Morgunblaðið - 20.02.1957, Side 13

Morgunblaðið - 20.02.1957, Side 13
Miðvikudagur 20. febr. 1957 MORCUNBLAÐIÐ 13 Tólf mílna landhelgi Þingsályktunaitillaga Pétuis Ottesen T fyrri viku var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um 1 verndun fiskimiða umhverfis fsland, sem Pétur Ottesen flytur í Sameinuðu þingi. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að lýsa yfir þeim vilja sínum, að sjávarút- vegsmálaráðherra setji, eigi síðar en að loknu yfirstandandi þingi Sameinuðu þjóðanna, nýja reglugerð um verndun fiskimiða um- hverfis ísland og verði þar ákveðið, að botnvörpu- og dragnóta- veiðar skuli bannaðar umhverfis allt landið innan línu, sem dregin er 12 sjómílur frá yztu annesjum, eyjum og skerjum. GREINARGERÐ Með hverju árinu sem líður eykst og margfaldast hagnýting nýrrar tækni á öllum sviðum at- vinnulífsins. Iðnaðarframleiðslunni fleygir fram risaskrefum í vinnslu nátt- úrlegra efna. Upp eru fundin ýmiss konar gerviefni, en fram- leiðsla þeirra er orðin mjög fyrir. ferðarmikill þáttur í iðnaðinum. Landbúnaðurinn er enginn eftirbátur í því að tileinka sér nýjungar á þessu sviði. Þar eru á brautum nýrrar tækni unnin stórvirki í verndun og aukningu gróðurríkisins og hagnýtingu þeirra náttúrugæða. í>á hefur beiting nýrrar tækni ekki farið fyrir ofan garð og neð- an hjá sjávarútveginum. Tekur það jöfnum höndum til fisköflun- arinnar og hagnýtingar fisksins. Stórfelldastar eru þó framfar- irnar í fiskveiðunum. Að því er þorskveiðar snertir er þátt- ur botnvörpuveiðanna stærstur, t. d. i Norður-Atlantshafinu. — Aukning sú, sem orðin er á fisk- veiðum með þessum hætti, tekur flestu eða öllu fram. Skipin, sem þessar. veiðar stunda, eru alltaf byggð stærri og stæríi, og vaxa veiðiafköstin að sama skapi. Þessi stóru skip geta verið að veiðum í flestum veðrum. Aflvélar þeirra eru svo kraftmiklar, að þau geta dregið vörpuna á því dýpi, þar sem annars er fisks að vænta. Opvídd vörpunnar er því meiri, sem skipið er stærra. Þessari veiðiaðferð er beitt gegn öllu, sem kvikt er í sjónum, nema stór- hvelum. Botnvarpan sogar í sig, þar sem hún fer um, fisk á öllum aldursskeiðum, frá hinu minnsta seiði til þess fisks, sem náð hefur fullum þroska. Á sumum svæð- um er dráp og eyðing ungfisks- ins, sem engum kemur að gagni og mokað er aftur í sjóinn, miklu stórfelldari að tölunni til en nytjafisksins. Og nú er sums stað- ar mikið um það rætt og þegar hafnar tilraunir í þá átt að senda frá veiðiskipunum rafmagns. straum niður í sjóinn i því skyni að geta með þeim hætti aukið veiðiafköstin, og enn fleira af því tagi er á prjónunum í sam- bandi við botnvörpuveiðarnar. Eins og botnvörpuveiðarnar eru nú reknar, er efnt til svo skefjalausrar rányrkju í sjónum, að öllum hugsandi mönnum hlýt- Ur að hrjósa hugur við. Og það er ekki að ófyrirsynju, þó að menn spyrji, hvar þetta lendi. Segja mætti, að það væri sök sér að hlíta enn um skeið, án þess að breytingar yrðu gerðar á fisk- veiðalandhelginni, rányrkju af þessu tagi, ef á vegum hinnar nýju tækni væru tiltæk ráð til þess að forða ungWðinu frá því að lenda í botnvörpunni, og veit þó enginn nema botnvörpu- veiðarnar, þó að þeim væri beint að nytjafiskunum einum saman, gætu orðið svo tilþrifamiklar og aðgangsharðar, að til ofveiði drægi samt. En hér er engu slíku til að dreifa. Engin tæknileg ráð, er hér koma að haldi, hafa enn sem komið er fundizt. Hér skyldi því allrar varúðar gætt, og það er vissulega tímabært, að að því sé hugað. Það er að því vikið i upphafi þessarar greinargerðar, að í iðn- aðinum og þá ekki síður í land- búnaðinum sé tækninni fyrst og fremst beitt til uppbyggingar, bættra og aukinna lífsskilyrða í heiminum. í sjávarútveginum stefnir þróunin í veigamiklum atriðum