Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 20
Veðrið NA-stinuingskaldi. Skýjað. 59. tbl. — Þriðjudagur 12. marz 1957 Háskólafyrirlesfur Jóns Steffensen. — Sjá bls. 11. "** ... 1 1 " —» ■ —" 1 1 ■■■■' i-iiil Efri deild fellir að flytja Hús- mæðrakennaraskólann frá Reykjavík TILLAGAN TJM brottflutning Húsmæðraskólans var felld eftir^ aðra umræðu í Efri deild Alþingis í gær með 6 atkv. gegn 4, en 7 voru fjarverandi. — Miklar umræður höfðu orðið um málið í deildinni. Allstór hópur reykvískra kvenna var á þing- pöllum, þeirra á meðal Helga Sigurðardóttir skólastjóri umrædds skóla og virtust þær sigri hrósandi, er málið fékk þessa útreið. Gegn brottflutningi skólans töluðu þeir Sigurvin Einarsson, þingmaður Barðstrendinga, og Páll Zophoníasson, þingmaður Norðmýlinga, en með flutningi hans töluðu Friðjón Skarphéð- insson, þingmaður Akureyringa, og Björn Jónsson, uppbótarþing- maður. — Nánar verður skýrt frá umræðum á morgun. Fátíður atburður 22—24 ára gömui hryssa kastaði ljósrauðu mer-folaldi aðfaranótt s.l. mánudags í Lögmannshlíð. Er fátítt, að hryssur kasti á þess- um tíma. — (Íslendingur). Brug&ið hefur til þíðviðris um sunnanvert landið Bezti afladagurinn AKRANESI, 11. marz. — Laug- ardagurinn síðasti var langsam- lega bezti afladagurinn síðan bát arnir hófu vertíð. Voru 21 bátur með taltals 191 lest. Aflahæstir voru Guðmundur Þorlákur, með 15,6 lestir, Bjarni Jóhannesson með 14,7, Höfrungur með 13,5 og Sigurvon með 12,8 lestir. Er heildaraafli sama bátafjölda á föstudaginn 144 lestir. —Oddur. I EFTIR langvarandi frostkafla brá til þíðviðris í fyrrinótt við sunnanverða strönd landsins og í gær var yfirleitt frostlaust orðið um allt sunnanvert landið. Aft- ur á móti var hríðarveður um norðanvert landið með lítilshátt- ar frosti. Veðurstofan sagði í gærkvöldi, að svo væri veður tvíátta hér við land nú, að erfitt væri að segja, um hvort þíðviðri myndi ná um „Rokkið“ bjnrgor innbrotsþjófum allt land. Að minnsta kosti hér sunnanlands má búast við frost- lausu veðri og þíðviðri næstu daga. Um norðanvert landið aft- ur á móti er verra að spá, því á hafinu fyrir norðan land og vestan er mjög rík norðaustan átt, sem stafar af miklu háþrýsti svæði yfir Grænlandi. Á austur- strönd Grænlands er 12—18 stiga frost. Allmikill vattnselgur var á göt- um bæjarins í gær er leysa tók fannir og skafla: Eru götur víða í bænum mjög illa farnar, þar sem allur umferðarþunginn hef- ur legið í skorningum sem myndast hafa. FRÉTT Mbl. á laugardaginn um opnun verzlunarumboðs austur-þýzka viðskiptamála- ráðuneytisins, hefur komið mjög illa við Tímann og Al- þýðublaðið. Alþýðublaðið, málgagn ut- anríkisráðherra, segir m. a. um málið: „Hins vegar hafa íslenzk einkafyrirtæki verzlað mikið við austur-þýzk einkafyrirtæki, og liafi fulltrúar hinna þýzku fyrirtækja sett upp skrifstofu hér á landi, er það óviðkom- andi íslenzkum stjórnarvöldum með öllu.