Morgunblaðið - 12.03.1957, Side 1
20 siður
44. árgangur 59. tbl. — Þriðjudagur 12. marz 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Er fsraelsmenn hófu herferðina inn i Egyptaland flúði mikill fjöldi
Araba, er bjuggu í námunda við landamærin yfir Súez, sumir alla
leið til Kairo. Sérstaklega flúðu margir frá Gaza-ræmunni. Þegar
fsraelsmenn hurfu svo aftur úr Egyptalandi héldu flóttamennirnir
heimleiðis. Mynd þessi er tekin á járnbrautarstöð í Kairo á dögun-
um, er Arabar búsettir á Gaza, eru að lialda aftur til heimkynn-
anna.
Tveir gangandi umhverfis jörðu
London, 11. marz:
TVEIR UNGIR Englendingar, sem leiðir eru orðrtir á tilbreyt-
ingarleysi hins daglega lífs, lögðu upp frá Englandi í dag —
í gönguför umhverfis hnöttinn. Eru þeir 18 og 23 ára að aldri.
Egyptar krefjast óskertra
yfirráða á Gaza
ísrael heitir á S. Þ.
að duga vel
ÚtgÖngubann á Gaza
í nótt
Kairo, London og New York, 11. marz
Einkaskeyti frá Reuter:
KAIRO-ÚTVARPIÐ birti í dag þá yfirlýsingu egypzku stjómap-
innar, að Gaza-ræman skyldi þegar í stað falla undir stjóru
Egypta og hefðu þeir skipað horgaralegan héraðsstjóra á Gaza.
Sagði í tilkynningunni, að Egyptar hefðu samþykkt dvöi herliðs
S.Þ. í landi þeirra — einungis til þess að binda endi á vopnavið-
skipti og til þess að hafa eftirlit með því að erlendir herir hyrfu
úr landinu. Nú væri síðasti erlendi hermaðurinn á brott — og
skyldu Egyptar þá fá stjórnina í sínar hendur. Einnig skýrði
útvarpið frá því, að egypzka stjórnin hefði sent Dag Hammar-
skjöld mótmælti vegna framfcrðis hermanna S.Þ. á Gaza-ræmunni.
Sakaði stjórnin þá um að hafa skotið á óbreytta borgara þar.
Búast þeir við að verða 10 ár
£ förinni. Er þeir stíga af Erm-
arsundsferjunni munu þeir halda
suður Frakkland, — um Spán,
Portúgal, ftalíu og önnur Evrópu
lönd. Síðan verður ferðinni hald-
ið áfram austur á bóginn. Þegar
land þrýtur munu þeir fara með
t GÆRKVÖDI hófst enn
sáttafundur í sjómanna-
deilunni. Klukkan 10 boðaði
sáttasemjari samninganefndir
á fund sinn í Alþingishúsinu.
Á þessum fundi, sem stóð enn
yfir er blaðið fór í prentun,
lagði Torfi Hjartarson sátta-
semjari fram sáttatillögu. —
Ekki vildi sáttasemjari ræða
efni hennar við blaðið, en
kvað hér um að ræða fyrstu
heildar-sáttatillögu sína til
lausnar deilunni frá því hún
hófst.
Deiluaðilar sátu á fundum um
þessa miðlunartillögu er blaðið
hafði síðast fréttir úr Alþingis-
húsinu.
1 gær stöðvuðust enn tvö skip,
Katla og Dísarfell, sem bæði
KAIRO, 11. marz: — Tilkynnt
hefur verið í Kairo, að eg-
ypzka stjórnin hafi gefið
Wheeler, yflrmannl liðsafla
S.Þ., sem annazt hefur hreins-
un Súez-skurðarins, leyfi til
þess að ljúka hreinsuninni.
skipi til Ástralíu, en ekki er vit-
að hvort þeir hyggjast fara yfir
hana þvera. Ekki virðast þeir
ætla að fara sérlega hratt yfir
landið, því að við brottförina
kváðust þeir mundu verða í Róm
árið 1960 — og fylgjast þar með
Olympíuleikunum.
komu að utan. Um síðustu helgi
stöðvaðist Brúarfoss.
