Morgunblaðið - 20.02.1957, Side 19

Morgunblaðið - 20.02.1957, Side 19
MÍftv?Vii(7ocfiir 9.A fofir 1957 MO¥* fZTlTV nr A M f) 19 — Ræða Magnúsar Jónssonar Framh. af bls. 12 fjárveitinganefndar með þeim ummælum, að maður sem er að bjarga sér úr vagni, sem er á hraðri ferð komist ekki hjá því að hlaupa fyrst í sömu átt og vagninn stefndi til þess að missa ekki fótanna. Öllu vandræðalegri afsökun er naumast hægt að bera fyrir sig og um leið varla hægt að lýsa skýrar vantrausti á vagn stjóranum, hæstv. fjármálaráð- herra. Að öðru leyti getur svo þessi setning verið vel viðeig- andi einkunnarorð fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er svo aft ur á móti látið óskýrt hjá meiri- hluta nefndarinnar af hverju þarf að hlaupa hraðar en vagn- inn stefndi. Eigi mun síður reyn- ast torvelt að gera grein fyrir því hvernig efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar geta stuðlað að lækningu verðbólgu. Til þess að fjármálaráðherra þyrfti ekki að sýna þjóðinni allt- of mikla hæklcun á fjárlögunum hefur hann að undanförnu neitað að taka inn í fjárlögin aðstoðina við útflutningsframleiðsluna og skatta, sem á eru lagðir í því skyni. Verður þetta þó nú enn óeðlilegra en áður, því að nú eru tekjur til að standa straum af þessum útgjöldum allar teknar með sköttum og tollum, sem inn- heimtir eru jafnhliða sköttum og tollum til ríkissjóðs. Ríkið ákveð- ur þessa fjárheimtu með löggjöf og annast ráðstöfun fjárins og því jafneðlilegt að þessar tekjur og útgjöld séu tekin í fjárlög eins og margt annað, sem þar er. Hin nýja stefna vinstri stjórn- arinnar virðist fyrst og fremst í því fólgin, að þjóðin er nú skatt- lögð meir en nokkru sinni fyrr. Samkvæmt þeim lögum, sem þeg- ar hafa verið sett um tekjuöflun má gera ráð fyrir, að þjóðin verði á þessu ári að greiða 1200—1300 millj. kr. í sköttum og tollum til ríkisins. Má vissulega taka undir þau ummæli, að svo gegndarlaus skattlagning sé að þrotum komin. Þar sem öll þessi mikla skatt- heimta er þegar bundin í lögum, þá liggur í rauninni ekki annað fyrir við afgreiðslu fjárlaga en að reyna að gera sér grein fyrir raunverulegum tekjum ríkissjóðs samkvæmt þessum lögum á yfir. standandi ári og reyna að hafa áhrif á það, að þessu mikla fé sé varið á ttm skynsamlegastan hátt. Stefnan hefur þegar verið mörkuð af ríkisstjórninni og með fjárlagaákvæðum verður skatt- heimtan ekki minnkuð. Ýmsar athuganir hafa á und- anförnum árum verið gerðar á leiðum til sparnaðar í ríkisrekstr- inum, en niðurstaðan hefur jafn- an orðið sú, að ekki gæti orðið um neinn verulegan sparnað að ræða nema með endurskipulagn- ingu eða með samdrætti þeirrar þjónustu, sem ríkið veitir þjóðfé. lagsborgurunum á ýmsum svið- um. Hvort hægt er að koma rekstri einstakra ríkisstofnana fyrir á hagkvæmari hátt er svo að segja ógerlegt fyrir fjárveit- inganefnd að gera sér grein fyrir. Það er fjármálaráðherrann og ríkisstjórnin, sem á hverjum tíma marka fjármálastefnuna og eigi að breyta um stefnu verður að breyta um þá forustu. STJÓRNIN GERÐI ÞJÓÐÍNNI MEST GAGN MEÐ ÞVÍ AÐ FARA STRAX FRÁ VÖLDUM Sjálfstæðismenn hafa ætíð lagt áherzlu á það, að fjárlög væru afgreidd greiðsluhallalaus og sú stefna flokksins hefur ekk- ert breytzt, þótt hann sé nú í stjórnarandstöðu. Við