Morgunblaðið - 05.01.1957, Page 12

Morgunblaðið - 05.01.1957, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. jan. 1957. GULA herhergriö eftir MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 19 — Frá Kína, segirðu? Floyd varð þögu'.l og hugsi. ivíeðan á þessu stóð, hafði Carol aldrei getað komizt á spítalann. Um það leyti sem 'ríllinn hennar var tilbúinn, hafði fregnin borizt út um allt, og í þessu litla sum- arbústaðahverfi, sem nú var sem naest mannlaust vegna styrjaldar innar, kom þetta sem hver önn- ur óvaent tilbreyting í öllu fá- sinninu. Símar hringdu — þar sem þeir voru enn uppi — og í klúbbnum, sem var vanur að vera mannlaus, hafði furðustór hópur safnazt saman, og margt fólk, sem þekkti Carol og fjöl- skyldu hennar, kom heim til henn ar til þess að samhryggjast henni — og jafnvel að fá að gægj- ast inn í skápinn! Carol tók eins vel móti þeim og föng voru á. Þarna komu gömlu Ward-hjónin, fornleg og umhyggjusöm, Louise Stimson, lagleg, ung ekkja, sem hafði byggt sér snoturt, hvítt hús, rétt hjá klúbbnum, Marcia Dalton, Crowell-hjónin, o.s.frv Henni tókst að bera þeim góðgerðir, þrátt fyrir mikla þreytu, en upp- lýsingar gat hún engar gefið þeim, svo að gestirnir fóru jafn- nær, hvað aðalerindið snerti. Fyrstu raunverulegu upplýsing arnar, sem hún fékk, komu frá Pétri Crowell, stórum og sterk- legum manni, með rautt andlit — og oíurlitla konu með sér, sem var eins og mús í framan. — Þeir eru víst komnir á spor- ið, Carol, sagði hann. — Að minnsta kosti eitthvað áleiðis Ward-hjónin urðu vandræða- leg og Carol hrökk í kút. — Ég hef það frá Floyd sjálf- um, hélt Crowell áfram og naut þeirrar eftirtektar, sem hann vakti. — Stúlkan for út úr Boston iestinni klukkan hálfsjö á föstu- dagsmorgun, og tók svo lang- ferðabílinn hingað. Mér skilst að þetta hafi verið all-falleg stúlka, og þá ekki síður vel klædd. í siif- urrefskápu með hvítan hatt, smá- tösku og handtösku. Bilstjórinn segir að hún hafi hagað sér ein- kennilega, þegar hún fór út úr bílnum. Var rétt eins og hún væri villt, sagði hann. Spurði um lyfjabúðina; sagðist ætla að síma. Hann sagði henni, að lyfjsbúðin UTVARPIÐ Laugardagur 5. janúar. Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 Heimilis- þáttur. 16,30 Veðurfregnir. Endur tekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18,30 Útvarpssaga barnanna: — „Veröldin hans Áka litla“ eftir Bertil Malmberg; I. (Stefán Sig- urðsson kennari þýðir og les). — 19,00 Tónleikar (plötur). 20,30 Leikrit: „Gálgafrestur" eftir Paul Osborn, í þýðingu Ragnars Jó- hannessonar (áður flutt í útvarp- ið 26. nóv. 1955). — Leikstjóri: Indriði Waage. Leikendur: Krist- ín Indriðadóttir, Þorsteinn ö. Step hensen, Amdís Björnsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Indriði Waage, Herdís Þorvaldsdóttir, Inga Þórð- ardóttir, Hákon Indriðason, Ró- bert Arnfinnsson, Jón Aðils, Baldvin Halldórsson og Klemenz Jónsson. 22.00 Fréttir og veður- fregnir. 22.10 Danslög (plötur). 