Morgunblaðið - 16.02.1957, Síða 8
I
MORCUIVBLAÐIÐ
Laugardagur 16. febr. 1957
FRA S.U.S.
RITSTJÖRAR: GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON OG SVERRIR HERMANNSSON
Blaðað í sögu Heimdallar
Fjölmennasta stjörn-
málaíélag landsins
stjórnmálanna fyllir nú þriðja
áratuginn. Heimdellingar geta lit-
ið yfir farinn veg og fagnað á-
hrifaríku starfi í þágu Sjálfstæð-
isflokksins og þjóðarinnar. Þessi
fjölmenna aeskulýðssveit hefur
eigi aðeins aukið fylgi Sjálfstæð-
isstcfnunnar, heldur og átt sinn
þátt í að móta hana. Fyrir því
hefur flokksforystan jafnan met-
ið og þakkað starf Heimdallar.
En hvorki endist það Heimdalli
til frægðar né langlífis að ein-
blína á fortíðina og miklast af
henni. Æskulýðnum ber að grann
skoða viðfangsefni líðandi stund-
ar og leita farsælla úrræða fram
úr vandanum, en einkum þó hitt,
að horfa fram á veginn. Æskan,
sem nú erfir landið, á að skila
því gæðaríkara en hún tók við
því, minnug þess, að við erum
þjóð í örum vexti, sem verður að
byggja, rækta og fjárfesta á flest-
um sviðum, svo komandi kyn-
slóðir fái notið sömu og helzt
meiri velsældar en við tókum I
arf eftir feður og mæður.
—0—
Ég ætla ekki að freista þess að
gefa Heimdellingum mörg heil-
ræði í þessu stutta ávarpi. En þó
langar mig að vekja athygli
æskulýðs landsins á því, sem nú
er að ske í umheiminum, stað-
reyndum, sem að sönnu oft
hverfa í skugga ófriðarhættunn-
ar, sem yfir vofir á líðandi
stundu og í náustu framtíð, en
sem þrátt fyrir allt eru mikið
umhugsunar- og jafnvel áhyggju-
efni, sem á miklu veltur, að rétt
sé við brugðizt.
Ein afleiðing hinna geysimiklu
framfara á sviði læknavísind-
anna, er vaxandi langlífi mann-
fólksins. Stafar það jafnt af
minnkandi barnadauða sem stór.
sigrum yfir verstu óvinum full-
tíða fólks, berklaveikinni, lungna
bólgunni og öðrum svipuðum
sjúkdómum, auk hinna miklu
drepsótta, er áður fóru víða um
lönd og stráfelldu fólkið. Er nú
unnið kappsamlega að því að sigr
ast einnig á hjartasjúkdómum,
æðakölkun, krabbameini og öðr-
um skæðustu féndum langlífis.
Af þessu öllu, og fleiru þó, stafar
svo ör fjölgun mannkynsins, að
sýnt er, að mikil hætta er á að
auðlindir láðs og lagar réni fyrr
en varir, og vofir því þrátt fyrir
nýja tækni og nýjar orkulindir
mikil hætta yfir öllum um versn-
andi afkomu, einfáldlega vegna
þess að of lítið verði til skipt-
anna milli hins stöðugt og ört
vaxandi mannfjölda. Það er svo
mál fyrir sig, að sá skortur, er
leiða kann af þessari fjölgun
fólksins, er auðvitað einn hættu-
legasti spori til ófriðar í land
vinningaskyni. Þeirri hættu verð-
ur aldrei bægt frá meðan ekki
ríkir fullur skilningur á því, að
mannkynið verður að lifa í einum
og sama heimi friðarins eða far-
ast í einni og sömu rúst. Skal ég
ekki að þessu sinni fara frekar
út í þá sálma. En ástæðan til
þessara bollalegginga er af minni
hendi sú, að ég vil minna æsku
Ólafur Thors
íslands á það, að við eigum stórt,
mikið og gæðaríkt flæmi lands cg
sjávar, sem enn er að miklu ónot-
að. Er um það ólíkt á komið með
okkur og mörgum eða flestum
menningarríkjum heimsins. Það
varðar því miklu, að okkur
gleymist ekki, að öruggasta ráð-
ið, eða jafnvel eina ráðið, til að
draga úr þeirri hættu, að bráð
þörf annarra krefjist þess að setj-
ast að okkar matborði, er að við
sýnum manndóm og framtak til
að hagnýta sjáifir þessar auð-
lindir.
