Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 16
16 MORCVNBLAÐIÐ ÞriðjudagUr 12. marz 1957 GULA lllll herhergiÓ eftii MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 73 myrt í þorpinu Bayside, hér í landinu. — Ekki einungis var hún myrt meí þungu höfuðhöggi, heldur var einnig gerð tilraun til að eyða líki hennar. Munir hennar voru hafðir á burt, til þess að leyna því, hver hún væri, og eldfimum vökva var hellt yfir hana og síðan kveikt í. Hann rakti nú hin ýmsu smáatr iði, hvernig líkið hafði fundizt, hvernig mistekizt hafði að finna fatnaðinn, og svo k>ks, hvernig hún hafði þekkzt. — Ung kona, varla þrítug, og að því er vér bezt vitum án aðstandenda að undan- teknum einum syni, sem var fædd ur nokkru áður. — Þessi kona kom frá Los Angeles, þar sem hún hafði af- hent hjónum nokkrum barn sitt, með ættleiðslu fyrir augum, skömmu eftir að það fæddist. Hún hafði heimsótt þetta barn sitt öðru hverju, en það er nú tveggja ára gamalt, og við höfum vitnis- burð fósturmóður þess um það, að síðast er hún var þar á ferð, hafi hún verið í ágætu skapi. — En svo kemur hún til þessa ríkis vors, og til sumarbústaðar að nafni Crestview og er myrt þar. Hann gerðist langorður um stærðina á sumarbústaðnum, sem hefði svo mörg herbergi, að þau yrðu að hafa hvert sitt nafn, að henni hefði verið vísað af ráðskon unni á herbergið, sem kallað væri „gula herbergi*" og þar hafði hún hafzt við til dauðastundar sinnar. — Vér vitum, hvað hún sagði ráðskonunni, til þess að henni yrði hleypt inn í húsið. Hún sagði henni, að hún væri gift og hverj- um, og síðar munum vér leggja fram giftingarvottorðið, sem UTVARPIÐ Þriðjudagur 12. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 18,00 Útvarpssaga barnanna: — „Steini í Ásdal“ eftir Jón Björns son; III. (Kristján Gunnarsson yfirkennari). 18,30 Þjóðlög frá ýmsum löndum. — 19,10 Þingfrétt ir. 20,30 Erindi: Frá Filippseyj- um; síðara erindi (Magnús Finn- bogason menntaskólakennari). — 21,00 Frá sjónarhól tónlistar- manna: Baldur Andrésson kand. theol. talar um Schubert. — 21,45 Islenzkt mál (Ásgeir Bl. Magnús- son kand. mag.). 22,10 Passíusálm ■ur (20). 22,20 „Þriðjudagsþáttur- inn“. — Jónas Jónasson og Hauk- ur Morthens hafa stjóm þáttar- ins á hendi. 23,20 Dagskrárlok. Miðvikudagur 13. marz: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 Við vinnuna: Tónleik ar af plötum. 18,00 Ingibjörg Þor- bergs leikur á grammófón fyrir unga hlustenaur. 18,30 Bridge- þáttur (Eiríkur Baldvinsson). 18,45 Fiskimál: Ásgrímur Bjöms- son fulltrúi talar um björgunar- og öryggistæki fyrir sjófarendur. 19,00 Óperulög. 19,10 Þingfréttir. Tónleikar. 20,25 Daglegt mál (Amór Sigurjónsson ritstjóri). 20,30 Föstumessa í Laugames- kirkju (Prestur: Séra Garðar Svavarsson. Organleikari: Krist- inn Ingvarsson). 21,35 Lesfur- fomrita: Grettis saga; XVII. — sögulok (Einar Ól. Sveinsson prófessor). 22,10 Passíusálmur (21). 22,20 „Lögin okkar“. — Högni Torfason fréttamaður fer með hljóðnemann í óskalagaleit. 23,20 Dagskrárlok. fannst ásamt öðrum munum henn- ar, fyrir skarpskyggni lögreglu- stjórans á staðnum, Samúels Floyd. — Svo illa vildi til, að téð ráðs- kona, Lucy Norton að nafni, er síðan dáin, með atvikum, sem ég mun ekki mælast til, að þér athug ið í þessu sambandi. En þér mun- uð sjá, að tilraunii voru gerðar til þess að eyða ekki einungis líki þessarar ógæfusömu konu, heldur og munum hennar. — Samt sem áður höfum vér ýmsar upplýsingar, sem benda í ákveðna átt, hvað snertir höfund þessa viðbjóðslega glæps. Þessar staðreyndir verða lagðar fram fyrir yður af hinum ýmsu vitn- um, og að þeim heyrðum er það yðar að ákvarða, hvort þér teljið ákærða sekan eða ekki. — Eigum vér að hefja vitna- leiðsluna, herra formaður? Carol var fyrsta vitnið. Hún hafði oiðið að troðast gegnum mannþröngina, en bar höfuðið hátt, og skipti sér ekkert af ljós- myndurunum, sem smelltu á hana myndum, en er hún sá kviðdóm- inn, fannst henni hún vera komin fram fyrir rannsóknarrétt á mið- öldunum. Þegar hún settist niður, fann hún, að allir þessir menn voru henni f jandsamlegir, að hún var í þeirra augum ekki annað en ríkur iðjuleysingi, sem lifði á sveita annarra. Engu að síður sagði hún sögu sína skilmerkilega, hvernig hún kom að húsinu lokuðu og Lucy var hvergi nærri, svo og um hinn