Morgunblaðið - 20.02.1957, Síða 3
Miðvikudagur 20. febr. 1957
MORCUNBIAÐ1Ð
3
FerÖaskrifstofan í London
í nýjum húsakynnum
Starfar nú í Piccadilly 161
NOKKUR undanfarin ár hafa Eimskipafélag íslands, Ferðaskrif-
stofa ríkisins og Flugfélag íslands rekið sameiginlega skrif-
stofu í Lundúnum, og hefur hún verið til húsa í Princes Arcade,
sem er yfirbyggð hliðargata.
Um s.l. áramót var skrifstofan
flutt í ný húsakynni við Picca-
dilly 161. Er hún þar vel í sveit
sett á götuhæð í hjarta stórborg-
arinnar. Þykir hin nýja skrifstofa
mjög smekklega innréttuð og hin
ágætasta landkynning fyrir okk-
ur. Yfir inngangi skrifstofunnar
blasir nafnið ICELAND með
stórum stöfum við öllum þeim
mikla fjölda vegfarenda, sem
fram hjá fer daglega.
Hinn 1. þ. m. var skrifstofan
opnuð með viðhöfn, og voru þar
mættir um 80 gestir. Þeirra á
meðal var sendiherra fslands í
Lundúnum, dr. Kristinn Guð-
mundsson, sem hélt ræðu við
þetta tækifæri.
Jóhann Sigurðsson veitir skrif-
stofunni forstöðu, en honum til
aðstoðar er annar íslendingur,
Steindór Ólafsson, og ensk
stúlka, Mrs. Nichols að nafni.
ffa
List á vinnustaÖ
ii
FRÉTTAMENN áttu í gær viðtal við útvarp>sstjóra, Vilhjálm
Þ. Gíslason og norskan mann, Kaare Kolstad, sem er
formaður félagsins „Kunst pá arbetsplatsen", sem er vel þekkt
félag í Noregi og eins og nafnið ber með sér, annast málverka-
og listsýningar á vinnustöðum. Hingað er Kolstad kominn á
vegum ríkisútvarpsins, sem hefur í hyggju að koma á slíku fyrir-
komulagi hér á landi. „List á vinnustað“ er nú þekkt á öðrum
Norðurlöndum, en Noregur er upphafsland þessarar starfsemi.
SYNING
Starfsemi þessi verður hafin
hér á landi með því að hafa sýn-
ingu á tveimur flokkum mál-
verka í Þjóðminjasafninu n.k.
fimmtudag kl. 5 síðdegis og verð-
ur hún opin almenningi nokkra
daga. Síðan verður málverkun-
um dreift á vinnustaði. Kvað Kol
stad þessa tvo flokka vera „evrop
isk landskapskunst" og ,,ny
norsk farvegrafik“.
FRÁSAGNIR AF
MYNDLIST.
Útvarpið hefur undanfarið
haft í dagskrá sinni frásagnir
af myndlist, sagði útvarpsstjóri,
«n það hefur aldrei haft tæki-
færi til þess að sýna neitt af
málverkum með þessari fyrir-
lestrastarfsemi. — Hann kvaðst
hafa kynnzt þessari hreyfingu
„list á vinnustað" fyrir nokkru
1 Noregi og strax fengið áhuga
á að innleiða hana hér.
HJÁLPARGÖGN MEB
ERINDUM
Tilgangurinn er að málverk-
um og myndlist verði komið fyrir
í matsölum fyrirtækja, verkstæð
um og skrifstofum þeirra, sem
það vilja. Á þannig að nota
málverkin sem hjálpargögn
til að auka og glæða þekkingu
á myndlist og veita áhrifum
hennar inn í daglegt líf og starf
fólksins. Myndir þessar eru sum-
ar stórar, aðrar smáar. Eru þær
eftirmyndir af málverkum og
myndum og af sömu stærðum og
frummyndimar.
Myndirnar verða síðan látnar
ganga á milli fyrirtækja sem
óska eftir þvL
Sinfóníuhljom-
sveitin
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands efndi til tónleika í Þjóðleik
húsinu á mánudagskvöld. Flutt
var eingöngu tékknesk tónlist,
undir stjórn Dr. Václav Smetá
cek, aðalstjórnanda Borgar-
hljómsveitarinnar í Prag.
Tékkneska þjóðin er mikil
menningarþj óð, og þá einnig á
sviði tónlistarinnar. Hún hefur
alið marga meistara tónlistar-
innar á öllum tímum, og ber að
skoða Johann Stamitz, sem var
tékkneskur að ætterni, sem einn
merkasta brautryðjanda tónlist-
arinnar. Hann starfaði að vísu
lengst af hjá kjörfurstanum í
Mannheim í Þýzkalandi, og er
hin merkilega Mannheim-stefna
í tónlistinni byggð á starfi hans
og tónsköpun. En marga fleiri má
nefna, svo sem Smetana og
Dvorak, sem viðfrægastir eru
allra tékkneskra tónskálda.
