Morgunblaðið - 20.02.1957, Síða 10
10
MORCUNBL Amn
Miðvikudagur 20. febr. 1957
nntMafrifr
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjami Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Ami Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600.
Askriftargjaid kr. 25.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Fylgishrun kommúnisto innun
verkalýðssamtukannn
ATHYGLISVERÐASTA stað-
reyndin, sem nú blasir við í ís-
lenzku stjórnmálalífi, er vafa-
laust hið mikla fylgishrun komm-
únista, sem komið hefur í ljós í
ýmsum félögum og samtökum að
undanförnu. Hér er runnin af
stað mikil skriða og er hún sjá-
anlega ekki öll fallin enn. Munu
menn fylgjast af athygli með því,
sem gerist í þeim kosningum
innan ýmissa verkalýðssamtaka.
sem fara í hönd. Er þar fyrst að
nefna kosninguna í stjórn „Iðju“,
sem fer fram á sunnudaginn
kemur.
Niðurstöður undangeng-
inna kosninsra
I>egar litið er á nokkrar kosn-
ingar, sem farið hafa fram nú
fyrir skömmu, sést fylgishrun
kommúnista glögglega. í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur töpuðu
feir um fjórðungi atkvæða sinna.
Sjómannafélagi Hafnarfjarðar
töpuðu kommúnistar verulega at-
kvæðum og þeim völdum, sem
þeir áður höfðu haft í félaginu.
Við kosningar í stjórn í Vörubíl-
stjórafélaginu Þrótti í Reykja-
vík í fyrra fengu kommúnistar
3 menn af 5 en töpuðu nú þessuro
þrem mönnum og hafa því engan
stjórnarmann. Var þar um mikið
atkvæðatap að ræða. Einnig töp-
uðu kommúnistar meirihluta í
stjórn „Þróttar" á Siglufirði. Við
kosningar í stjórn Félags járniðn-
aðarmanna í Rvík í fyrra höfðu
kommúnistar 80 atkvæða meiri-
hluta en við nýafstaðnar stjórnar-
kosningar í því félagi höfðu
kommúnistar aðeins 16 atkv.
meirihluta en andstæðingar
þeirra unnu stórlega á. Við ný-
afstaðnar kosningar í Prentara-
félaginu töpuðu kommúnistar
rösklega 30% af fylgi sínu og eru
með öllu áhrifalausir í því félagi.
Athyglin beinist nú að kosn-
ingunum í „Iðju“, félagi iðn-
verkafólks, sem fara fram á
sunnudaginn. Því félagi hafa
kommúnistar lengi haldið en
fundurinn, sem kommúnista-
stjórnin boðaði til sl. sunnudag
sýndi að mikil straumhvörf eru
að verða innan félagsins. Ekki er
að efa að sú hreyfing, sem þar
er orðin nægir til að steypa
kommúnistum úr stóli, ef and-
stæðingar þeirra eru samhentir
og kosningarnar verða ófalsaðar.
En það er gömul staðreynd að
kommúnistar reyna að beita alls
konar klækjum og brögðum við
kosningar í verkalýðsfélögunum,
þar sem þeir geta því við komið
og telja sig í hættu. En slíkt er
skammgóður vermir. Og verði
andstæðingar kommúnista jafn
einbeittir við kosningarnar, eins
og fundurinn sl. sunnudag bar
vott um, mun kommúnistum ekki
duga að beita þar klækjum eða
beinum fölsunum.
Það er víst að kommúnistar eru
nú orðnir mjög uggandi um sinn
hag innan „Iðju“ og munu reyna
allt, sem þeir mega, til að halda
félaginu. Núv. formaður félags-
ins er jafnframt formaður verka-
lýðsfélaganna í Reykjavík og
gamall og nýr Moskvuþjónn. Velt
ur því hér á miklu að andstæð-
ingar kommúnista herði róður
inn og standi fast saman á kjör-
degi.
Ástæðurnar til
fylgistapsins
Ef gera skal grein fyrir ástæð-
um þess, hversu fylgið hrynur af
kommúnistum innan hinna ýmsu
félaga, blasir ein staðreynd fyrst
við: Það er nú orðið fullljóst
öllum, sem vilja sjá, að komm-
únistar miða ekki stefnu sína í
verkalýðsmálum við hag verka-
lýðsins, heldur við hag komm-
únisíaflokksins, hvaða nafni, sem
hann er skírður á hverjum tíma.
