Morgunblaðið - 15.03.1957, Side 13

Morgunblaðið - 15.03.1957, Side 13
Föstudagur 15. marz 1957 MORGUWBL4 Ð1Ð 13 Eyjóllur Guðmundsson frá Grimslæk í DAG verður til moldar borinn Eyjólfur Guðmundsson, fyrrum bóndi að Grímslæk í Ölfusi. — Hann var fæddur 15. marz 1867 að Grímslæk og eru því í dag liðin 90 ár frá fæðingu hai)s. Foreldrar voru hjónin Guð- mundur Eyjólfsson, bóndi á Grímslæk, og Helga Pálsdóttir frá Brúnarstöðum í Flóa. Hann giftist vorið 1892 Herdísi Jóns- dóttur frá Hrauni í sömu sveit. Þau byrjuðu búskap sama vorið að Hjallakróki í Ölfusi og fluttu síðan búferlum að Grímslæk vor- ið 1904. Konu sína missti hann 5. júní 1928. Þau eignuðust 5 syni og eru fjórir þeirra á lífi og eru þeir þessir: Hermann, hreppstjóri og bóndi, Gerðakoti í Ölfusi; Þorleifur, arkitekt í Reykjavík; Guðjón, bóndi, Grímslæk; Helgi, húsa- meistari í Reykjavík. Eyjólfur var aðalhvatamaður að stofnun rjómabúsins á Hjalla, „Hjallarjómabúsins", en til þess þurfti að útvega lán, því flestir voru þá peningalausir. — Fór Eyjólfur því til Reykjavíkur til að útvega lán í Landsbanka ís- lands. Hann hittir Tryggva Gunn arsson, bankastjóra, og falar af honum nauðsynlegt lán. „Já, pen- inga“, svarar Tryggvi, „ég veit nú ekki hvernig það er“. Hann fer síðan í næsta herbergi og talar við gæzlustjóra og segir honum að hér sé kominn Eyjólfur frá Grímslæk til þess að fá lán. — Gæzlustjóri segir að það sé ó- hætt að lána þeim á Grímslæk og þar með var lánið fengið. Nú var hafizt handa og skil- vindur pantaðar handa öllum bændum í Hjallasókn og komu þær á tilsettum tíma. Þá sögðu gömlu konurnar að mjólkin úr þessum rokkum væri baneitruð. Síðan þurfti að ákveða hvenær hver bóndi skyldi flytja smjörið til Reylcjavíkur, sem miðaðist við skipsferð til Englands, því þar var smjörið selt. Nú kom það fyrir fyrstu sumurin, að bændur neituðu að fara, ef það bar upp á þurrkdag, serp flytja þurfti smjörið og kom það þá venjulega í hlut Eyjólfs að koma því til Reykjavíkur og mun hann þá hafa verið fljótur að taka sig upp í ferðina. Þess má geta að fyrsta sumarið sem búið starfaði fengu fátækustu félagsmennirnir 300— 400 krónur fyrir sumarsmjörið. Til samanburðar má geta þess að 100 kg. sekkur af rúgmjöli kost- minmng aði þá kr. 8.50. Eyjólfur var for- maður Hjallarjómabúsins meðan það starfaði eða til ársins 1912. Hann pantaði allar matvörur fyr- ir félagsmenn og voru þær teknar í einu lagi á hverju vori og send- ar með flóabátnum „Ingólfi" til Eyrarbakka, þar til kaupfélagið Ingólfur var stofnað á „Bakkan- um“. Eyjólfur sat í hreppsnefnd í mörg ár, en átti víst aldrei heima í þeirri nefnd, því hann þverneit- aði að láta flytja til fólk sem var á góðum heimilum og vildi um- fram allt vera kyrrt á sama stað. Eyjólfur á Grímslæk mun hafa verið allra manna kunnugastur á afrétti Ölfus- og Selvogs- hrepps og var því fenginn til að segja til um ýmis örnefni á þess- um slóðum, áður en kort dönsku landmælingamannanna fóru end- anlega í prentun. Hann var ákveðinn á móti Krýsuvíkurveginum, en vildi láta leggja veg austur Þrengsli og niður fyrir austan Vindheima yfir á núverandi veg í Gríms- lækjarhrauni. Hann hélt því fram að síðar væri hægt að leggja Krýsivíkurveginn til gagns og gamans. Nú er Eyjólfur laus undan þeim heljarþunga, sem ellin býður okkur upp á. Hann lézt hinn 4. marz og vantaði því aðeins 11 daga til að ná 90 ára aldri. Kunnugur. Afgreiðslumaður Óskum eftir að ráða ungan reglusaman mann, til af- greiðslu- og verzlunarstarfa. Æskilegt væri að viðkom- andi væri eitthvað kunnugur vélum og vélavarahlutum. Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins fyrir mánudagskvöld 18. marz merkt: „Afgreiðslustarf — 2315“. Til sölu eignarlóð í miðbænum. — Skipti á 2—3 herbergja íbúð koma til greina. Fasfeignasaian Vatnsstíg 5, súni 5535 — Opið kl. 1—7 Storesefni í fjölbreyttu úrvali Aurhfifar Brettahlífar Sólskermar Speglar Ljóskastarar Slýrisáklæði Loftnetssteugur Krómlistar á hjó! Felgulyklar Kertalyklar Rafgeymar Klukkur SNJÓKEÐJUR 560x15 550x16 640x15 c<g keðjuhlekkir Farangursgrindur \P. 5 lejánsson í\f\ Hverjisgatu /03 - simi 3SÓ0 Cluggatjaldavoal Storesblúndur og kogur Gardínubúðin Laugaveg 18 Laugaveg 166 í Reykjavík Ný námskeið í barna- deildum skólans hefjast mánudaginn 18. þ.m., irm- ritun í dag frá kL 2—5 e.h. Upplýsingar í síma 1990. Kennari: Frk. Guðmunda Andrésdóttir listmálari. Silfurtún Höfum til sölu húsgrunn við Silfurtún. Grunnurinn er með uppslegnum steypumótum fyrir sökkul. Ennfremur fylgir teikning, mótatimbur nægilegt fyrir væntanlega byggingu og eitt tonn af steypustyrktarjárni. Sala og samningar Laugavegi 29 — Sími 6916 framtíðarinnar — í dag Meiri gljái á húsgögnin og gólfið — með minni vinnu Silicono Mansion bón gljáir betur en önnur venjuleg vaxbón, vegna þess að það inniheldur í ríkum mæli undraeínið Sihcon*. Þetta bón framtíðarinnar fæst í verzlunum í dag. Reynitf það næst er þer kaupið bón. HVILO Silicone Mansion styttir vinnustundir liúsmóöurinnar. GLJAINN ENNfST LENGNR f>ér bónið sjaldnar, því hinn demant-harði gijái endist í vikur. SPARAR PE9RNGANA Siiicone \ Mansion A X bón sparar heimilispen- ingana, V® • • vegna hv« litiö þér notió til þess aö fá en< garmikinn gljáa. SILIG0NE MANSI0N B0N |» ý ð i r minni vinnu og bjartari og endingarbetri gljáa á gólf og básgoga Alhhba Veckfrcebiþjónusia TRAUSTYf Skólavorðuslig Jð Simi 8 2624- Bókauppboð í Sjálfstæðishúsinu. Bækurnar sýndar í dag kl. 2—7 og kl. 10—4 á morgun. — Seldar kl. 5 þann dag. — Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.