Morgunblaðið - 20.02.1957, Page 8

Morgunblaðið - 20.02.1957, Page 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 20. febr. 1957 Rætt v/ð Sigurjón Rist um ár- angurinn i Þjórsá síðustu helgi Ishrannir hækkuðu yfirborð árinnar um rúma 17 meirar þar sem rafsföðvarhús eru fyrirhuguð UM helgina var Sigurjón Rist mælingamaður, austur við Þjórsá til þess að kanna hækkun þá er varð af völdum íshranna er safnazt höfðu í Þjór?á hjá Urriðafossi. NEW YORK, 19. febr. — „Long Days Journal into Night“ eftir O’Neill verður leikið á alþjóða- leikhátíð í París á næstunni. — Leikritið sem margir gagnrýn- endur telja bezta verk hins ágæta höfundar verður eins konar full- trúi fyrir bandarískan leikrita- skáldskap á hátíð þessari. í gær átti Mbl. tal við Sigurjón | um þessa ferð hans austur. Þegar Sigurjón kom austur að Urriðafossi, var Þjórsá komin á 17. metrann yfir venjulega óhindraða vetrarvatnsstöðu. Þessar íshrannir myndast þann- ig, að á láglendinu fyrir neðan Egilsstaði kemur lagís yfir ána. Stöðugt berst krap að, sem hækk ar vatnsborðið og þá dregur úr straumnum. Þegar straumhrað- inn er kominn undir hálfan metra á sekúndu, nær ísbrúnin að færast lengra upp eftir, en á þennan hátt hafði íshellumynd- unin „kiifrað" upp Urriðafoss. Gefur að skilja að mikið þarf vatnsstaðan að hækka til þess að fá straumhraðann í Þjórsá niður fyrir hálfan metra á sekúndu. Uppi á Skeiðum er Þjórsá auð og einnig inni í óbyggðum, en mikið barst niður ána af ísskriði. Á sunnudagsmorguninn hafði áin hækkað, en náði hæstu stöðu um kvöldið. Voru þá fullir 17 metrar niður á venjulegan vetr- arfarveg árinnar. Þá var lóðrétta hæðin frá bænum að Urriðafossi og niður að Þjórsá ,aðeins 2,8 m. Nú var reynt að rifja upp eldri sagnir um ágang Þjórsár, sagði Sigurjón. Þarna mun bærinn hafa staðið í hundruð ára og eng- ar sagnir lifa um að Þjórsá hafi náð honum í slíkum ágangi. — Hæstu vatnsstöður síðasta manns aldur eru 1918 og veturinn 1926— ’27, en þá mun áin hafa fyllilega náð þessari hæð. Haraldur Einarsson, bóndi á Urriðafossi, hefir stundað vatns- mælingar í ánni. Um þetta leyti voru hrannirn- ar sem skrúfuðust upp úti á ánni sex metrar á hæð! eða náðu jafnhátt bæjarhúsunum á Urr- iðafossi. Þetta minnti mig, sagði Sigurjón, á hrannirnar í fjarðar- botnum á Vestfjörðum, sem sjáv- arföllin skrúfa upp. Uppi hjá gömlum h«-unni yfir Þjórsá voru aðeins 3 metrar niður á íshrönn- ina, sem algjörlega huldi Þjórsá og maður heyrði ekki neitt í þess- ari vatnsmiklu á. Öðru hverju bárust manni til eyrna þungar drunur, er íshrannirnar þokuðust til. — Er það ekki í námunda við Urriðafoss, sem ráðgert hefur verið orkuver, þegar við virkjum Þjórsá? — Jú, rétt fyrir neðan Urriða- foss, en þar er hrönnin 17 metrar á hæð. Fram hjá þvi verður ekki komizt að ef þar hefði verið stöðvarhús nú hefði verið óþarfi að tíunda það frekar, sagði Sigur. jón Rist. — Er hægt að koma í veg fyrir slíkan ágang Þjórsár? •— Það er vafalaust hægt, og á þessum dýrmæta stað við virkjun Þjórsár, þar sem allt hennar vatnsmagn er komið sam- an, verður vafalaust reynt að finna ráð. Virðist þá liggja fyrst fyrir að stöðva isskriðið ofan að, með því að byggja stíflur ofar með farveginum, jafnvel inn á hálendinu. S<töðva ísskriðið með lagís á lónunum við stíflugarð- ana. — Er þetta eini staðurinn í Þjórsá, sem svo hætt er við ágangi? — Nei, íshellumyndunin „klifr- ar“ á sama hátt upp