Morgunblaðið - 18.01.1957, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.01.1957, Qupperneq 3
Fostudagur 18. jan. 1956 MORCUiyTtL AÐIÐ 3 Verbur Dulles látinn fara ? Honum er ekki freyst í Evrópu fremur en Eden í Ameríku, segir Aisop STJÓRNMÁLAFHÉTTARITARI bandaríska stórblaðsins, „New York Herald Tribune“, Stewart Alsop, skrifar frá Washington s.l. mánudag, að afsögn Edens hafi verið nauðsynlegt fyrsta skref tit að bæta sambúð Breta og Bandaríkjamanna, sem verði að byggj- ast á fullkomnu trausti beggja aðila. Þetta traust hvarf með að- gerðunum við Súez-skurðinn. Því er jafnvel haldið fram á háum stöðum í Washington, að Eden-stjórnin hafi vitandi vits geíið Bandaríkjastjórn rangar upplýsingar um fyrirætlanir sínar síðustu tvær vikurnar, áður en Súez-ævintýrið hófst. Solfaxi, millilandaflugvél Flugfélags íslands. 50> iarþegaaukning milli landa hjó flugfélagi íslands SÍÐASTLIÐIÐ STARFSÁR hefir verið Flugfélagi fslands mjög hagstætt og hefir aukning farþega- og vöruflutninga orðið mjög mikil, án þess að félagið hafi aukið neitt vélakost sinn. Eink- um hefir aukningin orðið mikil í .millilandafluginu. Þetta var orsökin til óánægj- unnar í Washington og þeirrar ákvörðunar Eisenhowers að bjóða Eden ekki til sín, þegar hann var staddur á Jamaica. Eisenhower lét heldur ekki í ljós hina veniu- legu „samúð“, þegar Edea sagði af sér. Alsop álítur, að bilið milli Edens og Eisenhowers hefði verið hægt að brúa að nýju, ef aðeins hefði veíið um afstöðu Banda- ríkjamanna til Breta að ræða. En Skók-keppnin 1. BORÐ Svart: Akureyri (Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.) ABCDEFGH Hvítt: Reykjavík (Ingi R. Jóhannsson) 19. Be3—g5 2. BORÐ Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness,- Sv. Kristinss.) ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Akureyri (Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.) 17.... g7xBf6 það er aðeins hálf sagan. Hinn heimingurinn er afstaða Breta og Frakka til Eisenhowers-stjórnar- innar, og þá einkum til utan- ríkisráðherrans, Jchn Foster Dulles. GAF DULLES RANGAR UPPLÝSINGAR? Það kann að vera rangt engu síður en fullyrðingin hér að ofan, en því er haldið fram á há- um stöðum í London og Paris, að Dulles hafi vitandi vits gefið stjórnum Breta og Frakka rang- ar upplýsingar um fyrirætlanir Bandaríkjanna eftir þjóðnýtingu Egypta á Súez-skurðinum. Það er óvefengjanlegt, að þetta er álit Macmiilans. Vantraustið á Dulles, segir Alsop, er hins vegar ekki ein- skorðað við „háa staði“ heldur er það landlægt í Bretlandi og Frakklandi. VERÐUR DJÚPIÐ BRÚAÐ? En er hægt að brúa djúpið nú, jafnvel eftir að Eden sagði af sér? spyr Alsop. Það er nú eins breitt og það hefur nokkurn tíma verið síðustu áratugina. — Auðvitað hitta brezku og frönsku sendiherrarnir í Washington Dulles við og við, og sendiherrar Bandaríkjanna í París og London hitta utanríkisráðherrana þar endrum og eins. En hið gamla góða samband gagnkvæms trausts og sambúðar er horfið Verði þetta samband ekki treyst að nýju, eru samtök vestrænna þjóða forrr.ið eitt og þess vegna máttlaus. — Þau gætu jafnvel beðið algert skip- brot. Og sé ekki hægt að endur- vekja þetta samband, meðan Dulles er utanríkisráðherra, þá vaknar gamia spurningin — hve- nær eða hvort Dulles muni láta af störfum. OULLES VILL SITJA ÁFRAM Eftir að Dulles gekk undir uppskurðinn, gekk sá orðróm • ur að hann mundi halda áfram í sex mánuði og draga sig síð- an í hlé. En hann fékk óvenju skjótan bata og er sýnilega ekki á því að leggja niður starf, sem hann hefur mikla ánægju af. Hins vegar er það haft. fyrir satt, að Eisenhower hafi íhugað og jafnvel rætt um þann möguleika að skipa nýjan utanríkisráðherra. TVEIR MENN KOMA FIL GREINA Tveir menn hafa komið til greina sem eftirmenn utanríkis- ráðherrans. Annar er Christian Herter aðstoðar-utanríkisráð- hera. Hinn er Alfred Gruenther, fyrrverandi yfirmaður Atlants- hafs-herjanna. Eini gallinn á skipun hins síðarnefnda væri sá, að þá væru hershöfðingjar í tveimur æðstu stöðum Banda- ríkjanna, en á hinn bóginn er Gruenther mjög handgenginn for setanum. Báðir