Morgunblaðið - 20.02.1957, Page 2
2
MORCTJNTtT. A T>1f)
MÍðvíVnrlacrnr 90 fohr 1057
Lýörœðissinnar einróma
kjörnir í stjórn V.R.
Guðmundur H. Garðarsson formaður
AAÐAI.FUNDI Verzlunarmannafélags Beykjavíkur, sem haldin
var á mánudag, var Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræð
ingur kosinn formaður. Það vakti nokkra athygli á fundi þessum,
að svo mjög er af kommúnistum dregið i félaginu, að þcir treystu
sér ekki til að stilla upp mönnum við stjórnarkjör. Var formaður
og stjórnin kjörin einróma. Kommúnistar hafa verið í framboði á
bverju ári fram til þessa og má geta þess til samanburðar, að s.l.
ár fengu þeir 95 atkv.
NÝKJÖRNA STJÓBNIN
Stjóm félagsins skipa nú: Guð-
mundur H. Garðarsson, Pétur
Sæmundsen, Gunnlaugur J.
Briem, Ingvar N. Pálsson, Okto
Þorgrímsson, Hannes Sigurðsson,
Otto J. Ólafsson, og í varastjórn:
Einar Ingimundarson, Eyjólfur
Guðmundsson og Kristján Am-
grímsson. — Framkvæmdastjóri
félagsins er Sverrir Hermanns-
son viðskiptafræðingur.
ÞAKKAÐ FYRIR
VEL UNNIN STÖRI
Guðjón Einarsson, sem verið
hefur formaður V.R. í 11 ár, lét
nú af störfum og þakkaði hann
samstarfsmönnum og félagsmönn
um gott samstarf og árnaði fé-
laginu heilla. Hinn nýkjömi for-
maður þakkaði Guðjóni heilla-
drjúgt starf í þágu félagsins og
minntist sérstaklega á hina far-
sælu forustu hans í því að gera
V.R. að hreinu launþegafélagi og
koma á fót lífeyrissjóði fyrir
verzlunarmenn. Á þessum aðal-
fundi gekk einnig úr stjórninni
Daníel Gíslason, sem starfað hef-
ur ötullega að málefnum V.R.
sem stjómarmeðlimur í 8 ár.
ÓTRYGG FRAMTÍÐ
Ýmis félagsmál voru rædd
á fundinum. Kom það greini-
lega fram við umræður, að
félagsmenn eru nú mjög ugg-
andi um sinn hag vegna að-
gerða ríkisstjórnarinnar, sem
hætt er við að komi mjög hart
Guðm. H. Garðarsson.
niður á hinni fjölmennu stétt
launþega, er starfar við verzl-
un og vörudreifingu. Nokkrir
kommúnistar stóðu upp og
mótmæltu því að aðgerðir nú-
verandi ríkisstjórnar skertu á
nokkurn hátt kjör launþeg-
anna. En einn kon:múni*t
anna var þó ekki samkvæm-
ari sjálfum sér en svo, að
hann bar fram tillögu um að
V.R. gerðist aðili að atvinnu-
leysistryggingum, vegna hins
„væntanlega atvinnuleysis“
eins og hann orðaði það.
Iðjukosningarnar:
Koupmenn í Cuxhoven fugnu
fisklondunum íslendingu
íCAUPMENN í Cuxhaven og öðrum þýzkum höfnum, sem íslenzkir.
togarar sigla til, fagna mjög hinum miklu vörukaupum íslenzkra sjó-
manna. Hefur verzlun kaupmanna aukizt verulega vegna þessara
aýju og óvæntu viðskiptamanna. Hafa birzt nokkra'r smágreinar
um þetta í þýzkum blöðum, m. a. nýlega 1 blaðinu „Bergedorfer
^eitung", en þar segir:
VÖRUKAUP HÁSETA
Eftir komu íslenzka togar-
ans til hafnar, fær skipstjórinn
þegar útborgaða allháa upp-
hæð frá umboðsmanninum. —
Sérhver skipverji — en þeir
eru 30 talsins — fær útborg-
aða hina fastákveðnu upphæð
í þýzkum gjaldeyri, 410 mörk
(um 1600 krónur). — Margir
sjómannanna hafa líka annan
Skólamótið heldur
áfram í dag
SKÓLAMÓT f. F. R. N., sem nú
stendur yfir heldur áfram í dag
í KR-húsinu og hefst kl. 2 síðd.
