Morgunblaðið - 15.03.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.03.1957, Blaðsíða 16
Veðrið A NA gola. Úrkomulanst en víSa skýjað. ftrmtttMit&ife 62. tbl. — Föstudagur 15. marz 1957 Um íþróHir Sjá t&s. ISL Togoror þvergirðo fyrir nllar fiskgöngur á grunnmið Faxaflóa 80-150 stórir togarar hafa verið hér fyrir utan undanfarið „Liggur eins og ungahæna á úttektinni’ TTEITA iná að togarar séu búnir að þvergirða fyrir Faxaflóa sunnan frá Eldey og norður í Breiðafjörð, en á þessu svæði hafa undanfarið verið milli 80 og 150 togarar. — Segja sjómenn afleiðingu þessa vera þá, að fiskurinn komist ekki inn á grunnmið- in. Hér er mikið vandamál á ferð inni, sagði Sturlaugur Böðvars- son útgerðarm. á Akranesi, er hann ræddi við Mbl. í gærkvöldi. ÚT FYRIR LÍNUNA Þar eð aflinn hefir verið áber- andi minni á miðum Akranesbáta I vetur, þá hafa sjófnenn neyðzt til þess að sækja dýpra. T. d. vestur við Snæfellsnes hafa þeir stundum lagt línuna rétt utan við fiskveiðitakmörkin. TOGARNIR KOMA STRAX Það er segin saga, að hafi bát- arnir komizt í einhvem fisk á þessum slóðum, þá eru togaranir komnir að vörmu spori og byrj- aðir að toga. Hafa bátarnir þá orðið fyrir veiðarfæratjóni í ofan álag á lítinn afla, er „troll“ skip- anna hafa farið yfir línu bátanna. í dag (fimmtudag) inissti einn bátanna um helming línunnar í vörpu eins togara. Var það ms. Heimaskagi. Annað dæmi frá deginum í dag get ég nefnt, sagði Sturlaugur. Einn Keflavíkurbátanna var í morgun n'okkuð fyrir sunnan tog- araskarann og hafði lagt línu sína þar. Var þetta ms. Báran. Þegar fyrir hádegi voru komnir að bátn Verkfallið heldur áfram Sjómenn höfnuðu málamiðlunartillögunni. UM HÁDEGISBILIÐ í gær lauk talningu atkvæða við allsherjar- atlcvæðagreiðslu þeirra sjómanna sem nú eiga í verkfalli á yerzlunarflotanum. Þeir felldu miðlunartillöguna og féllu atkv. þannig að 160 sögðu nei, en 44 samþykktu og k>ks voru þrír seðlar auðir. Skipafélögin samþykktu miðl-' unartillöguna, en eftir þessi úr- slit heldur verkfallið á kaupskipa flotanum enn áfram. Það nálgast nú óðum að verkfallið hafi stað- ið yfir mánaðartíma. Nú sem stendur eru aðeins fjögur skip í flotanum sem ekki hafa stöðvazt vegna verkfalls- ins Eru tvö þeirra í New York: Tröllafoss og Lagarfoss, en munu bæði á förum þaðan og hið þriðja Fjallfoss sem er á leið til landsins og loks er skip S.Í.S., Jökulfell. Fundur í gærkvöldi rpORFI HJARTARSON sáttasemjari ríkisins kallaði í gærkvöldi kl. 9 samninganefndir deilu aðila í sjómannaverk- fallinu á sinn fund niður i Alþingishús. HöfHðtilgangurinn hjá sáttasemjara með þess- um fundi, mun hafa ver- ið að ræða hið nýja við- horf, sem nú hefur skap- azt við að sjómenn hafa fellt miðlunartillöguna. Stóð fundurinn enn yfir er blaðið var búið til prentunar. í gær stöðvuðust tvö skipanna Goðafoss var annað. Kom hann frá Rússlandi með fullfermi og var t.d. með fjölda bíla í köss- um á þilfari, sem voru þar á „tveim hæðum". Arnarfell kom utan af landi og var þegar bund- ið við bryggju. Lítill aíli AKRANESI, 14. marz: ■— Hjá þeim bátum sem komnir eru að dag er aflinn tvær, þrjár og fimm lestir á bát. í gær fengu 23 bátar hérna samtals 105 lestir. um tveir togarar. Þeim fjölgaði eftir því, sem á daginn leið, því þarna var góður afli. í kvöld sagði skipstjórinn á þessum bát, að tilgangslaust myndi að ætla sér að leggja línuna þarna aftur, því þar væri kominn mesti fjöldi togara. Var þessi bátur, eftir síð- ustu fregnum frá honum að dæma, kominn með kringum 15 lesta afla og var þó ekki búinn að draga alla línuna. Einmitt á þessi mið ætluðu Akranesbátar nú í kvöld. ÞÉTTRIÐINN NETJAVEGGUR í dag, sagði Sturlaugur, munu hvorki meira né minna en 100 togarar hafa verið út af Snæ- fellsnesi, en einmitt um þær slóð ir leggur þorskurinn leið sína, er hann gengur hér inn á grunn- miðin. En með slíkum ágangi, er nærri því útilokað, að nokkur fisk ur geti komizt í gegnum hinn þéttriðna netjavegg togaranna. BORGAR SIG TÆPLEGA Er nú svo komið, sagði Stur- laugur Böðvarsson að lokum, að viti bátasjómennirnir af fiski á einhverju svæði, utan við fisk- veiðitakmörkin, þá borgar sig tæplega fyrir þá að leggja línuna þar, því togararnir eru samstund- is komnir á vettvang og er þá ekki að sökum að spyrja. Þessi harði aðgangur