Morgunblaðið - 08.03.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.03.1957, Blaðsíða 2
2 MOTtCUWnr AT>1Ð Föstudagur 8. -marz 1957 Ræða Ölafs Thors a Alþingi í gær: Kommúnistará ðherrann þykist nú aidrei haía viljað spiiia sölu samtöUum útveffsmanna Hans eigin skjalfest orð sýna furðulega tónhreytingu UMRÆÐUR héldu enn áfram á þingi í gær um frumvarpið varð- andi sölu og útflutning sjávarafurða. En það sem vekur mesta athygli í þessum umrseðtun, er að eftir þvi sem lengra líður á þær verður alger breyting á tóninum hjá Lúðvík Jósefssyni. 1 greinargerð fyrir frumvarpinu og í fyrstu ræðum Lúðvíks talaði hann mjög rostalega um „misrétti“ og „misbeitingu" o. s. frv. En í seinni umræðum hefur hann allt i einu orðið miklu hógværari og leggur nú höfuðáherzluna á það, að hann æíli ekkert að spilla samtökum afurðasölunnar og jafnvel að SÍF hafi margt vel gert. í»á sagði hann einnig, að hann hefði aldrei neitt illt sagt um þennan félagsskap. í ræðu sem Ólafur Thors flutti í gær, benti hann á þessa breytingu, sem orðin er á tóninum í Lúðvík og hann spurði: — Hvað veldur þessu? sinni með einu einasta orði, hreyft þeirri þörf eða gefið bendingar um það á fundum SÍF? Ég get upplýst, að ÞA® HEFUR HANN ALDREI GERT og má þar af marka heilindi hans í þessu máli. VITNISBURÐUR UM „ÓÁNÆGJU" Þá staðhæfði Lúðvik, að mikil óánægja ríkti í garð SÍF. En hann hefur sjálfur við- urkennt, að hann muni áfram verða félagi í SÍF, er hann tekur aftur við stjórn fyrir- tækja sinna. Og ég bendi einnig á, sagði Ólafur Thors, að ekki getur óánægja sú verið mikil, því að allir framleið'endur hafa enn falið SÍF sölu á saltfiski yfirstandandi árs. Vil ég al- veg sérstaklega ieiða athygli manna að því að í ijós hefur komið við LEYNILEGA AT- KVÆÐAGBEIBSLU, að að- eins 4 af 998 atkvæðum fylgdu Lúðvík að málum í þessum samtökum. SJÁLFSÁKVÖRÐUN ÚTVEGSMANNA Á AÐ RÁÐA Lúðvík Jósefsson hamrar stöð- ugt á því, að öll sölusamtök út- vegsmanna eigi að njóta jafnréít- is og spyr, hvers vegna ég hafi ekki veitt skreiðareigendum einkasölu alveg eins og saltfisk- eigendum. Svar mitt við þessu er ofur einfalt, svaraði Ólafur Thors. Það er þetta: Allir saltfiskeig- endur óska þess að vera í einu samlagi og fá vernd. Skreið- areigendur vildu ekki sam- einast allir í eitt samlag. — Ég sagði þeim, að ég teldi ráð- legt fyrir þá að sameinast, en mér datt ekki í hug að taka fram fyrir hendur þeirra. Með öðrum orðum — ég lét alla njóta jafnréttis. Ég lét sjálfs- ákvörðun útvegsmanna ráða. ★ Að lokum sagði Ólafur: — Tilgangur þessa frum- varps er að taka völdin af út- gerðarmönnum. Ég vara við því enn sem fyrr. Ef til vill er hættunni þó afstýrt að þessu sinni. En það er ekki vegna þess, að ríkisstjórninni hafi tekizt að grípa völdin af útgerðarmönnum, heldur af því að útgerðarmenn tóku völdin af þessari ríkisstjórn með því að skipa sér allir sem einn undir verndarvæng SIF og fela þessum félagsskap sín- um sölu á allri saltfiskfram- leiðslu ársins 1957. Fjölgun bæjarfulltruanna Engin frambærileg rök, sa$\ji borgarstjóri Berdreymi Þórðar Bjórnssonar LÚBVÍK HAFÐI LÍTIÐ FYLGI Það sem veldur þessu, sagði Ólafur og það sem hefur