Ef kommúnistum þykir það
henta flokksins vegna, eru þeir
hvenær sem er reiðubúnir til að
kasta fyrir borð öllu, sem þeir
áður hafa talið mestu hagsmuna-
mál verkafólks. Á þeirri stundu,
sem flokkshagur kommúnista
krefst þess eru þeir boðnir og
búnir til að taka upp kaupbind-
ingu, vísitöluskerðingu og beina
vísitölufölsun. Þeir gerast þá
heitir talsmenn ráðstafana í efna-
hagsmálum, sem miða að því að
skerða stórlega kaupmátt launa.
Þeir samþykkja glaðir gengis-
lækkun ef flokknum er það hag-
kvæmt. Hið eina skilyrði sem
kommúnistar hafa sett er að
gengislækkunin heiti ekki gengis
lækkun, heldur eitthvað annað,
svo sem yfirfærslugjald, útflutn-
ingssjóðsgjöld eða því um líkt.
En hvað verður langt þangað til
kommúnistar samþykkja gengis-
lækkun, sem verður alveg ódulin
og heitir sínu rétta nafni? Ef svo
heldur áfram, eins og nú horfir,
verður vafalaust ekki langt þang-
að til, að kommúnistar taka líka
það skref.
Kommúnistum er nú — flokks-
ins vegna — mest áhugamál að
tolla áfram í ríkisstjórn. Það má
kosta hvað það vill — en tolla
vilja þeir. Það, sem þeir hafa
talið hagsmunamál launafólks er
léttvægt gagnvart því mikla
hagsmunamáli flokksins, að geta
setið í ríkisstjórn. Það er í sam-
ræmi við Moskvulínuna, að
kommúnistar haldi sem fastast
í stjórnarlínuna. Hagsmunir
verkafólks eru hégómi hjá því.
Það hefur nú skilizt fleiri mönn
um innan verkalýðshreyfingar-
innar en áður, að kommúnistar
nota hagsmuni meðlima hennar
aðeins sem tæki handa flokknum.
Verkalýðssamtökin eiga að vera
kommúnistum handhægt, póli-
tískt áhald og ekkert annað. Það
er þessi staðreynd, sem nú er
orðin mörgum ljós, sem ekki
skildu hana áður, sem fyrst og
fremst hefur valdið fylgishrum
kommúnista að undanförnu. Við
þetta bætist svo hin almenna and-
úð á kommúnistum, sem gengið
hefur eins og flóðbylgja yfir
heiminn vegna þjóðarmorðsins á
Ungverjum. Kommúnisminn hef-
ur sýnt hið rétta andlit sitt og
beðið endanlegt gjaldþrot með
vestrænum þjoðum. Áhrif þess
hafa náð hingað til lands og
þeirra gætir einnig í kosningun-
um innan verkalýðssamtakanna.
UTAN UR HEIMI
ewiLœtti — SLpaLu*
^lota^orincýi — Sinha vícj, Lúnaour
Cf önnur brot úr óöc^u óamtimanó
AÐ hlýtur að vera
erfitt að vera bandarísk-
tr ambassador — a. m. k. þegar
venfólk gegnir þessu mikilvæga
mbætti. í hinni frægu borg
.. . »* $88,
Clare Boothe Luce
Phoenix í Arizona er sjúkrah. og
hvíldarheimili, þar sem nú dvelj-
ast tvær þekktar konur, sem ver-
ið hafa ambassadorar fyrir Banda
ríkin. önnur er frú Clare Boothe
Luce, fyrrverandi ambassador í
Róm. Hin er Perle Mesta („Call
me madam“), fyrrverandi am-
bassador í Luxembourg og nú-
verandi sérfræðingur í stórveizl-
um. Frú Luce er svo máttfarin,
að hún getur ekki tekið á móti
gestum, en frú Mesta er „ eyði-
lögð af ofreynslu."
★ ★ ★
i/EIF LUND, fyrrum
flotamálafulltrúi í norska
sendiráðinu í London, hefur ver-
ið útnefndur yfirflotaforingi Eþí-
ópíu. í hinum nýja flota Haile
Selassies eru enn sem komið er
engin skip og engir menn, og
hann hefur enga höfn, en Lund
hefur fengið enskan aðstoðarfor-
ingja
★ ★ ★
B,
® UERNABÐ prins í Hol-
landi, maður Júlíönu drottn-
ingar, flýgur á næstunni til Banda
ríkjanna og verður þar í fórsæti
leynilegrar ráðstefnu, sem for-
ustumenn í stjórnmálum og f jár-
málum Evrópu og Ameríku munu
eiga með sér. Prinsinn hefur
stjórnað svipuðum ráðstefnum í
Danmörku og Hollandi. Á ráð-
stefnunni verður rætt opinskátt
um þau mál, sem valdið hafa mis-
klíð í hinum vestræna heimi. Til
að tryggja algera leynd ráðstefn-
unnar verður hún haldin á Saint
Simon-eyjunni úti fyrir strönd-
um Georgíu-fylkis. Út í eyjuna
Iiggur aðeins ein brú, sem auðvelt
er að halda vörð um, þar er citt
gistihús, sem tekur 150 manns.