í gagnstæða átt. Það er með botnvörpuveiðunum verið að rífa niður í stað þess að byggja upp. Engin þjóð í veröldinni er jafn- mikið háð fiskveiðunum og fs- lendingar. Meginhlutinn af út- flutningsverðmætum þjóðarinnar er tengdur við þennan atvinnu- veg. íslendingar þurfa á miklum gjaldeyri að halda til kaupa á nauðsynjum frá öðrum löndum. Það er ekki langt til alið um varanlega uppbyggingu atvinnu- veganna í landi voru. Það hefur að langsamlega mestu leyti fallið í skaut þeirrar kynslóðar, sem hér hefur lifað og starfað það sem af er þessari öld, að inna þessa uppbyggingu af hendi. fslendingar hafa í þessu efni færzt mikið í fang hin síð- ari ár. Og þeir eru staðráðnir í að beina að því orku sinni og manndómi að sækja þar fast fram. En eins og að líkum lætur, er ekki enn, þrátt fyrir þrótt- mikið starf hina síðustu áratugi, hálfsótt haf, að því er til þess tekur að hagnýta náttúrugæði lands vors. En framkvæmd á- forma íslendinga í þessu efni er að sjálfsögðu mjög háð því, hversu gjöful fiskimiðin við strendur landsins reynast þeim. En þar eru óneitanlega dökkar blikur í lofti. Á fiskimiðin umhverfis ísland sækir frá sjö þjóðlöndum árlega mikill fjöldi erlendra botnvörpu- skipa. Tala þeirra vex með hverju árinu sem líður. En þar með er sagan ekki öll sögð. Stærð þessara skipa og veiðiafköst vaxa hröð- um skrefum. Ástæðan til þess, hve mikilli örtröð erlendir togarar valda á fiskimiðunum hér við land, er sú, að fiskafli á heimamiðum þeirra þjóða, sem gera út skipin, hefur þorrið sökum ofveiði þeirra, sem þau hafa valdið þar. Er því sigl- ingu þessara skipa beint á þau fiskimið, sem enn gefa nokkuð í aðra hönd. Það er nú að verða lýðum ljóst, að fiskimiðin við ísand þola ekki þessa áníðslu til lengdar. Hér stefnir að því jafnt og þétt, ef ekkert verður að gert, að meira og meira dragi úr aflabrögðum og að íslendinga^ standi andspænis þeim afleiðingum, sem óhjá- kvæmilega sigla í kjölfari ofveið- innar. Reynslan frá stríðsárunum sýndi bezt, hver áhrif það hafði á fiskveiðar fslendinga, að niður lögðust með öllu að heita mátti siglingar erlendra botnvörpu- skipa hingað. Á þessum árum óx fiskimagnið á miðunum stórlega. En eigi leið á löngu eftir síðara stríðið t.d., að það færi að draga úr aflabrögðunum. Friðunin, sem kom til framkvæmda 1952, sýndi nokkurn árangur, sem kom fram i því, að bátaflotinn fékk nokkru rýmra svæði til athafna sinna en áður var. En með stöðugt aukinni ásókn erlendra togara á miðin hefur komið i ljós, að sú friðun nær harla skammt. Tvö síðustu ár hefur veiðunum hrakað, mið- að við það tímabil, sem við bjuggum að aukningu fisksins á stríðsárunum. Tvö síðastliðin ár hafa bátaveiðarnar minnkað og þó alveg sérstaklega á árinu 1956. Þá var aflinn í Faxaflóa að með- altali í hverjum róðri rúmlega einni smálest minni en árið 1948, þrátt fyrir það þótt bátarnir hafi stækkað og veiðarfæranotkun allt að því tvöfaldazt frá því, sem var árið 1948. Á Vestfjörðum er mun- urinn þó enn meiri, þar hefur aflinn minnkað allt að þremur smálestum í róðri. Afli togara á heimamiðum hefur einnig minnk- að á tveimur sl. árum. Það er mjög athyglis- og íhug- unarvert dæmi um áhrif botn- vörpunnar, hversu farið hefur um karfaveiðarnar. Hér við land hafa á síðustu árum fundizt allvíð- áttumikil karfamið. Þessi mið reyndust í upphafi mjög aflasæl. Var þar í byrjun miklu skjót- teknari veiði en nokkur dæmi voru til um aðrar fiskveiðar á sama tíma, En þetta stóð ekki nema um skamma hrið. Aflinn þvarr brátt, og eyðing karfa- stofnsins á þessum miðum virðist svo alger, að þar hefur ekki á síðustu árum orðið vart við karfa. Það veit enginn, hvað langan tíma það tekur, að karfinn komi aftur á miðin. Og einu gildir, hvar við strendur landsins finnast