“ Hér skýtur auðsjáanlega skökku við því skrifstofan sjálf fer ekki dult með að hún er opinbérs eðlis, eins og sjá má af meðfylgjandi mynd af spjaldi því í fordyri „Blönd- alshússins44, sem minnzt er á I frétt Mbl. en löggilt þýðing á því lieiti er: V e r zluna r u mboð. Verzlunarráð utanríkis- verzlunar. Austur-þýzka alþýðulýð- veldið. En skjalaþýðandi tekur fram að nafnið sé á brenglaðri ensku. Alþbl. lætur hins vegar svo sem utanríkisráðherra hafi með öllu verið ókunnugt um stofnun þessarar erlendu stjórn arskrifstofu hér á landi. Ef blaðið telur ráðherra sínum til heiðurs að hann fylgist ekki betur með, stendur Mbl. ekki næst að taka upp vörn fyrir hann. IVióðurættingjar heimta börn til Þýzkalands En skv. ísL logum á faðir foreldrarétt yfir þeim ITILLÖGUM allsherjarnefnda Alþingis um upptöku nýrra rík- isborgara, er lagt til að tvö smábörn, fædd á íslandi fái íslenzkan ríkisborgararétt. Tilfelli þetta er mjög óvenjulegt og skýrði Björn Ólafsson það fyrir þingheimi í gær. AÐFARANÓTT Iaugardagsins var brotizt inn í Stjörnubíó, járnhurð brotin þar upp og fleiri spjöll framin. Komust þjófarnir þó aðeins yfir 300 krónur í skiptimynt. Bogi Ólafsson fyrrv. yfirkennari látinn BOGI Ólafsson, fyrrverandi, yfir- kennari við Menntaskólann í Reykjavík, andaðist að heimili sínu, í gærmorgun, 78 ára að aldri. Hann var fæddur 15. okt. 1879, að Sumarliðabæ í Holtum. Að loknum námsárum erlendis gerðist hann kennari og var frá árinu 1914 kennari við Mennta- skólann og hélt því starfi þar til hann lét af embætti fyrir aldurs sakir fyrir fáum árum. Bogi var einn af merkustu kennurum sinnar tíðar og eftir hann liggja ýmsar kennslubæk- ur í ensku, sem notaðar hafa ver- ið lengi í skólum landsins. Enn fremur gerði hann margar snilld- arlegar þýðingar erlendra önd- vegisrita. Boga Ólafssonar verður siðar getið nánar í blaðinu. Innbrot þetta gekk ekki hávaðalaust fyrir sig, þar sem þjófarnir meitluðu tvær járn- lamir sundur. Kona í næsta húsi vaknaði við lætin milli kl. 3 og 4 umrædda nótt og heyrði þau langa hríð. Hún veitti þessu þó ekki nánari athygli, þar sem hún á- leit að „rokk-óðir“ unglingar hefðu brotið stóla og bekki á kvöldsýninguni og verið væri að gera við þá. Hélt hún að sýningarnar á „Rock Around the Clock“ væru síður en svo „friðsamlegar“. Ef öðruvísi hefði staðið á, sagðist hún myndi hafa hringt í eiganda kvikmyndahússins og gert honum aðvart. En nú var það „rokkið“, sem bjarg- aði þjófunum. Ófærf um Siglu- fjarðarkaupsfað SIGLUFIRÐI, 9. marz. Undan- farið hefur verið hér versta veð- ur og hlaðið niður snjó. Er ekki hægt annað að segja en alófært sé um bæinn fyrir bíla en snjó- ýta hefur haldið opinni braut frá höfninni til frystihúsanna. Einn- ig hefur ýtan hjálpað bílum með olíu og kol til bæjarbúa. — Guðjón. Færð hefur spillzt ausfan fjalls SELJATUNGU, 11. marz. — í dag er hér slæmskuveður, hvöss norðaustanátt með fannkomu sl. nótt og fram eftir degi. Hefur snjóað allmikið ofan á gamla snjóinn, sem löngu er orðinn að harðfenni. Harðindakafli þessi er nú far- inn að verða nokkuð langur. — Hagleysi er hér víðast og færð hefur spillzt að mun. — Gunnar. Hreindýrin leita heim á bæina SEYÐISFIRÐI, 11. marz: — Svo virðist sem hart sé orðið í ári inni á hreindýraslóðum í A-öræf unum -og streyma hreindýrin það an nú, enda