Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 12
1: MORCVTSBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. marz 1957 Dr. Sigurður Sigurðsson um Hei/suverndarstöðina: Forysfustarí Líknar um heilsu- vernd mun ekki gleymast Hér birtist síðari hluti ræffu dr. Sigurðar Sigurðssonar, sem hann flutti við vígsluat- höfn Heilsuverndarstöðvar- innar 2. þ.m. I>EGAR saga þessarar hyggingar er rakin og starfsemi þeirri, sem hér fer fram, er lýst getur eigi hjá því farið, að hugur þeirra, sem vel þekkja til hér og hafa tekið þátt í heilsuverndarstarfi undanfarinna ára, reiki rúm 40 ár aftur í tímann. Hann staðnæm ist við árið 1915. í júnímánuði það ár, beitti frú Christophine Bjarnhéðinsson sér fyrir stofnun „Hj úkrunarfélagsins Líknar“ hér í bænum. Var markmið þess, að annast hjúkrun sjúkra í heima- húsum, en á slíkri hjúkrun var þá mikil nauðsyn og að efla al- menna heilsuvernd. Réði félagið til sín lærða danska hjúkrunar- Christophine Bjarnliéðinsson. staklega nota þetta tækifæri til þess að flytja öllum þeim, sem að félaginu stóðu alúðar þakkir fyrir hið óeigingjarna og mikla brautryðjendastarf og veit að ég mæli þar fyrir munn bæjarbúa allra. Ef einhver nú spyr, hver sé ár- angur þess starfs sem hér er og hefur verið unnið, þá getur orð- ið örðugt um svar. Tæplega hef- ur þó heilbrigði þjóðarinnar nokkru sinni staðið fastari fót- um enn í dag. Það er ekki vitað til þess, að manndauði hafi verið lægri hér á landi áður eða meðal aldurinn lengri. Barnadauði er með því lægsta sem þekkist. Á tiltölulega fáum árum hefur svo til tekizt að útrýma sjúkdómum sem holdsveiki, sullaveiki, tauga- veiki og barnaveiki. Berkladauði er um það bil 1/100 af því, sem konu og hóf hún þegar starf sitt.. spor hans á því sviði víðar, og hann var fyrir 25 árum. En svo Félagsgjöld og framlög frá ýms- eru jafnvel dýpri. Á ég þar við j margt er það í fari þjóðarinnar, um bæjarbúum báru uppi kostn að af starfinu. Brátt kom í ljós, að uggvæn- legur fjöldi berklasjúklinga lá og þjáðist í heimahúsum, þar sem tilfinnanlegur skortur var á sjúkrarúmum í eina heilsuhæli landsins að Vífilsstöðum. Ákvað „Hjúkrunarfélagið Líkn“ þá að koma hér á fót, „Hjálparstöð fyr- ir berklaveika" að erlendri fyrir- mynd. Tók stöðin til starfa 4. marz 1919 og var Oddný Guð- mundsdóttir ráðin hjúkrunar- kona við stöðina. Hafði hún áð- ur kynnt sér nokkuð heilsuvernd erlendis og er því tvímælalaust fyrsta starfandi heilsuverndar- hjúkrunarkona landsins. Stöðin leitaðist við að hafa eftirlit með berklaveikum heimilum í bæn- um og aðstoðaði þau með ýmsu móti. Læknir stöðvarinnar var Sigurður Magnússon, yfirlæknir á Vifilsstaðahæli fram til 1. júlí 1927 er Magnús Pétursson, bæj- arlæknir og síðar héraðslæknir hér tók við læknisstarfinu. Hef- ur hann ávallt síðan eða nú um nærfellt 30 ára skeið gegnt þessu læknisstarfi, — fyrst við Hjálp- arstöðina og síðar við Heilsu- verndarstöðina. Sama ár, 1927, kom félagið á fót „Ungbama- vemd Líknar" Katrín Thorodd- sen var ráðin læknir þar og hef- ur einnig ávallt veitt Ungbarna- vemdinni forstöðu síðan. Sem hjúkrunarkona var ráðin þangað Bjarney Samúelsdóttir, en hún hafði þá þegar starfað hjá hjúkrunarfélaginu um 5 ára skeið við bæjarhjúkrun. Frá 1937 hefur hún starfað við berkla- vamastöðina. Munu þeir vera Orðnir margir í þessum bæ, sem notið hafa umönnunar hennar á einn eða annan hátt. Eins og að likum lætur átti fé- lagið oft í örðugleikum með starf sitt. Hér var um eins lconar einka framtak að ræða, sem í fyrstu naut lítilla opinberra styrkja. Má t.d. geta þess, að allan þann tíma, sem Sigurður Magnússon, yfir- læknir, gegndi iækmsstörfum hjá félaginu, gerði hann það án þess að þiggja nokkur laun