Morgunblaðið - 08.03.1957, Blaðsíða 11
Föstudagur 8. marz 1957
MORCUNBLAÐIÐ
11
Skíðagangan opnuð í gær
í Laugardalsleikvanginum
Forvstumenn íþióttumálu
gengu
ÍÞRÓTTABANDALAG Reykja-
víkur og Skíðaráð Reykjavíkur
hafa haft forgöngu um það, að
skíðalandsgangan fari fram í
Reykjavík og fólk þurfi ekki að
fara út úr bænum til að ganga
4 kílómetrana. í gær höfðu þess-
ir aðilar forgöngu um að „gang-
an“ var opnuð hér í bæ. Hefur
verið mæld göngubraut á íþrótta-
leikvanginum í Laugardal sem er
í smíðum. Er gangan þar rúmir
8 hringir og gekk fyrsti hópurinn
vegalengdina í gærdag.
★ SEX MANNA HÓPUR
í þessum hópi voru 6 menn.
Fyrstur fór Ben. G. Waage, for-
seti ÍSÍ, en síðan komu Bragi
Kristjánsson, form. Ólympíu-
nefndar, Gísli Halldórsson, form.
ÍBK, Þorsteinn Einarsson, íþrótta
fulltrúi, Úlfar Skæringsson, for-
maður Skíðaráðsins, og Sigurgeir
Guðmundsson, framkvstj. ÍBR.
fyrstii
★ FYRIRBOÐI!
Það hefði fáum dottið í hug
að fyrsta notkun hins glæsi-
lega íþróttasvæðis sem er að
rísa í Laugardal yrði til skíða-
göngu. En það er vel til fundið
hjá ÍBR að velja þann stað.
Það gæti ef til vill vakið fleiri
til skilnings á því að hraða
verður framkvæmdum. Vel
hefði verið að alþingismenn
hefðu gengið þar í hóp skíða-
göngu áður en þeir greiddu
atkvæði um fjárveitingu til
Laugardalsins. En þetta verð-
ur vonandi fyrirboði þess að
svæðið verði í sumar notað til
iðkunar fleiri greina en skíða-
göngu.
Þarna á vellinum munu nú
skólabörn og almenningur eiga
kost á að þreyta gönguna.
Brautin er opin daglega frá kl.
2—8 nema á laugardögum og
sunnudögum, þá er gengið við
alla skíðaskálana.
Hér sést Hermann Stefánsson,
formaður Skíðasambands fslands,
en hann stjórnar landsgöngunni.
Forystumenn íþróttamálanna vígðu Laugardalsvöllinn í gær með því að ganga 4 km. á skiðum. Fyrstur
fór Ben. G. Waage forseti ÍSÍ. Síðan koma Bragi Kristjánsson, Þorsteinn Einarsson, Gísli Halldórs-
son, Úlfar Skæringsson og Sigurgeir Guðmannsson.
Vel heppnnð sýning
og keppni nð Hálogn-
lnndi
ÍR vann Islanásmeistninna
HÁTÍÐAHÖLD ÍR í tilefni 50 ára afmælis félagsins hófust að
Hálogalandi í fyrrakvöld. Var þar fimleikasýning og körfu-
knattleikskeppni. Áhorfendur voru fjölmargir og sýningin og
keppnin tókst með miklum ágætum.
★ FIMLEIKASÝNINGIN
Fimleikastúlkurnar og körfu-
knattleiksliðin gengu 1 upphafi
í fylkingu undir fána inn í sal-
inn. Form. ÍR, Jakob Hafstein,
setti síðan mótið og sagði m. a.
að tilhlýðilegt væri að hefja af-
mælishátíðahöld félagsins með
keppni í yngstu íþróttagreininni,
sem ÍR hefði á stefnuskrá sinni
og hinni elztu, sem er fimleikar.
Hann þakkaði frú Sigríði Val-
geirsdóttur það afrek að koma
upp hinum ágæta kvennaflokki
félagsins og færði henni að gjöf
frá félaginu fagran silfurbikar.
Hófst síðan fimleikasýningin
og tókst vel. Sérstaka athygli
vöktu staðæfingarnar, en öryggi
á slánni er ekki fullkomið ennþá.
En þessi flokkur er á réttri leið
og á áreiðanlega eftir að auka á
hróður hins gamla fimleikafélags.
Að lokinni sýningunni gekk
stofnandi ÍR, A. J. Bertelsen,
fram og færði flokknum blóm og
þakkaði honum sýninguna.
★ KÖRFUKNATTLEIKURINN
Þá fór fram kvennaleikur í
körfuknattleik milli ÍR og KR.