Sem dæmi um blómstrandi
tónlistarlíf Tékka nú, má geta
þess, að í höfuðborginni, Prag,
eru sjö sinfóníuhljómsveitir starf
andi, tvær á vegum ríkisins, tvær
útvarpshljómsveitir, tvær óperu-
hljómsveitir og ein kvikmynda-
hljómsveit. En í öllu landinu eru
níu ríkishljómsveitir starfandi.
Þessir tónleikar voru mjög
glæsilegir. Flutt voru verk eft
ir Johann Stamitz (Sinfónía í D-
dúr), Isa Krejci (Serenade),
Zdenek Fibich (Nótt í Karlstein-
kastala) og Dvorak (Sinfónía nr.
8 í G-dúr). Stamitz verkar á okk
ur eins og hinir góðu gömlu
klassisku meistarar. Hann víkk-
aði svið tónlistarháttanna, varð,
ásamt Philip Emanuel Bach fyr-
irmynd þeirra Haydn's, Mozarts
og Beethovens, sem byggðu sín
risaverk á sama formgrundvelli.
Serenade Isa Krejci var mjög
heillandi, föst í formi, þróttmik-
il, og á köflum eldfjörug. Fibich
er, ásamt þeim Smetana og Dvo-
rak mjög þekktur. Tónlist hans
er hrífandi, rómantísk og melódí-
nauðug. En hvað fantasíu og hug-
kvæmni snertir kemst þó Dvorak
lengst allra. Honum má um sumt
líkja við Schubert, en hann sem-
ur þó verk sín á þjóðlegum grund
velli. Tékknesku þjóðlögin og
þjóðlagastíllinn endurómar í
snilldarlegri hljóðfær»útsetn-
ingu víða í verkum hans, og er
þessi G-dúr Sinfónía gott dæmi
hinnar stórfenglegu tónsköpunar
meistarans.
Dr. Václav Smetácek stjórnaði
hljómsveitinni af mikilli snilld.
Hann er tónlistarmaður fram í
fingurgóma og þaulæfður stjórn-
andi. Þá sýndi Sinfóníuhljóm-
sveitin okkar enn á ný, hvers
hún er megnug, enda leysti hún
hlutverk sitt af hendi með mik-
illi prýði.
Áheyrendur fylltu nær salinn,
og þó, — nokkur sæti voru auð.
Hvernig má slíkt ske í annari
eins menningarborg og Reykja-
vík? Fögnuðu áheyrendur hljóm
sveitarstjóranum og hljómsveit-
inni ákaft, og var Dr. Smetácek
kallaður fram hvað eftir annað
og þökkuð framúrskarandi
stjórn. En hann lét hljómsveit-
armennina rísa úr sætum eftir
hvert verk. Mega íslendingar
vera stoltir af að eiga þegar slíka
Sinfóníuhljómsveit. — P. f.
Jón á Gautlöndum Benedikt í Múla Jakob Hálfdánarson
Elzta kaupfélag landsins 75 ára
ELZTA KAUPFÉLAG landsins,
Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík
í Suður-Þingeyjarsýslu, á 75 ára
afmæli í dag.
Félagið telst hafa verið stofnað
á fundi, sem haldinn var að Þverá
í Laxárdal 20. febrúar 1882. Var
þá tekin endanleg ákvörðun um
að stofna vörupöntunarfélag fyrir
héraðið og mættu á þeim fundi
15 menn úr ýmsum hreppum. Var
margvíslegur undirbúningur á
undan genginn.
f Suður-Þingeyjarsýslu höfðu
áður verið starfandi ýmis smá
verzlunarfélög, en þau hurfu úr
sögunni, er Gránufélagsverzlun-
in var stofnuð nyrðra, undir for-
ystu Tryggva Gunnarssonar. Þeg-
ar K. Þ. var stofnað, vildu sumir
að það yrði kallað „Verzlunar-
félag“, eins og gömlu félögin
höfðu heitið. Hitt varð þó ofan
á að kalla félagið kaupfélag og
fólst í því, að félagið ætlaði sér
meira hlutverk, en hin gömlu
verzlunarfélög höfðu haft. Þau
höfðu nær eingöngu lagt áherzlu
á að koma framleiðslu félags-
manna í verð, en nú skyldi lögð
meiri áherzla en áður á innkaup
erlends varnings.
STOFNENDUR
Að stofnun félagsins stóðu
margir dugmiklir bændur í hérað
inu. Fyrstu stjórnina skipuðu:
Jón Sigurðsson á Gautlöndum,
séra Benedikt Kristjánsson í
Múla og Jakob Hálfdánarson
bóndi á Grímsstöðum í Mývatns-
sveit. — Litlu síðar tók Jakob
FLLLTKLI ISLANDS
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveð-
ið að útnefna „ambassador ad
hoc“ við þá miklu þjóðhátíð,
sem í vændum er suður á Gull-
strönd Afríku, er hið nýja ríki
þar Ghana, verður lýst frjálst og
fullvalda. — Sá sem útnefndur
verður er forstjóri SÍS-hringsins,
Erlendur Einarsson.
