Morgunblaðið - 18.01.1957, Side 16

Morgunblaðið - 18.01.1957, Side 16
*> Veðrið Minnkandi NV-átt. Þykknar upp af SA í kvöld. Flugvöllurinn í Keflavík Sjá blaðsíðu 9. 14. tbl. — Föstudagur 18. janúar 1957. Glundroðinn fullkomnaður: Petrína Jakobsson segir sig úr kommúnista- flokknum á bcejar- stjórnarfundi í gœr Nú eru flokkar og flokksbrot bœjarstjórnar• minnihlutans orðin 6 en fulltrúarnir 7! l^RÚ PETRÍNA JAKOBSSON, einn af fulltrúum Sósíal- istaflokksins — Sameiningarflokks alþýftu, kommún- ista — í bæjarstjórn Reykjavíkur sagði sig úr flokknum á bæjarstjórnarfundi í gær. Eru þá flokkarnir og flokksbrotin innan minnihluta bæjar- stjórnar orðin 6 en alls eru bæjarfulltrúar minnihlutaflokkanna p j kæmi aigerlega á óvart því 7 að tölu. Skiptast bæjarfulltrúar minnihlutans þá þannig: Tveir hún heíði engan ágreining ’gert kommúnistar, Guðm. Vigfússon og Ingi R. Helgason, einn Þjóð- varnarmaður, Bárður Daníelsson, einn Alþýðuflokksmaður, Ósk- ar Hallgrímsson og svo tveir fulltrúar, sem farnir eru úr sínum fyrri flokkum og teljast nú utanflokka í bæjarstjórninni, en það er Petrína, sem nú hefur sagt sig úr kommúnistaflokknum og Alfreð Gíslason, sem vikið var úr Alþýðuflokknum. Má segja að glundroðinn geti ekki verið öllu fullkomnari en hann er innan „vinstri“-fylkingarinnar í bæjarstjórninni. Petrína Jakobsson ÞEGAR PETRÍNA SAGÐI SIG ÚR Forseti bæjarstjómar var rétt búin að slá í bjölluna og setja fund, þegar frú Petrína kvaddi sér hljóðs. Kvaðst hún ekki vilja láta lengur dragast að tilkynna í bæjarstjóm, að hún væri ekki lengur fulltrúi fyrir Sósíalista- flokkinn, en hins vegar mundi hún sitja áfrarn í bæjarstjórn „á eigin ábyrgð“, eins og hún orðaði það. Gerði hún í fáum orðum grein fyrir ástæðum til úrsagn- arinnar. Kvaðst hún hafa gerzt meðlimur Sósíalistaflokksins, þegar hann var stofnaður, í þeirri trú, að hann yrði íslenzkur, sós- íaliskur flokkur. Það hefði hins vegar komið í ljós, að hinir gömlu forkólfar kommúnista hefðu tryggt yfirráð sín í flokkn- um og hefði þá stefnan orðið eftir því. Kvaðst frú Petrína hafa fundið það betur og betur, að hún ætti ekki samlcið með þessum flokki, en það hefði ráð- ið úrslitum hvernig framkoma flokksins hefði verið í Ungverja- landsmálunum. Hefðu flokkurinn og blað hans „Þjóðviljinn" gerzt málsvarar þess ofbeldis, sem þar hefði verið framið eða reynt að leyna staðreyndum á strákslegan hátt. Frú Petrína kvaðst þó mundu sitja áfram í bæjarstjórn á eigin ábyrgð. KVEÐJUORÐ GUÐMUNDAR VIGFÚSSONAR Þá reis upp Guðmundur Vig- fússon, sem nú er ekki orðinn nema við annan mann í ílokki kommúnista í bæjarstjóm. Var auðséð að úrsögn Petrínu hafði komið honum á óvart, enda brá hann litum. Kvað hann þá tvo, Bæjakeppnin í hondknottleik hefst í kvöld BÆJARKEPPNIN í hand knattleik milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur hefst í kvöld kl. 8 að Hálogalandi. Þar lýk ur keppninni annað kvöld. f kvöld verður keppt í 2. fl. kvenna og Mfl. kvenna og 2. fl. karla. Fyrir Reykjavík mæta í þessum flokkum ný- bakaðir Reykjavíkurmeistarar Ármann í 2. fl. kvenna, Þrótt- ur í Mfl. kvenna og ÍR í 2. fl. karla. sem eftir væru, taka því sem orðnum hlut að frú Petrína segði sig úr flokknum. Væri slíkt hverj um og einum í sjálfsvald sett, sagði hann. Hins vegar kvaðst G. V. vilja gera þá athugasemd við ræðu frú Petrínu, að það væri rangt að sósíalistaflokkur- inn hefði verið „algerlega komm- úniskur", heldur hefði hann ver- ið sósíaliskur og ætíð starfað á grundvelli sinnar upphaflegu stefnuskrár. Kvað G.V. að úrsögn hún heíði engan ágreining gert í flokki sínum út af meginstefnu hans. „En þeir, sem öllum 'nnút- um eru kunnugir geta í eyðurnar um hinar raunverulegu ástæður, sem eru þess valdandi, að hún