Morgunblaðið - 08.03.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.03.1957, Blaðsíða 10
w MORCVTSfíT. 4Ð1Ð Föstudagur 8. marz 1957 _______________________________________I Vélritunarstúlka óskast á Vitamálaskrifstofuna frá 8. maí að telja. Umsækjendur komi á Vitamálaskrifstofuna næstu daga. Laus staða Tryggingarfélag óskar eftir að ráða ungan og duglegan mann við skrifstofustörf, nú þegar eða síðar. ★ Upplýsingar um menntun og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu blaðsins merkt: „Framtíð —2244“, fyrir 12. þ. m. Brunafryggingar Eru eigur yðar nægilega hátt tryggðar? Ef ekki, þá talið við oss sem fyrst. V átryggingarskrif stof a Sigfúsar Sighvatssonar hf. Lækjargötu 2 A, Reykjavík. Símar: 3171 og 82931. Líftryggingar Kynnið ykkur okkar lágu iðgjöld og bónusútborganir. V átryggingarskrif stof a Sigfúsar Sighvatssonar hf. Lækjargötu 2 A, Reykjavík. Símar: 3171 og 82931. Rýmingarsalan er í fullum gangi Kvenskór með háum hælum. Kr. 95.00. Kveninniskór kr. 28—29—35.00 Kvenskór með kvarthælum. Verð kr. 75.00, 85.00. Kvenskór með lágum hælum. Verð kr. 20—40—65—75.00. Barnaskór sejast fyrir hálf virði. Karlmannaskór sterkir og vandaðir götuskór með gúmmísólum — sérstakt tækifærisverð. Kr. 150.00. Kvenbomsur fyrir háan hæl. Kr. 25.00. Lágan hæl. Kr. 60.00. • Notið tækifærið og fáið ykkur ódýra og góða skó. ALLT Á AÐ SELJAST. SKÓÚTSALAN FRAMNESVEGI 2. — Veðdeild Búnoðarbankans Framh. af bls. 9 hefur bara ekki verið fram- kvæmt. Það hefur ekki verið framkvæmt af því að þessi sjóð- ur, hefur ekki getað lánað svo stórar upphæðir eins og þurfti. Lánsféð var lengi 45 þús. á hús, síðan var það hækkað upp í 60 þús. kr., og nú er það 75 þús. sem hámark. Á tímabili var þetta svona urp það bil 30% af kostnaðarverði og eins og núna standa sakir mun láta nærri, að það sé eitthvað kannske heldur ríflega 40%. En það var ætlun okkar í millþn., að lágmark þessara lána skyldi vera 100 þús., þó að það sé ekki tekið fram í greinarg. eða greinum frv., en með því móti að hækka lánið að sama skapi til frum- býlinga, sem ekki eru nýbýla- menn um 25 þús. kr., þá er þó heldur gert auðveldara fyrir en ella. En eins og allir mega sjá, þá er það ekki þægilegt fyrir efnalausa unga menn að byrja á því að byggja íbúðarhús, eins og það er nú dýrt, auk alls annars. VANTAR FÉ TIL JARÐA- OG BÚSTOFNSKAUPA Þá er það í öðru lagi, og það, sem er jafnvel allra alvarlegast, að það hefur á undanförnum ár- um hvergi fengizt lán til jarða- kaupa, bústofnskaupa og véla- kaupa, en • þetta allt til samans eru það háar upphæðir fyrir hvern frumbýling, að það horfir alveg fullkomlega til vandræða, ef ekkert á að greiða hér úr, eins og sjáanlegt er, að þeir menn ætlast til, sem hafa gengið frá þessu frv. og breytt því frá till. milliþinganefndarinnar í það horf, sem það er nú: Því að þar er fyrst og fremst nauðsynin að fá inn lánsfé til þess að geta aðstoðað frumbýlingana til þess að kaupa jörð, kaupa bústofn og kaupa þær nauðsynlegustu vélar, sem þarf til búrekstrarins. Það er t.d. nokkuð hastarlegt til þess að vita, að jafnnauðsyn- leg verkfæri og sem flestir, jafn- vel allir bændur vilja nú eiga, eins og dráttarvélar, að það skuli hvergi hafa verið á undanförnum árum fáanlegt lán til þeirra kaupa. Og það er sýnilegt, að þeir sem hafa fjallað um þetta frv., þeir ætlast ekki til, að það sé neitt bætt úr því — alls ekki — og það hefur heldur ekki verið fáanlegt neitt lán fyrxr frumbýl- inga til að kaupa nauðsynleg- an bústofn. MIKLU MIKILVÆGARI ATRIÐI Ég tel, að þessi atriði, þau séu fyrir bændastéttina miklu meira virði heldur en hitt með rækt- unina, vegna x.ess hve ríflega er til hennar veitt og hefur verið, og sem þakklætisvert er. En um það er ekki að villast, að það hefur gengið svo á undanförnum árum, að sveitunum hefur verið smátt og smétt að blæða út, og eftir þeim horfum, sem nú blasa við, þá eru þær verri heldur en nokkru sinni hefur verið á und- anförum árum, hvað þetta snert- ir. Ég vil nú ekki segja neitt fleira um það, hvernig stendur á