“. sem varð fertugt í sumar, tók við af „Hvat“. Þar var Helgi líka lífið og sálin og nú víkkaði athafnasvæðið, því að Nafnleysingjarnir herjuðu á óbyggðirnar og er för þeirra í Þjórsárdal frægust. Og svo kom Ferðafélagið, en í stofnun þess átti enginn einn maður jafnmik- inn þátt og Helgi Jónasson, og enginn hefur unnið þar óeigin- gjarnara starf en hann, að öllum öðrum ólöstuðum. Helgi er áhugamaður í þess orðs beztu merkingu, hvort hrld- ur er um íþrótt að ræða eða aðr- ar greinar. Ekkert mannlegt er honum óviðkomandi, o'g ólatari mann til að leggja góðu málefni lið hef ég aldrei þekkt. Og hann á mörg önnur áhugamál en þau að ferðast og kynna öðrum landið og kynnast því sjálfur. Munu fá- ir eða engir vera jafnþaulkunn- ugir suðvesturbluta landsins en hann, ekki sízt nágrenni Reykja- víkur. Og Reykjavík sjálfa þekk- ir hann hverjum manni betur, einkum þá gömlu Reykjavík, sem var fimmtán sinnum minni en nú er, þegar hann var að slíta fyrstu skónum sínum uppi í Bergstaða- stræti. Helgi er mikill Ijóðavinur og hygg ég að Jónas Hallgrímsson og Einar Benediktsson séu beztu vinir hans í skáldasveit. Hann er Bretavinur og les mikið enskar bókmenntir, og meðal margra út- lendra bréfavina hans munu flestir vera i Bretlandi, því að hann hefur mörgum kynnst í öll- um sínum ferðalögum og þeir munu teljandi af ölíurn hans sam- ferðamönnum, sem ekki þykir vænt um hann, og mundu senda hor.um hamingjuóskir á morgun, ef þeir vissu af þessu stórafmæli hans. Um leið og ég þakka Helga meira en fimmtíu ára vináttu, sem aldrei hefur borið skugga á, óska ég honuir margra ókominna og ánægjulegra ævi- og ferða- daga um skaut ísienzkrar natt- úru, sem hann flestum betur hef- ur kynnzt og kynnt öðrum. Skúli Skúlason. Látið ekki happ úr hendi sleppa Endurnýjun og sala miða er í fullum gangi, dregið verður í 1. flokki 21. janúar. Hæsti vinningur 500 þúsund krómir Lægsti vinningur eitt þúsund krónur Fjórða hvert númer hlýtur vinning Happdrætti Háskóla íslands hefur einkarétt á PENINGAHAPPDRÆTTI Samanburður á vinningsmöguleikum Volkswagen sendibifreið eða leyfi óskast til kaups nú þegar. Stað- greiðsla. — Tilboð merkt: „Vel með farinn — 7013“ sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi n.k. þriðjudag. Til leigu 5 herbergja íbúð í góðu standi við Flókagötu. — Fyrirframgreiðsla áskilin. Tilboð sendist blaðinu hið fyrsta merkt: „Leiguíbúð — 7020“. Akranes Fokhelt steinhús er til sölu. Nánari upplýsingar veitir Valgarður Kristjánsson, lögfr. sími 398, Akranesi. Við neðanverðan Laugaveg er ca. 200 fermetra hæð til leigu í nýju húsi fyrir einhverskonar atvinnurekstur. — Tilboð merkt: „Laugavegur — 7021“ sendist afgr. Morgunblaðs- ins fyrir 13. janúar. Skrifstofufólk Stórt fyrirtæki óskar að ráða stúlku, til símavörzlu aðallega. Nokkur vélritunarkunnátta þó nauðsynleg. Og karlmann, vanan bókfærslu. Tilboð, er greini frá fyrri störfum og menntun umsækjanda leggist inn í pósthólf 635 fyrir 10. þ.m. V erzlun arfyrirfœki í Reykjavík óskar eftir vönum og traustum manni, sem getur tekið að sér stjórn á mat- vörubúð. — Tilboð sendist í pósthólf 361 fyrir 10. þ.m. Flugeldar — Flugeldar H. í. Happdrætti S. 1. B. S. Háskóla D. A. S. Islands N S s s s s s s s Fjölbreytt úrval af flugeldum fyrir þrettándann. Goðaborg Freyjugötu 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.