segir sig nú úr þeim flokki, sem hún hefur starfað í frá unglings- árum og sem sýndi henni þann trúnað að velja hana í bæjar- stjórn. Við bæjarfulltrúar Sósíal- istaflokksins óskum henni per- sónulega alls góðs á þeirri veg- ferð, sem hún hefur valið sér“. Þannig endaði G. V. ræðu sína. Var þar með þessari athöfn lokið og var gengið til venju- iegra bæjarstjórnarstarfa. Frú Petrína hefur setið í bæj- arstjórn sem einn af aðalfulltrú- um kommúnista, það sem af er því kjörtímabiii, sem stendur yfir. Fiskhús mölbrotnar í fárviðri á Flateyri i Flateyri, 17. jan. SUÐVESTAN stórviðri er hér var í nótt, sópaði veðurofsinn í burtu fiskverkunarhúsi kaupfé- lagsins hér og fisktrönur hrundu. Litlu munaði að slys yrði á fólki. Þegar fiskverkunarhúsið fauk kem úr því mikið brak á íbúðar- hús kaupfélagsins, en þar búa Stöðugar ógæftir HAFNARFIRÐI: — Janúarmán- uður virðist ætla að verða frem- ur rýr hjá línubátunum. f þau fáu skipti, spm þeir hafa komizt út, en það hefir verið afar sjald- an það sem af er sökum óveðurs, hefir afli verið mjög lítill. Reynd ar komast þeir aldrei á hin raun- verulegu mið vegna óhagstæðs veðurs. — í þessari viku hafa þeir róið aðeins einu sinni og fengu þá frá nokkrum þorskum og upp í 6 skippund. — Héðan verða líklegast gerðir út í vetur um 20 bátar, þar með taldir netjabátar en um 10 eru nú byrj- aðir á línu. Júlí seldi í Englandi núna í vik- unni fyrir rúmlega 13 þús. pund. tvær fjölskyldur á hvorri hæð. Kaupfélagsstjórinn Trausti Frið- bertsson, býr uppi, en Guðm. Jóns son skrifstofumaður á neðri hæð- inni. Spítnabrak úr fiskhúsinu bi’aut rúðu*- f íbúðarhúsinu og rigndi glerbrotum vfir sofandi fólkið, en ekki urðu þó nein meiðsli á því. Bílskúr einn skammt frá, braut brakið og jeppabíll sem þar var inni skemmdist. í fiskhúsinu voru geymdir 300 pakkar af skreið, sem ísfell hf átti. Fisktrönur, sem félagið átti einnig, hrundu. í dag hefur verið að því unnið að bjarga skreið- inni úr rústum fiskhússins og við að hreinsa til í trönurústun- um. Hefur þetta verið erfitt vegna veðurs, og hefur veðrið aftur farið versnandi eftir því sem á daginn hefur liðið. — B. Skemmdi fiskurinn úr Isólfi notaður tii að rægja íslenzkan fisk En Akurey setti sölumet i sömu höfn ÞAÐ sýnir undarlegt hugarfar hjá Bretum í garð hinna íslenzku togara, að hinn skemmdi farmur, sem togarinn ísólfur landaði Hull, var fljótlcga notaður ,til að hefja rógsögur um íslenzka fiskinn. Þar á meðal sagði formaður skipstjórafélags Hull, að nú væri það sýnt að Islendingar ætluðu að svíkja loforð sin um að landa aðeins fyrsta flokks fiski. Var það þó vitað, að aflinn skemmd- ist aðeins vegna þess að togarinn tafðist svo lengi í Færeyjum, m. a. vegna vélabilunar. En fáeinum dögum seinna var þessari ástæðulausu illkvittni Breta svarað með því að Akurey setti sölu- met í þessari sömu höfn, Hull. % FISKSINS ÓNÝTIR Fishing News skýrir á áber- andi stað frá þessum löndunum íslenzkra fogara í Hull. Þegar togarinn ísólfur kom til hafnar- innar hafði hann meðferðis 12.650 stone, en fékk fyrir þann afla aðeins 5,562 sterlingspund. Tveir þriðju hlutar aflans urðu að fara í fiskimjöl. Pétursson skipstjóri, segir Fishing News, harmaði það mjög að aflinn hefði skemmzt hjá hon- um. Orsakaðist það af vélbilun, sem tafði hann tvær klst. í Fær- eyjum. Upphaflega var ætlunin að sigla til Þýzkalands, en þegar svona var komið var togaranum sagt að fara til Hull til að bjarga því sem bjargað yrði. „SVIKIN LOFORГ Það fór ekki hjá því, heldur blaðið áfram, að skipstjórafélag Hull gagnrýndi þetta. Og lét Comish skipstjóri forseti þess í Ijós óánægju með þeim orðum, að á sama tíma og svo mikill hluti íslenzka aflans hafi verið dæmdur óhæfur hafi brezkir togarar landað í Hull 