Vinna hefur verið stopul mjög
hjá hafnarverkamönnum undan-
farið. Nokkrir voru í gær við
vinnu í Brúaríessi við vörulos-
un og í dag verður byrjað að
losa Kötlu og Dísarfell og banda-
rískt herflutningaskip.
ÞJÓÐVILJINN skýrði loks á
sunnudaginn frá heimkomu Ein-
ars Olgeirssonar, enda tók hann
sæti sitt sem forseti neðri deild-
ar Alþingis í gær. Hafði hann
þó kosnið til landsins þegar að-
faranótt sl. fimmtudags.
Einar segir svo frá ferðum sín-
um:
„Frá Helsinki fór ég síðan til
Berlínar og Leipzig um Kaup-
Olíon byrjuð
að renna
BAGDAD 11. marz. — Það var
tilkynnt í Bagdad í dag, að síð-
degis í dag hafi verið byrjað að
dæla olíu um olíuleiðslurnar, sem
liggja frá Kirkuk í Norðaustur-
Iraq til Miðjarðarhafsins — um
Sýrland. Ekki hefur verið dælt
olíu um þessar leiðslur síðan
Bretar og Frakkar gengu á land
i Egyptalandi á fyrra ári, þareð
Sýrlendingar sprengdu dælustöðv
arnar við Miðjarðarhafið þá í loft
upp.
Leigubíll bremnir
HAFNARFJARÐARLÖGREGL-
AN hefur nú til rannsóknar
eldsvoða sem varð í leigubíl frá
Reykjavík á föstudagskvöldið. Er
hér um að ræða nýlegan bíl,
R-509. Kom upp eldur í bílnum
á Suðurnesjavegi fyrir sunnan
Hafnarfjörð. Eyðilagðist bílinn
þar eða allt sem brunnið gat í
þílnum varð eldinum að bráð.
Fiytur 162
farþega
BALTIMORE, Maryland, 11.
marz: — Fyrsta bandaríska
þrýstiioftsfarþegaflugvélin,
Boeing 707, flaug í dag í ein-
um áfanga frá Seattle á vest-
urströnd Bandaríkjanna til
Baltimore á vesturströndinni.
Var flugtíminn 3 stundir 52
mínútur, eða meira en tvisvar
sinnum skemmri tíma en flug-
vélar þær, sem nú eru aðal-
lega notaðar í farþegaflugi
fljúga sömu leið. Áhöfnin var
skipuð þrem flugmönnum og
þrem flugþernum. Auk þess
voru í flugvélinni 32 frétta-
menn og 12 fulltrúar frá flug-
vélaverksmiðjunni.
Boeing 707 kostar um það
bil 5>4 milljón dollara — og
hún getur flutt 120 farþega,
ef aðbúnaður er sá, sem gerðar
eru kröfur til á „fyrsta far-
rými“, en 162 farþega, ef mið-
að er við „ferðamanna flutn-
inga“ (tourist class). — Reuter.
mannahöfn. Hafði utanríkisverzl
unarráðherra þýzka lýðveldis-
ins, Heinrich Rau, boðið mér að
vera viðstaddur opnun vörusýn-
ingarinnar miklu í Leipzig------
Ekki minnist Einar Olgeirsson
einu orði á frásagnir samstarfs-
blaða hans, Tímans og Alþýðu-
blaðsins, um hina nýju „friðar-
sókn“ Rússa og þátt Einars í
henni.
ÓSANNINDI, SEGIR HER-
STJÓRNIN
Herstjórn S.Þ. hefur birt yfir-
lýsingu vegna þessara ásakana —
og segir þar, að hér sé um ósann-
indi að ræða. Hermenn úr liði S.
Þ. hefðu í gær tvístrað hópgöngu
Araba, sem létu í ljós ýmiss kon-
ar vanvirðingu á hermönnum S.
Þ. Hefðu hermennirnir skotið yfir
höfuð Arabanna, en enginn hefði
særzt. Var einnig bent á það i
orðsendingunni, að borgaraleg
yfirvöld staðarins svo og almenn-
ir borgarar hefðu sýnt hermönn-
um S.Þ. samvinnuvilja til þess
að tvistra hópgöngiunni og firra
vandræðum.