Búðafoss, uppi hjá Minna-Hofi. Þar verður alveg slétt yfir fossinn og Þjórsá fer þar upp úr sínum farvegi. Þegar íshellumyndunin skríður enn lengra upp eftir, flæðir áin heim á tún á bæjum, t. d. Þjórs- árholti. Sama endurtekur sig of- ar; uppi hjá Ásólfsstcðum mynd- Alltaf eitthvað nýtt 12 manna kaffistell frá kr. 385.00 12 manna matarstell frá kr. 805.00 Kristalvörur, Vasar, Diskar og Skálar, Bollapör með disk, frá kr. 25.00. Hárþurrkur. Rafmagnsofnar með og án viftu. Standlampar, með 3 ljósum. Raflampagerðin Suðurgötu 3 — Sími 1926. I 'éé * a •tóiír.. .. ’’ „KREFT" eldavélar fiigum nokkur stykki eftir if þýzkum KREFT elda- vélum með 3 plötum. Notið tækifærið. Clerið góð kaup. Raflampagerðin, Suðurgötu 3. Sími 1926. Stúlka óskast strax í kjötverzlunina Hrísateig 14 ast lagís og á flatlendinu þar inn eftir. Einnig hrannast upp við Þjófafoss undan Búr- felli, svo að hæð hrannarinnar hjá Urriðafossi er ekkert eins- dæmi í Þjórsá. Á þessum stöðum, en þó einkum uppi hjá Búrfelli, myndar hún engu minni hrannir. Seint á sunnudagskvöld hafði Þjórsá náð til að renna undir hrönnina og vatnsborðið seig og hrönnin úti á miðri ánni tók þeg- ar að lækka. — Eftir þeim fregnum, sem ég hef síðast að austan, sagði Sigur- jón, hefur nú alveg tekið fyrir ísskriðið ofan að. Þjórsá er búin að gera geil í ishrönnina og standa nú hamraveggir henn- ar beggja vegna, en Þjórsá auð í miðju, allt niður fyrir Urriðafoss. — Er nú ólíklegt að áin ógni bænum að Urriða- fossi frekar en orðið er, því hald- ist frostin frýs meira af Þjórsá ofar og ekkert skrið kemst þá . niður eftir ánni; hlýni í veðri, þá mun örar étast úr úr hrönn- unum og farvegurinn komast smám saman i eðlilegt horf. —. Hættulegust er í slíkum tilfellum, er asahláka áður en áin hefur lokazt hið efra. Að lokum sagði Sigurjón Rist að þessi vatnsborðshækkun af völdum íss, sé ein hin allra mesta sem um getur á Norðurlöndum. En ekkert skal þó um þetta full- yrt, því vera má að systir Þjórs- ár, Jökulsá á Fjöllum, hlaði upp eigi minni íshrönnum þegar rek- ur í hana irmi á óbyggðum. — Sagðist Fjalla-Bensi oft hafa séð hanna illúðlega inni á öræfum, er hann var þar í skammdeginu. Þar liggja steinar langt frá far- vegi Jökulsár, sem eru slípaðir af vatni og auðséð er að áin hef- ur borið út í hraunið. Þeir munu þó ekki hafa borizt þangað í stór- felldum jökulhlaupum. Sv. Þ. Bergljót n Skeri — minning UM miðja 19. öld bjuggu í Vest- ur-Botni í Patreksfirði hjónin Ingibjörg Sigurðardóttir og Sig- urður Gíslason, prests í Sauð- lauksdal. Hinn 5. okt. 1860 eignuðust þau dóttur, sem skírð var Guð- rún Bergljót Ólína, en alls urðu börn þeirra hjóna 10. Þessi stúlka varð síðan góðkunn undir nafn- inu Bergljót á Skeri. Hún andað- ist 11. þ. m. 96 ára gömul og fer útför hennar fram í dag. Bergljót giftist 1883 Kristjáni Björnssyni og fóru þau að búa í Vestur-Botni. Þar bjuggu þau í 16 ár, síðan 3 ár á Hlaðseyri, en 1902 fluttust þau að Hvalskeri, sem venjulega er aðeins nefnt Sker. Eftir nokkurra ára búskap á Skeri veiktist Kristján af holds- veiki og andaðist 1910. Bergljót hélt búskapnum áfram með börn- um sínum þar til Magnús sonur hennar tók við jörð og búi að Skeri 1916. Hún fluttist til Reykjavíkur 1923 og dvaldist þar til dauðadags. Börn Bergljótar og Kristjáns voru fimm: Dæturnar Sigríður og Ingibjörg, sem lengst af voru með móður sinni, Magnús bóndi í Langabotni í Arnarfirði; Valde- mar, sem