svo mik- ils fjölda stórra togara hér við Faxaflóa, segir eðlilega fljótt til sín. Hér er stórkostlegt alvörumál á ferðinni, ekki aðeins fyrir Ak- urnesinga, heldur verstöðvarnar allar hér við Faxaflóa. Því hvað verður um gullkistuna, Faxaflóa, með slíku áframhaldi? Balista lorseti varð- ist með skammbyssu Havana, 14. marz. — Frá Reuter. jnULGENCIO BATISTA forseti Kúba stjórnaði sjálfur vörnum A gegn appreisnarhópi stúdenta er réðist inn í forsetahöllina. Herma fregnir að Batista hafi barizt sem mesti kappi. Voru upp- reisnarmenn hraktir á brott eftir snarpan bardaga. Árásin „Hinn mikli veiðimaður belgir sig út rétt eftir að hann hefur myndað „vinstri stjórn" sína og lofar þjóðinni „úttekt fyrir opnum ijöldum, í augsýn fólksins í landinu". Rannsóknin fer fram. En þá bregður svo við að stjórnin leggst á niðurstöður hennar eins og ungahæna. Það kemur svo í hlut Sjálfstæðismanna, þeirra, sem „úttektin" átti að gera ærulausa, að heyja harða baráttu fyrir því, að stjórnin efni loforð sitt ussk birtinguna!!“ — Mbl. 9. marz sJ. Þjóðviljinn ræðst n hin stjórnar blöðin fyrir nfstöðu þeirrn til A-þýzku verzlunnrshrifstofunnnr Blabib sfaðfestir trásogn D/lbl. MÁLGAGN viðskiptamálaráðherrans, Þjóðviljinn, staðfesti í gær frásögn Morgunblaðsins af stofnun Verzlunarumboðs verzlun- arráðs utanrikisverzlunar Austur-þýzka alþýðulýðveldisins hér í bæ. En þessi austur-þýzka stjómarskrifstofa hefur nú íslands-deild sína í Blöndalshúsi við Austursti-æti. Þjóðviljinn segir svo: „Morgunblaðið hefur að undanförnu haldið uppi fá- víslegri gagnrýni á það að verzlunarráð Austur-Þýzka- lands hefur opnað skrifstofu hér í Reykjavík. Enn furðu- legri hafa þó viðbrögð Tímans á forsetahöllina var gerð um miðnættið og er talið að um 50 stúdentar hafi tekið þátt í henni. Þeir voru m.a. vopn aðir litlum vélbyssum. Komust þeir inn í anddyri hallarinnar. En Batista forseti brá svo skjótt við, að þar voru stúd- entamir stöðvaðir. Sjálfur varðist forsetinn með skamm- byssu og sjálfur hringdi hann í lögreglustöðina, svo að liðs- auki barst skjótlega. 40 manns féllu í þessum átök- um þar af fimm lögreglumenn og miklar skemmdir urðu á for- setahöllinni. Árásarmennirnir voru stuðningsmenn Carlos Prio fyrrum forseta og Fidel Castros, sem stjórnar uppreisnarher á suðurhluta Kúbu. Pilnik vnnn einvígisskák nr. 3 eitir 62 leiki Hefur nú 2 vinninga móti 1 vinning Friðriks í GÆEKVÖLDI tcfldu þeir bið- skák sina Pilnik og Friðrik. Úr- slit urðu þau, að Friðrik gaf í 62. leik. „Mér varð sú skyssa á að gera það, sem ég mátti alls ekki gcra, að gefa kost á drottn- ingarkaupum, en eftir það átti peð Pilniks fría Ieið.“ Staðan er nú þannig, að Pilnik hefur tvo vinninga, en Friðrik enn. 4. skákin verður tefld á sunnudag. Hér á eftir fara leikir biðskák- arinnar. 43. De5t 44. g3 Kg7 45. Kg2 De3 46. Dc7t Kg8 47. Db8t 48. Db7t 49. Df3 50. Kh3 51. g4 52. gxht 53. h6t 54. Df8t 55. Dg8t 56. Dxh7t 57. Df7t 58. h5 59. Kh4 60. Dc7 61. DxD 62. Kh3 Kg7 Kg6 Dd4 eS e4 Kg7 Kxh6 Kg6 Kf5 Kf4 De3 Ddl Df3 Df4t KxD gefið. Mynd af skákstöðunni, eins og hún var er biðskdkin hófst, er á bls. 3. og Alþýðublaðsins orðið, en þau blöð hafa birt langa runu af afsökunum og skýringum af ósmekklegustu tegund, og eru ritstjórarnir einna lík- astir börnum sem ihalds- marnma hefur agað. Hér er sannarlega ekki ástæða til að afsaka neitt. Austur-þýzka verzlunarskrif- stofan er aðeins ánægjulegur vottur þess hversu mjög við- skipti landanna hafa auk- izt--------. Viðskiptin jukust á s.l. ári úr 19 milljónum í 30 milljónir, og fyrirsjáanlegt er að þau munu stórvaxa í ár samkvæmt samningum þeim sem gerðir hafa verið". Er ekki að efa, að þessi trá- sögn Þjóðviljans er birt með samþykki LúSvíks Jósefssonar viðskiptamálaráðherra. Mjög er eftirtektarverður sá munur, sem hér kemur fram í frásögn og túlkun stjómarblaðanna. Tíminn talar enn í gær um „ófrægingar- stríð“. „lygafrétt" og annaS 4 borð við það. En sama daginn staðfestir málgagn viðskiptamála róðherrans frásögn Morgunblaðs- ins og telur opnun „austur- þýzku verzlunarskrifstofunnar" „ánægjulegan vott þess hversu mjög viðskipti landanna hafa aukizt" og „afsakanir og skýr- ingar" Tímans og Alþýðublaðsin* vera af „ósmekklegustu teg- und“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.