Morgunblaðið - 20.02.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 20.02.1957, Síða 9
Miðvikudagur 20. febr. 1957 MOPCUNBl. 4Ð1£ 9 Ríkisstjórnin œtlar að heimfa af þjóðinni á þessu ári 7200—7300 millj. Tcr. Herra forseti. Þá er nú loks komið að 2. um- ræðu fjárlaga fyrir árið 1957. Hef ir í þetta sinn lítið borið á þeim metnaði hæstv. fjármálaráðherra að láta jafnan afgreiða fjárlögin fyrir áramót, sem er auðvitað sjálfsagt að gera, nema eitthvað sérstakt hamli. EINKENNILEGUR DRÁTTUR Á FJÁRLAGAAFGREIÐSLU Fjárlögin fyrir árið 1956 voru afgreidd í janúarlok 1956, en 2. umræða þeirra fór fram um miðj- an desember. Fjárlögin voru þá afgreidd um sama leyti og tillög- ur ríkisstjórnarinnar um aðstoð við útflutningsframleiðsluna og tekjuöflun fyrir ríkissjóð til þess að mæta fyrirsjáanlegum greiðslu halla, sem leiddi af þeirri óheilla- þróun, er fylgdi í kjölfar verk- fallanna 1955. Fjármálaráðherra átaldi þá mjög Sjálfstæðismenn fyrir að hafa ekki viljað afgreiða fjárlögin áður en teknar höfðu verið endanlegar ákvarðanir um aðstoð við útflutningsframleiðsl- una, þótt ljóst væri, að úrslit þess máls kynnu að hafa veruleg á- hrif á fjárhag ríkissjóðs. Nú var engin tilraun gerð til þess að af- greiða fjárlögin einu sinni til 3. umr. fyrir áramót, hvað þá að ljúka afgreiðslu þeirra, enda þótt hið mikia skattafrumvarp ríkis- stjórnarinnar, sem á í senn að tryggja rekstur útvegsins og afla ríkissjóði tekna til þess að standa undir greiðsluhalla á vænt anlegum fjárlögum ársins 1957, væri afgreitt frá Alþingi fyrir jól. Þegar þessi staðreynd er höfð í huga, verða vinnubrögðin við af- greíðslu fjárlaga og áhugaleysi fjármálaráðherra á því sviði væg- ast sagt furðuleg. Fyrir jól eru lagðir á stórkostlegir nýir skatt- ar, sem ríkissjóði mun ætlað að fá um 100 millj. af í sinn hlut til þess að mæta greiðsluhalla, sem enginn veit þá hver verður. Hefði þó óneitanlega verið hægt að komast nærri hinu rétta um þá þörf, ef fjárlagafrumvarpið hefði verið fyrir þann tíma af- greitt til 3. umr. að minnsta kosti. En í þess stað er engin athugun gerð á útgjaldaþörfinni, engin að- finnsla kemur frá fjármálaráð- herra í þetta sinn, þótt nú hefði vissulega verið auðið að afgreiða fjárlögin fyrir áramót, og afgreiðslan er ekki aðeins dreg- in til janúarloka heldur svo nærri lokum febrúarmánaðar, að þáð verður að hafa sig allan við ef auðið á að vera að afgreiða fjárlogin það snemma, að fjár- málaráðherra þurfi ekki að fá nýja heimild fyrir bráðabirgða- fjárgreiðslum úr ríkissjóði. ENGIN TEKJUÁÆTUUN En nú kemur að öðrum þætti þessa máls, sem er jafnvel enn kynlegri. Fyrir jól taldi fjármála- ráðherra sig vita, að hann þyrfti að heimta af þjóðinni 80—100 millj. í nýjum sköttum til þarfa ríkissjóðs, en nú, þegar hálfur annar mánuður er liðinn af fjár- lagaárinu 1957, þá er þess eng- inn kostur að fá um það upplýs- ingar, hverjar tekjuhorfur ríkis- sjóðs séu á þessu ári. Höfum við í minni hl. nefndarinnar hvað eftir annað óskað upplýsinga um tekjuáætlunina í nefndinni, en formaður jafnan tjáð okkur, að fjármálaráðherra væri ekki enn reiðubúinn með þær upplýsingar. Er þessi tregða fjármálaráðherra að gefa upplýsingar um tekju- horfur ríkissjóðs óskiljanleg. Hvernig í ósköpunum hefir hann undanfarin ár getað gert slika áætlun í desembermánuði árið áður? Og í fyrra lágu upplýsingar um tekjur ársins 1955 fyrir nefnd- inni þegar hún afgreiddi frum- varpið endanlega frá sér síðari hluta janúarmánaðar. Nú er hins vegar ekki hægt að fá slíkar upp- lýsingar um miðjan febrúar, þótt fjármálaráðherra teldi sig vita 1 i skötfum ag fallum Áhrifaríkast til hagsbúta