fyrir starf sitt. Og er Magnúsi Péturssyni var árið 1931, boðin þóknun fyrir störf sín, en hann hafði þá unn- ið fyrir Hjálparstöðina í 4 ár, mæltist hann til þess, að þeirri upphæð yrði varið til að röntgen rannsaka sjúklinga þá, er til stöðvarinnar leituðu. Vann því læknirinn kauplaust áfram til ársins 1936, að þessu var breytt. Þessi ákvörðun læknisins, að nota um árabil þóknun þá, er honum bar, til þess að röntgen- mynda sjúklinga stöðvarinnar, en sú rannsókn var þá fremur fá- tíð, ber ljósastan vott um skiln- ing þessa manns á starfi sínu og jafnframt þekkingu þá er hann bjó yfir og notaði nú í baráttunni við berklaveikina. Enda liggja Sigríður Magnúsdóttir Minningarorð þátt hans í setningu berklalag-1 sem á undanförnum áratugum anna frá 1921. En það er önnur | hefur breytzt til hins betra að saga, sem eigi verður rakin hér.. ekkert eitt atriði verður numið Árið 1931 lét frú Bjarnhéðins- út úr og þakkað allt það, sem fær son af formannsstörfum í félag- inu sökum vanheilsu. Hafði hún þá um 16 ára skeið eigi aðeins veitt þessu félagi forstöðu, held- ur barizt með oddi og egg fyrir viðgangi þess. Er framsýni þess- arar konu að ýmsu leyti óvenju- leg, því starfsemi sú er hún tók hér upp var einmitt um það leyti að byrja að ryðja sér til rúms í ýmsum nágrannalöndum vorum. Við formannsstörfum félagsins tók frú Sigríður Eiríksdóttir. Hafði hún ráðizt til hjúkrunar- félagsins sem hjúkrunarkona ár- ið 1922. Undur forustu hennar og samstarfskvenna hennar í stjórn félagsins, hefur starfsemi þessi aukizt og eflzt og stöðugt átt vax- andi vinsældum að fagna. Enda er alþjóð kunnur áhugi og eld- móður frú Sigríðar fyrir heil- brigðismálum og bættri og auk- inni heilsuvemd. Er samræmdar aðgerðir hefj- ast í berklavörnum þessa lands eftir stofnun berltlayfirlæknis- embættisins árið 1935, aukast jafnframt opinber fjárframlög til heilsuverndarstarfsemi hjúkrun- arfélagsins Líknar. Berklayfir- læknir tekur að sér yfirumsjón stöðvarinnar. Röntgentæki eru útveguð til berklavamastöðvar- innar og loftbrjóstaðgerðir hefj- ast þar á berklasjúklingum. Dr. med. Óli Hjaltested er ráðinn fast ur aðstoðarlæknir við berkla- varnastöðina árið 1939, og verð- ur yfirlæknir þar 10 ámm síðar. Ungbarnaeftirlitið er mikið auk- ið árið 1941 og Kristbjörn Tryggvason byrjar að starfa við það ásamt frk. K. Thoroddsen, og árið 1943 er Pétur Jakobsson ráð- inn til að veita mæðravemd fé- lagsins forstöðu, en það hafði áð- ur Katrín Thoroddsen gert. Þetta er stutt saga ötuls og fórnfúss baráttu- og brautryðj- andastarfs, sem er beint að á- kveðnu settu marki. Þetta for- ystustarf Hjúkrunarfélagsins Líknar í heilsuvernd þessa lands mun eigi liggja gleymt og grafið hjá garði. í byrjun var starfið örðugt en -eftir þvi sem á leið varð ávallt léttara undan fæti. Þannig má heita, að síðustu tvo áratugi hafi félagið fengið frá opinberum aðiljum (bæjarfélagi, ríki og sjúkrasamlagi) nærfellt öll þau fjárframlög, sem það fór fram á, enda starfsemin á þessum ámm rekin nær eingöngu fyrir opinbert fé. En alla tíð varð stofn unin að búa við mjög örðugan og þröngan húsakost. Þann . 17. jan. s.l. kom stjórn Hjúkrunarfélags- ins saman til síns síðasta fundar. Félagið var leyst upp. Það hafði séð öll hugsjónamál sín rætast og taldi nú eigi lengur þörf á að halda félaginu áfram. Ég vil sér- ist í betra horf. Bætt eldi þjóðar- innar, betri híbýlakostur, hent- ugur klæðaburður og aukið fé- lagslegt öryggi eru allt þættir sem örðugt er að meta hvern fyr ir sig. Og er við þetta bætist ná- kvæm heilbrigðislöggjöf sem er samræmd starfi vel kunnandi læknastéttar þá verður dæmið svo flókið að eitt atriði verður ekki greint frá öðru. Ég hygg þó að allir geti