teljum, að fjárlög eigi að afgreiða eftir þeirri meginstefnu, að efldar séu eftir megni verklegar, andlegar og félagslegar framfarir í land- inu innan þess ramma, sem gjald- geta borgaranna leyfir. Á árun- um eftir 1950 var hægt að draga verulega úr skattaálögum, þótt auknu fé væri varið til þjóðnytja- mála vegna aukins jafnvægis í fjármálakerfi þjóðarinnar. Árið 1955 var blað brotið í þeirri þró- unarsögu, eins og hæstv. fjármála ráðherra hefur réttilega lýst, áð- ur en hann komst í það samfélag, sem hann nú er í. Afleiðingin varð sú, að á síðastliðnu ári varð að hverfa frá skattalækkunar- stefnunni og leggja háa nýja skatta á þjóðina, og nú verður að ganga ennþá lengra á þeirri braut. Skattheimtan er nú tví- mælaust komin út fyrir þann ramma, er gjaldgeta borgaranna leyfir, og mikil hætta á stöðnun ýmiss konar nauðsynlegra fram- kvæmda í þjóðfélaginu. — Þeir menn hafa nú verið leiddir til æðstu valda við hlið hæstv. fjár- málaráðherra, sem komu þessari óheillaskriðu nýrrar dýrtíðar og vandræða af stað. Vantraust þjóðarinnar á hæstv. núverandi ríkisstjórn er svo mikið, að engar horfur eru á því, að henni takist að ná aftur því fjármálalega jafn- vægi, sem var komið á fyrir 1955, enda verður ekki séð, að ríkis- stjórnin hafi neina tilburði í þá átt. Það áhrifaríkasta, sem stjórn in gæti gert til úrbóta á þessu sviði sem mörgum öðrum væri að | leggja sem skjótast niður völd. Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig á áttræðisafmseli mínu 7. febr. sl. Sigurlaug Daníelsdóttir, Hreðavatni. Danskur bílasmiður 15. apríl. Sérfræðingur í rétting- um og vatnskassaviðgerðum. Tilb. með nánari uppl. óskast send, sem fyrst til Autoblikkenslager Sv. Aage Rathcke, Tordenskjoldsgade 31 V., Aarhus — Danmark. Topoð — Fundið Fuglaeigendur! Lítill stofufugl (ekki páfagauk- ur), fannst í gær, nálægt gatna- mótum Sigtúns og Gullteigs. Eig- andi hringi í síma 4584. I. O. G. T. St. Sóley Fundur í kvöld kl. 8,30 í Templ arahöllinni. losning fulltrúa á að- alfund þingstúkunnar. Þórketill les upp. — Mætið vel. — Æ.t. St. Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 8,30 (Eldri stj.) Skemmtiakrá fundarins: Upplest- ur. Mælskuþáttur (6 fél.). Eftir- hermur og söngur. Hvor flokkur- inn verður fjölmennari? — Æ.t. Samkomur Æskulýðsvika KFUM og K Samkoma í kvöld kl. 8,30. Reyn ir Valdemarsson, læknanemi og séra Sigurjón Ámason tala. Ein- Böngur. Allir velkomnir. — Ungverjarnir Framh. af bls. 11 frystihúsum og víðar. Eitt er þeim flestum sameiginlegt, sagði frú Anna Snæland, sem hefir aðstoðað flóttamennina af ráði og dáð, ásamt manni sínum ung- verskum að kyni, Andrési Alex- anderssyni, að þá langar á sjó- inn, að verða farmenn. En eng- inn þeirra hefir haft kynni af sjónum áður, þessara pilta frá sléttulandinu langt frá sjávar- ströndu. Námsflokkar Reykjavíkur hófu fyrir nokkru íslenzku- kennslu fyrir flóttamennina og eru kennslustundir þrjú kvöld í viku. Kennari þar er Andrés Alexandersson. Aðsókn að kennslunni hefir þó verið held- ur dræm og er vafalaust því að kenna að námið hefir reynzt of erfitt í byrjun, þar sem allmikil íslenzk málfræði er kennd, en hún hefir mörgum reynzt örðug. Lítið hafa því flestir Ungverj- anna enn lært í íslenzku, en nóg þó til þess að