í fréttatilk. er þess að vísu ekki
getið hvern heiðurstitil forstjór-
inn skuli bera við þetta tækifæri,
en venja er að slíkir fulltrúar
„fái bréf upp á það.“ að þeir séu
sérstakir fulltrúar, „amv/ tador
ad hoc“.
f fréttatilk. utanríkisráðuneyt-
isins um þetta segir m. a.:
Ákveðið hefur verið að Erlend-
ur Einarsson, forstjóri, verði full-
trúi islenzku ríkisstjómarinnar
við hátíðahöldin í Accra dag. 3.
til 10. marz n.k. þegar Gull-
ströndin (Ghana) öðlast sjálf-
stæði.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 18. febrúar 1957.
Ólympíukeppni í
reiðmennsku o. II.
í KVÖLD, miðvikudag, verður
kvikmyndasýning i sýningarsal
Upplýsingaþjónustu Bandaríkj-
anna að Laugavegi 13, efstu hæð
(gengið inn frá Smiðjustíg). Sýn
ingin hefst kl. 9 e.h., og verða
eftirtaldar myndir sýndar:
1. Víðsjá — 24. Fyrsti þáttur
er frá ólympíukeppni í reið-
mennsku í Stokkhólmi sl. sum-
ar. Annar þáttur er úr heimi dýr-
anna. Þriðji þáttur er um ferða-
lag landstjórans í Kanada um
heimskautahéruð landsins og
Eskimóabyggðir.
2. Drengurinn Mikael. Þetta
er mjög fróðleg og skemmtileg
mynd um sauðfjárbúskap í fylk-
inu Nýja-Mexíkó og drengurinn
Mikael, sem tekur sinn þátt í
starfinu af lífi og sál, þótt ungur
sé að árum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Aðgöngumiðar eru af-
hentir í ameríska bókasafninu að
Laugavegi 13 (neðstu hæð).
Hálfdánarson að sér „erindis-
rekstur“ fyrir félagið, eða fram-
kvæmdastjórn þess, eins og það
mundi kallað nú, og kom Bene-
dikt Jónsson þá inn í stjórnina
í hans stað. Jakob Hálfdánarson
er talinn vera aðalhvatamaður
að stofnun félagsins og hafði
hann veg og vanda að rekstri
þess á fyrstu áratugunum eða
fram til 1905.
STARFSEMI FÉLAGSINS
Á fyrstu árum félagsins var íllt
árferði og átti það þá í mikl-
um erfiðleikum. Samkeppnin við
aðalverzlunina í héraðinu, sem þá
var á Húsavík, var hörð, en það
var dönsk verzlun, sem rekin var
af íslenzkum „faktor“. Eftir
fyrstu byrjunarörðugleikana tók
félagið að blómgast og varð hag-
ur þess góður. Fylgdi hann jafnan
árferðinu, þannig að betur gekk,
þegar fénaðarhöld voru góð, en
miður, þegar harðæri gekk yfir.
Á kreppuárunum milli 1930 og 39
komst félagið í mikla fjárhags-
örðugleika og greiðsluþrot en
rétti við aftur fyrir samtök félags
manna. Síðan hefur starfsemin
vaxið mjög og er nú orðin all
fjölþætt og blómleg.
Lengst hafa kaupfélagsstjórar
verið þeir Jakob Hálfdánarson,
Pétur Jónsson á Gautlöndum og
Sigurður Bjarklind. Núverandi
kaupfélagsstjóri er Finnur Krist-
jánsson. Núverandi stjórn félags-
ins skipa þeir Karl Kristjánsson,
alþm. formaður, meðstjórnendur
eru þeir Baldur Baldvinsson,
Illugi Jónsson, Bjartmar Guð-
mundsson og Úlfur Indriðason.
VIÐRAR ILLA TIL
HÁTÍÐARHALDA
Þegar Morgunblaðið átti í gær
tal við kaupfélagsstjórann á
Húsavík, hafði verið þar stórhríð
og samgöngur orðnar mjög treg-
ar. Sagði kaupfélagsstjórinn að
ekki væri hægt um vik til hátíða-
halda í tilefni af afmælinu. Félags
stjórnin hefði kvöldboð inni fyrir
starfsmenn félagsins og í tilefni
af afmælinu væri gluggaskreyt-
ing í verzlunarhúsi félagsins, þar
sem m. a. væru sýndir gamlir
sögulegir munir, sem tengdir
væru við félagið. Sérstakt hefti
kæmi einnig út af fjölrituðu
blaði félagsins, sem nefnist „Boð-
beri“ og flytur það greinar eftir
ýmsa í tilefni afmælisins.
Einar Ásmundsson,
hæstaréttarlögmaður.
Hafsteinn SigurSsson,
lögfræðingur.
Hafnarstræti 6, 2. hæð.
Alls konar lögfræðistörf.
Iðnaðarhúsnæði — f jármagn
Hef yfir að ráða húsnæði ca. 80 ferm. og dálitlu fjár-
magni. Vantar félaga til að reka einhvers konar iðnað
eða iðju. Hef þekkingu á ýmsum störfum til sjós og lands,
bókfærslukunnátta og dálítil málakunnátta. Tilboð er
greini starfsgrein og annað sem máli skiptir um væntan-
legan félagsskap, sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
laugardag 23. febr. merkt: „Atvinna — 2049.“