ný karfamið, alls staðar sækir í sama horfið. Að sama brunni ber á þeim karfamiðum, sem fundizt hafa við Grænland. Þau hafa einn ig verið uppurin á skömmum tíma. Það hefur orðið hlutskipti ís- lenzkra togara í seinni tíð vegna vaxandi aflabrests á heimámiðum að leita á Grænlandsmið. Þetta gaf í fyrstu allgóða raun, einkum meðan karfaveiðin hélzt. En eftir að sú veiði brást, hefur mjög dregið úr siglingum þangað, og hafa þær nú að mestu lagzt nið- ur. Á miðin við Grænland hef- ur að undanförnu sótt mikill fjöldi botnvörpuskipa víðs vegar að. En þrátt fyrir það þótt á þessum slóðum séu geysilega víð- áttumikil fiskisvæði og að þorsk- urinn hefur á síðustu 20—30 ár- um hryngt á norðlægari breidd- argráðum en áður var, eru botn- vörpuveiðarnar farnar að segja þar til sín víðar en á karfamið- unum. — Það má gjarnan skjóta því hér inn í sambandi við fisk- veiðar íslendinga við Grænland, að það er býsna hart, að þeir skuli vera þar engu betur settir en óviðkomandi þjóðir, þrátt fyrir það þótt þeir eigi sögulegan og lagalegan rétt til landsins og hag- nýtingar á náttúrugæðum þess til lands og sjávar. Eins og nú er að verða ástatt um fiskimiðin við ísland og veiði- horfur á þeim, er ekki nema um tvennt að velja fyrir íslendinga, að stækka friðunarsvæðið veru- lega eða horfa fram á það, að út- gerðin kvoðni niður og veslist upp vegnaaflabrests. Þetta eru þau alvarlegu fyrirbæri, sem vér nú stöndum frammi fyrir, og þetta eru svo augljós sannindi, að þar verða ekki brigður á bornar. Það er íslendingum því lífsnauð- syn, að friðunarsvæðið við strend ur landsins verði stækkað. Þetta þarf að gera, áður en allt er kom- ið í kalda kol, áður en uppbygg- ingarstarf þjóðarinnar og fram- takssemi hefur vegna aflabrests beðið mikinn og alvarlegan hnekki. Hér er því í þessari þings ályktunartillögu lagt til, að Al- þingi láti í ljós þann vilja sinn, að sjávarútvegsmálaráðherra, þegar fullnægt er yfirlýsingu ut- anríkisráðherra, sem tengd er við lok yfirstandandi þings Samein- uðu þjóðanna, setji nýja reglu- gerð um verndun fiskimiða um- hverfis fsland og verði það ákveð- ið, að botnvörpu- og dragnóta- veiðar skuli bannaðar umhverfis allt landið innan línu, sem dregin er 12 sjómílur frá yztu annesjum, eyjum eða skerjum. f þingsálykt- unartillögu þessari er gert ráð Pétur Ottesen fyrir því, að friðunarsvæði það, sem hér um ræðir, verði ákveðið með sama hætti og gert var 1952. Engin algild regla er til um stærð slíkra friðunarsvæða í heim inum. Þjóðirnar hafa mismunandi reglur um þetta. í Suður-Ame- ríku er landhelgislínan almennt 200 sjómílur. Ástralía hefur á- kveðið mjög stórt friðunarsvæði hjá sér. Rússar og Júgóslavar hafa 12 mílna landhelgi, sömu- leiðis A-Þýzkaland og Pólland. Norður-Evrópuríkin fylgja enn 3—4 mílna landhelgi, en rætt er um aukna friðun í ýmsu formi, þar á meðal alfriðun vissra svæða utan línunnar o. fl. Bandaríkin hafa áskilið sér rétt yfir öllu landgrunninu, en hafa gagnvart fiskveiðum þriggja mílna land- helgi, hafa þó áskilið sér rétt til að gera frekari friðunarráðstaf- anir til verndar fiskstofninum. Þótt Kanadamenn hafi enn hjá sér þriggja mílna landhelgi, hafa þeir lýst yfir fylgi sínu við 12 mílna landhelgi. Þróunin í þess- um málum er stækkun friðun- arsvæða, sem er eina ráðið til þess að draga úr áhrifum af rán- yrkju þeirri, sem af botnvörpu- veiðunum hlýzt. Rýmkun sú á friðunarsvæðinu, sem ákveðin var með reglugerð- um árin 1950 og 1952 og vikið er að hér að framan, hefur borið árangur, einkum á svæðinu fyrir Suðvesturlandi. Faxaflóa og Breiðafirði. Það hefur komið mjög skýrt í ljós, að ýsu-, lúðu- og skarkolastofninn, sem var mjög til þurrðar genginn á þess- um slóðum, hefur vaxið mjög ört, síðan friðunin tók gildi. En