Keppa þá 4. flokkur Lindargötu-
skóla á móti Laugarnesskóla. —
Réttarholtsskóli á móti Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar Gagn-
fræðaskóli Austurbæjar situr hjá
í dag.
í kvennaflokki keppa Kvenna-
skólinn og Verzlunarskólinn. í 3.
fl. karla keppa landsprófið A-lið
á móti Flensborg, Verzlunarskól-
inn og Gagnfræðaskóli verknáms-
ins og Gagnfræðaskóli Austur-
bæjar á móti Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar. f 1. fl. Háskólinn og
Menntaskólinn og Iðnskólinn í
Reykjavík og Vélaskólinn.
Lenli á snjóskíðum
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 19.
febr. — í dag kom Björn Pálsson
flugmaður hingað á sjúkraflugvél
sinni og sótti hingað sjúkling sem
þurfti að komast á Landspítalann.
Björn hafði skíðin undir flugvél
sinni, enda hefði verið ófært að
lenda á flugvellinum að öðrum
kosti, þar sem mikill snjór er á
honum og ófært öðrum flugvél-
um. Lendingin tókst vel og einnig
flugtakið. —Fréttaritari.
útlendan gjaldeyri, sem þeir
skipta í þýzk mörk og oftar en
einu sinni hefur það komið
fyrir, að umboðsmaðurinn hef
ur orðið að greiða skuldir ein-
hvers af áhöfninni, því að
gjaldeyrir hans hefur ekki
nægt.
HLAÐNIR LEIKFÖNGUM
OG SKÓM
Það er orðin algeng sjón í Cux-
haven, að sjómenn hlaðnir böggl-
um gangi niður að höfninni og
— (iaza
Frh. af bls. 1.
sem ræktaðir verði sítrus-ávexíir.
í öllum þorpum á Gaza-svæðinu
eru sérfræðingar frá ísrael nú
önnum kafnir við að kenna bænd
unum að rækta jörðina, bæta bú-
stofn slnn og auka uppskeruna.
En þetta kostar mikið erfiði.
Arabarnir á svæðinu eru tregir
til samvinnu. Þeir hlusta á út-
varp Nassers hvenær sem færi
gefst. Þeir storka ísraelsmönn-
um á allan máta, bera sígarettu-
kveikja með mynd Nassers, neita
að viðurkenna mynt ísraels og
skipta ekki við verzlanir ísraels-
manna af þeim sökum. Nýlega
voru 20 kennarar handteknir fyr-
ir að láta unglingana skrifa rit-
gerð um þörfina á því að drepa
ísraelsmenn. Það er sem sé allt
í óvissu um framtíð Gaza enn sem
komið er, og það vita íbúamir.
Einn þeirra sagði, þegar hann
var spurður um skoðun sína á
framtíð Gaza: „Segðu mér, bver
verður húsbóndi okkar, og þá
skal ég segja þér, hvað ég álít“.
Gaza hefur jafnan verið óróa-
svæði og verður það víst enn um
sinn. Það var í Gaza, sem hinn
sögufrægi Samson felldi musterið
yfir sjálfan sig og ofsóknarmenn
sína.
um borð í íslenzk fiskiskip. Mest
kaupa þeir af leikföngum, skóm
og vefnaðarvörum, en þessir
hlutir eru mjög dýrir á íslandi.
Það er ekki nóg með það að
áhöfnin kaupi þannig í hverri
ferð vörur í borginni fyrir 10
þúsund mörk (um 40 þús. kr.),
heldur bætast ofan á þetta birgða
kaup skipsins, ís, veiðarfæri o. s.
frv., sem munu að jafnaði vera
keypt fyrir 30 þús. mörk í hverri
ferð (um 120 þús. kr.) Og þá
verður að greiða í hverri ferð
löndunarkostnað hjá „Seefisch-
markt“ hf. og tolla sem nema um
10 þús. mörkum. Oft fara ís-
lenzku skipin líka til viðgerða í
þýzkum slippum og skilja einn-
ig eftir peninga fyrir það.