drukknaði 1925, og Marteinn vélstjóri, sem búsettur er hér í bænum. Auk þess ól Bergljót upp Hlín Magnúsdóttur sonardóttur sína. Þetta er fábrotin ævilýsing 96 ára konu og myndi gömlum og gengnum Rauðsendingum fátt um finnast, ef þannig ætti að minn- ast Bergljótar á Skeri. Vestur-Botn er í þjóðbraut, næsti bær við Kleifaheiði, þar sem leiðin liggur um milli Barða- strandar og Patreksfjarðar. Má því nærri geta hversu gestkvæmt hefur þá verið í Vestur-Botni. En Sker er líka í þjóðbraut, eini bærinn á leið Rauðsendinga er þeir fóru sínar kaupstaðarferðir. Ekki varð hjá því komizt að bera þar að garði, hvort sem lagt var á sjóinn, yfir Patreksfjörð til kaupstaðarins, eða að lagt var á Skersfjall á heimleið. Á þessum tveimur bæjum gegndi Bergljót húsmóðurstörf- unum í 30 ár. f þann tíma var það ekkert hégómamál, hvemig staðið var i húsmóðurstöðunni á slíkum bæjum. Ferðamenn, þreyttir, svangir og hraktir, áttu ekki annars úrkosta en að leita á náðir þessa fólks og þá reyndi fyrst og fremst á húsmóð- urina. Lengi hefur íslenzk gestrisni verið rómuð að verðleikum, en móðurleg umhyggja Bergljótar á Skeri fyrir gestum sínum verður aldrei rómuð, sem vert er. Man ég það vel, að ekki voru foreldrar unglinganna á Rauðasandi með öllu áhyggjulausir, er þeir sendu þá í kaupstaðarferðir í misjöfn- um-vetrarveðrum, gangandi yfir fjall og síðan á opnum árabát yfir fjörð. En ein var bót með böli: Á Skeri var öllum tekið með hlýjum höndum og blíðu brosi, hvort sem menn voru ungir eða gamlir, sjóhraktir eða veður- barðir af fjallavegi, og aldrei um endurgjald að ræða. Ætla mætti að fjárhagsafkoma hjónanna á Skeri hafi verið í lakara lagi, svo mjög sem á þeim mæddi gesta nauð, en svo var ekki. Munu þau hafa búið við sæmilegan fjárhag. En það var ekki Bergljót ein, sem þannig tók gestunum. Hið sama er að segja um Kristján bónda meðan hans naut við og ekki síður börnin þeirra. Lengst af áttu Rauðsendingar engan bát á Skeri til ferða sinna yfir Pat- reksfjörð. Þá var að fá þar lán- aðan bát, eða stundum bæði bát og menn. Margar slíkar ferðir fóru þeir bræðurnir Magnús og Valdemar. Með þessum hætti skapaði Bergljót á Skeri og fjölskylda hennar þurfandi gestum sínum það öryggi, sem nú þykir sjaldan of dýru verði keypt. En hún skap- aði líka sjálfri sér og heimili sínu þá ást og virðingu, sem jafnvel einsdæmi má kalla. Bergljót var dul í skapi, hóg- vær og prúðmannleg með af- brigðum. Sorg né gleði varð lítt á henni séð. En hafi ég þekkt hana rétt, trúi ég því, að fátt hafi verið henni meiri gleði, en að vaka um vetrarnætur og þurrka föt gesta sinna meðan þeir sváfu og hvíldust í rúmum barna henn- ar. Á hinu lét hún heldur ekki bera, hversu þungbært það var, að vita eiginmanninn holdsveik- an árum saman og án allrar von- ar um bata. Jafnvægið, skapfest- an og andlegur þróttur voru hennar sterkustu einkenni. Bergljót var fríð kona og átti ekki langt að sækja þann arf. Það heyrði ég í gamla daga að Ingi- björg móðir hennar hefði verið glæsileg kona og væri hún fyrir- myndin að Sigrúnu í Manni og konu Jóns Thoroddsen. Nú eru flestir gengnir, sem Bergljótu áttu mest að þakka. En þó munu allir Rauðsendingar og fjöldi annarra, sem hana þekktu, flytja henni kveðjur sínar og þakkir og óska þess að íslenzkar húsmæður á komandi tímum lík- ist sem mest henni Bergljótu á Skeri. S. E.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.