fyrir þjéðina að stjórnin fari sem fyrst trá völdum desember, að hann þyrfti að fá í kassa sinn á þessu ári 80—100 millj. til viðbótar við alla gömlu skattana. Voru þær þá ef til vill lagðar á þjóðina út í bláinn til þess að ríkisstjórnin hefði nógu úr að spila? Ég hefi haft náið samstarf við hæstv. fjármálaráðherra um margra ára skeið, og ég verð að segja það, að þessi vinnubrögð hans koma mér mjög á óvart. Virðist sem honum sé æði mikið brugðið á þessu sviði eins og ýms- um öðrum, og hefði ég þó sízt haldið að hann léti hina nýju bandamenn sína glepja sig í af- greiðslu fjárlaga. En það er til- gangslaust að reyna að halda því fram, að fjármálaráðherra viti ekki nú gerla um tekjur ríkis- sjóðs s. 1. ár, og verð ég að átelja það, að slíkum upplýsingum skuli haldið leyndum fyrir stjórn- arandstöðunni, svo að við höfum orðið að taka afstöðu til af- greiðslu mála við þessa umræðu, án þess að vita nema óljóst um tekjuhorfur á þessu éri. Það kórónar svo allt saman, þegar fjármálaráðherra lætur blað sitt varpa hnútum að okkur Sjálf- stæðismönnum í fjárveitinga- nefnd fyrir að flytja tillögur til útgjaldaauka, án þess að benda á tekjur á móti. Stjórnarliðið í nefndinni hefir þó leyft sér að bera fram útgjaldatillögur, sem leiða af sér um 70 millj. kr. greiðsluhalla á fjárlagafrumvarp- inu við þessa umræðu, en okkar sérstöku tillögur nema rúmum 7 millj. kr. Þegar slík hógværð af okkar hendi er talin vítavert ábyrgðarleysi, þá tekur skörin að færast upp á bekkinn. Hv. framsm, meiri hl. nefndar- innar hefir skýrt frá sérstöðu okkar í sambandi við tillögur þær, sem fluttar eru í nafni allrar nefndarinnar á þskj. 252. Þótt við stöndum að flutningi þeirra tillagna ásamt meiri hlutanum höfum við óbundnar hendur um afstöðu til einstakra tillagna og flytjum auk þess sjálfstæðar breytingartillögur, sem ég vík að síðar. Stjórnarliðið í nefndinni hefir að sjálfsögðu ráðið stefn- unni í samráði við fjármálaráð- herra, svo sem venja hefir verið. Samstarf í nefndixmi hefir ann- ars verið gott, en við málefna- afgreiðslu í henni hefir það valdið okkur í minni hlutanum verulegum óþægindum, að sá háttur var á hafður að ganga ekki til atkvæða um nein erindi, að undanteknum tillögum um fjárveitingar til hafna, brúa, vega og skóla, fyrr en degi áður en afhenda átti tillögurnar til Ræða Magnúsar Jónssonar við abra umræðu fjárlaga Magnús Jónsson. fyrir Alþingi í þingbyrjun í haust vakti ég sérstaka athygli á því, að frumvarp þetta er 135 millj. kr. hærra en fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar árið áður, en engu að síður höfðu fjárveitingar til ýmissa verklegra framkvæmda verið skornar niður um rúmar 8 millj. kr. í þessu fyrsta fjárlaga- frumvarpi „vinstri" stjórnarinn- ar. Sagði ég þá, að við Sjálf- stæðismenn myndum leggja megináherzlu á að fá þetta lag- fært. SJÁLFSTÆÐISMENN I.ÖGBU MEGINÁHERZLU Á HÆKKUN TIL VERKLEGRA FRAM- KVÆMDA Þegar mál þessi komu til um- ræðu í nefndinni lögðum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins til, að allar fjárveitingar til verk- legra framkvæmda, svo sem vega, brúa, hafna, skóla o. s. frv., yi;ðu hækkaðar um 20% frá fjárlögum síðasta árs. Var þó ljóst, að með þessari hækkun yrði útkoman naumast betri en það, að hægt yrði að halda í horfinu með fram- kvæmdir á árinu 1957. Má til samanburðar geta þess að hlið- stæðar fjárveitingar voru hækk. prentunar. Þar sem við frám til ] aðar um 25% í fjárlögum síðasta þess tima höfðum enga hugmynd um afstöðu meiri hlutans til ein- stakra fjárbeiðna, er fyrir nefnd- inni lágu, höfðum við lítið svig- rúm til að undirbúa breytingar- tillögur. Þessar