Nýliðabragur var á þeim leik, en
skemmtilegt að sjá konur iðka
þessa fögru íþrótt. ÍR vann verð-
skuldaðan sigur 12:8.
Þá mættu ÍR-ingar í meistara-
flokki karla íslandsmeisturunum
frá íþróttafélagi Keflavíkurflug-
vallar. Var sá leikur mjög góður,
mikill hraði í honum, og áttu
ÍR-ingar þar frumkvæði. Sér-
staklega vakti Helgi Jónsson at-
hygli ,en knattmeðferð hans og
auga fyrir samleik var óbrigð-
ult. ÍR sigraði í leiknum með
46:2« .
Úl-stúlkur á slánni.
Pilnik og Friðrik við Taflborðið.
Fyrsta einvígisskákin :
Fiiðiik tapaði ó tíma
en haiði vonlausa stöðu
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0—0 d6
6. c3 Bg4
7. Hel Rd7
8. h3 Bh5
9. Bc2 Be7
10. d3 0—0
11. Rbd2 Rc5
12. Rfl d5
13. Rg3 Bg6
14. De2 d4
15. Bd2 He8
16. cxd4 exd4
17. b4 Re6
18. a3 Bd6
19. Ba4 b5
20. Bb3 Re5
21. Rxe5 Bxe5
22. Dg4 Dc8
23. Rf5 Rf8
24. Bd5 Hb8
25. Hacl Rd7
26. Rh4 Rb6
27. Bb3 Bf6
28. Rxg6 hxg6
29. Hc6 Dxg4
30. hxg4 &5
31. Hxc7 He7
32. Hecl Hbe8
33. g3 Hxc7
34. Hxc7 He7
35. Hc6 Hb7
36. f4 Kf8
37. fxg5 Be5
38. Bf4 Rd7
39. g6 f6
B C D E F G
ABCDEFGH
UMMÆLI FRIÐRIKS
Blaðið átti stutt samtal við
Friðrik í gærdag um fyrstu skák
þeirra Pilnike. Friðrik sagðist
hafa búizt við þessari byrjun og
kvaðst ekki hafa viljað fara
þekktar leiðir því þær þekkti
Pilnik allar. í 6. og 7. leik brá ég
út af alfaraleið. Það leit að því
er virtist vel út í fyrstu, en reynd
ist ekki vel. Yfirborðið var dá-
fagurt en það var allt laust í
reipunum, þegar dýpra var gáð.
Það stóð heldur ekki lengi og ég
held, sagði Friðrik, að ég muni
ekki tefla þetta afbrigði aftur.
Ég held, hélt Friðrik áfram,
að það hafi ekki verið einhver
einstakur leikur sem úrslitum
réði. Uppbyggingin hjá mér var
ekki nógu sterk. Það hagnýtti
Pilnik sér vel.
— En hvað um tímahrakið?
— Það er gott þegar maður hef-
ir komizt að raun um að staða
manns er ekki sterk að leika
hratt. Það verður að reyna að
halda strikinu sem lengst og þá
getur einn vanhugsaður leikur
orðið dýrkeyptur. Og þá hættir
manni til að verða of lengi.
UMMÆLI PILNIKS
Um skákina sagði Pilnik:
Friðrik fór leið, sem er lík leið
er kenna má við aðferð stór-
meistarans Keres, þó með þeirri
aðalundantekningu að drottn-
ingarbiskup Friðriks var á öðr-
um vígstöðvum en hjá Keres. Og
það reyndist verra afbrigði.
— Friðrik hélt, að því er
ég tel, að þetta væri allt í lagi
hjá sér. Hann ofmat stöðu sína.
Og í stað þess að reyna að búast
til varnar lék hann djarft og
veikti stöðu sína enn meir.
Ég var mjög vel upplagður og
kom honum í mestu vandræði.
Það sem mest gleður mig er að
skákin frá minni hendi var vel
tefld að mínum dómi. Mér urðu
ekki mistök á. Sigurinn gleður
mig en þó jafntefli hefði orðið,
hefði ég verið ánægður skákar-
innar vegna. Ég tel það mikilvægt
að hafa yfirunnið þá erfiðleika,
sem ég var í er ég síðast telfdi
við Friðrik í einvígi. Mér hefur
tekizt að sýna það sem ég ósk-
aði, að geta telft góða skák. Það
er ekki sízt ánægjulegt að það
skuli hafa verið í keppni við
Friðrik, því að hann er eins og
ég hefi þegar tekið fram í röð
beztu skákmanna.
NÝJAR kvenkápur
Fermingarkápur — Peysufatafrakkar
Hagstætt verð.
KÁPU- OG DÖMUBÚÐIM
Laugavegi 15.