Ég get ekki fremur en aðrir
sagt hversu langan frest við fáum
í þessum efnum. En því stórstíg-
ari sem við verðum á framfara-
brautinni, og þó svo að við kunn-
um fótum okkar forráð, þvi
betra.
Æskan á leikinn. Á henni hvíl-
ir skyldan. Það er í samræmi við
stefnu og starf Sjálfstæðisflokks-
ins, að Heimdellingar og aðrir
ungir Sjálfstæðismenn hafi um
það forystuna.
Þá landvörn, þá sjálfsvörn,
eiga ungir Sjálfstæðismenn að
laða alla æsku landsins til fylgis
við. Það á að mega takast, því
æskan vill elska sitt land, þótt
alltof margir villist af réttri leið
í pólitískum gerningaveðrum.
Heimdellingar og aðrir ungir
Sjálfstæðismenn og konur eiga
að vera verðir á vegum úti, sem
vísa öllum æskulýð landsins á
rétta braut. Þá mun þjóð okkar
vel farnast.
Heill Heimdalli þritugum.
í DAG, 16. febrúar 1957, verður
Heimdallur, félag ungra Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, 30
ára. Samband ungra Sjáifstæðis-
manna helgar Heimdalli í þessu
tilefni vettvang sinn í Morgun-
blaðinu og færir félaginu þökk
fyrir ómetanleg störf í þágu Sjálf-
stæðisflokksins og árnar þvi
heilla og farsældar í framtíðinni.
Megi Heimdallur verða, hér eftir
sem hingað til, brjóstvörn Sjálf-
stæðisflokksins í baráttu hans
fyrir heill og farsæld íclenzku
þjóðarinnar.
16. febrúar 1927 var fyrsta
stjórnmálafélag ungra manna
stofnað hér á landi. Þá taka 37
ungir menn höndum saman og
stofna Heimdall, félag ungra
Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Þeir mörkuðu stefnu félagsins,
sem var og er, að styðja þjóðlega
og víðsýna umbótastefnu í lands-
málum til hagsbóta allra þegna
þjóðfélagsins.
Stofnendur Heimdallar voru
þessir:
Pétur Hafstein, dáinn.
Ólafur H. Jónsson, framkvstj.
í Reykjavík.
Lárus H. Blöndal, bókavörður,
Reykjavík.
Gunnlaugur Briem Einarsson,
dáinn.
Torfi Jóhannsson, bæjarfógeti,
Vestmannaeyjum.
Magnús Thorlacius, hrl., Rvík.
Björn Blöndal, dáinn.
'Sigurður Haukdal, prestur að
Bergþórshvoli.
Einar Ásmundsson, forstjóri,
Reykjavík.
Pálmi Jónsson, fulltrúi hjá
Kveldúlfi, Rvík.
Magnús Finnbogason, mennta-
skólakennari, Rvík.
Haflið Helgason, forstjóri,
Reykjavík.
Jóhann G. Möller, dáinn.
Sigurður Jóhannsson, verzlun-
armaður, Rvík.
Haraldur Bjarnason, dáinn.
Sigurður Þorkelsson, forstjóri,
Reykjavík.
Karl Þorfinnsson, kaupmaður,
Reykjavík.
Snorri Ólafsson, læknir í Krist-
nesi.
Baldur Jónsson, prentari.
Daníel Ólafsson, dáinn.
Jón Geirsson, látinn.
Þorgrimur Sigurðsson, prestur,
Staðarstað.
Gísli Edvaldsson, Akureyri.
Sigm. Kr. Sigmundsson, sjóm.,
Reykjavík.
Ragnar Lárusson, forstjóri,
Reykjavík.
Símon Sigmundsson, bóndi,
Efra-Seli, Árnessýslu.
Tómas Pétursson, kaupmaður,
Reykjavík.
Hörður Þórðarson, sparsjóðs-
stjóri, Rvík.
Kjartan Jóhannsson, alþm.
Helgi Konráðsson, prófastur á
Sauðárkróki.
Gunnar Þorsteinsson, hæsta-
réttarmálaflm., Rvík.
Hálfdán Helgason, kaupmaður,
Reykjavík.
Guðjón Einarsson, fulltrúi,
Reykjavík.
Jón Vestdal, efnaverkfræðing-
ur, Reykjavík.
Sigurður Einarsson, verzlunar-
maður, Rvík.
Magnús Björnsson, dáinn.
Ólafur Þorsteinsson, læknir,
Reykjavík.