geta gert sig skilj- anlega og unnið störf sín. að er ánægjulegt að hitta Ungverja.na víðs vegar um bæinn, þar sem þeir eru ailir að starfi, glaðir og kátir, og hlusta á frásagnir þeirra og fyrirætlan- ir. Það er auðheyrt að þar fer bjartsýnt fólk og dugnaðarlegt, Josef Horvath er 30 ára bílstjóri frá Búdapest. Nú býr hann ásamt konu sinni inni í Samtúni og er þegar búinn að kaupa sér for- kunnarútvarp eftir sex vikna vinnu. Sama daginn og við hitt- um hann hafði hann lokið bíl- prófi og fengið íslenzkt ökuskír- teini og lítur björtum augum til framtíðarinnar sem bifreiðar- stjóri. Móttökurnar hafa verið prýðilegar hér, segir hann, og allir afburða elskulegir við okk- ur. sem hefur þegar komið ár sinni vel fyrir borð í hinu nýja landi með aðstoð Rauða 'rrossias og ýmissa góðra manna. Og ekki er annað að sjá, tveimur mánuðum eftir komu þess til hins nýjr. föð- urlands síns, en það muni reyn- ast hinir mætustu borgarar er fram líða stundir. Og það var einkemiandi fyrir viðhorf þeirra sem piltarnir tveir, Wilmos og Ferenc, sem vinna í gúmmíverksmiðjunni hjá Pétri Snæland, sögðu: — Við áttum kost á að fara bæði til Bandaríkjanna og Ástra- líu. En við kusum að halda til íslands. Og nú vitum við að þar völdum við rétt. Hvergi höfum við haft hærra kaup og aldrei betri vinnu. Á íslandi er gott að vera. ggs. Mínar innilegustu hjartans þakkir sendi ég öllum skyldum og vandalausum, sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum, blómum, skeytum og hlýjum vinar- kveðjum á áttræðisafmæli mínu 15. þ.m. Guð blessi ykkur öll. Þrúður Guðmundsdóttir, Rauðalæk 28. Ég sendi ykkur öllum mínar beztu kveðjur og þakklæti fyrir heimsóknir, gjafir, heillaskeyti, ljóð og alla vinsemd á 70 ára afmæli mínu 12. febrúar sl. Guð blessi ykkur öll. Pálína Guðmundsdóttir, Drápuhlíð 25. Innilega þakka ég öllum þeim, er glöddu mig með heim sóknum, gjöfum og kveðjum á níutíu ára afmælisdegi mínum 10. febrúar sl. Guð blessi ykkur öll. María Jónsdóttir, í Steinmóðarbæ. Ég þakka ykkur innilega, sem sýnduð mér virðingu á sextugs afmæli mínu 11. þ. m. með heimsóknum, skeytum og gjöfum. Sigurður Sigurðsson, Langholtsvegi 13. Jarðarför mannsins mins KARLS HALLDÓRS BJARNASONAR, fyrrverandi húsvarðar i Arnarhváli, fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 10,30 árdegis. Blóm vinsamlegast afbeðin. Lilja Eyþórsdóttir. Hugheilar þakkir til allra, er sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför hjartkæru móður og tengdamóður okkar VALGERÐAR ÁRNADÓTTUR Esther J. Bergþrósdóttir, Gyða Bergþórsdóttir, Georg Þorsteinsson, Sveinn Helgason. Útför eiginmanns míns, föður og sonar okkar LÚTIIERS H. SIGURÐSSONAR, fer fram frá Dómkirkjunni föstudag 22. þ. mán. kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Lovísa Jóhannsdóttir, Sigríður Lúthersdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Hafdís Lúthersdóttir, Sigurður Guðnason, Sigríður Ólafsdóttir. Aðgöngumiðasala í Hljóðfærahúsinu, Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur og Austurbæjarbíói. * KK —SEXTETTINN kynnir hina vinsœlu ensku söngkonu Pat Robbins á hliómleikum í Austurbœgarbíói tímmtudaginn 21. tebrúar kl, 11,15 Ragnar Bjarnason og KK-SEXTTIN N

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.