11,429 kitt- um og var ekkert dæmt óhæft. „Svo virðist", sagði Cornish, „að íslendingar ætli ekki að standa við loforð sín um að landa að- eins fyrsta flokks fiski og að okkar fiskur sé miklu betri vara en þeirra“. Bíll og skip tef jast vegna veðurs STYKKISHÓLMI, 17 jan. — Áætlunarvagninn frpstaði för sinni í dag þar til eftir hádegið, en hann átti að fara klukkan 10 í rnorgun áleiðis til Reykjavíkur. Ástæðan var sú að vegna hins feikilega fárviðris, sem hér hefur geisað nærfellt í sólarhring, var óttazt að veðurofsinn kynni að kasta vagninum út af veginum. Hér liggur strandferðaskipið Skjaldbreið vegna óveðurs. — Á. Biyggjur á Isafirði fóru á kaf í miklu flóði Iðjuiélagnr MUNIÐ að tryggja ykkur full félagsréttindi í Iðju og sækið félagsskírteini ykkar á skrif- stofu félagsins, Þórsgötu 1. Skrifstofan er opin kl. 4—6 e. h. daglega. ísafirði, 17. jan. UM klukkan 8 í morgun gerði hér á ísafirði eitt mesta flóð sem komið hefur um langt ára- bil. Tjón af völdum þess mun eitthvert hafa orðið í nokkrum húsum, þar sem sjór flæddi inn í kjallara. Suðvestan stormur var í morg- un. Gekk sjórinn á land og yfir allan suðurtangann, allt upp fyr- ;r bátahöfnina. Var flóðið svo mikið að ekki var komizt um borð í skip, sem lágu við hafnar- garðinn og Bæjarbryggjuna, en þar voru togararnir Sólborg og svo brezkur togari. Flæddi sjór- inn yfir bryggjurnar og fóru þær á kaf. Sjórinn flæddi upp i Hafnarstrætio og komst inn í kjallara nokkurra húsa. í fyrrinótt tók þak af hlöðu og gripahúsi að Hafrafelli í Skutuls- firði, en bóndinn þar. Sigurður Hvinfjörð Pálsson, gat gert við þakið til bráðabirgða. — JPH. SÖLUMET AKUREYJAR Nokkrum dögum síðar kom annar íslenzkur togari til Hull og var sala hans einnig sögu- leg, því að aldrei hefur tog- arafarmur verið seldur fyrir jafnhátt verð í Hull. Þetta var togarinn Akurey. Hann hafði 3,349 kitt, af því voru 55 kit af flatfiski, 90 kitt af ýsu og afgangurinn þorskur. Fyrir þetta fékk hann 18,761 sterlingspund og að auki 13 shillinga. Fishing News scgir frá því, að koma togarans með þennan ágætisafla hafi verið mikill viðburður. Lítill fiskur var á markaðnum. Kaupmennirnir þyrptust niður á markaðinn þegar íslenzki fiskurinn kom. Var mikill hávaði og spenn- ingur þar og seldist kittið af þorski allt upp í 6 sterlings- pund. Enn snmi veðrnhumurínn VEÐRIÐ var aðalumræðuefni manna á götum bæjarins í gær, enda ekki að undra, og það eru ekki horfur á að „hann“ sé búinn að blása úr sér enn. — í gærkvöldi voru veðurhorfurnar á veðurkorti Veðurstofunnar eitt- hvað á þessa leið: f dag mun verða norðvestan átt, veður nokkuð farið að lægja um hádegisbilið. En svo er hann að undirbúa sig með nýtt óveður. í kvöld mun vindur á ný ganga til suðaustanáttar, og þá hefst nýr þáttur: í nótt mun hvessa af suð- austri. í gærmorgun, þegar Reykvík- ingar risu úr rekkju, var úti 8 stiga hiti. En milli klukkan 9 og 10 dembdist yfir landið kaldur loftstraumur. Klukkao 11 var hit- inn kominn niður í 3 stig, og eftir hádegið var hiti um frostmark. Norður á Siglunesi var 11 stiga hiíi klukkan 11, en klukkan 5 síð- degis í gær var þar eins stigs hiti. í gærkvöldi var hvassist hér í Reykjavík, Vestmannaeyjum og Galtarvita, 10 vindf tig, en í hin- um mörgu snöggu hríðarbyljum komst veðurhæðin í 11 vindstig. Doktorspróf Kristjáns Eldjárns á morgun DOKTORSPRÓF Kristjáns Eld- járns þjóðminjavarðar fer fram I hátíðasal Háskólans á morgun, laugardaginn 19. janúar, og hefst kl. 2 e. h. Andmælendur af Há- skólans hálfu verða norski forn- minj afræðingurinn dr. phil. Jan Petersen, yfirsafnstjóri frá Staf- angri, og prófessor dr. phil. Jón Jóhannesson. öllum er heimilt að hlýða á doktorsvörnina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.