Morgunblaðið - 12.03.1957, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 12. marz 1957
MORCUNBLAÐtÐ
15
réttafréttir
Frjálsíþróttamót ÍR :
Vilhjálmw stökk 1,65 m án
ntrennn — hefnr bætt tslnnds
metið nm 13 cm.
Valbjörn bætti ZO cm við
innnnhússmelið
I* ÞRÓTTAMÓTUM sem íþróttafélag Reykjavíkur efndi til í tilefni
af 50 ára afmæli félagsins sem var í gærdag, lauk á sunnudag.
Hafa þau staðið síðan sl. miðvikudag og mjög sett svip sinn á íþrótta-
lífið að vonum. Á laugardagskvöldið var innanhússmót í frjáls-
íþróttum þar sem náðist stórglæsilegur árangur, t.d. 165 í hástökki
án atrennu og 4,10 m í stangarstökki.
★ MtíSTÖKKSMETIÐ
Frjálsíþróttamótið að Háloga-
landi mun seint gleymast þeim er
á horfðu. Er það einkum vegna
afreka Vilhjálms Einarssonar í
Vilhjálmur Einarsson
atrennulausu stökkunum einkum
í hástökki, og fyrir hið frábæra
afrek Valbjörns Þorláksonar að
stökkva 4.10 m í stangastökki. En
mikil þátttaka gerði sitt til að
mótið varð svo eftirminnilegt.
Vilhjálmur Einarsson hóf sigur
göngu sína þetta kvöld með sigrx
í þrístökki án atrennu. í annarri
stökktilraun stökk hann 9,83 —
1 sentim. lengra en gamla metið
í 3. tiiraun stökk hann 9.84. Samt
virtist hann ekki ánægður. í 4.
tilraun setti hann merki á dín-
una, einbeitti sér að stökkinu
á athyglisverðan hátt, og komst
að þessu merki sínu eða 9.92 m
— 10 sm viðbót við gamla metið.
í langstökkinu sigraði Vilhj.
auðveldlega, en vantaði 2 sm á
nýsett met sitt.
Á VIB GAMLA HEIMSMETIÐ
Þá gekk hann til hástökksins.
Keppendur smáféllu úr keppninni
eftir því sem hækkað var. Yfir
1.45 fóru þrír: Vilhjálmur, Val-
björn og Stígur Herlufsen. Yfir
1,50 aðeins Vilhjálmur og Val-
björn. Eftir það var Vilhjálmur
ednn. 1.60 m reyndist honum
erfið þraut. Hann felldi tvívegis
en í 3. tilraun flaug hann hátt
yfir og sú tilraun hans var ein-
hver sú bezta sem hann átti þetta
kvöld. 1,65 fór hann í fyrstu til-
raun og átti eina ágæta tilraun
við 1,70 en hætti vegna þreytu
eftir keppni í 3 greinum. En það
verður gaman að fylgjast með
Vilhjálmi í þessari grein, þar sem
hann atrennulaus nær árangri
Keppni Voldimors Örnólfssonor
ú heimsmeistarnmóti stúdento
NÝLEGA VAR FRÁ því skýrt að Valdimar örnólfsson hefði sigrað
í svigkeppni á alþjóðlegu móti stúdenta. Þá var og tekið fram
að næsta keppni hans yrði á heimsmeistaramóti stúdenta. Því
er nú lokið og fer hér á eftir kafli úr bréfi er Valdimar skrifaði
bróður sínum.
„Svigið var fyrsta daginn, og
var ég meðal þeirra 15, er valdir
voru í fyrstu „grúppu“, en alls
voru keppendur milli 70 og 80.
Hlaut ég rásnúmer 11. Fyrri um-
ferð gekk allvel. Ég hlaut 5. bezta
tíma og var m.a. á tmdan Zilli-
biller (Þýzkal.) og Chermac
(Tékk.), sem báðir voru í Cortina
í fyrra (Chermac var þar 7. i
alpa-tvíkeppni), en á undan mér
urðu Wagenberger (Þýzkal. ,—
Var í Cortina og er nú talinn bezti
skíðamaður Þýzkalands), Hfenrich
Kurt (Tékk. — Varð 7. i bruni í
Cortina), Mohr (Tékk.) og Hell-
mut Keglovic (bezti Austurríkis-
■maðurinn á mótinu).
Munurinn á mér og fyrsta
manni var næstum 3 sekúndur
(Wb. 51,2 — ég 54,1) svo að ég
varð að spjara mig í seinni um-
ferð, ef ég ætti að komast í eitt-
hvert fremstu sætanna. Það byrj-
aði allbærilega, en í einni hár-
nálinni rak ég beygjuna á öðru
sJtíainu í eina stöngina, og hent-
ist út úr hliðinu — öfugum meg-
in — rann nokkra metra á bak-
inu og þurfti að hlaupa til baka.