STEFNUSKRÁ
HEIMDALLAR
Grundvöllur stefnu félagsins
er fullkomið frelsi þjóðarinnar og
einstaklinga, séreign og jafn rétt-
ur allra þegna þjóðfélagsins eins
og fram kemur í fyrstu stefnu-
skrá félagsins sem samþykkt var
á félagsfundi árið 1931:
Markmið félagsins er að berj-
ast fyrir þjóðlegri og víðsýnni
framfarastefnu í landsmálum til
hagsbóta allra þegna þjóðfélags-
ins.
Grundvöllur stefnu þess er
fullkomið frelsi þjóðar og ein-
staklings, séreign og jafn réttur
allra þjóðfélagsborgara.
Einkum vill félagið beita sér
fyrir því:
1. að sambandinu við Dani verði
slitið svo fljótt sem unnt er, að
ísland taki öll sín mál í eigin
hendur,
2. að ísland verði gert að lýðveldi
þegar að sambandsslitum
fengnum,
3. að efla og vernda þingræði og
þjóðræði,
4. að kjördæmaskipunin verði
færð í það horf, að atkvæði
allra kjósenda geti orðið jaf'n-
áhrifarík á landsmál, hvar
sem þeir búa á landinu,
5. að kosningarréttur til Alþing-
is verði bundinn við 21 árs
lágmarksaldur og að þeginn
Þátttakendur í stjórnmálanámskeiði Heimdallar sem nú stendur
asta námskeiðið í sögu félagsins.
yfir í Valhöll. Þetta er fjölmenn-
Pétur Hafstein
fyrsti formaður Heimdallar
sveitastyrkur valdi eigi missl
kosningaréttar,
6. að komið verði á víðtækri og
hagkvæmri tryggingarlöggjöf,
einkum slysatrygginga, sjúkra-
trygginga og ellitrygginga,
7. að yfirráð atvinnutækjanna i
landinu verði í höndum ísL
ríkisborgara,
8. að unnið verði að auknum
skilningi og samúð milli verka
manna og vinnuveitenda, með
al annars með því, að verka-
menn fái hlutdeild í arði þeirra
fyrirtækja, sem þeir vinna við,
þar sem því verður við komið.
9. að landbúnaðinum verði sem
fyrst komið í nýtízkuhorf, ör-
uggs markaðs aflað fyrir afurð
irnar, og að rafmagni verði
veitt um öll héruð landsins til
lýsingar, hitunar og iðju, og
bændum séð fyrir ódýrum
rekstrarlánum,
10. að sjávarafurðum verði aflað
nýrra markaða, þær verkaðar
eftir kröfum nútímans, og bætt
verði úr rekstrarfjárþörf smá-
bátaútvegsins,
11. að styðja og efla innlendan
iðnað og iðju, meðal annars
með því að afla til þess hag-
kvæmra lána,
12. að ungir menn verði styrktir
til náms erlendis í helztu nýj-
ungum á sviði atvinnuveganna,
og að stofnuð verði, svo fljótt
sem unnt er, deild í íslenzkum
atvinnufræðum við Háskól-
ann,
13. að frjáls samkeppni ráði í
verzlun og viðskiptum, enda sé
eftirlit haft með starfsemi um-
boðsmanna erlendra fyrir-
tækja,
14. að bæta og samræma sam-
göngur á landi, sjó og í lofti,
eftir fyllstu kröfum nútímans.
15. að réttarfarslöggjöfin verði
endurskoðuð, og æðsti dóm-
stóll þjóðarinnar efldur og
treystur af ríkisvaldinu,
16. að skipaður verði opinber á-
kærandi,
17. að mikil áherzla verði lögð á
greiðslu ríkisskuldanna.
18. að nokkur hluti af tekjum
góðæra verði lagður til við-
lagasjóðs, er síðan verði var-
ið til að bæta afkomu erfiðu
áranna, og fjárveitingarvaldið
verði raunverulega hjá Al-
þingi, en ekki ríkisstjórn.
19. að skólamálunum verði kom-
ið í fast kerfi, og að rík áherzla
verði lögð á haldgóða þekk-
ingu, einkum í þjóðlegum og
hagnýtum fræðum,
20. að heilbrigðislöggjöfin verði
endurbætt og heilbrigðisráð
stofnað, er hafi eftirlit með öll_
um heilbrigðismálum í land-
inu,
Framh. á bls. 13.
ÓLAFUR THORS:
Æskan á leikinn
ITUÖLMENNASTA og öflugusta
æskulýðsfélag landsins á sviði