verið sammála um að mjög mikið hefur áunnizt á til- tölulega skömmum tíma. En enn- þá eru þó næg verkefni að vinna. Enn deyja menn á unga aldri af slysförum og miðaldra menn úr hjarta- og æðasjúkdómum á- samt krabbameini. Hví ekki að beina geiri sínum þangað næst svó verkefni þarf eigi að skorta. Frá fyrstu tíð mannkynsins hefir heilt og farsælt líf án sjúk- dóma og losta verið talið meðal þess eftirsóknarverðasta og bezta, er hverjum einstaklingi má hlotn ast. Stofnun sú, sem í dag er form- lega fengin í hendur íbúum þessa bæjarfélags á öðrum stofnunum fremur að stuðla að því, að viðhalda ®g efla andlega og líkamlega heilbrigði meðal þeirra og koma í veg fyrir sjúkdóma. Hún á að auðvelda starf þeirra, sem að heilsuvernd vinna og gera mögulegt að ná til fleiri greina heilsuverndarstarfsins en hingað til hefur verið gert. Ég trúi því og treysti, að ýms- SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR var fædd 24. júlí 1863 að Berja- nesi í Landeyjum. Foreldrar henn ar voru Magnús Jónsson bóndi þar og Margrét Guðmundsdóttir, kona hans. Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum, þar til hún var rúmlega tvítug, en þá fluttist hún til Vestmannaeyja og dvaldist þar um nokkurra ára skeið. Árið 1894 giftist Sigriður Júlíusi Guð- mundssyni úr Vestmannaeyjum og fluttust þau um það leyti til Seyðisf jarðar og stofnuðu bú þar. Bjuggu þau síðan á Seyðisfirði um rúml. þrjátíu ára skeið og stundaði Júlíus heitinn sjó- mennsku lengst af. Þeim Sigríði og Júlíusi varð átta barna auð- ið, en fjögur þeirra dóu í æsku, og tvo fullorðna syni misstu þau. Eru nú aöeins á lífi dætur þeirra tvær, Elísabet, búsett í Kópavogi og Dagný, búsett að Bjarkar- götu 12, Reykjavík. Mann sinn missti Sigríður fyrir sex árum. Árið 1925 brugðu þau Sigríður og Júlíus búi á Seyðisfirði og fluttust til Reykjavíkur ásamt dóttur sinni, Dagnýjii. Hóf Dag- ný brátt að reka matsölu hér í bænum og hefur gert það lengst af síðan. Dvöldust þau Sigríður og Júlíus bæði á hinu rausnarlega heimili hennar til síðasta dags. Sigríður lézt að Bjarkargötu 12 mánudaginn 4. marz s.l., þá kom- in hátt á 94. aldurár. Eg, sem þetta rita, er hvorki meira né minna en sjötíu árum yngri en Sigríður heitin og sá hana fyrsta sinn, þegar hún var orðin háöldruð. Það kam, því mörgum að finnast kynlegt, að eg skuli ætla að minnast svo aldraðrar konu, en við unga fólk- ið, sem vorum svo lánsöm að njóta nokkurra samvista við Sigríði síð- ustu árin sem hún lifði, getum ekki látið það hjá líða að senda þessari gömlu vinkonu okkar örlitla kveðju um leið og hún kveður okkur hinzta sinni. Það var oft glatt á hjalla við matborðið í Bjarkargötu 12, mik- ið spjallað og hlegið, eins og ungu fólki er títt — og góður matur borðaður með mikilli lyst. Þegar leið að lokum hverrar m'áltíðar og sumir voru kannski farnir að stynja af vellíðan, þá var jafn- an eitt eftir sem aldrei brást. Það var það, að „amma“ kom 1 dyrn- ar með kaffikönnuna í hendinni, létt á fæti og glöð í bragði eins og venjulega og sagði sem svo, að ekki hefði hún nú alveg ætlað að svíkja okkur um blessaðan sopann. Sigríður heitin var alveg ein- stök af svo gamalli manneskju að vera. Hún hafði fulla heyrn fram á síðustu stund, gat lesið blöð gleraugnalaust til níræðisaldurs, og svo glaðvær og skemmtileg var hún ávallt, að það vakti aðdáun okkar unga fólksins. Sögðum við stundum hvert við annað, að við þyrftum ekki að kvíða ellinni, ef við yrðum eins léttlynd og hún „amma“. Við áttum oft erfitt með að átta okkur á, hve hún var í rauninni orðin afskaplega gömul, einkum þegar hún var að segja okkur frá ýmsum stóratburðum úr Islandssögunni, sem hún mundi greinilega eftir, en við höfðum lært um í