24.00 Dagskrálok. ----—+ Hún gekk aftur til þeirra Louise og Marciu. Þær voru að reykja, svo að hún kveikti sér í vindlingi og settist hjá þeim. Hún fann það greinilega, nð hvor þeirra um sig ætlaði að svæla hina burtu, og Louise var hálf- brosandi en Marcia hins vegar súr á svipinn. — Svo þú hefur hitt Jerry Dane, sagði Louise, — Lízt þér ekki vel á hann? — O, ég veit svei mér ekki. Er hann þess virði? — Alveg ákveðið! Hún leit á Marciu. — Særð hetja, er það ekki? Og snotur. En hvers vegna i ósköpunum leitar hann hingað til þess að fó bót meina sinna? — Það er víst ekkert leyndar- mál, svaraði Marcia önuglega. — Burtonshjónin buðu honum að vera í húsinu. Að minnsta kosti hefur Carol tekizt að hitta hann, en þér ekki. Louise stóð upp. — Ég hafði nú ekkert lik upp á að bjóða, sagði hún glettnislega. — En maður getur nú enn lifað í voninni. Siðan fór hún, en Marcia varð kyrr, og sat sem fastast í hæg- indastólnum með fæturna teygða íram á gólfið. Carol þekkti hana vel, og gat nú farið að hvíla sig ofurlítið. — Hvernig íinnst þér Jerry Dane? sagði Marcia allt í einu. — Ég hef engar hugmyndir gert mér um hann enn, — hef bókstaflega ekki haft tíma ti> þess. Marcia gerði sér upp hroll. — Já, hann er að minnsta kosti fullkominn leyndardómur. Við höfum öll boðið honum í kvöld- verð og bridge, og þegar það ekki dugði, þá í svartaþétur, en það kemur allt út á eitt. Hann er ennþá sjúklingur og fer snemma í rúmið. Sjúklingur, þó, þó! Klifr- ar allar brekkur eins og geit. Ég hef séð það með mínum eigin augum. — Kannske hefur hann ekki gaman af spilum, sagði Carol kæruleysislega. — Ég vona, að þú afsakir mig, Marcia, en dag- urinn er orðinn langur hjá mér og ég þarf að fara að komast í háttinn. Marcia stóð upp, en fór ekki, heldur stóð hún kyrr jg horfði út í húsagarðinn. — Sennilega er þetta hús kyn- blendingur, hvað byggingarlist snertir, sagði hún. — En vel kann ég nú við það samt. En skrítið er það, að Elinor skuli aldrei koma hingað Hún gaf Carol einkenni- legt auga um leið og hún sagði þessi orð. — O, hún kann bara betur við sig í Newport, það er allt og Málaskóli HALLDÓRS ÞORSTEINSSONAR Enska — Þýzka — Franska — Spánska — ítalska Lærið heimsmálin á nýjan og skemmtilegan móta í fá- mennum flokkum, þar sem hverjum nemenda er gefið tækifæri til að æfa sig í mæltu máli. Málakunnátta er íslendingum nauðsyn, meira nú en nokkru sinni fyrr. Innritun nemenda fer fram frá kl. 4—7 e.h. í Kennara- skólanum og í síma 3271. Auk framhaldsflokka, verða nýir flokkar fyrir byrjendur. Kennsla hefst aftur þann 8. janúar. IViálaskólinn Mimir Enska — Þýzka — Danska — Spænska — ítalska — Franska — íslenzka. Kennarar: Einar Pálsson, Halldór P. Dungal, Hans Christoph Herrmann, Erik Sönderholm, Pedro Riba, Sigfús Andrésson og Rocco Sergi. Hiálaskóliitn Mímir Hafnarstræti 15 — (Sími 7149) Gufuketill Gufuketill 5% ferm. til sölu. Efnalaugin Björg sími 3237 vceri enn lokuð, en síðast sá hann til hennar, að hún hélt í áttina bangað. , — Segðu þeim af töskunni, Pete, sagði kona hans. Hann fékk sér sopa af viskí- blöndunni. — Já, það er skrítið, sagði hann. Bílstjórinn sá fanga- mark á töskunni en getur ekki með nokkru