beygt Lúðvík Jósefsson er, að á almennum fundi fisk- framleiðenda, sem nýverið var haldinn, voru framleiðend- urnir spurðir hvort þeir vildu breytingu. Þar kom í Ijós, að af 998 atkv. voru aðeins 4, sem vildu fylgja Lúðvík. Og meira að segja þessi fjögur atkvæði sviku Lúð- vík með því að fela SÍF sölu sinnar framleiðslu þerta ár. HANS EIGIN ORÐ Ólafur Thors kvað auðvelt að sanna þingheimi, að tónninn í Lúðvík hefði breytzt mikið á fá- um dögum. Tilgreindi hann sem dæmi um þetta orðréttar setn- ingar úr ræðum Lúðvíks við fyrstu umræðu. Þar hafði harm m. a. sagt: „Það er álit flestra, að þetta skipulag geti ekki verið hér til frambúðar“. Og enn sagði hann: „Margir eru á þeirri skoðun, að hér hafi ríkt hið mestn mis- rétti.“ Enn sagði hann: „Ennfremur ætti betur en nú að vera hægt að koma í veg fyrir það, að um misbcitingu á valdi einstakra samtaka geti verið að ræða.“ HEILDARHAGSMUNUM STEFNT í VOÐA Lúðvik hafði t. d. sagt, að Sjálf- stæðismenn beittu falsrökum, þegar þeir teldu frelsi útgerðar- manna skert, ef Lúðvík fylgdi fyrri yfirlýsingum í þessu máli. Þetta er misskilningur hjá Lúðvik svo ég ekki segi fals- rök. Útgerðarmenn vilja að meðan heildin, eða nær allir útgerðarmenn telja hag sínum bezt borgið með þvi að einn aðili annist út- flutninginn, þá sé það svo. En Lúðvík segir hins vegar: — Ef einhver, einhvem tíma getur selt betur einhvern smá- slatta, en heildarsamtökin, þá skulu samtökin víkja. En allir sjá, að með því er heildarhagsmununum stefnt í voða. RÁÐHERRA ÞARF EKKI LAGASETNINGU Þá segir Lúðvík að SÍF kveinki sér undan opinberu eftirliti og að Enn sagði Lúðvík: „Aðalatriði þessa frumvarps em í því fólgin, að gert er nú ráð fyrir . . . . að velta öllum að- iljum útílutningsleyfi og geta þá að sjálfsögðu jafnt komið til greina samtök framleiðenda, einstakir framleiðendur eða aðr- ir, sem með sölu á sjávarafurðum hafa að gera.“ Og enn sagði Lúðvík í ræðu sinni við fyrstu umræðu: „Að heildarsamtökin verði þrátt fyrir allt að víkja til hliðar, með leyfi, ef aðrir geta staðið sig bet- ur í sambandi við söluna, heldur en samtök framleiðenda kunna að gera í einstökum tilfellum." UMSKIPTIN Þannig var tónninn í Lúð- vík Jósefssyni við fyrstu um- ræðu málsins. En við aðra um- ræðu lætur hann síðan sem hann hafi „aldrei neitt illt um þessi samtök sagt“, hann ætli „ekki að spilla samtökunum“ að algerlega sé rangt að stofna eigi til samkeppni" o. s. frv. Og tónbreytingin hjá Lúð- vík stafar af því, að hann hef- ur séð algera samstöðu út- vegsmanna í samtökum sín- um. Sannast þar hið forn- kveðna, að batnandi manni er bezt að lifa. Sjálfstæðismenn. hafi viljað hjálpa þeim til að losna við það. En hvaða rök iærir hann fyrir því og hvað kemur það þessari lagasetningu við, þar sem hann gat án lagasetningar ákveðið hvaða skilyrði yrðu sett, alveg eins og næsti sjáv- arútvegsmálaráðherra, þarf engin skilyrði að setja þrátt fyrir þessi lög. Það er svo mál út af fyrir sig, að ef útvegsmenn halda saman, þá þurfa þeir engum skilyrðum að lúta frá Lúðvík því að auðvitað dirfist hann ekki að neita eigendum salt- fisks um leyfi til að selja hann. HEFUR ALDREI NEFNT ÞAÐ EINU ORÐI Þá