eru mennirnir prýðilega hæfir til starfans, og þeir eiga báðir traust vestrænna banda- lagsríkja, en það á Dulles ekki. Og sé það rétt, að samtök þess- ara ríkja verði ekki treyst, með- an Dulles er í embætti utanríkis- ráðherra, þá má búast við, að hann verði að fara. Góð laxveiði KAUPMANNAHAFNARFRÉTT- IR herma, að laxveiðar í Eystra- salti séu nú í fullum gangi. Um 200 danskir bátar sækja veiðar þessar — og hafa þær að undan- förnu farið aðallega fram á Danzigflóanum. Veiði hefur verið mjög góð og eru jafnvel dæmi þess, að bátar hafi fengið nokkur hundruð laxa á fáum dögum. Með alþungi laxsins er 4 kg. Menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, mun veita þessu safni viðtöku fyrir hönd íslenzku ríkis- stjórnarinnar, sem ákvað að safn- ið skyldi fram-vegis vera í vörzlu háskólabóka safr.sins. Afhendin g- in mun fara fram við hátíðlega athöfn í Háskólanum n.k. föstu- dag kl. 3 e.h. í safni þessu eru 35 bindi bóka, sem fjalla um kjarnfræðivísir.di, 6.500 tæknilegar skýrslur og rit- gerðir um rannsóknir á sama sviði, en auk þess eru í safninu 50% AUKNING í MILLILANDAFLUGI Flugfélag íslands hefir flutt á árinu samtals 70.020 farþega. Þar af eru farþegar innanlands 54.850 en 15.170 farþegar hafa verið fluttir milli landa. Þetta er nær- fellt 50% aukning í millilanda- flugi frá árinu áður en 24% aukning í innanlandsflugi. spjaldskrá um fjölda annarra rita, sem fjalla um kjarnfræði, og eru á spjöldunum stuttar lýsingar og tilvitnanir í efni þessara rita. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hef- ur gefið slík söfn sem þessi til margra annarra landa og komið þeim fyrir í bókasöfnum í 42 borg um Bandaríkjanna. Er þetta einn liðurinn í áætlun Eisenhowers forseta Bandaríkjanna, sem mið- ar að aukinni, friðsamlegri notk- un kjarnorkunnar, svo sem á sviði landbúnaðar, iðnaðar og læknisfræði. 1500 SMÁLESTIR AF VÖRUM Þá flutti félagið 1500 smálestir af vörum á árinu, 1170 smálestir innanlands, en 322 smálestir milli landa. Á sviði vöruflutninganna hefir aukningin orðið 55% milli landa en 26% innanlands. Alls voru fluttar 169 lestir af pósti, 137 lestir innanlands en 32 lestir milli landa. Er þetta 26% aukning innanlands en 12% milli landa. ÁN AUKNINGAR STARFSLIÐS OG VÉLAKOSTS Þetta er því eitt glæsilegasta ár í starfssögu Flugfélagsins. 1 þessu sambandi ber að geta þess að á árinu jók félagið ekkert vélakost sinn og starfslið sáralít- ið. Alls unnu um 200 manns hjá félaginu, þegar flest var í sumar. Engri nýrri flugleið var bætt við í millilandafluginu, en nokkur aukning var á leiðafjölda innan- lands svo og á ferðum til ein- stakra staða innanlands. ICF.LANDAIR FLUGFÉLAG íslands hefur allt frá árinu 1940 notað enska nafn- ið „Iceland Aairways" jöfnum höndum á erlendum vettvangi, og hafa millilandaflugvélar fé- lagsins verið auðkenndar því nafni auk hins íslenzka. Forráðamenn Fiugfélags ís- lands hafa nú ákveðið að breyta hinu enska nafni félagsins í „ICELANDAIR“, og verður það nafn notað erlendis í stað „Ice- land Airways“ framvegis. Að sjálfsögðu er ekki um neina breyt ingu á hinu íslenzka heiti félags- ins að ræða. Háskólanum gefið bóka- safn um kjarnorkumál Sendiherra Banaarikjanna afhendir jbcrð / dag IDAG mun sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, hr. John J. Muccio, afhenda Háskóla íslands að gjöf allstórt safn, sem inniheldur vísindarit, spjaldskrár og ýmsar aðrar upplýsingar varð- andi kjamfræði og kjarnfræðirannsóknir, en Kjarnorkunefnd Bandaríkjanna hefur lótið taka þetta safn saman. Fulltrúaráð og trúnaðarmannaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík F U l\l D U R verður haldinn í fulltrúaráði og trúnaðarmannaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík sumiudaginn 20. janúar nk. klukkan 2 e. h. í Siálfstæðishúsinu. Fundarefni: » Aðgeröir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmáíunum F rummælendur: Björn Ólafsson alþm. og Ólafur BjÖrnsson alþm. Fuiltrúar ag trúnafarmenn eru mlnntir á að mæta stundvíslega og sýna skírteini við innganginn. STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.