þessum breytingum, sem hér hafa verið gerðar á þessu írv., áður en það er lagt fyrir þingið. Ég vil ekki trúa því, af því að ég þekki hæstv. landbrh. frá gamalli tíð að velvilja í garð sveitanna — ég vil ekki trúa því að þetta sé komið fram frá honum. Hitt þykir mér miklu líklegra, að hann geri það nauðugur og é móti sínum vilja að láta sína samstarfsmenn eða aðra, sem hann er í félagsskap við, hafa þau áhrif á þetta, frv., sem hér hafa orðið. ENGIN HÁSTEMMD KRÖFUPÓLITÍK Við, sem vorum í þessari milliþn. erum eins og menn vita, nokkuð gamlir og ráðsettir menn, fjórir bændur, kunnugir öllum högum bændastéttarinnar og fimmti maðurinn sérfræðingur, jafnvel kunnugasti maðurinn af öllum fslendingum um það, hvernig hagur sveitanna er, sem er framkvæmdastjóri nýbýla- stjórnar, Pálmi Einarsson. Ég nefni þetta vegna þess, að það mega allir sjá, að þegar þess- ir fimm menn verða nákvæmlega sammála, þá er það ekki byggt á neinni hástemmdri kröfupóli- H afnfirðingar Get bætt við nokkrum nemendum í barna- og þjóðdansakennslu. Börn yngri en 10 ára mæti kl. 4,30. Eldri börn mæti kl. 5,30 í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði. Edda Baldursdóttir. Prentari (handsetjari) getur fengifð atvinnu. — Vaktavinna. Umsóknir sendist afgr. Mbl. merktar: Handsetjari —7756. tík, — ekki kröfupólitík — sem er sambærileg við það, sem gerzt hefur frá hálfu launastéttanna og sjávarútvegsins, og ekki há- stemmd kröfupólitík, borið saman við þá þörf, sem hér er fyrir hendi. Enda býst ég við, að við, þessir fimm menn, þó að við höfum hér gert nokkrar kröfur til úrbóta á þeim mikla vanda, sem fyrir hendi er, þá séum við nokk- uð aftarlega á kröfugerðarvegin- um, þegar við eru bornir saman við þá fulltrúa, sem á undanförn- um árum hafa haldið uppi kröf- unum fyrir launastéttirnar og sjávarútveginn. Að síðustu skal ég svo minna á það eða víkja að því, að þeir, sem fjallað hafa um þetta frv., hafa gert eina breytingu, sem segja má, að hvorki sé til gangs eða ógagns, og hún er sú, eins og ráðherrann vék að, að fella ræktunarsjóðslögin frá 1947 inn í þetta frv. Þau eru, eftir því sem mér skilzt, felld inn í frv. alveg orðrétt og stafrétt eins og þau voru, með öllu óbreytt, og það má því segja, að þetta geri hvorki gagn eða ógagn, því að vitanlega þekkja bændur lands- ins yfirleitt, hvernig ræktunar- sjóðslögin eru. Hins vegar má segja, að það að fella þessi lög inn í frv., það gefi Alþingi tæki- færi til að taka þau einnig til meðferðar og breytinga, pví að þau lög, sem eru orðin 10 ára gömul, þó að þau væru ágæt lög á sinni tíð, þau geta þurft nokkurra endurbóta við, frá því sem að þau voru upphaflega. HÆGT A» FELA RÆKTUNARSJÓÐI HLUTVERK VEÐDEILDAR En ef það á að vera svo, að það sé algerlega brennt fyrir það, að Veðdeildin fái nokkra leiðréttingu í þessu efni, þá er náttúrlega hægt að hugsa sér þá leið að fela ræktunarsjóðnum það verkefni, sem við höfum ætlast til, að veðdeildin hefði, sem er að lána til jarðakaupa og bú- stofnskaupa og vélakaupa, og satt að segja er að sumu leyti til heimild í ræktunarsjóðslögun- um til þess að þetta megi, að öðru leyti en að það er ekki heimild til að lána til jarðakaupa. Þetta verður nú að taka til athugunar í meðferð málsins í þinginu. Ég vil ljúka mínu máli með því að segja það, að þó að svona hafi verið með þetta mál farið, þó að það hafi verið svona að því unnið á þeim rúmu þremur mánuðum síðan milliþn. skilaði því til hæstv. ríkisstj., þá vil ég mega vonast eftir því, að hér innan Alþingis séu það margir menn, sem hafa góðan vilja á því að greiða úr mestu vandamálum landbúnaðarins, að það fáist einhverjar verulegar breytingar á þessu frv. í áttina til þess, sem frv. okkar milliþn. lagði til. Ég skal svo ekki á þessu stigi fara um málið fleiri orðum. A/h/iia Verkfrcebiþjónusta TRAUSTYf Skó/a vöriuslig Jð Simi ð 2 6 24 Dregsð verður í 3. flokki mánudag II. marz / dag er nœstsíðasfi söludagur HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLAIMDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.