móti munað það. Það var þrír stafir, og mér skilst að þeir hafi ekki fur.dið töskuna í skápnum. Ekki hefur þú víst séð hana? Röddin í Carol skalf ofurlítið. — Ég gáði ekki að því, Pete. Allt og sumt, sem ég sá.... Ward-hjónin stóðu snöggt upp og frú Ward grein í höndina á Carol. — Ég er viss um, sagði hún, — að hún Carol kærir rig ekki um neir.ar umræður um þennan at- burð. Hún sneri sér aftur að Carol. — Væna mín, ef þú kærir þig um, skaltu vera hjá okkur fyrst um sinn, meðan þú ert ein þíns liðs. Það var nú aðalerindið hing- að að bjóða þér það. Carol var þeim þakklát og komst næstum við. En samt tókst henni að brosa. — Þakka ykkur kærlega fyrir að vilja hafa mig, an það er bara þetta, að stúlkurnar mínar 'Tiyndu þverneita að vera einar í húsinu, eins og óstatt er. Hún fylgdi þeim til dyra. Milli húsanna lá malarstígur, sem skarst í miðjunni á veginum upp á brekkuna. Hún gekk þangað með þeim og spuroi um Terry, sonarson þeirra, sem var flug- maður í Kyrrahafi, og sagði þeim af Greg. Gömlu hjónin voru orð- in ellilegri en hún hafði séð þau áður — næstum hrum. Ófriður- inn lék svona fólk grátt. Hún var í döpru skapi, þegar hún kom inn aftur og ekki batnaði þegar hún heyrði, að símarnir hefðu verið iagðir inn aítur. Nú yrði hún að hringja til Newport. Hún hafði enga afsök- un lengur. Hitt fólkið smátíndist nú burt, þangað til ekki voru aðrir eftir en þær Louise Stimson og Mar- cia Dalton. Síðustu orð Crowells voru honum lík: „Má ég líta á þennan skáp?“ — Það er bara verst að lög- reglan hefur innsigiað har.n, Pet- er. Hann setti upp ólundarsvip. — Hvað sem öðru líður, skaltu láta mála hann, undir eins og hann losnar. Og reyndu svo að gleyma öllu saman. Þetta ken.ur þér hvort sem er ekkert við. Þó að ókunnug stlka komi hér og láti kála sér! Ekki mikið! M A R K Ú S Eftir Ed Dodd cr------------- ~’ _..... ÁND USTEN, KID.TNÖ ^ TRCKS...VOU WOULDMT WAN1 ANVTHING TO HAPPEN 70 Piltur eða stúlka sem eitthvað hafa átt við matreiðslu óskast á nýja veit- ingastofu hér í bænum. Hentugur vinnutími. Gott kaup. Frítt fæði. Tilboð sendist Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Framtíð — 2979“. TILKYNNING nr. 2/1957 Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið með skírskotun til 35. gr. 1. um útflutningssjóð o.fl. að itreka áður gefin fyrirmæli um verðmerkingar á vörum í smásölu, sbr. til- kynningu verðgæzlustjóra nr. 18/1956. Mun framvegis gengið ríkt eftir því að þessum fyrir- mælum sé fylgt. Reykjavík, 3. janúar 1957. Verðlagsstjórinn. 1) — Hvað kom fyrir? Af hverju ertu kominn aftur? — Það kviknaði í flugvélinni. Ég þreif fallhlif og hoppaði út. 2) — Og þú ert kominn aftur til þess að hjálpa okkur. — Hjálpa ykkur! Ha-ha-ha. Þessi var góður hjá þér. Nei, ég get ekkert hjálpað. Ég þekki ekki skógana og ég er villtur. 3) — En ég veit, hvar við er- um og ég held, að ég geti fundið leiðina út. — Þá getur þú hjálpað mér, drengur minn. 4) — Og nú skaltu vita þaS drengur, engin brögð. Því að annars getur farið illa fyrir móð- ur þinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.