árang ur af þessari friðun nær harla skammt til þess að hamla upp á móti og bægja frá þeirri vá, sem hér er fyrir dyrum. Þar þarf miklu meira til. Þeir stórfurðulegu atburðir gerðust, svo sem kunnugt er, } sambandi við fyrrgreinda ákvörð un, að nokkrum hópi útgerðar- manna í gömlu viðskiptalandi ís- lendinga tókst að brjóta sér leið að því að koma á þar í landi sölubanni á fiski frá íslandi. Hélzt þeim uppi um nokkurt árabil að beita fslendinga þessum ójafnaði. Þessi ofbeldisaðferð gagnvart lít- illi þjóð, sem berst harðri baráttu fyrir lífi sínu og tilveru, mælt- ist að vonum hvarvetna mjög illa fyrir. En nú er þetta hjá liðið og viðskiptin milli landanna runnin í fornan farveg. Báðar þjóðirn- ar, þeir ekki síður en vér, fagna því, að á grundvelli sátta og sam- lyndis verði nú aftur treyst margra alda gömul viðskipta- og vináttubönd. Að sjálfsögðu ber íslenzkum stjórnarvöldum að gera þeim er- lendu þjóðum, er kynnu að telja sig hafa hagsmuna að gæta í sambandi við þessa ákvörðun vora, skýra og ljósa grein fyrir því, hver lífsnauðsyn það er fyrir fslendinga að stækka friðunar- svæðið við strendur landsins. Þessar þjóðir þekkja af eigin raun áhrif botnvörpuveiðanna á heima miðum sínum, sem þær hafa orð- ið að yfirgefa vegna ofveiði. Þær hafa og alla aðstoðu til þess að gera sér þess ljósa grein, að þess verði ekki æðilangt að bíða, að sömu örlög bíði fiskimiðanna við ísland og að hér verði ekki feitan gölt að flá fyrir þá, þegar nokk- uð líður frá. Skilgóðir menn á sviði fiskveiðanna vita, að líkt hagar til hér á stórum svæðum og í Norðursjónum til dæmis að taka, að mikill grúi ungviðis er á sömu svæðum og nytjafiskur- inn og fær sömu afdrif og hann, en þar eru botnvörpuveiðarnar háskalegastar, og þar segir ofveið in fyrst til sín. Þetta er sú hlið- in, sem snýr að hinum erlendu þjóðum, er hér stunda botnvörpu veiðar. En hver verður úrkoslur ís- lendinga, er slíku vindur fram sem hér er lýst? Hvert eiga þeir að flýja, og hvar eiga þeir skjóls að leita, þegar fiskimiðin eru uppurin? Með því samstarfi, sem nú er þjóða í milli og fslendingar eru þátttakendur í, er þetta engan veginn málefni íslendinga einna, þótt ógæfan, sem af þessu hlýzt, knýi fastar á þeirra dyr. Stór- þjóðir þær, sem íslendingar eru í samstarfi við, hafa tekið að sér það göfuga hlutverk að vernda rétt smáþjóðanna og stuðla að því á allan hátt, að þær geti lifað frjálsar og óháðar í landi sínu og búið að þeim gæðum lands og sjávar, sem þær að guðs og manna lögum eru eigendur að og eiga alla lífsafkomu sina undir því, að eigi sé af öðrum gengið á þennan rétt. Þetta samstarf á því að vera íslendingum sverð og skjöldur í máli þessu. Það á að veita íslend- ingum tryggingu og öryggi fyrir því, að engri erlendri þjóð hald- ist það uppi stundinni lengur að ganga í berhögg við og brjóta niður ráðstafanir, sem fslending- um er lífsnauðsyn að gerðar verði og framtíð þeirra byggist á. fslendingar ættu því ekki að þurfa að bera neinn kvíðboga fyrir því, að ekki yrði litið á þessa nauðsyn vora með velvild og skilningi. Rock and Roll í Búdapest Stokkhólmur 18. febr. — I auglýsingu í blaðinu „Nep Akarat“ í Búdapest á föstu- daginn sagði, að fyrstu Roek and Roll hljómleikarnir í Ung verjalandi yrðu haldnir kvöld ið eftir (sl. laugardagskvöld). „Martiny og hljómsveit hans“ stóðu að þessum hljómleik- um, en Martiny þessi er fræg- asti danshljómsveitarstjóri 1 Ungverjalandi. Hefur hann manna mest leikið vestræna danshljómlist — og lært hana af því að hlusta á vestrænar útvarpsstöðvar. HIJSGÖGM (Lítið notuð) Sófi og tveir stólar úr rauðu leðri. Útskorið skrifborð og stóll. Til sýnis og sölu í Áhaldahúsi rafveitunnar að Barónsstíg 4.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.