NÚ VERÐA S.Þ. A® DUGA VEL
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
is ísraels lét svo um mælt í
dag, að nú væri komið til kasta
S.Þ. að sýna hvers þær væru
megnugar. ísraelsmenn hefðu
horfið frá Gaza í þeirri trú,
að S.Þ. mundu taka að sér
stjórn þar. Nú væri ábyrgðin
á herðum S.Þ.
★
Kvað talsmaðurinn Egypta
vera aftur byrjaða á víkinga-
herferðum símim inn fyrir
landamæri ísraels. Sagði hann
og, að Egyptar væru nú byrj-
Þjóðviljinn þegir einnig alveg
um varnarmálin í gær, en Tíminn
segir aftur á móti frá á þessa leið:
„Það heyrist nú að með vor-
dögunum hefjist allmiklar fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli“.
Hin óvenjulega þögn Einars
fyrst eftir heimkomuna og varúð
hans í viðtalinu við Þjóðviljann
bendir mjög til að honum þyki
hyggilegra að fara varlega í frið-
arsókninni í fyrstu, einkum eftir
að Tíminn og Alþýðublaðið eru
búin að ljóstra upp, hvað til stóð.
Eins þykir að sjálfsögðu betra að
hafa ekki stór orð um brottrekst-
ur hersins alveg sama daginn
og málgagn forsætisráðherra til-
kynnir, að allmiklar framkvæmd
ir séu enn á ný að hefjast á hans
vegum.
aðir að efna til óeirða á Gaza
í þeim tilgaugi að flæma her
S.Þ. í burtu, en Egyptar yrðu
að taka afleiðingunum af þess
um verkum. Neyddu þeir Ar-
aba á Gaza til þess að taka
þátt í óeirðum þessum og hót-
uðu þeim öllu illu, sem ekki
væru fúsir til þess að þjóna
duttlungum Egypta.
★ ALLT MEÐ KYRRU
I AÐALSTÖÐVUNUM
Frá aðalstöðvum S.Þ. í New
York herma fregnir, að Hammar-
skjöld hafi enn ekki borizt nein
mótmælaorðsending frá egypzku
stjórninni. Segir og, að Hammar-
skjöld hafi í dag setið löngum
á fundum með sjö manna ráð-
gjafarnefnd sinni. Segir og, að
það hafi verið mestmegnis ung-
lingar, er tóku þátt í mótmæla-
göngunni í Gaza í gær, en deildir
úr danska og norska herliðinu
hafi tvístrað hópnum.
Fregnir hafa borizt út þess
efnis, að herdeild Júgóslava í
herliði S.Þ. hafi í gær neitað að
hlýða fyrirskipunum yfirher
stjórnarinnar. Bæði yfirherstjórn
in og utanríkisráðuneytið júgó-
slavneska hafa neitað fregnum
þessum.
ÚTGÖNGUBANN
★ Síðari fregnir herma, að
herstjórn S.Þ. hafi ákveðið, að
útgöngubann skyldi ríkja á
öllu Gaza-svæðinu í nótt.
★
f gærkvöldi hafði lítið frétzt
um viðbrögð stjórnmálamanna á
Vesturlöndum við kröfu Egypta
um að fá stjórn Gaza í sínar
hendur.Lodge, aðalfulltrúi Banda
ríkjanna hjá S.Þ. mun hafa stefnt
Hammarskjöld til fundar við sig
í kvöld. Ekkert hafa stjórnmála-
menn í London viljað láta uppi
um afstöðu sína, en Mollet, for-
sætisráðh. Frakka, sagði í sjón-
varpsræðu, nokkrum stundum
eftir að tilkynning Egypta hafði
borizt út,
að Bandaríkjamenn mundu ef
til vili fara að skilja hvers
vegna Frakkar hefðu verið
andvígir Nasser. — Stefna
Frakka væri enn óbreytt —
og mundi frekar harðna eftir
þcssa atburði en hitt.
M ibturLartillaga
EINAR OLGEIRSSON ÞEGIR
UM FRIÐARSÓKNINA
Timinn tilkynnir allmiklar
framkvæmdir á Keflavikurflugvelli