tillögur meiri hlutans voru svo bornar undir atkvæði strax og þær voru lagðar fram og treystum við okkur því ekki við þá atkvæðagreiðslu til að taka afstöðu til margra tillagn- anna, þótt við eftir nánari athug- un yrðum sammála um að styðja allar tillögurnar með þeim fyrir- vara, er ég hefi áður skýrt frá. Um einstök atriði í starfi nefnd- arinnar vil ég taka þetta fram varðandi viðhorf okkar fulltrúa Sj álfstæðisflokksins í nefndinni: Þegar hæstvirtur fjármálaráð- herra lagði fjárlagafrumvarp sitt árs, svo að þessi till. okkar sýndi fyllstu varfærni. — Síðari upplýsingar um fyrirsjáanlegar verðhækkanir benda meira að segja til þess, að hækkunin þurfi að vex-a töluvert meiri, en meðan ekki er betur vitað um tekjuhorf- ur höfum við viljað halda okkur við þessa tillögu okkar, nema þar sem eru alveg sérstakar ásfæður fyrir hendi til frekari hækkunar. Þessi tillaga okkar var felld af stjórnarliðinu í nefndinni. Engu að síður hefir það áunnizt við endanlega afgreiðslu í nefndinni fyrir þessa umræðu, að framlög til brúa, hafna og skóla, að und- anteknum fjárveitingum til greiðslu vangoldinna eldri skulda, hafa verið hækkuð um svipaða upphæð og við lögðum til. Hins vegar hefir ekki náðst samkomu- lag við stjórnarliðið um samsvar- andi hækkxm á nýbyggingarfé vega og flytjum við því tillögu um að hækka þau framlög hlið- stætt framlögum til annarra verk legra framkvæmda. Er þó raunar þörf á mun meiri hækkun þegar þess er gætt, hversu margir nýir vegir voru teknir í þjóðvegatölu við síðustu opnun vegalaga. Hef- ir enn ekki verið talið fært að auka nýbyggingarfé til þess að mæta þeirri viðbótarþörf. Flugvellirnir voru einu sam- göngubæturnar, sem fundu náð fyrir augum hæstv. fjármálaráð- herra við samningu fjárlagafrv. Ber að þakka það, að lítillega er reynt að bæta úr þeirri brýnu framkvæmdaþörf, sem er á því sviði. Hefir nefndin síðan lagt til að hækka þann lið nokkru meir. í fyrra var, að tilhlutan fjárveit- inganefndar, samþykkt , tillaga um að gera framkvæmdaáætlun um brýnustu framkvæmdir í flugmálum næstu árin. Flugið er að verða æ stærri liður í sam- göngukerfi þjóðarinnar, en fram- lög ríkisins til flugvallagerða og nauðsynlegra mannvirkja og öryggistækja eru enn alls ófull- nægjandi. Margar af breytingartillögum nefndarinnar eru um hækkun fjárveitinga til ýmissa ríkisstofn- ana, bæði vegna, fjölgunar starfs- manna og af öðrum sökum. Þær hækkanir eru yfirleitt gerðar eft- ir tillögum fjármálaráðuneytis- ins. STÓRHÆKKUN VEGNA NÝJU SKATTANNA Eftir að samþykktir höfðu ver- ið hinir stórauknu tollar og skatt- ar fyrir áramótin varð Ijóst, að sérstakar hækkanir myndi verða að gera á mörgum útgjaldalið- um ríkissjóðs vegna þeirra. Athugxm hefir verið gerð á þess- um hækkunum af hinmn ýmsu ríkisstofnunum, og þótt mörg atriði séu erm óljós, mun naum- ast ofmælt að gera ráð fyrir út- gjaldaauka sem nemi um 25 millj. kr. af þessum sökum. Má t. d. nefna, að útgjöld simans mirnu vegna nýju tollanna á þessu ári hækka um 6 millj. kr., kostnað- ur við utanríkismál hækkar um 1.5 millj., kostnaður við áætlaðar framkvæmdir í raforkumálum á þessu ári hækkar um 7 millj. kr. og jafnvel um 6 millj. kr. í við- bót, ef yfirfærslugjald fellur á þessu ári á erlent lán Rafmagns- veitna ríkisins, kostnaður ríkis- spítalanna hækkar um 1 millj., kostnaður við Skipaútgerð ríkis- ins um sennilega 1.5 millj. kr., kostnaður við brúargerðir hækk- ar um 1.5 millj. kr. og margir aðrir liðir um minni fjárhæðir. Forstjóri Skipaútgerðarinnar tel- ur hina nýju skatta og tolla valda því fyrirtæki þungum búsifjum og bendir m. a. á það, að skatt- urinn á farseðla rýri