Við þetta missti ég 10—15 sek.
og hafnaði í 20. sæti. Fyrstur varð
Wagenberger.
Stórsvigið var daginn eftir, en
nú var ég kominn í 2. „grúppu“
(úrslit í sviginu látin ráða) og
fékk því heldur slæmt rásnúmer,
29. Brautin grófst mikið og var
því ekki upp á það bezta, er að
mér kom, enda ákvað ég að fara
að öllu gætilega. Reyna aðeins að
komast aftur í 1. „grúppu“, með
því að verða meðal 15 fyrstu
— leggja svo allt á eitt spil í
bruninu. Árangurinn var eftir
þessu, ég varð 11. á undan mörg-
um góðum mönnum, en 7 sekúnd-
um á eftir sigurvegaranum Wag-
enberger.
Því miður fékk, ég ekki tæki-
færi til þess að reyna mig í brun-
inu, þar er það féll niður vegna
slagveðurs“.
sem velflestum reynist erfitt að
ná með atrennu. Og innanhúss
metið er hann sjálfur átti, bætti
hann um 7 sm.
Þess skal getið að heimsmetið
í þessari grein var til mjög
skamms tíma 1,67 m. En Norð-
maður einn hefur bætt það í
1,73 m. Kann að vera skammt
undan hörð keppni þessa norska
manns og Vilhjálms um metið.
Hver veit?
STANGARSTÖKK
Stankarstökkskeppnin fór nú
fyrsta sinn fram opinberlega.
Hafði ÍR látið smíða 21 m langa
færanlega atrennubraut og var
hún vígð. Reyndist hún vel. Sú
atrennulengd er % af þeirri at-
rennu sem flestir stangastökkv-
arar kjósa sér utanhúss. En þarna
flugu þeir yfir rána hver af
öðrum eins og þeir væru úti.
Heiðar Georgsson 3.90 eða jafnt
og gamla innanhússmetið var
Gu&munilur Gíslason ÍR, sem
sundmóti félagsins setii 3 Íslands-
met og 3 drengjamet.
Meistaramót í
irjúlsíþróttum
MEISTARAMÓT ÍSLANDS í
frjálsíþróttum, innanhvss, árið
1957 fer fram 24. marz n.k. í
fþróttahúsi Háskólans. Keppt
verður í eftirtöldum greinum:
Hástökki, langstökki, og þrístökki
án atrennu. Aukagreinar verða
kúluvarp og hástökk með at-
rennu. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borizt til Bjarna Linn-
et póstbox 1361 fyrir 17. marz n.k.
Valbjörn bætti það um 20 sm. . ..
Úrslit í einstökum greinum:
Þrístökk án atrennu:
1. Vilhjálmur Einarsson ÍR 9.92
Met
2. Daníel Halldórsson ÍR 9.57
3. Guðm. Valdimarss. HSS 9.09
Stangarstökk:
1. Valbjörn Þorláksson ÍR 4.10
Met
2. Heiðar Georgsson ÍR 3.90
3. Brynjar Jensson ÍR . . 3.60
4. Valgarð Sigurðsson ÍR 3,60
Langstökk án atrennu:
1. Vilhj. Einarsson ÍR .... 3.24
2. Stígur Herlufsen KR .. 3.11
3. Guðm. Valdimarss. HSS 3.06
4. Daníel Halidórsson IR 3.05
Kúluvarp:
1. Guðm. Hermannss. KR 14,81
2. Árm. J. Láruss. UMFR 14,26
3. Guðj. Guðmundss. KR 14,12
Hástökk án atrennu:
1. Vilhjálmur Einarsson ÍR 1,65
Met
2. Valbjörn Þorláksson ÍR 1,50
3. Stígur Herlufsen KR .. 1,45
Hástökk með atrennu:
1. Heiðar Georgsson ÍR .. 1,75
2. Guðj. Guðmundss. KR 1,75
3. Björgvin Hólm ÍR .... 1,75
4. Sig. Lárusson Á ..... 1,75
Hundruð manna horf ðu
á afmælisskíðamót IR
ÍR-ingar sigruBu í
Öllum greinum
AFMÆLISSKÍÐAMÓT Í.R. hófst
með keppni í stökki við Kolvið-
arhól á laugardaginn. Strekkings
vindur háði keppendunum nokk-
uð, einkum var erfitt að sýna
fallegán stíl. Úrslit urðu:
1. Eysteinn Þórðarson ÍR
(27,5 m og 29,5) 143,5 st.