sagði Lúðvík, að þörf væri á ýmsum breytingum hjá SÍF. En ég svara, sagði Ólafur, með því að spyrja: — Hefur Lúðvík Jósefsson, sem er fé- lagi í þeim samtökum, nokkru Á BÆ J ARSTJ ÓRN ARFUNDI XV í gær kom til umræðu tillaga Jóns P. Emils frá síðasta bæjar- stjómarfundi um að bæjarstjóm álykti að skora á Alþingi að auka tölu bæjarfulltrúa í Reykjavík verulega, en til vara að félags- málaráðlierra gæfi út reglugerð um fjölgun bæjarfulltrúa upp í 21, en til slíkrar fjölgunar þarf samþykki bæjarstjómar. Borgarstjóri tók til máls og kvaðst ekki hafa heyrt borin fram frambærileg rök fyrir slíkri fjölgun hvorki við fyrri umræðu málsins né í þeim blaðaumræð- um, sem um það hefðu orðið síð- an. Lýsti hann tillögu sem bæj- arfulltrúar Sjálfstæðismanna bæru fram, en hún er svohljóð- andi: „Bæjarstjórnin telur ekki færð rök að því að nauðsynlegt sé eða líklegt til betri árangurs að fjölga bæjarfulltrúum að sinni, en hins vegar nokkur útgjalda- auki — og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá“. Borgarstjóri kvað flutnings- mann hafa borið fram þær rök- semdir við fyrri umæðu að ef bæjarfulltrúar væru fleiri en 15, þá mundu Sjálfstæðismenn tapa kosningum í bænum. Ef þeir hefðu verið fleiri, þá hefðu Sjálf- stæðismenn tapað 6 sinnum við undanfarandi bæjarstjómarkosn- ingar, sagði flutriingsmaður. — Borgarstjóri kvað erfitt að ákveða töíu bæjarfulltrúa með tilliti til þess, hvort einn eða annar hefði möguleika á meirihluta, en auk þess væru þessar upplýsingar rangar, þv' hann hefði látið reikna út úrslit allra bæjarstjórnarkosninga eftir 1930, en þá var í fyrsta sinn kos- ið í bæjarstjóm í einu lagi og hefði komið í ljós, að þó bæjar- fulltrúar hefðu verið 21 á öllum þeim tíma, þá hefðu Sjálfstæðis- menn ætíð haldið meirihluta sín- um. Borgarstjóri sagði að í Alþýðu- blaðinu hefði komið fram, að Sjálfstæðismenn væru á móti fjölgun bæjarfulltrúa vegna þess að þeir mættu ekki til þess hugsa að fulltrúar úthverfanna komi nálægt bæjarmálum, eins og blaðið orðaði það. Til þess að forðast þetta legðust þeir gegn tillögunni. Borgarstjóri sagði að erfitt gæti verið að ákveða með nákvæmni hvað teldust úthverfi og hvað ekki, en fyrst og fremst mundi þá átt við nýbyggð hverfi eða hverfi byggð á síðustu árum, svo sem utan Hringbrautar. En af 15 bæjarfulltrúum, sem nú ættu sæti í bæjarstjóminni, ættu 11 heima í úthverfum en aðeins 4 innan Hringbrautar. Af 8 bæj- arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins væru 6 búsettir í úthverfum, en aðeins 2 innan Hringbrautar. — Taldi borgarstjóri vandséð hvern ig hægt væri að halda því fram, að Sjálfstæðismenn í bæjarstjóm væru sérstaklega á móti úthverf- unum. Borgarstjóri rifjaði það upp að Jón P. Emils hafði sérstaklega talið æskilegt að bæjarfulltrúum yrði fjölgað upp í 45, en ekki væri vitað við hvað hann miðaði þá tölu. Þó hefði sú tala einn kost og hann væri sá að ef svo margir bæjarfulltrúar hefðu ver- ið kosnir við síðustu kosningar, þá hefði Jón Emils sjálfur kom- izt í bæjarstjórn! Borgarstjóri ítrekaði að engin brýn nauðsyn væri á fjölgun bæjarfulltrúa og því væri til- laga Sjálfstæðismanna komin fram. Jón P. Emils tók