óhugnanlega fund Fredu — sem nú væri horfin og komin í vist einhvers staðar annars stað- ar — og svo hvernig hún sjálf hefði séð líkið sem snöggvast. Henni var sýndur beyglaði, hvíti hatturinn, sviðna loðtreyjan, inniskór og rifrildi af rauðum innikjól. En hún neitaði að kann- ast við þá og bar það, að hún hefði ekki séð þessar flíkur fýrr eða síðar og alls ekki á líkinu. Ég sá ekkert annað, en að þarna lá dauð manneskja. Þegar hún losnaði, létti henni. Er hún kom út, hitti hún Starr, blaðamanninn unga, sem stóð þar hjá gamla bílskrjóðnum sínum, með sama vingjarnlega brosið yf- ir allt andlitið. Hvernig væri að fá sér ofur- litla hressingu? sagði hann. — Þér skuluð umfram allt ekki gera yður rellu út úr þessum forngrip- um þama inni. Þetta er ekki nema frumpróf. — Þeir litu allir á mig eins og þeir hötuðu mig. — Engin furða! Ekki myndi ég trúa neinum þeirra fyrir yður í myrkri! Nei, þetta var ekkert hat- ur! Hann fór með hana inn í litla krá og bað um konjak. Sjálfur fékk hann sér bjór, og þegar þau höfðu komið sér fyrir, sá hann, að andlit hennar hafði fengið eðli- legan lit. Þegar honum virtist hún alveg hafa jafnað sig, laut hann fram, Iaumulegur á svip. — Ég er í hálfgerðri klípu sjálfur, sagði hann. — Hef ekki ráðið það við mig enn, hvort ég á að tala eða þegja. Skiljið þér, ég var staddur við húsið yðar, eftir að þeir fóru með frú Hilliard á spítalann. — Hvemig getið þér komizt í klípu fyrir það? — Jú, sjáið þér til, sagði hann og lækkaði röddina. Ég hafði verið að flækjast í borginni allan dag- inn. Frú Norton hafði fundizt dauð, og þetta var yfirleitt allt saman heldur tortryggilegt. Lá á gólfinu, fótbrotin og allt það. En svo þegar ég var að leggja af stað heim um klukkan eitt um nótt- ina, sá ég sjúkravagninn koma út af brautinni heim til yðar og ann- an bil á eftir honum. Þetta fannst mér grunsamlegt, svo að ég skildi bílinn eftir og gekk upp að hús- inu yðar. — Ég var bara svona að snuðra, skiljið þér. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu, en ég hef alltaf hálf-gaman af rigningu. Og það lá stigi upp að glugganum á þessu gula herbergi, sem þið kallið svo. Vitanlega átti ég ekkert er- indi þangað, en þér vitið víst hvað ég fann. Einhver hafði verið þarna á undan mér. Líklega hefði ég átt að tilkynna lögreglunni það . . ég veit ekki. Ég var næstum búinn að segja Dane það, en hef víst ekki haft hugrekki, þegar til kom. Ég er alltaf hræddur við þann náunga. — Það er engin ástæða til þess. Hann er mjög vingjarnlegur. Hann glápti á hana. — Vin- gjamlegur, þó, þó! Ekki vildi ég eiga að mæta honum — ég segi ekki annað en það. Hann var í ríkislögreglunni fyrir stríð. Ég hef með eigin augum séð hann drepa mann. Carol greip andann á lofti. — Hvers konar mann? spurði hún vandræðalega. — Það var stórglæpamaður þar í borginni. Þér skuluð ekki vera að súta það. Hann átti það fylli- lega skilið. En ég býst við, að Dane hafi verið í leyniþjónustunni síðan stríðið byrjaði. Og þar fá þessir karlar nú heldur betur æf- inguna. Ég var að geta mér til, að hann hefði drepið þessa stúlku- kind. Að hún hefði verið njósnari eða þess háttar. En það kemur nú ekki til mála héðan af. Starr sá, að þessi nýja mynd af Dane hafði gert stúlkuna eitt- hvað óróa, svo að hann sneri sér aftur að gula herberginu. Hafði lögreglan tekið eftir lausa gólf- MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 Hinar margeftirspurðu Flauelesbuxur Frá HERKÚLES komnar aftur. — Stærðir frá 1—12 ára — Rauðar, grænar, brúnar, gráar, bláar. — Sama lága verðið frá kr. 98.00 — V./w Austurstræti 12 — sími 1181 Oregonpine-úfihurðir fyrirliggjandi í mismunandi stærðum og gerðum. Hú'sgögn & Innréttingar Ármúli 20 — Sími 5875. Blý óskast til kaups. * Nótaverkslœði Jóns Císlasonar Hafnarfirði — sími 9165. RUSIIMtjR Nýkomnar EGGERT KRISTJÁNSSON & Co. hí. MARKÚS Eftir Ed Dodd Andy pulls W1TH ALL HIS MASSIVE POWER, BUT LUCEEE’S TEAM HAD TOO MUCH LEAD V I And the bis woodsman WINS OVER MALOTTE ' A SLEO LENSTH inm 1) — Það virðist sem Láki ætli að sigra Jonna. — Flýttu þér Jonni. 2) — ú verður að vinna, Jonni Ég má ekki missa Anda. 3) — Andi tekur á af öllum kröftum, en Láki er of langt á undan. Hann fer yfir línuna sleða lengd á undan Jonna og sigrar þar meo.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.