mjög að- stöðu Skipaútgerðarinnar í þeim utanlandssiglingum, sem hún hef- ir haldið uppi. Þá er annar þátturinn í hin- um margumtöluðu „bjargráoum" ríkisstjórnarinnar sá, að hækka verður framlög til að halda niðri vöruverði um 24 millj. kr. þannig að áætlað er, að niðurgreiðslur nemi alls á þessu ári 83.5 millj. kr., ef öll kurl eru þá enn til grafar komin. Þegar þjóðinni er sagt, að ríkisstjórnin hafi nú fund ið frambúðarlausn á efnahags- vandamálum þjóðarinnar, þá virð ist ríkisstjórnin hafa gleymt þeim aðvörunarorðum blaðs fjármála- ráðherrans 8. júní s. 1., að niður- greiðsluleiðin sé „engin frambúð- arlausn heldur hættuleg svika- leið“, sem brátt hefni sín, ef hún sé framkvæmd í stórum stíl. Það sýnist því næsta vafasöm fram- búðarlausn, ef ganga á nú lengra eftir þessari „svikaleið" Tímans en nokkru sinni hefir áður verið gert. Eða er ef til vill ekkert að marka hvað „Tíminn“ segir? Talið er óumflýjanlegt að hækka framlag ríkissjóðs til Skipaútgerðar ríkisins um 4 millj. kr. á þessu ári og er þá kostnaður ríkissjóðs við þessa útgerð orðinn 15.5 millj. kr. Ekki skal á neinn hátt gert lítið úr þeirri mikilvægu þjónustu, sem þetta fyrirtæki veitir, en þessi útgerð er að verða svo þungur baggi, að nauðsynlegt er að kanna til hlítar, hvort eigi sé hægt að veita þessa þjónustu á hagkvæmari og kostnaðarminni hátt. Sérstök milliþinganefnd vinnur nú að tillögum um heild- arskipulag samgangna innan- lands, eftir tillögu frá fjárveit- inganefnd í fyrra og því ekki tímabært að taka þetta mál til nánari athugunar fyrr en það álit liggur fyrir. Þótt við í minni hluta nefnd- arinnar séum ekki ánægðir með ýmis atriði í skiptingu nefndar- innar á fé til verklegra fram- kvæmda teljum við ekki ástæðu til að bera fram sérstakar breyt- ingartillögur um þau atriði. Við höfum lagt áherzlu á að hafa áhrif á heildarfjárveitingarnar til hækkunar, en teljum eðlileg- ast, að einstakir þingmenn flytji breytingartillögur um þau atriði, sem þá varða og þeir eru ekki ásáttir með. Framsögum. meiri hluta n. hefir skýrt þær tillögur, sem nefndin flytur sameiginlega. Tel ég því ástæðulaust að rekja ein- staka liði í þeim tillögum. Ég verð að finna að því, að í sumum tilfellum hefir fjármála- ráðherra haft þann hátt á að senda nefndinni til flutnings til- lögur um milljónaútgjöld, án þess að láta nokkra greinargerð fylgja, og þótt við höfum gert fyrirspurn ir og beðið um upplýsingar, þá hafa þær upplýsingar ekki fengizt. Skal ég þar t. d. nefna tillögu um að hækka niðurgreiðsl ur um 24 millj., hækka áætlað framlag til atvinnuleysistrygg- inga um 2 millj. kr., áætlað fram- lag til greiðslu ábyrgðarlána um 2 millj. kr., taka upp fjárveit- ingu til orlofsheimilis verkalýðs- samtakanna 1 millj. kr. og hækka ábyrgðarheimild vegná frysti- húsa um 30 millj. kr. Ég er með þessum aðfinnslum ekki að draga í efa nauðsyn þessara tillagna, svo sem atvikum er háttað, en það er óviðunandi, að stjórnar- andstaðan i nefndinni skuli ekki fá fullnægjandi upplýsingar um svo veigamikla útgjaldaliði, og þótt munnlega sé um málin rætt við meiri hluta nefndarinnar, þá er það nánast óvirðing við nefnd- ina að senda henni ekki formlega greinargerð um svo stórvæg mál, sem ætlazt er til að hún taki upp sem sínar tillögur. Um fjárveitinguna til orlofs- heimilis verkalýðssamtakanna verð ég að segja það, að það mál er meðhöndlað á nokkuð óvenju- legan hátt. Nefndinni var ekkert erindi sent um málið og engin grein gerð fyrir því, hvers konar fyrirtæki væri hér um að ræöa. Engin svör fengust við fyrirspurn um okkar í minni hluta nefnd- Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.