Það hefur því komið í ljós,
að íslenzku togararnir koma
ekki aðeins með góðan og
ferskan fisk, þeir veita einnig
miklu fjármagni til staðanna
þar sem þeir landa.
Ingi lapaði í 10.
umferð
TÍUNDA og næst síðasta umferð
á skákþingi Reykjavíkur var tefld
í fyrrakvöld og urðu úrslit m. a.
þau að Guðm. Aronsson vann.
Inga R., Herman Pilnik Gilfer,
Guðm. Ág. Þóri Ólafsson, Lárus
Johnsen Kára Sólmundars. og
Sveinn Kristinsson vann Gunn-
ar Ólafsson.
Pilnik er nú efstur með 814
vinning og næstur er Ingi með
714. í 3.—6. sæti eru Guðmundur
Aronsson, Guðm. Ág., Lárus og
Sveinn, en þeir hafa allir 7 vinn-
inga hver. Síðan koma Gilfer,
Áki, Baldur Davíðsson og Bjarni
Magnússon, sem hafa 6% vinning
hver.
í 11. og síðustu umferðinni,
sem tefld verður í kvöld eigast
m. a. við Sveinn og Ingi, Guðm.
Aronsson og Guðm. Ágústsson,
Áki og Gilfer, Bjarni og Baldur
Davíðsson, Pilnik og Lárus John-
sen.
Á fimmtudagskvöldið kl. 8
hefst svo undanrás í hraðskák-
móti Reykjavíkur, og taka þátt I
því allir beztu hraðskákmenn
bæjarins, en einnig Pilnik sem
gestur. Teflt verður í Þórskaffi.
Á sunnudaginn verður síðan teflt
til úrslita í því móti.
Kommúnistastjórnin hefir svikizt
um við gerð kjarasamninga
ÍMN aí fjölmörgum ástæðum tll þess að lýðræðissinnaðir Iðju-
4 félagar ætla nú að losa sig við hina kommúnisku stjórn sína
er sú, að hún hefur hundsað að vinna að kjarasamningum fyrir
félagsmenn.
Er það staðreynd að það,
starfsfólk, sem stjórn Iðju
hefur samið fyrir um launa-
kjör og fríðindi er mun verr
sett en sambæriiegir starfs-
hópar, sem önnur félög hafa
samið fyrir.
Þetta ásamt fjölda annarra
afglapa, sem stjóruin hefur
gert sig seka um, er ástæðan
til þess að hinn kommúnískl
smánarblettur mun þurrkaður
af félaginu í kosningunum á
laugardaginn og sunnudaginn.
Sem dæmi um eymd Iðju-
stjórnarinnar í samninga-
gerðum skal þeíta tekið:
Iðja semur um kjör fyrir
stúlkur, sem vinna í þvotta-
húsum, nema hvað Verka-
kvennafélagið Framsókn sem-
ur fyrir þvottastúlkur á ein-
stökum vinnustöðum. Þar sem
„Framsókn“ hefur samið um
kjör, hafa stúlkurnar 33.600
kr. í byrjunarlaun á ári og
45 fría daga vegna veikinda,
en þar sem kommúnistastjórn
Iðju hefur samið, fá stúlkurn-
ar aðeins 26.592 kr. í byrjun-
arlaun og ekki nema 14 veik-
indadaga.
Til viðbótar þessu má svo
benda á það að byrjunarlaun
þau, sem „Framsókn“ hefur
samið unr í þvottahúsum eru
1560 kr. grunnlaun á mánuði,
en þar sem Iðja hefur samið
fá þær stúlkur, sem hafa unn-
ið í mörg ár við sama verk,
aðeins 1475 kr. grunnlaun og
eru það hámarkslaun. Hámark
ið þar sem Iðja semur er því
LÆGRA en lágmarkið þar
sem „Framsókn" semur.
Svo gersamlega hafa komm-
únista-„félagamir“ í Iðju van-
rækt starfið fyrir félagsmenn.