skólanum og okkur fannst heyra til svo löngu liðinni tíð. Hún var orðin 11 ára, þegar 1000 ára afmæli' Islands- byggður var haldið hátíðlegt, hún var svo til jafngömul Hann- esi Hafstein, ári eldri en Einar Benediktsson o. s. frv. Eg nefni þessi dæmi aðeins vegna þess, að þetta voru hlutir sem okkur ung- viðinu þótti mikið til koma. Eru þær þó ótaldar minningarnar, sem við eigum um hinar leiftr- andi frásagnir gömlu konunnar af löngu liðnum atburðum. Þær geymum við í hugum okkar svo lengi sem okkur endist aldur, og kæmi mér ekki á óvart, þótt eftir- komendum okkar þætti nokkuð til þess koma, að við hefðum þekkt konu, sem mundi þjóðhátíðina 1874. Aðalf. Trésmiðafél. haldinn á laugardag AÐALFUNDUR Trésmiðafélags Reykjavíkur var haldinn í Al- þýðuhúsin sl. laugardag.Fóru þar fram venjuleg aðalfundarstörf og lýst stjórnarkjöri. Stjórnarskipti urðu í félaginu sem kunnugt er, og er hin nýja stjórn skipuð eftirtöldum mönn- um: Guðni Árnason, formaður, Karl Þorvaldsson, varaformaður, Guðmundur Magnússon, ritari, Guðmundur Guðnason, vararit- ari, Sigmundur Sigurgeirsson, gjaldkeri. Varastjórn: Einar Ágústsson, Steinar Bjamason og Þorvaldur Karlsson. ir hættir og venjur, sem þegar hafa skapazt í heilsuverndarstarf- inu hér megi áfram fylgja hinni nýju stofnun. Á ég þar eigi að- eins við fómfúst starf lækna og annars hjúkrunarliðs, er ruddu þessu starfi braut og ágætt sam- starf vjð læknastétt landsins, heldur miklu fremur við það traust, sem íbúar þessa bæjar- félags og reyndar þjóðin öll hef- ur ávallt sýnt starfseminni. Án góðs skilnings og einlægs samstarf þeirra við læknastétt- ina og starfsliðið allt, hefði sá árgangur aldrei náðst í heilbrigð- ismálum þjóðarinnar, sem raun ber vitni um. Ef ég að lokum mætti velja kjörorð þessarar stofnunar, þá mundi ég taka þau úr sögu fyrsta lærða læknis landsins, sem kunn- ur er, Hrafns Sveinbjarnarsonar frá Eyri í Arnarfirði, er tekinn var af lífi 1213. Virðast mér þau að ýmsu leyti vera einkennandi fyrir þá heilsuverndarstarísemi, sem rekin hefur verið undir um sjá Hjúkrunarfélagsins Liknar, og lýst hefur verið hér að fram- an. í sögu Hrafns segir svo: „Til einskis var honum svo títt, hvorki til svefns né til matar, ef sjúkir menn kvámu á fund hans, at eigi mundi hann þeim fyrst nokkura miskunn veita, aldrei mat hann fjár lækning sína“. Að sá andi, sem felst í þessum orðum megi ávallt fylgja stofn- uninni, er ósk mín og von. Aðstandendum Sigríðar heitinn ar vottum við innilegustu hlut- tekningu okkar. Dauðinn hefur nú svipt þá ástkærri móður, ömmu og langömmu, en minning- in mun lifa í hugum þeirra um hjartahlýja, glaðlynda konu, sem var sístarfandi til hinztu stundar og lét sér annt um hvers manns hag. Að síðustu viljum við svo þakka þér, elsku Sigríður, fyrir það vega nesti, sem þá hefur fengið okkur unga fólkinu og allar þær ánægju stundir, sem við áttum með þér í Bjarkargötu 12 á síðustu árum þinnar löngu og gifturíku ævi. Megi eilíf gæfa fylgja þér yfir landamæri lífs og dauða. Guð blessi minningu þína. E. S. Skíðanámskeið á Reyðarfirði Reyðarfirði, 8. marz. — í gær kom hingað skíðakennari, Ottó Tuliníus frá Akureyri. Er hann hingað kominn á vegum Barna- skólans. Mun hann halda skíða- námskeið sem stendur yfir í eina viku. Er hann þegar byrjaður kennsluna. Mikill áhugi ríkir hér fyrir landsgöngurmi og má eflaust vænta góðrar þátttöku héðan. Fólbrotnaði á skfðum REYÐARFIRÐI, 9. marz. — Það óhapp vildi til hér um daginn, að Kristinn Þór Ingvarsson, 13 ára, fótbrotnaði er hann var að stökkva á skiðum. En svo vel vildi til, að héraðslæknirinn var staddur hér og gerði hann strax að meiðslum hans. — Amþór,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.