nú til máls og taldi að nú væri um 2400 kjósendur á kjörskrá bak við hvem bæjarfulltrúa í Reykjavík, en á Akureyri aðeins 400. Taldi hann að bæði í Danmörku og Noregi mundu bæir af svipaðri stærð hafa færri kjósendur á bak við hvern bæjarfulltrúa en hér væri. En ekki nefndi hann um þetta nein dæmi. Rakti J. P. E. síðan sögulega þróun bæjarstjóm arkosninga í Reykjavík. Þegar hér var komið ræðu Jóns P. Emils heyiðist hátt og skerandi hróp aftur í saln- um: „Forseti! Forseti! Sjálf- stæðismennirnir eru orðnir 9!“ Það var Þórður Björnsson, sem hrópaði, þar sem hann sat þá með hálflukt augu, á áheyrendabekkjum. Einhver hafði við orð, hvort Þórð hefði dreymt draum eða séð sýn um úrslit næstu bæjarstjómar- kosninga. Þegar betur var að gáð, kom í Ijós að einn af aðalfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins, sem var um það bil að víkja af fundi, hafði enn ekki risið úr sæti sínu til að fara, en varafulltrúi seztur. Forseti bæjarstjórnar sagði brosandi, að hann mundi hafa vakandi auga á að ekki væz! fleiri heridur á lofti en vera ætti við atkvæðagreiðslu. — Stilltist Þórður þá nokkuð, en bæjarstjómarmenn hlógu. Hélt þá Jón P. Emils áfram máli sínu. Taldi hann að ýmis hverfi hefðu risið upp í bænum, sem engan fulltrúa ættu þar, enn- fremur komið upp nýjar atvinnu- greinar og stéttir og þó 15 val- inkunnir menn ættu sæti í bæj- arstjóm, þá væri útilokað að sá hópur hefði þekkingu á fjölþætt- um hagsmunum íbúanna. Bæjar- stjórnarkosningar ættu ennfrem- ur ekki að vera pólitískar í eðli sínu, þannig að hverfi eða hópar ættu að geta haft möguleika til að koma að manni, ef þeir vildu það hagsmuna sinna vegna, en slíkt væri erfitt, þegar bæjar- fulltrúar væru fáir. Ennfremur taldi hann rétt að bæjarráðs- menn væru fastir starfsmenn bæjarins. Þórður Björnsson tók nú til máls og hafði sýnilega ekki náð sér að fullu eftir drauminn. Tal- aði hann stutt og sagði að það væri ein ástæða og ekki nema ein til þess að borgarstjóri stæði gegn þessari tillögu og hún væri sú, að hann ætti erfiðara með að ráða við sína menn, ef þeir væru fleiri en 8, t. d. ef þeir væru 13 af 26. Þetta væri eina ástæðan til þess að borgarstjóri væri á móti tillögunni, sagði Þórður! Guðmundur Vigfússon (K) tók til máls og taldi ekki sannfærandi að bæjarmálin yrðu betur leyst ef bæjarfulltrúum fjölgaði, en þó taldi harm ýmis rök hníga í þá átt að bæjarfulltrúum væri fjölgað og vísaði þar til þess, sem Jón P. Emils hafði sagt. Bárður Daníelsson (Þ) tók til máls og kvað fjölgun ef til vill sanngjarna en hins vegar hefði sér fundizt það þrekvirki mikið, Framh. á bls. 1.5 Skdk-keppnin 2. BORB Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.) ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Akureyrl (Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.) 40. BIlxa6 Lúðv. Jóseíssyni líknr ekki verr við SIF, en nð honn ætl- nr sjúliur nð vern félngi úfrnm Rangfœrslur hans hraktar af Ólafi Thors Iáframhaldi ræðu sinnar kvaðst Ólafur Thors vilja leiðrétta nokkrar missagnir og rangfærslur sem fram hefðu komið í ræðum Lúðvíks Jósefssonar um þetta mál.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.