2. Ólafur Níelsson KR
(26,5 og 26,5) 139,4 st.
3. Haraldur Pálsson ÍR
(26,5 og 26,0) 139,4 st.
4. Gústaf Níelsson KR
5. Svanberg Þórðarson ÍR
/ 400 m skri&sundi setti Helgi
Sigur&sson glæsilegt met, 4:49,5.
Hér sézt ver&launaafhending fyrir
sundið. Helgi í miðju, Pétur t. V.
og Magnús Guðmundsson t. h. —
Hjá þeim stendur Ólafur Logi
Jónasson, sem gaf 3 bikara til
að keppa um á mótinu. Litla bik-
ara til eignar í 400 m skriðsundi
og 100 m baksundi m fallegan
farandbikar í 100 m skriðsundi
karla.
í þriggja manna sveitakeppni
vann sveit ÍR bikar gefin af Síld
og Fisk.
SVIG KVENNA
Svig kvenna hófst við Skíða-
skálann í Hveradölum kl. 10 árd.
á sunnudag. Rómuðu keppendur
mjög braut þá er Eysteinn Þórð-
arson hafði lagt. Krafðist hún
hæfni af keppendum en.var auk
þess mjög skemmtileg yfirferðar.
Úrslit urðu:
1. Jakobína Jakobsdóttir ÍR
(25,6 sek og 25,7) 51,3
2. Karolína Guðmundsd. KR
(29,2 og 28,8) 58,0
3. Arnheiður Arnadóttir Á
(30,8 og 29,6) 60,4
TIGNIR GESTIR
Eftir hádégið dreif að fjölda
fólks m.a. forsetahjónin, borgar-
stjóra og frú, Eystein Jónsson
ráðh. og ýmsa fyrirmenn íþrótta-
hreyfingarinnar. Fylgdust þessir
gestir með svigkeppni karla er
hófst kl. 2 rétt við skálann. Var
veður gott en nokkuð kalt. Gísli
Kristjánsson hafði lagt brautina,
sem var nál. 400 m löng með
55 hliðum. Var hún erfið en
skemmtileg. Færi var gott. Braut
in grófst nokkuð er leið á keppn-
ina og var það verst þeim er
síðastir fóru, en síðastur í rás-
röð var Eysteinn Þórðarson. Hann
sigraði samt með yfirburðum. —
Úrslit urðu:
1. Eysteinn Þórðarson ÍR
(50,9 og 53,2 .... 104,1 sek
2. Ásgeir Eyjólfss. Á 107,3 sek
3. Stefán Kristjánsson
Á .............. 109,2 sek
4. Einar V. Kristjánsson
Á .............. 109,6 sek
5. Úlfar Skæringsson
ÍR.............. 114,0 sek
6. Grímur Sveinsson
ÍR.............. 121,3 sek
f sveitakeppni vann Ármann
bikar gefinn af Melabúðinni.
GANGAN
Loks var keppt í 7—8 km
göngu. Var göngubrautin 2 jafn-
stórir hringir, upphaf við Skíða-
skálann og endaði þar. Hægt var
að fylgjast með göngumönnunum
mikinn hluta leiðarinnar. — Úr-
slit urðu:
1. Haraldur Pálsson ÍR 28,56 m
2. Páll Guðbjörnss. SF 29,36 m
3. Hreinn Hermannsson
HSÞ ........ 29,39 m
4. Þorl. Sigurðss. HSÞ 30,23 m
5. Einar V. Kirstjánss.
Á .................. 31,25 m
6. Lúðvík Ásmundss.
SF ........ 31,32 m
7. Guðm. Bjarnas. ÍR 31,58 m
8. Erl. Björnsson ÍR 33,28 m
9. Jónas Hallgrímss.
SF ........ 33,43 m
f sveitakeppni vann sveit ÍR
bikar gefinn af RaftækjaverzL
fslands.
Mótið fór vel fram, byrjaði
stundvíslega og gekk vel.
Verzlunarhúsnœði
með skrifstofu og lagerplássi, er til leigu í stóru húsi sem
er í byggingu, en verður tilbúið á komandi sumri. Stærð
leiguplássins er ca. 120 ferm. Húsið er við eina mestu um-
ferðaræð bæjarins. Tilvalinn staður fyrir bifreiðavara-
hlutaverzlun. Einnig mjög ákjósanlegur staður fyri-r ný-
lenduvöruverzlun, og kjötbúð. Engar slíkar verzlanir
eru þar nálægt. Mörg bifreiðastæði eru afmörkuð fyrir
framan húsið. Mikil fyrirframgreiðsla áskilin. Tilboð
leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 14. þ.m.
merkt: „Góður verzlunarstaður — 2281“.