Verður það eingöngu notað fyrir
ráðstefnuna.
★ ★ ★
H,
ERBERT HOOVER
yngri, sá er dró sig í hlé sem
aðstoðarutanríkisráðherra Banda
ríkjanna eftir að hann hafði orð-
ið fyrir hörðum árásum, þegar
hann gegndi embætti utanríkis-
ráðherra, meðan Dulles var veik-
ur, verður sendur til Saudi-Ara-
bíu í náinni framtíð. Þar mun
hann verða „persónulegur ráð-
gjafi“ Ibn Sauds konungs, en
Hoover er sérfræðingur í olíu-
málum og átti á sínum tíma mest-
sem dómsmálaráðherrann gaf
René Couturaud þingmanni á
fundi í þjóðþinginu nýlega. Ráð-
herrann sagði, að ekki væri hægt
að fetta fingur út í slíkan einka-
vígbúnað „á meðan hann á sér
stað á umgirtu svæði og truflar
ekki almcnna ró og reglu“.
★ ★ ★
Bernhard prins
an þátt í að koma á sættum í olíu-
deilunni í íran.
★ ★ ★
jfjjjfj O AMKVÆMT stjórnar-
skránni hafa franskir borg-
arar leyfi til að setja upp fall-
byssur í görðum sínum í því skyni
að hræða burt þjófa og umrenn-
inga. Þetta kom fram í svari,
Perle Mesta
Jk. VFULLURIN, sem Saud
konungur gaf á báðar hliðar
í heimsókn sinni til Bandaríkj-
anna (þau voru með mynd kon-
ungsins), eru nú sem óðast að
berast gjaldkera bandaríska utan
ríkisráðuneytisins. Samkvæmt
stjórnarskrá Bandaríkjanna má
enginn embættismaður stjórnar-
innar taka á móti „gjöfum frá
konungi, fursta eða erlendu ríki“.
★ ★ ★
Re
JltEINHARD GEHLEN,
hinn nýi yfirmaður vestur-
þýzku leyniþjónustunnar, hefur
ásamt nokkrum nánustu sam-
starfsmönnum sínum myndað
kammerhljómsveit, sem heldur
litla hljómleika á heimilum með-
limanna. Gehlen er sjálfur ágæt-
ur fiðluleikari. í þessu tilliti á
hann fordæmi: Canaris flotafor-
ingi, sem var yfirmaður þýzku
leyniþjónustunnar og var líflát-
inn eftir tilræðið við Hitler, lék
um skeið í tríói með Reynhard
Heydrich, yfirmanni SS-sveit-
anna og Ernst Kaltenbrunner,
sem var hægri hönd Himmlers.
Mikil harðindi
i Norður-IHúEasýslu
Skriðuklaustri, 18. febrúar.
ÞORRAVEiÐUR hafa verið nú um skeið norðan og norðaustan,
hvasst og éljaveður, með renningskófi öðru hverju. Frost hafa
lengst af verið væg, en hafa þó komizt upp í 13—14 stig. Veðr-
átta hefur verið mjög óstillt frá áramótum, og um Þorrakomuna
setti hér austan-krapastorku, einkum á austurbyggð dalsins og
hefur frá þeim tíma mátt heita haglaust þar og litlir hagar innst
í Norðurdal. Haglaust mun með öllu um heiðar og hálendi vegna
harðfennis og klaka.
gefið á þá hnjóta sem vera kunna
á stöku stað.
Reinhard Gehlen
HARÐINDI
Hreindýr hafa talsvert verið í
byggð hér frá því um jól. Rjúpur
hafa einnig verið heima við bæi,
Kemur slíkt varla fyrir nema að
sverfi á háléndinu. Af Jökuldal
eru þær fréttir, að haglaust megi
heita þar um allan dal, nema á
nokkrum yztu bæjunum að vest-
anverðu, og því verra sem ofar
kemur í dalinn. Veður hafa lengi
verið svo slæm að ekki hefur
Nú í byrjun Þorra komu tvö
hrútlömb út í Suðurdalinn og
heim undir beitarhús á Flöt. Þau
voru úr Skriðdal og orðin mjög
dregin, enda hefur lengi verið
hagalaust á Suðurafréttum.
Vegir munu nú víðast vera
orðnir ófærir bílum. Þorrablót
var nýlega haldið fyrir Fljóts-
dælinga við Valþjófsstað. — J.P.