Stjórn Iðju hefur heldur
ekki hirt um að koma á Iauna-
flokkun fyrir mismunandi
vinnu, nema í örfáum tilfell-
um. Ekki hefur hún heldur
skeytt um að semja fyrir það
fólk, sem vinnur ákvæðis-
vinnu, en um það er mjög
mikið i verksmiðjum.
Yfir þessu er óánægjan inn-
an félagsins orðin svo megn,
að takist stjórninni ekki stór-
kostlegt kosningasvindl á að-
alfundinum mun hún verði
felld.
Iðjufélagar! Svarið þeim,
sem svikið hafa að vinna að
kjaramálum ykkar. Fellið
kommúnistana!
Akranes
AKRANESI, 19. febr. — 18 bát-
ar voru í róðri í dag. Nú eru að-
eins fjórir komnir að í kvöld og
eru þeir með 3—4 lestir. Ýmsir
réru svo langt að þeir koma ekki
að fyrr en um hádegi á morgun.
í gær voru 20 bátar á sjó og voru
með samtals 114 lestir. Aflahæst-
ir voru Guðmundur Þorlákur og
Sigurvon með 12 lestir hvor.
Hingað kom Bjarni Ólafsson
kl. 1 í fyrrinótt með 250 lestir af
salti til bæjarútgerðarinnar. Von
er á Akurey hingað frá Þýzka-
landi í kvöld. — Oddur.
Kvenfélagið Yon á
Þinoeyri SO ára
KVENFÉLAGH) VON á Þing-
eyri átti 50 ára afmæli sl. sunnu-
dag. Félagið var stofnað 17. febr.
1907 af rúmlega 30 konum. Var
það þriðja kvenfélagið í röðinni
á Vestfjörðum.
Félagið hefur reynt eftir megni
að vinna að ýmsum velferðarmál-
um héraðsins.
Félagið minnist afmælisins
með veglegu hófi 23. febrúar í
samkomuhúsi Þingeyringa.
Núverandi stjórn skipa: Erla
Sveinsdóttir, formaður; Ingunn
Angantýsdóttir, ritari; og Hulda
Sigmundsdóttir, féhirðir. — J.
SEYÐISFIRÐI, 19. febrúar —
Óvenju margir togarar hafa leit-
að hér hafnar undanfarið vegna
veikinda skiþverja, slysa á þeim
eða viðgerðar á skipunum sjálf-
um. —Fréttaritari.
Þorði Lúðvík Jósefs-
son ekki að mæla á
fundi S.I.F.
„Þjóffviljinn" hefur orffiff
mjög hvumsa út af fundi fisk
eigenda, sem haldinn var á
dögunum, þar sem þaff kom
fram, aff fiskframleiffendur
mótmæltu hinu nýja frv. Lúff-
víks Jósefssonar um sölu út-
flutningsafurða og lýsáu þaff
ósannindi, sem hanr. hafði
sagt um óánægju fiskeigenda
meff þaff sölufyrirkomutag,
sem verið hefði og stjórn S.Í.
F..
Þaff sem Þjóðviljinn skrlf-
ar um þetta mál i gær er svo
vandræðalegt og botnlaust aff
sé nokkur í vafa um það
hversu háffulega útreið Lúð-
vík Jósefsson fékk á fundi S.
Í.F., þá er ekki annaff en lesa
Þjóðviljann í gær, því gremj
an og vandræffin skína þar út
úr hverri línu!
En í þessu sambandi er rétt
aff bera enn fram þá spurn-
ingtu af hverju Lúffvík Jósefs
son ekki kom nú á fundinn,
eins og hann hefur gert und-
anfarin ár og eins og hann
hefur aðstöðu til sem fisk-
framleiðandi? Var þaff af því
að hann þorði þaff ekki eða
taldi hann sig of fínan til
þess? Effa hver var ástæffan?
Þaff þurfti ekki að bjóða LÚð-
vík — og slíkt átti raunar
ekki við. Hann gat komiff ef
hann vildi, en aldrei þessu
vant kom hann nú ekki.
Skák-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
38. Hc6xg6
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
33. — — h7—h5