er þar fádæma fönn komin. Heima við Breiðavað á Mið-Héraði, þar sem Þorkell Jónasson býr, hafa að sögn hans um 20 hreindýr haldið sig heima við túnið þar og víðar munu hreindýrin hafa leitað til byggða vegna harðindanna t.d. í Skíðdal og eins fyrir norðan Lagarfljót. — B. Börn þessi eru Gunnar Deutschlander Sveinbjarnarson, fæddur hinn 21. nóv. 1953 og Þóra Sveinbjarnardóttir, fædd 5. febr. 1955. En bæði eiga þau heima að Hurðarbaki í Reykholtsdal. Högum þeirra er þannig háttað að þau eru óskilgetin börn ís- lenzks manns og þýzkrar konu, sem hér hefur dvalizt. — Fyrir nokkru dó móðir þeirra og hafa ættingjar þeirra í Þýzkalandi síðan bent á það, að börnin séu þýzkir ríkisborgarar og heimta að þau verði flutt til Þýzka- lands, enda myndi það virðast eðlilegast eftir þýzkum lögum, þar sem móðurættingjar óskilget- inna barna hafa umráðarétt þeirra. En samkvæmt íslenzku löðráða lögunum hefur faðir óskilgetins barns foreldrarétt yfir þeim, ef móðir deyr og hann vill annast barnið og ala upp. Sækir faðir barnanna nú um að þau fái ís- lenzkan ríkisborgararétt. Hátíðarfundi frestað vegna stór- hríðar í gær SIGLUFIRÐI, 11. marz: Hér hef- ur verið versta hríðarveður í dag og eru nú komnir mannhæðar- háir skaflar á götunum. Er ófærð með eindæmum hér um allan bæinn. Vegna hríðaveðursins hefur ver ið ákveðið að fresta hátíðarfundi bæjarstjórnar, sem verða átti í dag í því tilefni að bæjarstjórnin hefur haldið 1000 fundi, frá þvi Siglufjarðarbær hlaut kaupstaða réttindi. — St. 11 l.af mjöli skemmdusf af sjó í ms Oddi frá Yestmannaeyjum Skagaströnd, 11. marz: SÍÐASTLIÐINN laugardag kom m.s. Oddur frá Vestmannaeyjum hingað og losaði hér matvörur og fóðurbætir til Kaupfélags Húnvetninga. Ætlaði skipið að losa þessar vörur á Sauðárkróki en gat það ekki vegna veðurs. Bændur vilja fá 300 jeppabíla f GÆR kom Búnaðarþing sam- an til fundar. Voru lögð þar fram mörg nefndarálit og var þar samþykkt ályktun varðandi inn- flutning jeppabíla, þess efnis að skora á ríkisstjórnina' að leyfa innflutning á ekki færri en 300 jeppabílum á þessu ári. Ennfrem- ur vill búnaðarþing leggja á- herzlu á að viðskiptamálaráðhr. geri innflytjendum jeppanna að hafa jafnan fyrir hendi næga varahluti í bíla þessa. Þá er verið að fjalla um fjár- hagsáætlun fyrir Búnaðarfél. fs- lands á yfirstandandi ári og verður fundur aftur árdegis í dag. Er farið var að losa skipið, kom í ljós að neðsta sekkjaröðin, sem var fremst í lestinni hafði blotn- að af sjó. Voru samtals 11 lestir sem höfðu stórskemmst eða ónýtzt af sjó og eru þær taldar 40 þús. króna virði. Varan var öll tryggð hjá Samvinnu- tryggingum. TALSVERÐUR SJÓR f LEST Talsverður sjór var í lestinni þegar búið var að losa vöruna eða um 20—30 cm upp fyrir lest- argólfið. Ekki hafði skipstjórinn hugmynd um lekann, fyrr en far- ið var að hreyfa við vörunni. Oddur liggur hér í dag vegna veð urs, en hér er norðaustan stór- hríð, en frostlaust. —Jón. SIGLUFIRÐI, 9. marz. — Mikil þátttaka hefur verið í landsgöng- unni hér og er það fólk á aldrin- um 4—60 ára. — Guðjón.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.